Þjóðólfur - 10.07.1891, Blaðsíða 3
127
Brauð yeitt. Bjarnanes sjera Þorsteini
Benediktssyni á Bafnseyri eptir kosningu
safnaðarins.
Fyrirlestur um rjettindi kvenna hjelt
alþingism. sjera Ólafur Ólafsson hjer í
bænum 5. þ. m. Hann líkti kveuníólkinu
við olnbogabörnin, hagur og kjör þess
væri ekki betri í samanburði við kjör
karlmannanna en kjör olnbogabarnanna í
samanburði við kjör eptirlætisbarnanna.
Aðalatriðið, sem hann viltli fá, var, að
veita konum algjört jafnrjetti við karl-
menn, gefa t. d. konum jafiian aðgang að
öllum menntastofnunum, öllum embættum
o. s. frv., og að þessu leyti var fyrirlest-
uriun sannlega orð í tíma töluð.
íltskriiaður úr lærða skólanum 4. þ. m.
Björn Blöndal með 2. eink. 69 stigum.
Crufuskip Slimons Magnetic kom hing-
að 4. þ. m. um kvöldið og með því 2 út-
lendir ferðameun; það fór aptur eptir 2
daga til Skotlands með 521 hross frá þeim
Coghill og Jóni Vídalín. Kptir eru hjer
á annað hundrað hross, sem það gat ekki
tekið í þetta sinn.
Embættispróf í lögfræði við háskólann
hafa tekið auk þeirra þriggja, sem áður
er getið: Ólafur Pálsson frá Akri og
Páll Einarsson frá Hraunum, báðir með
1. eink.
Mannalát. 3. þ. m. andaðist fyrv. sýslu-
maður Stefán Bjarnarson í Gerðiskoti 65
ára að aldri. Hann varð stúdent 1851,
kand. juris 1858 með 2. eink., var sýslu-
maður í ísafjarðarsýslu 1859—1878, í Ár-
nessýslu 1878—1890. Af börnum hans er
Björn sýslum. í Dalasýslu elstur.
Hinn 28. f. m. andaðist hjer í bænum
Jóhannes T. Zoega stýrimaður..
Hinn 18. maí þ. á. ljest í Chicago í Aiflfc-
ríku Páll Eggerz, sonur Pjeturs Eggerz í
Akureyjum.
Landsyfirjettur dæmdi 6. þ. m. Þorvald
Björnsson lögregluþjón í 120 kr. sekt og
málskostnað fyrir að hafa vaðið inn í liús,
tekið þar saklausan mann og sett í liegn-
ingarhúsið og hleypt honum þaðan út apt-
ur upp á sitt eindæmi. í hjeraði var Þor-
valdur dæmdur í 40 kr. sekt.
Stanley skrifaði kaupm. Þorláki Ó. Jolni-
son nú með Magnetic mjög vingjarnlegt
brjef og sendi honum mynd af sjer. Þor-
lákur hafði áður sent honum kvæði á ensku
um hann, skrautritað með nótum af Ben.
Grröndal, og þakkar Stanley honum í brjef-
inu þetta kvæði með fögrum orðum.
Ycrslunarfrjettir frá Khöfn 18. júní:
Haustull í lægra verði, seinast seld á 48 a.
pundið. — Á Englandi hefur nýlega verið
seldur íslenskur saltfiskur (ýsa) á 12 pd.
sterl. smálestin, færeyskur fiskur smár
151/2: pd. sterl., ýsa 12 pd. sterl., í Kaupm,-
höfn liefur færeyskur fiskur stór selst
61 kr., miðlungsfiskur 44 kr., löngur 48
kr. Nýkominn íslenskur saltfiskur norð-
lenskur hefur selst 54 kr., smár 40^2 kr.,
ýsa 32 kr. — Ly'si ljóst gufubrætt 37—
38 kr., ljóst, pottbrætt hákarlslýsi 36—
37 kr. tunnan (210 pd.). — Kindakjöt 55
—56 kr. tunnan (224 pd.). — Tölg 30 a.
pundið. -— Oœrur 5^/g—51/, kr. vöndullinn
(tvær gærur).
Alþingi.
n.
Þingfundir á hverjum degi, í neðri deild
kl. 12, í efri deild kl. 1. — Þingmanna-
frumv. komin 16, frumv. alls með stjórn-
arfrumv. 37, þingsályktunartill. 2. Helstu
störf hingað til nefndarkosningar og störf
í nefndum.
Fjárlagauefnd: Eirikur Briem (kos-
inn með 18 atkv.), Sigurður Jensson (15),
Indriði Einarsson (15), Sigurður Gunnars-
son (15), Skúli Thoroddsen (15), Jón Jóns-
son þm. N.-M. (14) og Jón Þórarinsson
’(14).
Landsreikninganefnd: Ólafur Briem
(19), Lárus Halldórsson (16), Olafur Ólafs-
son (10).
Þingmannafrumvorpin eru þessi:
1. um lausamenn (flutningsmenn Þorlákur
Guðmundsson og Páll Briem). 2. um af-
nám Maríu- og Pjeturslamba (flutningsm.
Jón Jónsson þm. N.-M. og Jón Jónsson
þm. N.-Þ.). 3. um sölu þjóðjarða (fim. Þ.
Kjerúlf og Árni Jónsson). 4. um breyting
á tilsk. um lausamenn og húsmenn á ís-
iandi (Jón Jónsson þm. N.-Þ. og Þ. Kjerúlf).
5. um þókuun handa hreppsnefndarmönu-
um (flm. sömu). 6. um breyting á kon-
ungsúrskurðí 25. ág. 1853 viðvíkjandi Ás-
mundarstaðakirkju í Presthólaprestakalli
(Jón Jónsson þm. N.-Þ.). 7. um breyting-
ai: á lögum um kosningar til alþingis 14.
sept. 1877 (Jón A. Hjaltalín). 8. um breyt-
ing á sveitarstjórnarlögunum 4. maí 1872
(Jón Jónsson þm. N.-M.). 9. um breyting
á lögum 8. jan. 1886 um hluttöku safn-
aða í veitingu brauða (Jón Jónsson þm.
N.-M. og Jón Jónsson þm. N.-Þ.). 10. um
skyldur embættism. að safna sjer ellistyrk
eða útvega sjer lífeyri eptir 70 ára aldur
(Árni Jónsson, Jón Jónsson þm. N.-Þ., Jón
Jónsson þm. N.-M. og Ólafur Briem). 11. um
lækkun eptirlauna (sömu flutningsm.). 12.
um friðun á skógum, hrísi, mosa og lyngi
(Jón Þórarinsson). 13. um breyting á far-
maunalögunum 22. mars 1890 (sami). 14.
um að nema dómsvald hæstarjettar í Khöfn
sem æðsta dóms í ísl. málum úr lögum
(B. Sveinsson og Skúli Thoroddsen). 15.
um þingfararkaup (Jón Hjaltalín, Sighv.
Árnason og Friðrik Stefánsson). 16. um
hækkun á launum bókara og fjehirðis við
landsbaukann.
LausamannaíTumv. fara fram á, aun-
að að afnema vistarskylduna frá 21 árs
aldri og að öðru leyti með líkum skilyrð-
um og í frumv. síðasta þiugs, en liitt, að
hver sem er 25 ára geti keypt sjer lausa-
meunskuleyfi fyrir að eins 10 kr. karl-
maður, en 5 kr. kvennmaður. Nefnd í
þeim málurn Þorlákur, Gunnar, sjera Jens,
Páll Briem, Skúli Thoroddsen.
Þókuun lianda hreppsiiefndarmöiin-
um. Prumv. um það efni ákveður, að
með samþykki meiri hiuta kosningarbærra
gjaldenda megi veita úr sveitarsjóði gjald-
heimtumanni hans 4°/0 af hinu innheimta
og þeim nefndarmanni, sem hefur bók-
færslu og brjefagerð fyrir hreppsnefndina,
allt að 50 kr. árlega sömul. úr sveitarsjóði.
Frumv. um breyting á svcitarstjórn-
arlögunum frá Jóni Jónss. þm. N.-M. fer
fram á, að kosningarrjett og kjörgengi til
hreppsnefnda og sýslunefnda hafi hver oá
(karlm. og kvennfólk), sem er 21 árs, og
verða eptir því bændur, sem mest leggja
til sveitarþarfa, í miklum minni hluta, en
vinnufólk í meiri hluta. Sömul. fer frumv.
fram á að veita hreppsnefndum og sýslu-
nefndum því nær ótakmarkað vald til
fjárveitinga úr sveitarsjóði og sýslusjóði,
án þess að nokkur trygging sje fyrir gjald-
endur gegn gjörræði og óskynsamlegum
fjárveitingum; er óliklegt, að f'rumv. fái í
þessari mynd fylgi á þinginu. Nefnd í
því máli og næsta máli á undan: Jón
Jónsson þm. N.-M., Sig. Stefánsson og Eirík-
ur Briem.
Þingfararkaup á eptir frumv. um það
efni að vera fastákveðið handa öllum þing-
mönnum, miðað við fjarlægð þeirrar sýslu,
þar sem þeir eiga heimili.
Fjárveitingar til búnaðarfjelaga. Til
þess að semja og korna fram með ákveðn-
ar reglur fyrir útbýting þess fjár, sem
veitt er úr Iandssjóði til búuaðarfjelaga,
kaus neðri deild í gær í nefnd þessa 5
menn: Sig. St., Gunnar, B. Sveinss., Pál
Ólafsson, Sv. Eiríksson.