Þjóðólfur - 21.08.1891, Side 2
162
innborgunum og útborgunum samkvæmt
reikningi bankans fyrir livern ársfjórðung.
2. gr. Lög þessi öðlast gildi að því
er framkvæmdarstjóraun snertir, þá ar
hann fullnægir skilyrðum þeim, er lionum
eru sett í 1. gr.
Þingsályktunartillögur hafa margar
fram komið á þinginu. Áður er getið
tveggja, sem samþykktar hafa verið (um
brúargjörð á Þjórsá og uppsigling á
Hvammsfjörð). Síðan hafa verið afgreidd-
ar þessar þingsályktunartillögur:
III. TilVógur við landsreikningana 1888
og 1889. Alþingi ályktar að skora á lands-
stjórnina að hlutast til um: 1. Að fækkað
verði býlum á jörðum landssjóðs í Vestur-
Skaptafellssýslu, jafnóðum og tækifæri
býðst. — 2. Að landsreikuingnum fylgi
árlega aðalreikningur yíir viðskipti íslensku
og dönsku póststjórnarinnar. — 3. Að geng-
ið verði ríkt eptir því, að afborganir af
skuld nokkurra hreppa í Snæfellsnessýslu
sjeu greiddar á rjettum gjalddaga. — 4. Að
gjaldheimtumönnum landssjóðs verði gjört
að skyldu að senda ávísanir uppí landssjóðs-
tekjur til landshöfðingja eigi síðar en svo, að
hann geti komið þeim til ráðgjafans með
síðustu póstskipsferð ár hvert, nema því
að eins að ávísunin eigi að ganga upp í
tekjur, sem síðar falla í gjalddaga, þá sje
hún afgreidd sem fyrst eptir árslok.
IV. Alþingi ályktar að skora á ráð-
gjafa íslands, að hann sjái svo nm, að ís-
landsráðgjafi sitji eigi í ríkissjóði Dana, að
þyí leyti er snertir hin sjerstaklegu mál-
efni landsins.
V. Alþingi ályktar, að skora á lands-
höfðingja, að fá því framgegnt, að lands-
bankinn veiti ián gegn veði í húseignum
í kaupstöðum öðrum en Beykjavík, og
verslunarstöðum landsins, þá er hús þessi
eru vátryggð, en það annast landsbankinn
fyrir hönd lántakanda, sem greiði vátrygg-
ingargjald, það er þarf, fyrirfram ásamt
kostnaði skaðlaust, allt á þann hátt, er
ákveðið yrði ýtarlega með reglugjörð, sam-
kvæmt lögum 18. sept. 1885.
VI. Urn styrkveitingu til búnadarfjelaga.
Alþingi ályktar, að skilyrðin fyrir styrk-
veitingu úr landssjóði til búnaðarfjelaga
og reglurnar fyrir útbýtingu hennar, skuli
vera sem lijer segir.
I. Almenn skilyrði.
1. Styrkurinn skal miðaður við framkvæmd-
ir fjelagsins í þeim jarðabótum, er efla
grasrækt og garðrækt, næsta ár á und-
an því, er styrkurinn er veittur.
2. Ekkert fjelag skal njóta styrks, er eigi
hefur unnið 10 dagsverk fyrir livern
búanda í fjelaginu að meðaltali.
3. Bónarbrjefunum um styrkinn, er stíluð
sknlu til landshöfðingja, skal fylgja
reikningur næsta ár á undan yfir tekj-
ur og gjöld búnaðarfjelags þess, er um
styrkinn sækir, og skýrsla um hin unnu
störf, útgefln af skoðunarmanni, er sýslu-
nefnd eða bæjarstjórn hefur útnefnt.
Skal í skýrslunni tekin fram stærð
hverrar jarðabótar, og engin jarðabót
tekin til greina nema hún sje vel af
hendí leyst. Aðgjörðir á gömlum jarða-
bótum má ekki telja fram, og eigi held-
ur þær jarðabætur, sem áskildar eru í
byggingarbrjefum. Skýrslur skoðunar-
manna skulu samdar eptir formi, er
landshöfðingi gefur út.
II. Reglur.
1. Þessar jarðabætur skulu teknar upp í
skýrslurnar:
a) Varnargarður um tún, engi, fjárbæli
og matjurtagarða.
b) Stíflugarðar.
c) Þúfnasljcttur.
d) Flatarmál matjurtagarða (í fyrsta
sinn sem þeir eru ruddir);
e) Skurðir til vörslu, framræslu og vatns-
veitinga;
f) Lokræsi;
g) Áburðarsafnshús og f'orir.
2. Jarðabætur skulu lagðar þannig í dags-
verk:
a) Varnargarðar:
úr grjóti 3^/g fet á hæð
einhlaðnir ... 3 faðmar
tvíhlaðnir . . . l1/^ —
úr torfl 41/., fet á hæð 5 —
b) Stíflugarðar .... 250 ten.fet.
c) Þúfnasljettur:
Unnar með plóg og herfi 15 □ faðm.
Unnar meðhandverkfær-
um...................10 □ —
d) Flatarmál matjurtagarða 25 □ —
e) Varnarskurðir:
3. ál. breiðir, 1 al. á dýpt, 300 ten.fet.
f) Skurðir til framfærslu og
vatnsveitinga .... 400 —
g) Lokræsi...............3 faðmar.
h) Áburðarsafnhús og forir
(lögheldar)............50 ten.fet.
VII. Neðri deild alþingis ályktar að skora
á ráðgjafa íslands, að hlutast til um, að
það verði borið fram við erlend ríki, hvort
og að hve rniklu leyti þau kynnn að vilja
styðja að því, sjerstaklega veðurfræðinnar
vegna að lugður verði frjettaþráður (tele-
graph) til íslands.
VIII. Um kennaramenntun.
Alþingi ályktar að skora á landsstjórnina
að hlutast til um, að kennsla í uppeldis-
fræði með verklegum æfingum fari fram
á næsta fjárhagstímabili við alþýðu- og
gagnfræðaskólann í Flensborg, og semur
landshöfðingi reglugjörð fyrir kennsluna.
IX. Um gagnfrœðakennslu í lærða skól-
anum o. ft.
Alþingi ályktar að skora á landsstjórn-
ina að sjá um, að gagnfræðakennsla kom-
ist á við lærða skólann; að latíua verði
eigi heimtuð til inntökuprófs í lærða skól-
anum, og að lærisveinar Möðruvallaskól-
ans, er tekið hafa burtfararpróf í þeim
skóla, fái rjett til að verða teknir próf-
laust inn í lærða skólann.
I(járlagafrumvarpið komið gegn um
efri deild. Allar tillögur nefndarinnar, sem
getið var um í síðasta blaði, voru samþykkt-
ar, og auk þess við 3. umr. í gær til skóla-
iðnaðar við Flensborgarskólann alls 1600 kr.
á fjárhagstímabilinu og til kennara Halldórs
Briems 300 kr. fyrra árið til að gefa út
kenuslubók í þykkvamálsfræði. Frv. geng-
nú aptur til neðri deildar.
Cræslustjori bankans kosinn í neðri
deild Eiríkur Briem með 16 atkv.
Græslustjóri Söí'nunarsjóðsins kosinn
í neðri deild Björn Jensson kennnari með
17 atkv.
Fallin frumvörp. 34. um breyting á
lögum 19. febr. 1886 um utanþjóðkirkju-
menn fellt í einu hljóði frá 2. umr. í efri
deild í gær. 35. um stofnun háskóla á
íslandi fellt í efri d. með 6 á móti 5.
Telcgrafar og telefónar. Felld hefur
verið í neðri deild með 10 á móti 8 svo
hljóðandi þingsályktunartillaga frá Skúla
Thoroddsen og Jens Pálssyui:
Neðri deild alþingis ályktar, að skoraá
ráðgjafa íslands, að leggja fyrir alþingi
1893 sundurliðaða áætlun, samda af verk-
fræðingi, um kostnað bæði við lagningu
frjettaþráða (telegrapha) og við lagningu
málþráða (telephona) með hæfilega mörgum
millistöðvum milli Reykjavikur og ísafjarð-
ar, milli Reykjavíkur og Akureyrar, og
milli Akureyrar og Seyðisfjarðar.
Ölvesárbrúin. Þingsályktunartillaga
um að skora á landsstjórnina að hlutast til
um, að nægilega trygg gæsla verði sett
við Ölvesárbrúna, þegar er brúin verður
afhent til afnota, var felld í neðri deild í
gær með 12 á móti 10.