Þjóðólfur - 28.08.1891, Blaðsíða 2
166
veðrjetti, þangað til jarðarverðið er greitt
að öllu. Geí'ur kaupandi út skuldarjef
fyrir þeim hluta jarðarverðsins, sem ekki
er greiddur, um leið og kaupin eru gjörð,
og skal það samið eins og skuldabrjef, er
gefin eru út fyrir ómyndugra fje.
4. gr. Stjórninni veitist og heiraild til
þess að selja spítalaeignina Kaldað irnes í
Árnessýslu með hjáleigum: a. Höskulds-
stöðum, b. Mosastöðum, c. Magnúsfjósum,
d. Valdastöðum, e. Móakoti, f. Ilreiðurborg
og g. Miðhúsum, og með Kaldaðarnes-
kirkjujörðunum: a. Kálfliaga og b. Lamba-
stöðum, fyrir að minnsta kosti 10,000 kr.
með sömu borgunarskilmálum, sem nefnd-
ir eru í 3. gr. þessa frumvarps.
5. gr. Heimild sú, er til sölu þessarar
er veítt, gildir að eins til 31. des. 1894.
XXVII. Fjárlöff fyrir árin 1892 og 1893.
Hjer skulu nefndar helstu fjárveitingar,
eins og þær urðu að lyktum. Til búnað-
arskólans í Ólafsdal 2500 kr., á Hólum
3500, Eiðum 2000, Hvanneyri 2000, til
búnaðarfjelaga 12000, til Hermanns Jónas"
sonar til að gefa út búnaðarrit allt að
240 kr., til sjera Odds Gíslasonar til að
halda áfram að leiðbeina mönnum í ýmsu,
sem lítur að sjósóknum og fiskiveiðum
300 kr., til að gefa út kennslubækur fyrir
búnaðarskóla 300, til laxaklaks í Dala-
sýslu 200, til sýslunefndar ísafjarðarsýslu
til að koma á fastan fót ábyrgð áþilskip-
um á Vestfjörðum fyrra árið 4000, fjeð til
póstfiutninga aukið upp í 34000, til veg-
fræðings síðara árið 3000, til að bæta vegi
á aðalpóstleiðum 30000, til fjallvega 3500,
til að koma tveim svifferjum á Hjeraðs-
vatnaósana í Skagafirði fyrra árið 2400
með því skilyrði, að sýslufjelagið leggi til
það fje, er vantar til þessa fyrirtækis-
Til strandferða allt að 21000 kr. með þess-
um skilyrðum:
„1. Að strandferðunum verði hagað ann-
aðhvort svo:
a. að póstskip fari um miðjan mars frá
Reykjavík til ísafjarðar og þaðan aptur
til Reykjavikur; b. að póstskip fari 5 ferð-
ir norðan um land til Reykjavíkur og 5 ferð-
ir norður um land frá Reykjavík um sama
leyti sem yfirstandandi ár og, auk þeirra
staða, er póstskipin á yfirstandandi ári
koma við á, komi það þá í 1. ferðinni til
og frá Reykjavík við á Húsavik og Stykkis-
hólmi eða Flatey, í 2. ferðinni til og frá
Reykjavík við á Fáskrúðsfirði, Hofsós og
Borðeyri; í 3. ferðinni, er gengnr frá Rvík
sunnan um land til Berufjarðar í júnímán-
uði, komi skipið við, ef veður leyfir, inn-
an við Garðsskaga; á leiðinni frá Beruíirði
norður um Iand í sömu ferðinni á Eski-
firði, Vopnafirði, Húsavík og Ólafsvík; og
á leiðinni frá Reykjavik á Ólafsvík, Borð-
eyri og Húsavík; í 4. ferðinni til og frá
Reykjavík komi það við á Fáskrúðsfirði,
Hofsós, Borðeyri og Flatey, og í 5. ferð-
inni til Reykjavíkur komi það við á Borð-
eyri; en í sömu ferð frá Reykjavík komi
það við á Flatey, Sauðárkrók og Fáskrúðs-
flrði, og haldi þaðan til Reykjavíkur um
miðjan október; c. að póstskip fari suemrna
í mai frá Reykjavík til ísafjarðar og það-
an aptur til Reykjavíkur og komi í báð-
um leiðum við á Breiðafirði; d. að póst-
skip fari um miðjan maí frá Rcykjavik til
Austfjarða; e. að póstskip fari síðari lilut
júlímánaðar frá Reykjavik til ísafjarðar og
þaðan aptur til Reykjavíkur og komi á
báðum leiðum við á Breiðafirði; f. að póst-
skip fari í júlímánuði frá Austfjörðum til
Reykjavíkur og frá Reykjavík til Austfjarða
sunnan um land; g. að póstskip komi við
á Soyðisfirði, Eskifirði og Fáskrúðsfirði og
ef veður leyfir innan við Garðskaga á leið
til Reykjavíkur seint í september;
eða svo:
а. að póstskip fari 3 ferðir norðan um
land til Reykjavíkur og 3 ferðir norður
um land frá Reykjavík um sama leyti sem
1., 3. og 5. strandferð yfirstandandi ár, og
með sömu viðkomustöðum; b. að póstskip
fari 6 ferðir fram og aptur milli Reykja-
víkur og ísafjarðar sem næst samkvæmt
áællun á þingskjali 461; c. að póstskip
fari 6 ferðir fram og aptur austur og
norður um land milli Reykjavíkur og Borð-
eyrar, sem næst samkvæmt áætlun á þing-
skjali 462. — Til ferðanna í staflið a. og
1., 2., 3. og 5. ferðar í staflið b. sje varið
9000 kr., en til ferðanna í staflið c. og til
4. og 6. ferðar í staflið b. 12000 kr.
2. Að strandferðaskipin hafi tvenn far-
þegarúm, hið æðra fyrir eigi færri en 30
farþega og hið óæðra fyrir um 50 far-
þega.
3. Að milli haf'na hjer á landi megi
farþegar á þilfari og liinu óæðra farþega-
rúmi liafa fæði með sjer.
4. Að farþegagjald og flutningsgjald
milli hafna hjer á landi verði eigi sett
hærra, en verið hefur að undanförnu.
5. Að fargjald hafna á milli á íslandi
sje ódýrara, ef borgað er í einu fyrir að
fara með skipinu fram og aptur í sömu
ferð.
б. Að útgjörðarmenn skipanna taki á
móti lögsókn í Reykjavík i öllum þeim
málum, er rísa út aí póstskipsferðunum
og flutningum með þeim“.
Til 5 gufubáta (á Yestfjörðum, Breiða-
firði, Bbtxaflóa, Austfjörðum og með suður-
ströud landsins) 3000 til hvers með því
skilyrði, að lilutaðeigandi sýslufjelög og
bæjaríjelög leggi til gufubátsferðanna J/*
á móti 8/4 úr landssjóði. Einum aukalækni
við bætt, í Ólafsvik. Til kvennaskólans í
Rvík 1800, á Ytriey 2000, á Laugalandi
1200, og auk þess til skólanna á Ytriey
og Laugalandi 2000 til skipta milli þeirra
eptir nemendafjölda 0. fl. Til barnaskóla
4000, til sveitakennara 4000, til kennara-
fræðslu við I’Iensborgarskólann 500, til
skólaiðnaðar 1100 fyrra árið, 500 síðara
árið, til sundkennslu alls 1500 fyrra árið,
1000 síðara árið. Til Þorvaldar Thoroddsens
1000. Til 2 manna til að búa sig undir
að verða dýralæknar á íslandi 1200, ferða-
styrkur til læknis Ásgeirs Blöndals 1200
fyrra árið, ferðastyrkur til cand. med. Guð-
mundar Magnússonar 1200 fyrra árið,
ferðastyrkur til cand. polyt. Sigurðar Tlior-
oddsen 1200 fyrra árið, til cand. tlieol.
Hannesar Þorsteinssonar til að koma skipu-
lagi á landsskjalasafnið og lialda áfraui
skrásetning yfir það 600, til cand. mag.
Boga Melsteð til að safua til sögu íslands
600, til tannlæknis 0. Nickulins 500 til
að halda áfram tannlækningum hjer á
landi, til Björns Ólafssonar læknis á Skipa-
skaga 500 til að halda hjer áfram augna-
lækningum, til kennara Halldórs Briems
300 kr. fyrra árið til að gefa út kennslu-
bók í þykkvamálsfræði, til Torfhildar Holm
til ritstarfa 500, til sjera Matthíasar Joch-
umssonar 600. — Allar upphæðirnar bæði
árin, nema annars sje getið.
Alþingi slitið í fyrra dag kl. 4. Lög
frá þinginu eru 31. Felld lagafrumvörp
eða tekin aptur 41; ekki útrædd 14. Þings-
ályktanir samþykkfcar 19, en 5 felldar og
1 óútrædd. Fyrirspurnir hafa tvær komið
fram.
Fallin frumvðrp. Þessi frumv. liafa
fallið eða verið tekin aptur auk þeirra,
sem áður er getið: 35. um að sclja jörð-
ina Miðskóga i Miðdalahreppi, tekið aptur.
36. um lausamenn, tekið aptur. 37. um
þingfararkaup alþingismanna, fellt í neðri
deild. 38. um breyting á lögum 19. febr.
1886 um utanþjóðkirkjumenn. 39. um
stotuun háskóla á íslandi. 40. um bruna-
bótatrygging á islenskuin kaupstöðum,
verslunarstöðum 0. fl.; þessi 3 síðasttöldu
felld í efri d. 41. um afnám opins brjefs