Þjóðólfur - 11.09.1891, Síða 2

Þjóðólfur - 11.09.1891, Síða 2
174 sem hafði þá náttúru, að níundu hverja nótt drupu af honum 8 hringir jafnhöfgir og óskaði, að á líkan liátt drypi af þessari brú innan skamms álíka margar brýr yf- ir þær ár landsins, er valda mestum farar- tálma. Eptir það fór liann nokkrum blessunar- og bænarorðum um brúna og framtið þjóð- arinnar og lýsti að lyktum yíir að brúin væri opin og heimil til umferðar hverjum sem vildi. Prósessían. Þegar landshöfðingi hafði lokið ræðu sinni, gengu menn í prósessíu yfir brúna. Fór hornleikendaflokkur Helga kaupmanns Helgasonar fyrir og ljek á horn. Þá kom landshöfðingi, frú hans, Tr.Gfunnarson og síð- an hver af öðrum. Fjórir menn tóku að sjer að telja þá, sem færu yfir brúna, og voru þeir rúmlega 1500 að töiu; tilætlunin var, að allir, sem viðstaddir voru, gengju í prósessíunni yfir brúna, en það varð þó ekki. Margir voru, sem eigi gerðu það, og giskuðu menn á, að þeir hefðu verið að minnsta kosti 200 til 300, og sumir hjeldu enda, að þeir hefðu verið fleiri, svo að það má fullyrða, að alls hafi verið við- staddir um 1800 manna. Lýsing á brúnni. Brúin er hengibrú, sem hangir neðan í snúnum, margþættum og digrum járn- strengjum, sem þandir eru yfir ána, þrír á hvora hlið. Járnstrengir þessir hvíla á stöplum beggja megin árinuar; eru þeir að neðan hlaðnir úr grjóti og múraðir, en ofan á grjótstöplunum eru ll]/2 al. háir járn- stólpar eða stólpagrindur, og á þeim hvíla uppihaldsstrengirnir. Að vestanverðu er hamar, sem hærra ber á en að austaiiverðu; vestan megin er grjótstöpullinn því lægri, um 2 áln. á hæð, að lengd 12 áln. og breidd 6 álnir. Austan megin er grjótstöpulliun 9^/íj al. á hæð, 14 álnir á lengd og 6 álnir á breidd. 60 álnir á landi uppi frá þeim stöpli er annar grjótstöpull, 8 ál. á hæð og stór um sig, hlaðinn eða öllu lieldur steyptur utan um akkeri, sem endarnir á uppihalds- strengjunum eru festir í. Að vestanverðu eru tveir sams konar grjótstöplar steyptir ut- an um akkerin þeim megin. Úr uppi- haldsstrengjunum ganga niður í brúar- kjálkana járnbönd mörg með stuttum millibilum, og liangir brúin í þessum bönd- um. Milli brúarkjáikanna, sem eru úr járni, eru járnslár margar og yfir þær er lagt gólfið úr plönkum; gölfið er hið eina, sem er úr trje, en að öðru leyti er öll brúin úr járni. Járnið í heuni vegur um 100,000 pund, en í gólfið þurftu 100 tylptir af plönkum, og 72 trje. Brúin á að geta borið 144000 pd. Ölvesá er 112 álnir á breidd, þar sem brúin er; stöplarnir sem uppihaldsstreng- irnir hvíla á, eru ekki fast fram á árbakk- anum, að austanverðu 3 álnir frá brúninni; auk þess heldur brúin áfram af þ'eim stöpli austanmegin árinnar 60 álnir frá honum á land upp yfir á akkeraklettinn; er það gjört, af því að áin flæðir þar opt langt á land upp og mundi því opt verða ófært að brúnni þeim megin, ef brúin næði eigi nema rjett yfir ána, eða ef trjebrú væri höfð þar yfir bakkann, mundi áin brjóta liana af. Alls er hengibrúin þannig 180 álnir dansk- ar. Auk þess er um 20 álna löng trjebrú austur af' henni. Brúin er 4 álnir á breidd; beggja megin er 2 álna hátt handrið úr járni. Hengibrúin er öll máluð rauð, en trjebrúin austur af hvítmáluð. Frá brúnni eru 20 álnir niður að vatninu og veltur áin þar fram jökullituð og ægileg. Var ekki trútt um, að sumum ógaði við að ganga yfir brúna og líta niður í grængolandi liyl- dýpið, og það því freinur, sem brúin dúar undir fæti og sveigist til hliðanna, ef hvasst er, en þennan hliðarslátt á að taka af lienni með hliðarstrengjum, sem eiga að koma að ári og veittar voru til 3000 kr. á þinginu í sumar. Kostnaðurinn o. fl. 60000 kr. hafa verið lagðar til brúar- arinnar, þar af 40000 kr. sem beinn styrkur úr landssjóði og 20000 kr sömuleiðis úr landssjóði sem lán til sýslufjelaga Árnes- og Rangárvallasýslu og jafnaðarsjóðs Suð- uramtsins, er þau eiga að endurborga á 45 árum. Fyrir þessar 60000 kr. tók kaupstjóri Tryggvi Gunnarsson að sjer að koma upp brúnni; aðrir buðust ekki til þess fyrir svo litið. Ef allt hefði gengið eptir óskum og engin óhöpp komið fyrir, hefði liann vel staðið sig við það. En ýms atvik og örðugleikar við þetta fyrirtæki hafa valdið því, að hann hefur liaft af því nokkurn skaða, hve mikinn er oss ekki kunnugt. Brúin er smíðuð í Englandi og flutt hing- að til lands alsmíðuð í stærri og smærri st.ykkjum. Járnið í brúna varð nokkrum þúsundum króna dýrara, en ef það liefði verið keypt svo sem liálfu ári áður, og mun það hafa verið drætti eða seinlæti frá stjórnarinnar hálfu að kenna, að járn- ið varð eigi keypt, er það var í lægra verði. Brúin kom á gufuskipi frá Englaudi í fyrra sumar og átti það að leggja liana af sjer á Eyrarbakka, en þá leyfði eigi veð- ur skipinu að leggjast þar að, svo að það varð að flytja liana til Reykjavíkur; varð þvi að leigja skip með hana austur á Eyr- arbakka, sem var mikill kostnaðarauki. í vetur var svo brúnni ekið frá Eyrar- bakka að brúarstæðinu, og gekk það allt vel. í fyrra sumar var Tryggvi Grunnars- son alllengi með nokkra menn við brúar- stæðið að lilaða stöplana beggja megin ár- innar. En í sumar liafa með Tryggva Gunnarssyni verið til þess að koina henni á ána tveir útlendir ingeniörar, annar danskur, Riperda að nafni, til umsjónar frá stjórnarinnar liálfu, en hinn enskur, Yaughan að nafni, ásamt 6 enskum verka- mönnum, sem allir komu hingað snemma í júní og fóru ásamt Yaughan aptur með Lauru seint í f. m., en Riperda er lijer enn. Öllum, sem til þekkja, kemur samau um, að Tr. Guuuarsson hafi látið sjer einkarannt um, að þetta verk yrði vel af heiidi leyst, brúin sem tryggust og rambyggilegust. Hann liefur og sýnt það með blaðagrein- um sínum um brúarvörð, að honum er annt um, að brúin mætti ekki illri með- ferð og að hún endist sem lengt. Ætti það, þótt enginn verði brúarvörður- inn, með öðru fleiru að vera mönnurn á- minning um að ríða eigi hart yfir brúna, skemma hana ekki og fara að öðru leyti sem gætilegast með liana, enda ætti slíkt að vera hverjum manni ljúft af sjálfsdáð- um, er þeir athuga, hversu nytsamleg brúin er og hve mikið hún hefur kostað. Yegurinn að brúnni. Alfaravegurinn austur hefur hingað til legið annarstaðar að Ölvesá en þar sem brúin er nú komin á liana. Þess vegna varð að leggja veg að brúnni að vestan- verðu; hefur verið byrjað á því í sumar; vagnvegur góður er kominn kippkorn frá Ingólfsfjalli áleiðis að brúnni, og verð- ur þeim vegi lokið að ári; til þeirrar vega- gjörðar voru veittar 5000 kr. með fjárauka- lögum á þinginu í sumar. IJm 20 ár hefur þetta brúarmál verið á dagskrá keima í hjeraði og á alþingi. Fyrir 20 árum lijer um bil var í Árnes- og Rang- árvallasýslum farið að kreyfa því að koma brúm á Þjórsá og Ölvesá. Á sýslufuudi að Stórólfshvoli 21. máí 1872 kom sjera Hannes heitinn Stepheusen fram með uppástungu um það; var þá kosin 9 manna

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.