Þjóðólfur - 16.10.1891, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 16.10.1891, Blaðsíða 1
Kamur Ut ð. föstudös- um — Yerö árg. (60 arka) 4 ltr. Erlendis 5 kr. — Borgist fyrir 15. jfili. ÞJÓÐÓLFUR Uppsögn skrifleg, bundin við áramót, ógild uema komi til fitgefandí'. fyrir 1. oktðber. XLIII. árg. Kvennfólkiö í Ameríku. Bptir prófessor James Bryce. II. Um skólamenntun kvenna mætti segja margt, en rúmsins vegna geta það ekki orðið nema nokkrar athugasemdir. Hið opinbera annast um, að stúlkur fái jafngóða kennslu sem piltar. Barnaskól- arnir eru auðvitað jafnt fyrir stúlkubörn sem drengi. Gagnfræðaskólar og æðri skólar taka á móti bæði stúlkum og pilt- um, stundum í sama húsi eða jafnvel í sömu bekkjarberbergjum, en stundum sín- um í hverju húsi, en kennslukraptarnir og kennsluáhöldin eru þó jafnan eins fyrir hvortveggja. Flestar kaupmanna- og em- bættismannadætur, einkum í ríkjunum vest- an til, fá skólamenntun sína í þessum epinberu skólastofnunum, og það, sem er merkilegast, er, að miklu fleiri kvennmenn en karlmenn halda áfram námi í æðri skólum, bæði þeim, sem leggja aðaláhersl- una á gömlu málin, og þeim skólum, þar sem gagnvísindi einkum eru stunduð. Karl- mennirnir taka fyrir einhverja atvinnu- grein og halda því eigi námi sínu eins lengi áfram og kvennfólkið, sem hefur betra færi á því. Það hefur opt heyrst talað um, að hindrunarlaus aðgangur að ókeypis kennslu í fyllsta mæli hefði þann ókost í för með sjer, að dætur hinna efna- minni foreldra kæmust upp fyrir verksvið og starfsvæði, sem efni þeirra binda þær við; þær yrðu óánægðar með stöðu sína °g hugur þeirra hneigðist að mörgu, sem þær gætu ekki veítt sjer. Háskólamenntun geta ungar stúlkur fengið í Austurríkjunum í sjerstökum há- skólum, sem eingöngu eru ætlaðir fyrir kvennmenn, en í Vesturríkjunum í ríkis- háskólum, sem venjulega gefa kvennmönn- um jafnt og karlmönnum kost á að fá ó- keypis kennslu. Það eru einnig til prívat- háskólar, þar sem kvennmenn og karlmenn njóta kennslu í sameiningu, en búa sitt í hverju lagi, karlmenn sjer og kvennmenn sjer. Jeg skal ekki fara út í að rannsaka verkanir þessarar samkennslu karlmanna °g kvonnmanna, heldur fara nokkrum orð- Jleykjavík, föstudaginn 16. október 1891. um um, hvað mjer hefur verið sagt um þetta málefni. Samkennsla karla og kvenna hefur reynst ágætlega í kennslustofnunum, sem eru eins og kennslustofnanirnar í Antioch og Oderlin í Ohio, þar sem lifnaðarhættir manna eru einfaldir og óbreyttir, þar sem allir nemendurnir eru úr þeim stjettum, þar sem umgengni milli ungra manna og ungra stúlkna er hispurslaus og náttúrleg og þar sem menn eru yfir höfuð trúrækn- ir. Engin ósiðsemi hefur leitt af sam- kennslu karla og kvenna. Hvorirtveggja, karlmenn og kvennmenn, hafa góð áhrif hverjir á aðra; karlmennirnir verða kurt- eisari í framgöngu og kvennmennirnir rösklegri og einarðari. Við og við kemur það fyrir, að karl- og kvennstúdent fá ást hvort á öðru og giptast, er þau hafa lok- ið prófi. Hví ekki það ? Þess konar hjónabönd kvað verða því nær ævinnlega hamingjusöm, enda þekkja þau, karlmaður- inn og kvennmaðurinn, hvort annað miklu betur en annars á sjer stað að ölium jafn- aði. í Vesturríkjunum er einnig látið vel af samkennslu karla og kvenna við há- skólana. Þar búa stúdentarnir venjulega hvar sem þeir vilja í borginni og hittast því ekki, nema í kennslustundunum í há- skólunum. Á síðari árum hafa menn þó farið að útvega kvennstúdentunum sjer- staka bústaði, en karlstúdentarnir eru látn- ir eiga sig sjálfir. Það er ekki höfð mik- il umsjón með stúdentum, af því að þess kvað ekki vera þörf. Á einstaka stað varð jeg var við, að karlstúdentunum var ekki um samkennslu karla og kvenna og að þeir vildu heldur vera út af fyrir sig. Það hefur líklega verið af óánægju yíir því, að karlstúdent, sem var i litlu áliti meðal karlstúdentanna, gat orðið í mikl- um metum meðal kvennstúdentanna. í Vesturríkjunum er umgengni milli ungra stúlkna og ungra karlmanna mjög frjálsleg, og hinar ungu stúlkur gæta sín svo vel sjálfar, að það er á engan hátt talið ísjárvert. En menn hefur greint mjög á um, hvort þessi tilhögun, sem hef- ur reynst svo vel í Vesturríkjunum, er lieppileg eða ekki í Austurríkjunum, þar sem allt er líkara því, sem tíðkast í Ev- rópu. Það er að minnsta kosti ekki nauð- Kr. 48. synlegt að taka upp samkennslu karla og kvenna við háskólana í Austurríkjunum, því að þar eru fyrir víst 4 kvennháskólar, þar sem kvennmenn geta fengið ágæta menntun. Háskólar þessir eru í miklu á- liti og nemendurnir eru að mörgu leyti frjálsari en sæma mundi þykja við háskóla, sem sóttir væru bæði af karl- og kvenn- stúdentum, svo að engin breyting verður á þessu þar fyrir það fyrsta. Það er auðsætt af því, sem að framan er sagt, að kvennfólkið í Bandafylkjunum fær meiri og betri skólamenntun en í nokkru landi í Evrópu og að hún er skoð- uð þar alþjóðlegt málefni langt um meir en annarstaðar. Þessum kostum og þeim anda, sem er undirrót þeírra, má þakka mikið af þeim áhrifum, sem kvennfólkið hefur þar í landi. Það finnur, að það er óháð- ara og hefur sterka meðvitund um þýð- ingu sína andlega og líkamlega. Sá sið- ur að láta drengi og stúlkur ganga sam- an í skóla, hefur lík álirif, þar sem kvenn- fólkið er sett jafnfætis karlmönnunum í því að afla sjer menntunar og hvorttveggja fær fleiri sameiginleg áhugamál. Þessi samkennsla gerir mjer vitanlega kvennfólk- ið engan veginn ókvennlegt eða nemur burt mismuninn á siðferðislegum og and- legum eiginlegleikum þess og karlmann- anna. Náttúran er nú einu sinni nógu sterk til að viðhalda lundernismismun, sem hún hefur skapað, jafnvel þótt þau atvik komi fyrir, sem ætla mætti að kynnu að veikja þennan mismun. Almenningsálitið eða venjan veitir kvenn- fólkinu í Ameríku meira frelsi til að gjöra það, sem það vill, og fara hvert sem það vill, heldur en í nokkru landi í Evrópu. Enginn tekur til þess, þótt kvennmaður ferðist alein yfir þvera Ameríku eða að ung stúlka af heldra fólki gangi ein á götunni í borgunum. Ef einhver kvenn- maður tekur eiuhverja atvinnugrein fyrir, sem að eins karlmenn liafa fengist við áð- ur, er tekið miklu minna til þess en í Evrópu. Þó eru menn i Austurríkjunum naumast eins frjálslyndir í þessu efni sem í Vesturríkjunum. Umgengni milli ungra manna og ungra stúikna i samkvæmum er alstaðar frjáls- legri og viðhafnarminni, en á Englandi og

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.