Þjóðólfur - 24.12.1891, Page 2
246
Joli. Schmidt hafa tekið fram (í Grundriss
d. germ. Philol. og í Gesch. d. indogerm.
Vokalismus). Hitt er meira vert, að enn
í dag er setningaskipun, orðaskipun, orða-
lag og orðatiltæki svo nauðalíkt með ensku
og íslen'sku, að danska og sænska standa
optast fjær íslensku en enskan, þegar að
er gætt. Líti menn í orðabók Sábyes
(Dansk Retskrivningsordbog, 1891); meir
en helmingur af öllum algengustu orðum
í dönsku er lánaður úr lágþýsku á miðöld-
unum. Og líkt er um sænsku. Þýska-
land var menntabrunnur fyrir Danmörk;
Oldenborgarættin og hirðin skildi lengi
vel ekki dönsku og þýskan sat í hásæti
fram á þessa öld. Af þessu má sjá, að enska
er oss eins nákomin fyrir það, þó Vilhjálm-
ur bastarður hafi borið í hana tjölda af
frönskum orðum. Hún er enn í dag ís-
lenskari en nokkurt mál, að Norðurlanda-
málum undanþegnum, og þó í sumu þeim
islenskari.
Enska er auðugra mál, á fleiri orð í
eigu sinni en nokkurt annað dautt eða
lifandi mál. Hún á fyrir flestar hugmynd-
ir 3 orð, nfl. fornenskt, franskt og latn-
eskt orð. Kemur þetta til af því, að hin
ágætustu mál hins nýja tíma, hin róm-
önsku og germönsku mál, hafa vökvað
sjer blóð og látið það renna saman, hafa
hundist í fóstbræðralag á Englandi. Jacob
Grimm ritaði 1852 (í Úber den Ursprung
der Sprache): „Aðalskáld hins nýja tíma
andspænis fornöldinni, Shakespeare, orti
á ensku, enda virðist forsjónin hafa ætlað
því máli að drottna yfir allri jörðinni, því
ekkert mál er jafnauðugt og skynsamt og
kröptugt og það er“.
Hvað ætli Jacob Grimm segði, ef hon-
um yrði litið upp úr gröf sinni og hann
sæi, hvernig vöxtur og vegur enskunnar
:fer dagvaxandi? (Meira seinna).
Eldur kom upp hjer í bænum á laugar-
dagskveldið var í geymsluhúsi járnsmiðs
Þorsteins Tómassonar; þar er undir lopti
smíðaklefi og var gengið frá olíulampa,
sem hjekk neðan í loptinu, án þess að
slökkt væri á honum; en þegar að var
komið aptur að vörmu spori, var kviknað
í klefanum og eldurinn læsti sig óðara upp
i hey, sem var uppi á loptinu. Eptir
skamma stund tókst slökkviliðinu að slökk-
va eldinn; húsið skemmdist talsvert og
heyið sömuleiðis.
Prjedikanir í dómkirkjunni á hátíð-
unum:
Aðfangadagskveld jóla: sjera Rikarð Torfason.
Jóladag kl. IX: Biskupinn.
Jóladag kl. V/2 (dönsk messa): Dómkirkjuprestur-
inn.
Annan dag jóla : Dómkirkjupresturinn.
Gamlaárskveld: kand. Sæm. Eyjólfsson.
Nýársdag: Dómkirkjupresturinn.
AUGLÝSINGAR
i samfeldu máli með smáletri ltosta 2 a. (þakkaráv. 3 a
hvert orð 15 stafa frekast; með öðru letri eða setning
1 kr. fyrir þumlung dálks-lengdar. Borgun út i hönd.
X dag1
sel jeg með niðursettu verði alls konar
gull- og silfnrstáss, vasaúr,
úrkeðjur, gleraugu og
s a u m a v j e 1 a r n a r,
þessa ágætu kjörgripi, sem ættu að vera
á hverju heimili, því þær eru betri en
nokkrar aðrar saumavjelarj sem nú eru i
brúki.
Úrverslun lteykjavíkur,
Suðurgötu nr. 13.
479 Teitur Ingímundarson.
í Reykjavíkur Apóteki fæst:
Sherry fl. 1,50. Portvín hvítt 2,00; do.
rautt 1,65. Malaga 2,00. Madeira 2,00.
Pedro Ximenes 3,00. Whisky 1,90 (10 fl.
í einu 18,00). Cognac 1,25. Akvavit 1,00.
Rínarvín 2,00 pr. fl.
VINDLAR: Renommé kassinn 4,00.
Nordenskjöld 5,50. Donna Maria 6,50.
La Zagala 5,50. Brazil. Floxver 7,50.
La Carolina x/2 kass. 4,00. Cigarettur
búntið 0,20.
Nýkomið: Mikið af ýmis konar ilm-
vötnum (Eau de Cologne og Essenser) í
gl. frá 0,75 til 2,25. 480
Vín og vindlar
frá Kjær & Sommerfeldt fást hjá
481 Stgr. Johnsen.
• Ekta anilínlitir
•pH -fH. fást hvergi eins gððir og ódýrir eins og sr p
í verslun p ö
^■4 C8 Sturlu Jónssonar K
c3 Aðalstræti Nr. 14. h—-
44 írf- M*
•JTITIUJIIUX; BDiat 482 • ”
.A.ðalfundur ekkjusjóðs lteykjavíkur
verður haldinn 2. jan. kl. 4 e. m. í leik-
fimishúsi barnaskólans. 483
„Sameiningin“ fæst hjá Sig. Kristj-
ánssyni í Reykjavík fyrir 2 kr. árg. í átta
blaða broti. Sjerlega vönduð að öllum frá-
gangi. 384
T^Týpreutaðui' leiðarvísir til lífsábyrg-ðar fæst
nú ókeypis hjá ritstjórunum og hjá Dr. Jónassen,
sem einnig gefur allar nauðsynlegar upplýsingar
um lífsábyrgð. 485
Ljósjarpur hestur, dekkri á fax og tagl,
með siðutökum, og marki: standfj. aptan vinstra,
hefur tapast frá Vatnsleysu 12. þ. m. Hver sem
kynni að finna þennan liest, er vinsamlega beðinn
að koma honuin til Stefáns Pálssonar á Vatnsleysu
eða til Árna Friðfinnssonar í Hafnarfirði. 486
^E’apast hefur í sumar íkringum 6. júlí mósgrátt
mertryppi tvævett, ómarkað með dökkri mön ept-
ir baki, kollrakað af faxi og tagli. Pinnandi er
beðinn að gjöra Samúel Jónssyni i Rauðbarðarholti
í Dalasýslu aðvart sem allra fyrst. 487
- *
Stutt ágrip af íslenskri mállýsingu
handa alþýðuskólum. Eptir Halldór Briem.
Kostar í bandi 90 aura. — Ætti að vera
kennd á öllura barnaskólum. — Aðalútsala
í hökaverslun Sigurcfar Kristjánssonar. 488
Til athugunar.
Jjer undirskrifaðir álítum það skyldu
vora að biðja almenning gjalda varhuga
við hinum mörgu og vondu eptirlíkingum
af Brama-lífs-elixír lir. Mansfeld-Bullner
& Lassens, sem ijöldi fjárhuga kaupmanna
hefur á boðstólum; þykir oss því meiri
ástæða til þessarar aðvörunar, sem marg-
ir af eptirhermum þessum gera sjer allt
far um að líkja eptir einkennismiðanum á
ekta glösunum, en efnið í glösum þeirra
er elxki Branxa-lífs-elixir. Vjer höfum um
langan tíma reynt Mansfeld-Búllner &
Lassens Brama-lífs-elixír, og reynst hann
vel, til þess að greiða fyrir meltingumi^i
og til þess að lækna margs konar maga-
veikindi, og getum því mælt með honum
sem sannarlega heilsusömum bittcr. Osa
þykir það uggsamt, að þessar óekta ept-
irlíkingar eigi lof það skilið, sem frum-
semjendurnir veita þeim, úr því þeir verða
að prýða þær með nafni og einkennis-
miða alþekktrar vöru, tii þess að þær
gangi út.
Harboörc ved Lemvig.
Jens Chr. Knopper. Tomas Stausliom.
C. P. Sandsgaard. Laust Bruun.
Nies Chr. Jensen. Ove lícniúk Bruun.
Kr. Srned Bönand. I. S. Jensen.
í";; : Gregers Kirk. L. Dahgaard.
ýjE,; Kokkensberg. N. C. Bruun.
j- fí I. P. Emtkjer. K. S. Kirk.
Mads Sögaard. I. C. Pausen. L. Lasscn.
Laust Cbr. Christensen. Chr. Sörensen.
489&J N. B. Niesen. N. E. Nörby.
Bigandi og ábyrgfiarmaðnr:
ÞORLKIFXJR JÓNSSON, cand. phil.
Shrifstofa: i Bankastrœtl nr. 3.
Fjelagaprentamiðjan.