Þjóðólfur - 22.01.1892, Side 1

Þjóðólfur - 22.01.1892, Side 1
Kemur út & föstudög- um — Verö árg. (60 arka) 4 kr. Erlendis 5 kr. — Borgist fyrir 15. júli. ÞJÓÐÓLFUR Oppsögn skrifleg, bundin viö áramót, ógild nema komi til útgefanda fyrir 1. október. XLIV. árg. ÞJÓÐÓLFUR. Allir kaupendur Þjóðólfs þetta ár (1892) fá bheypis bókmenntasögu íslands (síðari hluta). Ekkert íslenzkt blað nema Þjóðólfur veitir gömlum haupendum nokkra auka- getu. Nyir haupendur fá auk bókmenntasög- unnar tvö bindi af sögusafni Þjóðólfs. Allt óheypis. Blaðið sjálft kemur út einu sinni í viku og stundum tvisvar eða 60 arkir um árið og kostar að eins 4 krónur, er borgist fyrir miðjan júlí. Ny'ir haupendur ættu að gefa sig fram sem fyrst áður en sögusöfnin eru á þrot- um. Allur kaupbætirinn (3 bækur) verður að minnsta kosti fullra 4 króna virði ept- ir venjulegu bókhlöðuverði, og sjá því all- ir, hvílík vilkjör blaðið býður. Síðan um nýár hafa einnig allmargir nýir kaupendur bætzt við hér í bænum og í nærsveitunum og verða sögusöfnin send þeim innan skamms. Um hluttöku safnaða í veitingu brauða. (Niðurl.). Þá er eptir að minnast lítið eitt á þann ókost prestkosningarlaganna, sem að vísu er slameiginlegur fyrir öll kosn- ingarlög, en er þó hálfu verri í þessum lögum en öðrum. Þessi mikli ókostur er fólginn í því, að prestar og prestsefni, sem í kjöri eru, geta optast nær litla eða enga von gjört sér um að ná kosningu lilut- aðeigandi safnaða, nema því að eins, að þeir gangi sjálfir eða láti einhverja sendisveina sína ganga millum kjósendanna fram og aptur um sóknirnar til að „smala“ at- kvseðum handa sér nokkru áður en kosn- ing á fram að fara. Slíkur gauragangur er miklu óviðurkvæmilegri við þessar kosn- ingar, en nokkrar aðrar, og getur haft mjög óheillaríkar afleiðingar í för með sér að mörgu leyti, bæði fyrir hlutaðeigandi söfnuð og umsækjendurna. Það ber raun- ar ekki jafnmikið á þessum æsingum al- staðar, annaðhvort þar, sera umsækjandi er að eins einn, eða þar sem einhver um- sækjandanna getur fyrirfram talizt sem sjálfkjörinn og um aðra er ekki að ræða, en það ber sjaldan við, þegar fleiri en Iteykjavík, föstiidaginn 23. janúar 1892. einn er í kjöri. Aðalreglan er, að enginn getur náð kosningu nema með því að eius, að liann setji himin og jörð í hreyfingu, ef svo má að orði kveða. Optast nær munu lielztu atkvæðamenn í söfnuðunum ráða mestu, hver kosinn verður, með því að fá aðra kjósendur í fylgi með sér, og sjáum vér ekkert á móti því, ef hóglega og stillilega er að farið. Það er og eðlilegt, að hver sem er í kjöri biðji einhvern málsmetandi, merkan mann í söfnuðinum um að styðja að kosningu sinni. Ef hann gjörir ekki neitt frekar og lætur vera að berjast sjálfur með hnúum og hnefum fyr- ir sér er ekki um neitt að tala. En svo ber það stundum við, að einhver óhlut- vandur óþokki, sem er nógu ósvifinn til að traðka öllum velsæmisreglum, tekst beðinn eða óbeðinn á hendur að gjörast formælandi einlivers þess, sem í kjöri er, og slíkum óþokkum gengur stundum furðu- vel að fá ístöðulitla, fáfróða kjósendur í söfnuðinum til að fylla sinn flokk. Það getur opt verið áhrifameira að hafa þessa þokkapilta með sér, lieldur en marga aðra merka bændur, af því að þeir, sem nokk- uð eru vandir að virðingu sinni, hafa andstyggð á öllum lúalegum æsingum, er ganga fram úr hófi. Sá prestur, er nær kosningu með slíkum meðulum, er sannarlega ekki öfundsverður af þvi. Auð- vitað eru þessi dæmi sem betur fer frem- ur fátíð, en þau munu þó stundum hafa komið fyrir við prestakosningar hér á landi. Söfnuðirnir ættu að gjalda varhuga | við að fara eptir ráðum nokkurra óhlut- vandra manna, þá er um jafnmikilvægt málefni er að ræða. Þeir sem ekki hafa neina sannfæringu fyrir sjálfa sig eða vita ekki, hvað þeir vilja, eiga að hlíta ráðum hinna vitrustu og beztu manna safnaðar- ins og fylla þeirra flokk. Það er bein skylda allra, er sjálfstæða skoðun skortir, og engan veginn ámælisvert. Margir umsækjendur brauða, sem verða svo heppnir að „komast á skrána“, gjöra lítið eða alls ekkert til að smala atkvæð- um handa sér, af því að þeir fyrirlíta slíka aðferð og þykir hún ósamboðin virð- ingu sinni og því málefni, sem þeir eru kallaðir til að boða. Þeir vilja heldur Nr. 4. sitja á hakanum en gjöra svo lítið úr sér að „betla“ atkvæði eða beita nokkrum ó- löglegum ráðum til að komast að og verða svo söfnuðinum óþægilega háðir á eptir. Þeir vilja ekki vera þekktir fyrir að láta ófrægja aðra, sem með þeim eru i kjöri og ná með því kosningu sjálfir. En svo skoða sumir þessa aðferð sem órækan vott um deyfð, áhugaleysi og framtaksleysi um- sækjanda þess, er í hlut á, og einmitt þetta afskiptaleysi hans út af fyrir sig spillir málstað hans hjá kjósendunum. Það kitlar hégómagirni þeirra, að hver sá um- sækjandi, sem í kjöri er, komi annaðhvort sjálfur eða sendi einhvern út af örkinni í sinn stað til að biðja þá livern og einn að „vera nú með sér“ við kosningarnar. Þetta vekur hjá þeim tilfinningu fyrir þeirra eigin gildi og þeir verða því bein- línis styggvir við, ef einhver sem í kjöri er eða einhver fyrir hans hönd „lætur ekki svo lítið“, að fara á fjörurnar til að grennslast eptir skoðun þeirra. Ef þetta er ekki gjört, er það talinn bersýnilegur vottur um skort á Iítillæti umsækjanda, ef það er ekki talið framtaksleysi, og verður það hvorugt honum til mikillar meðmæl- ingar á kjörfundi. Þessi skakki hugsunarháttur þarf að breytast til batnaðar. Þeir sem í kjöri eru ættu ekki að hleypa ofmiklum vindi í seglin; þeir ættu að leitast við að sneiða hjá æsingum, eptir því sem framast er unnt, og kjósendurnir ættu þá að sínu j leyti að virða slíka aðferð og láta þá ekki gjalda varfærni sinnar, en sízt af öllu mega kjósendurnir láta nokkra ófyrirleitna æsingapostula tala kjark úr sér með hót- unum eða láta þá blekkja sig með ósönn- um áburði og níði um aðra, sem í kjöri eru. Séu einhverjir þeirra, eða ef til vill engir þeirra kunnir söfnuðinum, verða kjós- urnir að fara hálfu varlegar, og verður þá bezt, ef unnt er, að leita upplýsinga hjá einhverjum vönduðum, áreiðanlegum manni, sem trúandi er til að skýra satt og rétt frá, eptir því sem honum er frek- ast kunnugt, en sé slíkar upplýsingar ekki auðið að fá, er mjög sjaldan mun koma fyrir, verða kjósendurnir að taka tillit til þeirra meðmælinga, er umsækjend-

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.