Þjóðólfur - 09.02.1892, Side 1

Þjóðólfur - 09.02.1892, Side 1
Kemur út A föstudög- um — Verð Arg. (60 arka) 4 kr. Erlendis 5 kr. — Borgist fyrir 15. júli. ÞJÓÐÓLFUR UppBÖgn Jþrifleg, bundin viö áramót, ógild nema komi til útgefanda tyrir 1. október. XLIV. arg. Itcykjayík, þriðjndaginn 9. felbrúar 1892. Nr. 7. Meiri lestur — Meiri þekking. „Aum er sjómannsæfi11. Það er alkunn- ugt. Hún er óblíð og köld opt og tíðum, bessi æfi. Allir vita, hve miklar hættur eru lienni samfara. Þar er svo mjótt á milli lífs og dauða — ekki nema ein veik skipsfjöl. Og þrátt fyrir þetta lítur þó svo út, eins og sumir taki ekkert tillit til þessa, er þeir minnast á landlegu- og hvíldardaga sjómanna. Margir bera þeim á brýn leti og ómennsku og segja, að það sé alsiða, að þeir gjöri ekkert handarvik 1 landlegunum, lieldur flatmagi alla daga endilangir upp í rúmi og hugsi ekki um annað en sofa, eta og drekka. Þetta er auðvitað ljótt, efj það væri satt. En þetta er ekki sannleikur nema að hálfu leyti. Þegar vel aflast hafa flestir nóg að gjöra að hirða um afla sinn þá dagana, er ekki gefur að róa; sá tími, sem þá verður afgangs frá þessari vinnu er optast nær ekki lengri en svo, að sjómönnum veitir ekki af honum til hvildar. Þá er ekki tiltökumál, þótt þeir eigi taki sér aðra vinnu í hönd, því að þeir þurfa að vera sem bezt afþreyttir til að geta þolað róðra- skorpurnar á milli og vökurnar, sem um vorvertíðina eru mjög lýjandi. En í löngum landlegum, þá er ekki gefur að róa kann- ske svo vikum skiptir, þá verður sá tími, er afgangs er umhirðingu aflans, oflangur til hvíldar, hversu vel sem aftast, og því fremur ef afli er lítill, en sé hann enginn, hafa sjómenn auðvitað ekkert um að hugsa, og þá fyrst má segja, að þeir liggi í ieti og ómennsku, ef þeir taka sér ekkert fyr- ir hendur. En hvað gjöra sjómenn þá og hvað geta þeir gjört ? Þeir sem eru smið- ir liafa vanalega einhvern smíðisgrip handa ú milli og sjást því sjaldan iðjulausir, en hinir, er ekki kunna að smíðum, hafast óneitanlega lítið að opt og einatt. Margir stytta sér þá stundir við tafl og spil. Það er auðvitað saklaus skemmtun, en gagns- laus, og gætu sjómenn haft annað þarf- legra fyrir stafni. í löngum landlegum á vorin geta þeir t. d. unnið að jarðabótum og annari vinnu, sem þá er opt auðvelt að fá, en á veturna er allt öðru máli að Segna, Þá er optast lítt mögulegt íýrir síómenn, sem ekki eru smiðir, að fá nokk- uð að gjöra. Hvað eiga þeir þá að haf- ast að og hvað geta þeir gjört sér til gagns? Svarið liggur beint við? Þeir eiga að lesa dagblöð og önnur fræðandi, nytsöm rit. Þeir eiga að verja tómstund- um sínum til að afla sér þekkingar á því, er hverjum manni er nauðsynlegt að vita, svo að þeir komi ekki eins og álfar úr hól, vitandi ekki neitt um það, sem fram fer í kringum þá, og getandi ekki taíað um nokkurn skapaðan hlut að kalla má. Sérhver meðalskynsamur maður getur lært mikið af lestri góðra rita án nokkurrar kennslu. Það er mjög auðvelt að öðlast allmikla þekkingu með litlum kostnaði og án þess að vanrækja störf sín. Yæri nokkrum þeim tómstuudum, sem hver ein- staklingur eyðir í leti og ómennsku og til gagnslausra skemmtana þegar bezt lætur, varið til að safna sér frekari fróðleiks og þekkingar, yrðu þeir færri, sem hvorki vissu upp né niður í neinu eða þyrftu að blygðast sín sakir vanþekkingar á því, sem þeim er skylt að vita. Þessi bending vor snertir ekki eingöngu sjómenn, heldur einnig alla þá, er að einliverju leyti nota ekki tómstundir sínar sér til gagns. Sem betur fer er skoðun almennings hér á landi um þýðingu blaða og bóka talsvert farin að lagast á síðari árum. Lestrarfýsn og fróðleikslöngun er almennt orðin miklu meiri en áður. Menn eru farnir að sjá og viðurkenna þau áhrif, er lestur fræðandi rita getur liaft fyrir mennt- un og menningu þjóðarinnar, og gamla margþvælda setningin, að „bókvitið verði ekki látið í askana“, hún er ávallt meir og meir að missa formælendur sína. Þetta „vit“ er einmitt nú á tímum „látið í ask- ana“ í óeiginlegum skilningi. Þekkingin eða bókvitið eða hvað sem það er kallað er skemmtilegur og afarnauðsynlegur föru- nautur hvers manns á lifsleiðinni. Það er gleðilegur framfaravottur, hversu nauðafáir þeir menn nú ;eru orðnir, sem reyna að verja hina gömlu, rótgrónu hleypi- dóma, að þekking og menntun sé einskis- virði og komi almenningi að engum not- um, heldur komi miklu fremur öllu á ringulreið, gjöri menn duglausa og áhuga- lausa til allrar vinnu, hrokafulla og hé- gómlega. Þessar gömlu apturhaldskredd- ur eru nú búnar að lifa sítt fegursta, og það er vonandi, að þær Iíði bráðum alveg undir lok. Því meirí sem þekkingin er, því meira frelsi og almennar framfarir hjá þjóðun- um. Það er viðurkennd sannreynd. t Gestur Pálsson. Hann Gestur er liðinn. Æ, grútlegt pað er, að góðmennin skuli svo hverfa. En þorparar lifa! — já því er nú ver, að Jieir skuli jarðríkið erfa. Hann Gestur er farinn. Já gestur hann var, ])ó gestrisni’ ei sýnd væri lionum. Hann gullfræum sáði, en grjðt hann uppskar, pað gengur ei ætíð að vonum. Sem unglingur bjóst hann við bliðu og dýrð, hann bjóst við þvi sælasta hnossi; — en heimurinn veitt’ ’onum vonbrygði, rýrð og viðbjóðsleg svikin með kossi. Sem fullorðinn reyndi liann freistinga-tál, — svo féll hann, því dugur var brotinn. Hann mátti ei standa, því mörkin var hál og mótstöðukrapturinn þrotinn. Svo féll hann, en reyndi að reisa sig við, því rétt honum fannst ei að detta. Hann vissi hið sanna, en veraldar-snið hann vélti í ógöngur kletta. Hann aumkvaði vesæla, elskaði bágt, hann nnni víst guði og trúnni; hann hataði lygar og hræsninnar mátt, hann hataði saurinn á brúnni. Já glöggt var hans auga, því gestur hann var, og því gat hann ei annað en fundið að hræsnin er rétt cins og holgrafið mar, að hatrið við lygi er bundið. Hann allt vildi bæta, er aflaga fór, en alþýða vild’ ekki heyra, því hún var of smávaxin — hann var of stór; — og hvað á að rita svo meira? Hann lifði sem gestur, sem gestur hann dó og gremju varð lieimsins að þola, er títt á hann eitruðum eldinum spjó, svo eyddist og brann hann til kola. G. Dav.

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.