Þjóðólfur - 19.08.1892, Síða 1
Kemnr tlt & föstndög-
um — Verö á,rg. (60 arka)
4 k . Erlendis 5 kr. —
Borgist fyrir 15. Júli.
ÞJÓÐÓLFUR
, Dppsögn skrifleg, bundin
viö Aramöt, ógild nema
komi til útgefanda fyrir i.
oktöber
XLIV. árg.
Þingmannaeftiin nýju.
III.
Þá er suðuramtinu sleppur, getum vér
verið fáorðari um þingmannaefnin, enda
enii ekki kunnugt hér, hverjir bjóði sig
fram í sumum kjördæmum.
í Myrasyslu hafa að vísu verið nefnd
sém þingmannaefni bændurnir: Ásgeir
Bjarnason í Knararnesi og Sigurður Sig-
urðsson á Kárastöðum, en vanséð þykir,
hvort þeir bjóða sig fram. Séra Jóhann
Þorsteinsson í Stafholti hefur og verið
nefndur til þingmennsku þar. Ekki hefur
heyrzt, að hinn fyrv. þingm. Mýramanna,
Árni prófastur Jónsson á Skútustöðum
muni gefa kost á sér til þingsetu aptur.
í Snœfellsnessyslu mun, að því er ísa-
fold segir, Indriði Einarsson endurskoðari
ætla að bjóða sig fram, auk dr. Jóns Þor-
kelssonar, er áður hefur verið getið. Að
kjósendur þar hafl jafnvel skorað á hinn
fyrv. þingmann sinn, Pál sýslumann Briem,
hefur reyndar heyrzt nú fyrir skömmu, en
hvort nokkuð er hæft í því, þorum vér
ekki að fullyrða.
í Dalasyslu gefur séra Jens Pálsson
líklega aptur kost á sér.
í Barðastrandarsyslu mun séra Guðm.
Guðmundsson í Gufudal keppa um þing-
mannssætið við Sigurð prófast Jensson í
Flatey.
I Isafjarðarsýslu verður líklega ekki
skipt um þingmenn, en í
Strandasýslu gefur Páll prófastur Ólafs-
son ekki kost á, sér, og höfum vér engan
heyrt nefndan í hans stað. Af innanhér-
aðsmönnum mun séra Arnór Árnason á
Felli einna líklegast þingmannsefni.
I Húnavatnssýslu verður Björn bóndi
Sigfússon í Grirnstungu í kjöri ásamt hin-
um fyrv. 2. þingmanni, Þorleifi Jónssyni,
en séra Eiríkur Briem, er þó fékk áskor-
un úr 8 hreppum sýslunnar um að bjóða
sig aptur fram, gefur livorki þar né ann-
arstaðar kost á sér til þingmennsku, og
þykir oss það illa farið, því að hann hef-
ur verið einhver hinn þarfasti þingmaður
fyrir margra hluta sakir, þrátt fyrir miðl-
unarstefnu hans í stjórnarskrármálinu. Hin
fjölhæfa þekking hans og glöggskyggni
Reykjavík, föstudagiim 19. ágúst 1893.
hefur jafnan komið þinginu að miklu liði
í hinum vandasömustu málum, enda hefur
hann optast nær verið valinn í hinar þýð-
ingarmestu nefndir á þingi og unnið þar
ótrauðlega. Mun hann einnig hafa fengið
ótvíræð tilmæli um að bjóða sig fram til
þingmennsku hér í bænum, en gefið engan
kost á því, þar eð hann vill alls ekki á
þingi vera.
í Skagafjarðarsýslu er talið víst, að
Ólafur Briem verði endurkosinn í annað
þingmannssætið, en Friðrik Stefánsson tal-
inn valtur í sessi, því að Jón Jakobsson
cand. phii. á Yíðimýri og Jósep Björnsson
búfræðingur á Bjarnastöðum bjóða sig fram
á móti honum og mun hver þeirra hafa
allmikið fylgi kjósenda, en Jón þó meira
að sögn. Að því er snertir skoðanir þess-
ara tveggja nýju þingmannaefna á stjórn-
arskrármálinu, vitum vér, að Jón er fylgis-
maður þeirrar stefnu, er ofan á varð á
síðasta þingi. Um skoðanir Jóseps er oss
ókunnugt, en hann er talinn hæfileika-
maður að mörgu og vel að sér.
í Eyjafirði verður Skúii sýslumaður
Thoroddsen eflaust endurkosinn og líklega
Benedikt sýslumaður Sveinsson, en mælt
er, að hinn nýi sýslumaður Eyfirðinga
(Klemens Jónsson) gefi einnig kost á sér
og muni hafa ekki svo litlar líkur til að
ná kosningu.
í Suður-Þingeyjarsýslu verður Einar
Ásmundsson í Nesi valinn þingmaður, því
að kjósendur þar hafa skorað á hann, og
í Norður-Þingeyjarsýslu verður eflaust hinn
fyrv. þingmaður Jón Jónsson í Múla (fyr
á Reykjum) endurkosinn), enda er liann
vafalaust einhver hinn hæfasti þingmaður
vor i bændastétt, og hefur jafnan komið
frjálslega og einarðlega fíram, þótt kjós-
endum hans félli ekki allskostar vel stefna
hans í stjórnarskrármálinu 1889 og sum-
um mótstöðumönnum haus þætti hann fara
óvirðingarorðum um það mál á síðasta
þingi. En vér viljum ekki dæma menn
eiugöngu eptir framkomu þeirra í einu
máli, þótt mikilsvert. sé. Vér verðum að líta
á fleiri hliðar, þá er um þingmannshæfi-
leika er að ræða, og þótt vér vildum óska,
að kjósendur tækju sérstáklega tillit til
skoðana þingmannaefnanna í stjórnarskrár-
málinu, og kysu fremur þá, er ekki væru
Nr. 39.
miðluninni fyigjandi, getum vér samt ekki
annað en metið mikils frjálslyndar skoð-
anir og góða framkomu í öðrum mikil-
vægum málum.
í Norðurmúlasýslu gefur Jón á Sleð-
brjót líklega aptur kost á sér. Má segja
að mörgu leyti hið sama um hann og
nafna hans í Múla, því að hann er skyn-
samur vel og einarður og allvel máli far-
inn, þótt nafni hans taii þó enn áheyri-
legar að vorum dómi. Þorvarður læknir
Kjerulf mun ekki bjóða sig aptur fram í
Norðurmúlasýslu, en hver þar verður í
kjöri i hans stað, vitum vér ekki.
f Suðurmúlasýslu verður að minnsta
kosti um 3 að velja, þá Sigurð prófast
Gunnarsson (fyrv. 1. þm.), Guttorm búfræð-
ing Vigfússon á Ströud á Völlum og Jónas
bónda Símonarson á Svínaskála, en séra
Lárus Halldórsson mun ekki hugsa til
þingmennsku.
Samkvæmt síðustu fréttum gefur Ólaf-
ur Pálsson á Höfðabrekku enn kost á sér
í Vestur-Skaptafellssýslu, og ekki talið ó-
líklegt, að hann nái þar kosningu.
Stokkseyrarfélagiö.
í 29. tölubl. Þjóðólfs þ. á. hef eg, eins
og hinurn heiðruðu lesendum hans er kunn-
ugt, farið nokkrum orðum um félag þetta
og lýst þar hinni sögulegu hlið þess; jafn-
framt lét eg þá von mína í ljósi, að hið
fyrsta ár þess (næstl. ár) mundi verða hið
erfiðasta. Nú vil eg leyfa mér að biðja
yður, herra ritstjóri, að Ijá rúm í yðar
heiðraða blaði nokkrum línum félaginu
viðvíkjandi ásamt ágripi af verðskrá þess1.
Innkaupsverð á helztu vörutegundum í
félaginu var þetta: Rúgur (100 pd.) 7.70,
bankabygg (125 pd.) 11.03, grjón (200 pd.)
20.03, hveitimél (125 pd.) 8,89, hálfbaunir
(125 pd.) 10.69, Maismél (125 pd.) 8.10,
haframél (125 pd.) 15.53, flórmél (125 pd.)
14.63, kaffibaunir (1 pd.) 0.65, exportkaffi
0.25V2, kandís (1 pd.) 0.20, melís (1 pd.)
0.18, munntóbak (1 pd.) 1.05, neftóbak
1) Sakir rómsins í blaðinu höfum vér sleppt úr
skrá þessari öllum smæstu vörutegundunum, þar
eð vér tökum ekki langar verðskrár í blaðið nema
fyrir borgun. Ritstj.