Þjóðólfur


Þjóðólfur - 21.10.1892, Qupperneq 3

Þjóðólfur - 21.10.1892, Qupperneq 3
195 en leggja seinast á kveldin. t>á hefði hafzt 4 lagnir, en miklu minna hefði hver maður haft upp úr J>ví, heldur en peir fáu, sem lögðu í Leir- nnni. Þá daga kom svo mikið mor i sjóiun, sem rak allan fisk burtu að sunnan. Betra er að leggja ofseint en ofsnemma. Betra að leggja 7. apríl en 14. marz, þ. e. í Leiru og Garðajó. Þó net væru upp undir strönd í Hafnarfirði og Kollafirði ár út og ár inn, gerði ekkert til með hindrun á fiski- göngu. Það ríður á að Ieggja áherziuna á réttan stað. Eg skal nú koma með uppástungur til sam- þykktar, ef farið verður að grauta enn á ný í netamálinu. 1. gr. Yfirumsjónarmaður skal settur af lands- stjórninni sunnan til við Faxaflóa. Hann skal vera einvaldur með að taka upp, er houum sýnist, hvort heldur á laugardögum og leggja ekki fyr en á mánudögum eða taka upp á hverjum morgui og leggja á kveldin eða þá láta netin vera í landi 2—3 daga í senn, að minnsta kosti til 7. apríl, allt eptir atvikum og beztu manna ráði. Hann skal hafa aðsetur um vertíðina í Njarðvikum, Kefla- vik eða Leiru. 2. gr. Ekki má leggja net i sunnanverðan Faxa- flóa fyr en 20. marz ár hvert. Seltirningar mega leggja i sínar fiskileitir 14. marz og sömuleiðis Álptnesingar, Hafnfirðingar og þeir, sem kringum Hafnarfjörð róa. 3. gr. Ekki má leggja vestar í Leirusjó en beina sjónhendingu úr Leirhólma á Blákoll (Hafn- arfjall). Út fyrir þá línu íná enginn fara úr veiði- gtöðunum fyrir innan Hólmsberg og ekki úr Leiru, nema umsjónarmaður vilji undanskilja Gufuskála- hvcrfið. 4. gr. Garðmönnum einum, sem þar eiga heima, skal leyft að leggja net i Garðsjó, ekki samt vest- ar en út undir Gerðahólma, en þegar dregur fjær landi ekki vestar, en að Kolbeinsstaðavörðu beri um Útskála. Þeir sem eiga heima sunnan Garð- skaga og eiga uppsátur i Garði skulu hafa sömu réttindi til fiskiveiða sem Garðmenn, en allir inn- tökumenn í Garði skulu fara inn fyrir liuu þá, sem dregin er undan Leirhólma. 5. gr. Auður áll skal vera með með öllu landi, frá Gerðahólma og inn að Vatnsnesi, ekki mjórri en V4 mílu undan Gerðahólma og Leirhólma og liggi i boga með landinu, ekki minna undan Stakk en Súlur séu framan til við Vatnsnes. Hann skal marka með Bérstökum duflum, eins þéttum sem hæfilegt þykir. 6. gr. Allar netatrossur í Leiru- og Garðsjó skulu hér um bil liggja í stefnunni öpp á Strönd eða Voga, en aldrei eptir línunni í þá átt, sem húu liggur. Ástæður fyrir þessum uppástungum eru: Við 1. gr. Að hafa ekki yfirumsjónarmann yfir netun- um, jafn-hættulegu veiðarfæri, væri sama sem að hafa skip stýrislaust og formannslaust. Við 2. gr. Það er alveg ótækt að leggja fyr en 20. marz í Leiru- og Garðsjó og er jafnvel ofsnemmt. Að hanna Innnesjamönnum að leggja í sinar veiði- stöður 14. marz, er ástæðulaust. Þeirra net hindra ekki fiskigönguna, nema Álptnesingar færu inn í Hafnarfjörð. Við 3. gr. Að leggja net vestar en á móts við Lcirhólma, er óþarft og skaðlcgt fyrir flskigönguna. Við 4. gr. Garðmenn má ekki úti- loka frá því að hafa net og ekki svo mikil hætta, ef þeir eru einir í Garðsjónum og auður áll með landinu- fið 5. gr. Að hafa auðan ál meö landi þarf að vera, meðan fiskur er i göngu, en umsjónar- maður ræður, hvenær leggja má í hann eptir því sem á stendur og fiskur hagar sér. Við 6. gr. Hana geta allir skilið. Líka mætti taka línu fram und- an Súlum framan til við Vatnsnes og það er oin- faldast en nokkru lengra fyrir Leirumenn. Sumum hefur dottið í hug að taka annað fjall heldur en Súlur, t. d. Sýlingarfjallið utan til á Stapa, en þá er breiddin of mikil í Garðsjónum. Að fara vestur eptir hraunum er ótækt. Líka yrði að taka fram, að sú lína næði ekki nema inn á móts við Vatns- nes. Njarðvikingar mega ekki tapa brúnunum hjá sér og þeim grunnslóðum, sem þar eru. Óþarfi er að friða nokkuð grunnhraun i Njarðvíkum og á Strönd, — því að þar er ekki næði fyrir fisk að gjóta, þá er norðanveður gerir —, nema einungis Vogahraun og eitthvað meira eða minna af Gjögra- hrauni í Hafnarfirði, sem kunnugir menn álíta hæfilegt. Þar þarf ekki að hafa yfirumsjónarmann eins og syðra né auðan ál inn með landinu á Hafnarfirði sunnanverðum. 11. V. Ofsareður mikið gerði undir Eyjafjöll- um 28. f. m. Fuku þá tvö skip og brotu- uðu í spón; var anuað stórt skip, er notað hafði verið til sjóróðra í Vestmanneyjum en hitt sexróinn bátur. Á Hrútafelli fuku um 100 hestar af heyi, er komið var í garð. í Hlíð rauf 20 hús og á Raufar- felli lamdi 13 kindur til dauðs. í grjót garða rofnuðu stór skörð og sumir menn meiddust af grjótfluginu. 10—20 grágæsir fundust eptir veðrið, sumar vængbrotnar og sumar lamdar til dauðs. Þykjast menn ekki muna jafnmikið ofsarok þar eystra. Einföld bjargráð. í danska dagblað- inu „Danmark", sem nú er undir lok liðið, stóð í vor svolátandi grein, rituð af dönsk- um lækni. „Getur maður bjargað sjálfum sjer f'rá drukkiiun, þótt hann kunni ekki að synda?. Svar: já; það væri óeðliiegtef hann gæti það ekki. Flestar aðrar skepn- ur geta bjargazt, er þær detta í vatn, en maðurinn hefur við framsóknarþróun sína misst hæfileikann til að geta synt áu kennslu. Það er menntunin, sem hefur svipt hann þessari meðfæddu gjöf náttúrunnar og hún er meira að sega orðin svo afvegaleidd, — ef svo má að orði komazt — að menn í dauðans ofboði gera alveg gagnstætt því, er þeir ættu að gera sér til björgunar. Þá er ósundfær maður dettur i vatn, teygir hann handleggina upp úr, æpandi og kveinandi, unz hann smátt og smátt sekkur undir yfirborð vatnsins. En ein- mitt sakir þess, að hann æpir og teygir handleggina upp úr vatninu sekkur hann. í vatni verður líkami mannsins léttari en jafnmikið rúmmál vatnsius, og flýtur því í vatnsfletinum. En því lengra sem maðurinn lyptir líkama sínum upp úr vatu- inu, því meir þyngist hann. Að rétta upp handleggina til þess að halda liöfð- inu uppi er því algerlega skökk aðferð. Eunfremur er það auðsætt, að líkam- inn verður að því skapi léttari, sem lung- un fyliast meira lopti. Þess vegua er ó- skynsamlegt að æpa. Maður á einmitt að draga loptið sterklega að sér og anda því frá sér smátt og smátt, setja um leið brjóst- ið upp, teygja höfuðið aptur á bak og leggja hendurnar aptur fyrir hnakkann, Þá þenjast lungun út og fyllast lopti“. Læknir þessi bætir því við að síðustu, að sá er fylgi þessum afareinföldu reglum, geti ekki drukknað. En það er auðvitað ofmæit. Einkennileg skipun. í Montenegro er sjálfsmorð taiinn órækur vottur um hina mestu ragmennsku, enda hefur enginn Svartfellingur í manna minnum svipt sjálf- an sig lífi. Það vakti því afarmikla eptir- tekt, að þarleudur maður nokkur Ljezar að nafni reyndi í sumar að ráða sjálfan sig af dögum, til að sleppa úr greipum lánardrottna sinna, er gerðust honum of uærgöngulir. En það tókst ekki betur en svo, að hann særðist að eins lítið eitt. Var hann þá fluttur á spítala. Þá er land- stjórnarinn, Nikita fursti, frétti þetta brá hann við skjótt, heimsótti Ljezar á spí- talanum og húðskammaði hann fyrir til- tækið. Aumingja maðurinn bað furstann auðmjúklega fyrirgefningar og færði sér til málsbóta, að skuldheimtumennirnir hefðu gengið svo hart að sér, að liann hefði verið viti síuu fjær, er haun hleypti af pístól- unni. Þá er Nikita heyrði frásögn hans, kenndi hann í brjóst um hann og bauð að greiða skuldir hans af sínu eigin fé, en jafnframt skyldi Ljezar, undir eins og hann væri gróinn sára sinna, fara aflandi burt til að leyna vanvirðu sinni. Nokkrum dögum síðar gaf Nikita út svolátandi skip- un: „Allir þeir, er svipta sjálf'a sig lífi eða að eius gera tilraun til þess, skulu taldir ærulausir og sjálfsmorðingjarnirskulu hanga á gálga heilan sólarhring. Það er Svartíellingum ósamboðið að svipta sig líf- inu, er Q-uð einn ræður. Það má að eins leggja það í söluruar á vígvellinum ætt- jörðunni til varnar“. Einn á bát yílr Atlantsbaf fór ame- rískur kapteiun nokkur Andrews að nafni í sumar. Hann lagði af stað frá New- Jersey 20. júlí og lenti heilu og höldnu í Lissabon eptir 64 daga útivist 22. sept-

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.