Þjóðólfur - 04.07.1893, Side 2
122
kjósenda fengi að vera kjörmenn, og að
prófkosning fari fram undan kosningu
þeirra; að skipta þeim kjördæmum í tvennt,
sem nú kjósa 2 þingmenn, áleit fundurinn
æskilegt, sömuleiðis að þingið skipaði nefnd
milli þinga, til þess að endurskoða sveitar-
stjörnar- og fátœkra löggjöfina í heild sinni
og semja frumvarp til laga um það efni,
er síðan sé lagt fyrir öll sveitarstjórnar-
völd, áður en alþing ræður því til lykta.
Fundurinn var móti öilum breytingum á
gjöldum til presta og kirkna, og mótfall-
inn breytingum á skatta- eða tolllögunum,
en féllst á, að búnaðarfélög væru styrkt
líkt og að undanförnu, en reglunum frá
síðasta þiugi breytt í ýmsu. í e. blj. samþ.
að landssjóður taki gufuskip á leigu til
strandferða umbverfis landið. Óskað að
þingið styrki unglingaskóla, þar sem þeir
komast á fót, bæði í sveitum og sjóplássum,
að meira fé verði lagt til kennarakennslu,
en ekkert til skólaiðnaðar, og að almenn
unglingapróf til sveita verði lögleidd. Fund-
uriun óskaði eptir breytingu á lögum um
samning verðlagsskýrslna, þannig, að skatta-
nefndum verði falið það starf, og að verð-
lagið verði ákveðið eptir sanngjörnu mati.
Fundurinn var meðmæltur bænarskrá um
aukalækni í norðurhluta Strandasýslu.
G. G.
Þórsnessfundur. Samkvæmt fundar-
boði frá alþm. Snæfellinga dr. Jóni Þorkels-
syni var þingmálafundur baldinn í Stykkis-
hólmi 24. júní. Fundarstjóri Þórður hrepp-
stjóri Þórðarson á Rauðkollsstöðum. Eptir
nokkrar umræður í stjórnarskrármálinu
var þingmanninum falið á bendur að fram-
fylgja máli þessu, eptir því sem bann und-
ir núverandi kringumstæðum sæi sér fært-
Fundurinn var eindregið meðmæltur stofn-
un lagaslcóla og að gufuskipaferðum kring-
um land verði fjölgað. í vistarskyldumál-
inu voru samþykktar þær uppástungur,
að lækka lausamennskugjaldið niður í 12 kr.
fyrir karlmenn og 6 kr. fyrir kvennmenn,
að leyfi þetta sé bundið við 25 ára aldur,
að lausamaður verði að hafa fast heimili,
að lausamennskubréf sé leyst bjá sýslu-
manni, ad leyfið sé ennfremur bundið við
fjáreign, tvö hundruð á landsvisu fyrir
karlmann og eitt hundrað fyrir kvennmann
og að gjaldið renni í styrktarsjóð handa
alþýðufólki. Þá var samþykkt sú uppá-
stunga, að leggja á vesturflutninga-prédik-
ara bátt gjald, svo sem atvinnuskatt. Eun-
fremur var samþykkt, að nýtt aukalœknis-
embœtti yrði stofnað í Mýra- og Hnappa-
dalssýslu millum Langár og Straumfjarðar-
ár, að söfnuðum gæfist kostur á að velja
um alla umsækjendur, að tollur af toll-
skyldum vörum þurfi ekki að borgast af
kaupmönnum fyr en jafnóðum sem varan
er seld eða að minnsta kosti með 6 mánaða
fresti, að lagður verði hár innflutnings-
tollur á smjörlíki (margarine), og að bætt
verði við aukapósti frá Staðastað um Búð-
ir og kringum Jökul.
Kvennaskólinn á Ytriey.
Kvennaskóli Húnvetninga og Skagfirð-
inga befur nú í undanfarin 10 ár átt heim-
ili á Ytriey á Skagaströnd í Húnavatns-
sýslu; áður höfðu þeir sinn skólann hvor
um nokkur ár, sem voru þetta 1 og 2 ár
í sama stað á beztu bæjunum í sýsluuum,
þar sem húsakynni voru helzt aflögu.
Þó ýmislegt megi að því finna, að Hún-
vetningar og Skagfirðingar völdu hinum
sameinaða kvennaskóla sínum aðsetursstað
hér á Ytriey, sem sjálfsagt hefur verið
vegna fátæktar, þar eð þá var hér í boði
gamalt timburhús, hefur þó þessi staður
óneitanlega gefist heldur vel. Nemendur
fóru sífellt vaxandi þar til tala þeirra var
takmörkuð og bundin við 36, og þó engan
veginn verði sagt, að hér sé ákjósanlegt
liúsrúm fyrir svo marga nemendur, auk
kennslukvenna og vinnukvenna, er það þó
svo, að sérstök herbergi eru fyrir vinuu
(nám og kennslu), máltíðir og svefn, og
væri vel, ef þannig væri húsum varið al-
mennt, að ekki þyrfti að brúka sama her-
bergið til alls þessa.
Hvað bækur og kennsluáhöld snertir,
hefur skólinn talsvert af því, og vil eg
nefna hið helzta: Við landafræðiskenuslu:
íslands-kort, kortin af öllum álfuuum,
mannflokkarnir, landafræðislegar myndir,
landafræðisleg sýnismynd, tellurium, E.
Löffler: Haandbog í Geographien. Við
mannkynssögukennslu: sögukort, C. Rosen-
berg: Hlustreret Verdenshistorie. Við
kennslu í heilsufræði: myndir af mannin-
um, Paul Bert: Livet. Við kennslu í
dönsku: Konráðs orðabók, S. Grundtvig:
Dansk Haandordbog, Conversationslexikon.
Við kennslu í ensku: ensk-dönsk orðabók,
dönsk ensk orðabók, ensk-ensk orðabók.
Við kennslu í teikningu: V. Nielsen: For-
tegninger til Frihaandstegning, H. Sökjer:
Dekorative Tegneovelser. Við kennslu í
söng og orgelspili: orgel, taktmælir, ýmsar
nótnabækur. Við kennslu í náttúrusögu:
Naturhistoriske Billeder, C. Hoffmann:
Botanischer Bilderatlas. Við kennslu í
í kennslufræði: S. Heegaard: Om Opdrag-
else, Opdragelsens Historie. Við kennslu
í fatasaum: ýmislega lagaðir pressukubb-
ar, pressujáru, höggpípur. Við kennslu
í máltekningu: S. Hansen: Maaleapparat-
er, Tilskjærerskolen for Skræddere. Við
kennslu í léreptasaum) saumagrind, stopp-
ingargrind, C. Halvorsen: Linsömbog, E.
West: Vejledning til methodiskt Haand-
arbejde. Við kennslu í hannyrðum: Dam-
etidende, Nordiske Monstertidende, M. Col-
lin: Skaansk Kunstvævning, vefnaðaráhöld,
knipplisskrín.
Kennslu skólans hafa á hendi 4 kennslu-
konur, og til matreiðslu og hússtarfa eru
ráðnar 2 vinnukonur; námsstúlkur taka
þátt í matreiðslunni og hússtörfunum, og
verður það samtals með slátursstörfum að
haustinu allt að 3 vikum hjá hverri.
Skólatíminn er frá 1. okt. til 15. maí,
og fyrir þann tíma borgar hver stúlka
120 kr. í skólanum fá þær auk kennsl-
unnar: fæði, húsnæði, ljós, hita og rúm
að undanteknum lökurn og koddaverum,
er stúlkur leggja sér til. Einnig leggja
þær sér til handklæði, greiðu, sápu, bursta
og ennfremur til þvottar: sápu, sóda, bláma
og linsterkju.
Skólanum er skipt í þrjár deildir (I.,
II. og III. deild) með ákveðnum náms-
greinum og eina (aukadeild) með óákveðn-
um námsgreinum, eptir því sem hver nem-
andi sjálfur kýs sér. Þeir nemendur, sem
eru í I., II. og III. deild skólans, fá dá-
lítiun styrk; í ár hefur hann verið 22 kr.
50 aur.
Vinnu sína eiga stúlkur sjálfar og þurfa
þær því að leggja sér til allt efni til henn-
ar, einuig ritföng og bækur, og fást þær
til kaups annaðhvort á skólastaðnum eða
hjá bóksölumanni á Blönduósi. Þar í búð-
um fæst einnig ýmislegt annað, er stúlk-
ur þurfa með, svo sem málbönd, fatakrít,
pappír í snið o. fl. Stúlkur, sem ætla sér
að leggja stund á ýmislegan fatasaum,
þurfa uauðsynlega að hafa með sér góða
saumavél.
Þær stúlkur, er sækja vilja um kvenna-
skólann á Ytriey til næsta vetrar, eru
beðnar að senda sem fyrst umsókn sína
til undirritaðrar forstöðukonu skólans.
Ytriey, í jtiní 1893.
Elín Briem.
Dáinn hér í bænum 30. f. m. úr brjóst-
veiki skólapiltur Þorvaldur Magnússon
(snikkara Árnasonar) úr 4. bekk, 18 ára