Þjóðólfur - 04.07.1893, Síða 4
124
Nýdáin er frú Ingibjörg Elisábet Ounn-
laugsdóttir á Kiðabergi í Grimsnesi ekkja
Þorsteins kanseliíráðs Jónssonar, fædd á
Lambastöðum á Seltjarnarnesi 4. júlí 1830.
Yoru foreldrar liennar merkismaðurinn
Gunnlaugur dómkirkjuprestur Oddsson og
Þórunn Björnsdóttir ein liinna nafnkunnu
Bólstaðarhiíðarsystra. Frú Ingibjörg sál.
var hin mesta merkiskona, sem hún átti
kyn til, einkar tápmikil, höfðinglunduð og
mikils metin af ölium, er henni kynntust.
Húnavatnssýslu 12. júní: „Það er farið
að lengjast síðan eg reit þér seinast fréttapistil,
Þjóðólfur minn; er því kominn timi til, að og sendi
þér línu til þess þú getir ekki sagt, að þú fáir
aldrei „hljóð úr voru liorni“. Verst er, að þér er
svo vandgert til hæfls. Hina mörgu og misjöfnu
og órnildu dóma um fréttapistla vora er naumast
hægt að taka til greina, því þeir munu vera hver
gagnBtæður öðrum; þannig finnst sumum almennar
fréttir um tíðarfar, skepnuhöld, heilsufar o. s. frv.
eugar fréttir og ekki þess vert að lesa það; aptur
fiunst öðrum þetta sjálfsagðar fréttir. Eg skal ekki
neita því, að margir fréttapistlar eru lítt skemmt-
andi eða fræðandi, og auðvitað Iangt um ver rit-
aðir en mætti og ætti að vera. Hinu megið þér,
lesari góður, heldur eigi gleyma, að opt er fátt
fjörugt eða skemmtilegt til að skrifa, og ekki
heldur því, að opt fáum vér fréttir úr ýmsum hér-
uðum lands vors, sem oss þykir gaman og gagn að
heyra. Skal eg þá segja það í fréttum er cg man,
en fáorður mun eg verða um sumt, sem mér þykir
litlar íréttir í.
Tíðarfar hefur allan seinni part vetrarins
og í allt vor verið nær ómuna gott hér sem al-
staðar á landinu; snjór naumast sést úr lopti síðan
um sumarmál; hæfilegir þurkar lengst af, en væt-
ur nokkuð miklar upp á síðkastið. Grasvöxtur ágæt-
ur; lítur út fyrir sláttarbyrjun 10 vikur af.
Heilsvfar manna gott. Eg man ekki að neinn
nafnkenndur maður hafi fallið frá. Veikindi engin
sérstök.
Skepnuhöld ágæt, lítill lambadauði. Heyfirn-
ingar o. s. frv.
Málfundur. Gersamleg nýung var málfundur-
inn, sem haldinn var á Blönduósi 24. marz í vor.
Frumkvöðlar að honum gerðust einstakir menn,
einkum héraðslæknir vor og Bjarni prestur í Stein-
nesi; hann var ákveðinn nokkuð löngu fyrir og
búizt við allmiklu fjölmenni og snjöllum ræðum,
en eigi hefur heyrzt getið meiðsla eða slysa vegna
mannfjölda né heldur hefur verið tíðrætt um snjall-
ar ræður. Einhverjir munu þó hafa tekið til máls
og rætt um Iandsins gagn og nauðsynjar. Nýjar
uppástungur hef eg samt engar heyrt af þeim fundi.
Káðgert var að halda annan fund síðar í sumar.
Þess er vert að geta, að barnapróf voru í vor
haldin sumstaðar hér í sýslu; veit eg um það i
Vindhælis hrepp og Hjaltabakka og Þingeyrasókn-
um. Þess konar próf styðja mikið að framförum í
uppfræðslu harna um leið og þau gætu og ættu að
vera gott skírteini fyrir verðleikum kennara til
styrks af landssjóði.
Þá má ekki gleyma bindindishreyfingum þeim,
sem hér hafa komið fram. Þnð er gleðilegur vottur
um vaxandi sómatilfinningu og sjálfsþrek, að meiri
partur hænda í einum hreppi, auk margra ókvæntra
manna hafa gengið i vínneyzlubindindi til tveggja
ára. Séra Bjarni í Steinnesi hefur verið forgöngu-
maður þessa; á hann þar fyrir skilið miklar þakkir
og góða viðurkenningu. Auk þessa félags er ann-
að bindindisfélag í Vindhælishreppi; munu allmarg-
ir gengnir i það, karlar og konur. Mun það að
einhverju leyti stafa af hvötum kenslukvennanna
á Ytriey, en auk þess stutt af góðum mönnum“.
S.
Tanner læknir, sem fyrir nokkrum ár-
um fastaði 40 daga og 40 nætur samfleytt
og varð frægur fyrir, hefur nýlega ráðið
sér sjálfum bana í Lundúnum. Hann var
fyrsti og lielzti, er lék þessa list, ef list
skyidi kalla, en síðar hermdu margir það
eptir honum, án þess að komast til jafns
við hann (t. d. ítalinn Succi).
Málssókn gcgn konungi. Það þykir
nýluuda, að greifar (tveir) í Belgíu, v. Cun-
chy að ættarnafni, hafa höfðað mál gegn
konungi þeirra, Leópold, út úr jarðeignum
miklum, er þeir hafa selt konungi, en vilja
nú heimta aptur, af því að þeir hefðu á
ólöglegan hátt verið kúgaðir til að selja
þær. Af því að konungurinn samkvæmt
stjórnarskránni er „heilagur og friðheigur11,
er málið að nafninu til sótt á liendur öðr-
um raanni, er gengur í stað konungs.
Landsbankans
afgreiðslustofa er opin um þing-
tímann hvern virkan dag frá
1. júlí til 1. septbr. kl. 98/4 f. m.
til kl. 12SU e. m. Bankastjórn-
in er til viðtals í bankanum
kl. 10V2 til UVt f. m.
Bankastjórnin.
Tuskur úr ull. Tuskur úr hvítu lérepti.
Hrosshár. Gramall kaðali. Gamail segl-
dúkur. Kopar. Eir. Látún. Zink. Blý.
Gamalt járn. Hvalskíði. Álptafjaðrir.
Álptarhamir. Kattarskinn. Folaldaskinn
og lambskinn eru keypt í
B Aðalstræti 3.
Harmonium.
Yegna eptirsóknar eptir harmonium frá
Petersen & Steenstrup í Kaupmannahöfn,
sér sú verksmiðja sér nú fært að senda
öli karmonium til íslands með póstskipun-
um ókeypis, sömuleiðis reiknar hún ekki
umbúðir. Ef greitt er fyrir fram veitist
þess utan 10 °/0 afsláttur. Líklegt er, að
menn kaupi hjá þessari verksmiðju, eink-
um þar sem hún er reynd að vera áreið-
anieg. Menn geta hvort sem vill snúið
sér til mín með pantanir eða verksmiðj-
unnar. Til mín komu nú með „Laura“
liarmonium, sem verða til sölu fyrir þessa
verksmiðju.
Reykjavík 14. júní 1893.
292 Björn Kristjánsson.
Með „Laura“ hef eg fengið:
Yermouth 2.65, Camblanes (rauðavín) 1.10,
Bröndum Brændevin 1.20, Cognac Martel
4.35, Cognac pá Jagtflasker 1.95, Bene-
dictinerlikör 3.85 o. fl.; ennfremur vindla,
svo sem E1 Orden.
293 Steingrímur Johnsen.
„Piano“-verzlun
„Skandinavien“
verksmiðja og sölubúð
Itongens Nytorv 22, Kjöbenkavn.
Verksmiðjunnar eigið smíði ásamt
verðlaunuðum, útlendum hljóðfærum.
Birgðir af Orgel-Harmonium.
Er allt selt með 5 °/o afslætti gegn
borgun í peningum, eða
gegn afborgun.
Gömui hljóðfæri tekin í skiptum.
Yerðskrá send ókeypis.
I
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
3TcllA-lLttl’ fyrir erfiðismenn,
mjög laglegir, verð 2,75, fást í
295 verzlun Sturlu Jónssonar.
Svo hundruðum skiptir kaupi eg
smáar blikkdósir mót peningum út í
hönd. Bafn Sigurðsson.
Kaupendur ,,Þjóðólfs“ í Kjósinni eru
framvegris heðnir að vitja blaðsins lijá hcrra
verzlunarstjóra J. Korðmann við Knudtzon’s
verzlun.
Eigandi og AhyrgSarmaðnr:
Hannes Þorstelnsson, cand. theol.
Félag sprentsmiój an