Þjóðólfur - 04.08.1893, Page 3

Þjóðólfur - 04.08.1893, Page 3
147 táknar Imgann. Annar þeirra vinnur eius og jötunn, hinn er dvergur; annar er svart- álfur, en hinn Ijósálfur. Væri ekki orð- og hljóðberiun, yrði ómögulegt að stilla hinn blóðlausa eða afstýra óförum. Á hverjum morgni ráða menn með sér um gjörvallt England og Skotland gegnurn rafþræðina, hversu ferðum skuli haga þann daginn, enda má ekki skeika eina einustu mínútu. Hér eru því brautaferðirnat ótrú- lega trj^ggar, en í Ameriku miklu miður, einkum að sögn fyrir þá skuld, að menn hrapa þar stundum að brúa- og brauta- smíðum. Englendingar eru bæði manna vandaðastir og verkJægnastir að jöfnuði. — Meira seinna. Verzlunarmálafundur var haldinn hér í bænum liinn 26.—29. f. m., og voru þar samankomnir nokkrir fulltrúar frá ýmsum kaupfélögum landsins, er verzla við hr. Zöllner í Newcastle. Hafði Pétur bóndi Jónsson á Gautlöndum boðað til þessa fundar samkvæmt umboði frá fundi á Oddeyri 9. júlí f. á., en þessir fúlltrúar sóttu Eeykjavíkurfuudinu: Sigurður próf. Gunnarsson alþm. á Valþjófsstað íýrir hönd kaupfélags FJjótsdalshéraðs, Jón Jóusson alþm. í Múla og Pétur Jónsson á Gaut- löndum fyrir kaupfélag Þingeyinga, HaU- grímur bóndi Hallgrímsson á Eifkelsstöð- um fýrir kaupfélag Eyfirðinga, Pálmi bóndi Pétursson á Sjávarborg og Ólafur Briem alþm. fyrir kaupfélag Skagfirðinga, Guðjón alþm. Guðlaugsson fýrir kaupfélag Dala- manna, Skúli Thoroddsen alþm. fyrir kaup- félag ísfirðinga, Páll Briem sýslumaður og Þórður alþm. Guðmundsson fyrir kaupfélag Árnesiuga og EangveJlinga og séra Jens Eálsson alþm. fyrir kaupfélag Eosmhvala- nesshrepps. Þar var og Jón Vídalín sem umboðstnaður Zöllners. Fundarstjóri var valinn Páll Briem sýslumaður. Aðaltilgangur þessa fundar var að koma á sambandi miili Jiinna einstöku félaga m. fl., og var leugi rætt um þær ástæður, er lægju til grundvallar fyrir slíkri sam- einingu. Að síðustu var samþykkt í einu hljóði; pöntuuarfélög landsins gengju í samband sín á milli og skorað á fuudar- menu að bera það upp á héraðsfuudum og styðja það. Þá var rætt um þær tryggingar, sem fé- lögin og hinar einstöku deildir þeirra voittu félagsstjórunum og viðskiptamönuum eða lánardrottiíum þeirra, og í sambandi við það samþykkt sú ályktun, að fundurinn teJji æskilegt, að pöntunarfélögin liafi sem tryggiiegasta ábyrgð fyrir skiJvísi deiid- auna og félaganna, og skori á fundarmeim að styðja að því, að félögin borgi á hverju ári þær vörur, er þau panta. Jafnframt var kosin nefnd t.iJ að semja uppástungur um reglur sameiginlegar fyrir öli félögiu áhrærandi ábyrgð þeirra gagn- vart félagsstjórn og lánardrottnum, og voru kosnir: Páll Briem, Skúli Thoroddsen og séra Jens PáJsson, Um stofnun varasjóðs í félögunum var samþykkt í einu hljóði: að pontunarfélög- in safni varasjóðum og ef unnt er stofnfé til þess að geta borgað sem mest af pönt- uðum vörum út í liönd. Því næst var rætt um stofnun sameigin- Jegs ábyrgðarsjóðs fyrir útflutta sauði fé- laganna, og samþykkt: að pöutunarfélögin Ibggi í einn sameiginlegan ábyrgðarsjóð allt að 1 °/0 af verði útflutningssauða til að bæta upp skaða á þeim, og skorað á þau að láta í ljósi álit sitt um þetta efni. Pétur Jónsson á Gautlöndum og Hall- grímur Hallgrimsson á Eifkelsstöðum voru því næst kosnir úl að semja frumvarp til reglugerðar íýrir sjóðina. Um vöruvöndun var samþykkt svohljóð- andi ályktuu: „Fuudurínn skorar á félögin: að vanda vörur sínar sem mest og láta félagsmenn fá regiur um verkun og aðgreining á ull og fiski, ab gera verðmuu á vörum eptir gæðum og að ;liafa enga kind léttari en 100 pd.“ Jafnframt var Pétri Jónssyni og Hall- grími Hallgrímssyni falið að láta prenta reglur um ullarverkun, sem félögin í Eyja- firði og Þiugeyjarsýslu hafa, og láta fé- lögin fá þær. Ennfremur skoraði fuudurinn á félögin að láta birta í Búnaðarritinu skýrslu um hag þeirra og framkvæmdir.íj ;.jjÁkveðið var, að kostnaði af' sameiginlegumi,fund- arhöldum væri jafnað niður á íélögin og skorað á þauaðláta i ljósi álit sitt um það. Að síðustu var rætt um fundarhald næst, og samþykkt, að skora á kaupfélög- in að senda sínn manninn hvert á sam- eiginlegan fund í Eeykjavík, þá_j er uæsta alþing kemur saman, og að fulltrúar þess- ir hafi heimild til, hver frá sínu félagi, að koma á sambandi millum félaganna og gera skuldbindingar þar að lútandi. Var Pétrí á Gautlöndum falið á hendur að boða fundinu. Það má ganga að því vísu, að komist þetta fýrirkomulag á, er þessi allsherjar- fundur hefur hugsað sér, mundi það alJ- mjög tryggja tilveru félaganna og verða þeim til allmikils hagnaðar í öllum grein- um. Einiug og samheldni er jafnan mikils- verð, en ekki sízt þá, er öflugir mótstöðu- menn standa annarsvegar og leitast við af öllum mætti að ríða slig á allar til- raunir til umbóta í verzlunarmálum. Eptlrmæli. Þorkell Jónsson dannebrogsmaður frá Ormstöðum, er andaðist hér í bænum 27. júní, var fæddur 16. maí 1830 að Fossi í Grímsnesi. Foreldrar hans voru: Jón Þor- kelssou frá Ásgarði Guðmundssonar Magn- ússonar spítalahaldara í Kaldaðarnesi Guð- mundssonar, og Solveig Jónsdóttir frá Bílds- felli Sigurðssonar, systir Önnu konu séra Halldórs Jóussonar á Mosfelli. Þor- kell sál. ólst upp hjá foreldrum sínurn. Var ekki settur til mennta, en aflaði sér í æsku óvenjulega góðrar þekkingar, eink- um í reikningi og skript. Fór frá foreldr- um sínum að Ormstöðum árið 1854. Tók við búi það vor, kve ntist 10. oktbr. s. á. Ingibjörgu Þórðardóttur hreppstjóra á Orm- stöðum Guðrnundssonar. Bjó fyrst nokkur ár á hálfum Ormstöðum, flutti að Stóru- borg 1863, en svo aptur að Ormstöðum 1867; bjó síðan á allri jörðinni til dauða- dags. Eignaðist með konu sinni 17 börn ; 7 dóu í æsku, 10 lifa enn, 5 synir og 5 dætur. Varð hreppstjóri 1856 og var það jafnan síðan. Varð lneppsnefndarmaður og hreppsnefndaroddviti þegar breytiug var gerð á skipun sveitarmála með tilsk. 4, maí 1872, og var það jafnan síðanj en sýslunefndarmaður optast nær. Sátta- nefndarmaður var hann mjög lengi; einnig meðhjálpari, og frá 1880 bæði sóknarnefnd- armaður og safnaðarfulltrúi. Dannebrogs- maður varð hann 2. ág. 1874. Hann var einn af stofnendum ekknasjóðs Grímsnes- inga, sem nú er nefndur „Ekkna- og styrkt- arsjóður“ með nokkuð breyttu fyrirkomu- lagi. Hann var og mikið riðinn við stofn- un Framfarafélags Grímsnesinga og Kaup- félags Árnesinga og tók þátt í stjórn þeirra beggja. Hann var einn af stofnendum Búnaðarfélags Grímsnesinga og aðalmaður í stjórn þess. Bætti sjálfur mjög mikið ábúðarjörð sína, einkum með þúfnasléttun. Hlaut verðlaun (160 kr.) úr styrktarsjóði Kristjáns 9. 1886. Var nær 40 ára tíma mikið riðinn við flest aðalmál héraðsins. Þótti tillögugóður, stilltur og gætinn og mjög friðsamur. S. 22. f. m. andaðist eptir þunga Jegu Þórarinn bóndi Þórarinsson á Drumbodds- stöðum i Biskupstungum, á fimmtugsaldri. Foreldrar haus voru: Þórarinn, ef bjó víða

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.