Þjóðólfur - 29.09.1893, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 29.09.1893, Blaðsíða 2
178 laiidsmönnum er ómögulegt að fá peninga fyrir hana hjá þeim. Meðan þessi öfuga verzlunaraðferð helzt — er að miklu leyti mun stafa af lánunum — verður verzlunin jafnan sú úlfakreppa, sem ár eptir ár herð- ir fastar og fastar að landsmönnum. Að finna eitthvað gott og snjallt ráð til þess að losa eitthvað um þennan læðing væri harla mikilvægt, en því miður muu það alltorvelt og jafnvel hiair verzlunarfróð- ustu merin geta ekki enn sem komið er bent á neitt, er verulegt gagn mundi leiða af í þessu efni. Útlendar fréttir. Kaupmannahöfn 5. septbr. Noregur. Nú er kominn málþráður (Telophon) frá Stokkhólmi tii Kristjaníu. Hann er ætlaður konuugi og ráðgjöfum hans í Noregi, að þeir geti talazt við. I lok júlímánaðar var Nansen kominn til Chabarowa; þar,tók hann 40 sleða- hunda, sem eiga að vera í ferðinni. Hanu hafði lent í ís á leiðinni og lét mjög vel yfir skipi sínu. 3. ágúst fór hann frá Chabarowa 'og 6. ágúst sást til hans 20 mílur austur þaðan. Síðan ekki söguna meir. Þýzkaland. Ernst hertogi í Sachsen- Coburg-Gotha er dauður. Alfreð hertogi í Ediuburgh hefur tekið ríki eptir hann. Það eru réttar erfðir, en marga furðar á því, að Pjóðverjar skuli hafa tekið hann gildan, því Alfreð þessi er ramenskur. Frakkland. Kosningunum var lokið í gær. Úrslitin eru þessi: 409 þjóðveldis- menn, 79 jafnaðarmenn, 29 miðmenn og 64 íhaldsmenn. Clemenceau og Floquet féllu. Þeir hafa báðir verið riðnir við Panamamálið, reyndar miklu minna en margir aðrir, sem þó hafa náð kosningu. Sunnan til á Frakklandi, í Aigues Mortes, Nancy og víðar, hafa að undan- förnu verið miklar róstur milli ítalskra og og frakkneskra vinnumanna. ítaiir fást í vinnu fyrir lítil laun. Frakkarnir una því illa— sem von er— að útlendir menn skuli spilla atvinnu þeirra. Mælt er að 20 eða 30 ítalir haíi verið drepnir i þessum ó- friði. England. írska stjórnarskráin var Ioksins samþykkt vi* 3. umræðu í neðri málstofunni með 301 ..tkvæði móti 267. Nú er hún komin inn í efri málstofuna, og þar til annarar umræðu. Rússar eru að koma sjer upp nýu herskipalægi í Líbau. Þeir ætla bráðlega að senda herflota tii Frakklands með vin- samlegar kveðjur og þakkir fyrir Rúss- landsför franska flotans, þá í hitt eð fyrra. Rússakeisari er nú sem stendur hjer í Höfn. Danmörk. Ungur danskur málfræð- ingur, 0strup að nafni, fór í austurveg í fyrra að kynna sjer tungur manna. Hann komst í mikil kynni við Araba og fékk lijá þeim fallegan hest af gömlum ættum, (eins og kunnugt er vita Arabar um ættir hesta sinna og rekja þær langt fram í aldir). Hesturinn heitir Antar. 0strup er nú nýkominn heim og hefur riðið Antar einhesta alla Jleiðina. Er það sjaldgæft ferðalag nú á dögum. Hann fór 8 milur í hverjum áfanga og hvíldi 5. hvern dag. 40 daga var haun á leiðinui úr Miklagarði til Hafuar. Síam. Yjer gátum þess jseinast, að Síamingar hefðu gengið !að öllum friðar- skilmálum Frakka. En nú hafa Frakkar fært sig betur upp á skaptið og heimta mikil og mörg hlunnindi þar í landi. Þeg- ar á allt er litið, hafa Frakkar beitt verstu raugindum og ofstopa í viðureign sinni við Síaminga, enda ekki örvænt, að aðrarþjóð- ir skerist í leikinn. í Síam búa heilmargir danskir menn og eru mjög vel látnir. Margir foringj- arnir þar í heruurn eru danskir og gengu mæta vel fram í viðureigninni við Frakka, enda er það eitt af því, sem Frakkar heimta, að þessum dönsku herforingjum verði vís- að úr landi. Silí'rið er stórum að falla í verði, því silfurnámunum er einlægt að fjölga. Lík- ur eru til, að þessi verðlækkun muni um stund koma heilmiklum ruglingi á peninga- ingagildið og valda vandræðum í verzlun manna og viðskiptum. Gíufuskipið „Alplia“ frá Hamborg um 300 smálestir kom hingað í fyrra dag og með því Björn Kristjánsson kaupmaður, er hafði fermt það salti og öðrum nauðsynja- vörum handa pöntunarfélagi Borgfirðinga o. fl., sem hann hefur umboð fyrir. Skipið fór samdægurs upp á Akranes. Sendir pöntunarfélag Borgfirðinga fjárfarm með því til Skotlands, er skal seljast þar. Hvalveiðabátur norskur kom hingað af Vestfjörðum í fyrra dag. Farþegarmeð honum voru: dr. Björn M. Ólsen, er dval- ið hefur nyrðra í sumar við málfræðislegar rannsóknir, séra Bjarni Þorsteinsson frá Siglufirði og liinn setti sýslumaður og bæjarfógeti á ísafirði Lárus Bjarnason. Bátur þessi.fór vestur til Önundarfjarðar samdægurs og með honum frú Theodora Thoroddsen (kona Skúla sýslumanns), er dvalið hefur hér í bænum í sumar ásamt manni sínum, en sjálfur fer hr. Sk. Thor- oddsen nú vestur með „Thyra“. Strandferðaskipið „Thyra“ koin loks í morgun; hafði tafizt fram yfir áætlun á ýmsum höfnum sakir mikillastorma o.fl. Með því komu allmargir skólapiltar og nokkr- ir fleiri farþegar. Séra Matthías Jochumsson kom heim úr Chicagoför sinni með „Thyra“, er hafn- aði sig á Akureyri 19. þ. m. f bréfi til ritstjóra þessa blaðs 20. þ. m. lætur hann allvel yfir ferðinni, og kveðst hafa skemmt sér vel, en kvartar helzt yfir, að hitinn hafi verið mikill. Samkvæmt tilmælum margra landa vestanhafs ætlar hann að gefa út sérstaka ferðasögu (sbr. auglýs- ingu hér aptar í blaðinu) og má ganga að því vísu, að hún seljist vel, því að séra Mattli. ritar fjörugt og skemmtilega og kann að lýsa því, er fyrir augun ber, á þann hátt, er hlýtur að vekja athygli les- endanna. Yér erum sannfærðir um, að allur þorri landsmanna muni biðja séra Matth. vel- kominn heim til ættjarðarinnar og gleðjast yfir því, að hinar órökstuddu hrakspár sumra blaða, um að hann mundi ílendast þar vestra, liafa ekki rætzt, enda var ekk- ert hætt við því. Skipstraud. Fyrir skömmu rak á land í Ólafsvík skipið „Dyrefjord“, eign Gratns kaupmanns á Dýrafirði, og brotn- aði það. Hann hefur þannig í sama mán- uðinum misst þar tvö skip, því að hið fyrra („Amicitia") strandaði þar 4. þ. m., eins og áður hefur verið minnzt á hér í blað- inu. Ný málaferli. Björn Jónsson, ritstjóri ísafoldar, hefur höfðað mál gegn Skúla Thoroddsen út af grein (eða greinum) í 24. tölubl. „Þjóðviljans unga“ í sumar, en Skúli hefur aptur gagnstefnt honum útaf greinum í „ísafold“. Það er annars fremur nýlunda, að ritstjórar eigi í málaferlum hvorir við aðra, síðan „grænahundsmálið“ var á ferðinni, sem Gestur heit. Pálsson höfðaði gegn ritstjóra „Fjallkonunnar11.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.