Þjóðólfur - 30.03.1894, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 30.03.1894, Blaðsíða 3
59 stakir menn hennar að láta af þessum og þyílíkum ðsóma og enda strákskap, sem er því hryggilegri, sem full líkindi eru til, að þetta fremji menn, sem komnir eru af barnsaldrinum, og það menn, sem hijðta að geta skilið, að með þessu skemmi þeir ekki einungis fyrir þjóðinni í heild sinni, heldur einnig fyrir sjálfum sér, og geri með þessu athæfi henni og sér skömm og skaða. S. Eptirmæli. Hinn 8. fehr. síðastl. andaðist Sveinn Víkingur, veitingamaður á Htisavík, eptir þunga og langa legu, 48 ára að aldri. Sveinn var fæddur á Víkingavafni í Kelduhverfi og kenndi sig við þann stað, svo sem fleiri ætt- menn hans, og þar ólst hann upp. Hann var son- ur Magnúsar Gottskálkssonar — bróður Erlendar í Ási — trésmiðs á Víkingavatni, Pálssonar, Sigurðs- sonar. Gottskálk var ættaður og kominn auBtan af Langanessströndum. ^ Móðir Sveins var Ólöf Bjarnardóttir, Þórarins- sonar, Pálssonar, Arngrímssonar sýslumanns í Þing- eyjarsýslu, Hrólfssonar, Sigurðssonar — og voru þeir einnig sýslumenn þar — Hrólfssonar hins „8terka“ Bjarnasonar. Sveinn nam söðlsmíð af Jóní hónda Benedikts- syni á StóruvöIIum, og giptist hann síðan 1875 ungfrú Kristjönu Sigurðardóttur, Kristjánssonar hónda á Illugastöðum i Pnjóskadal. Fluttu þau sama ár að Húsavík, og gerðist Sveinn þar veit- ingamaður og var það til dauðadags. Þeim hjónum varð 7 harna auðið; 4 létust í æsku, en 3 synir eru á lífi. Svo sem framanskráð ættartala sýnir var Sveinn kominn af ættum þeim, sem andlegt og líkamlegt atgerfi hefur fylgt, enda var hann þrekmaður og hafði náttúrugáfur og sjálfstæði í skoðunum um- fram flesta menn. Hann var maður trygglyndur, vinfastur og drengur góður, en þó kappsmaður og vildi ekki láta hlut sinn, þegar því var að skipta Hann hafði sveitarstörf á hendi um mörg ár, og háru menn til hans hið hezta traust í hvivetna. Sveinn fékk eigi þá menntun í æsku, sem gáf- um hans var samboðin, þess vegna varð hann eigi þjóðkunnur maður, enda hélt haun sér eigi fram. Þó var bann lesinn maður og fróður um margt og bókamaður mikill. Hann var eigi kirkjutrúar- maður, en þó trúmaður og hallaðist nokkuð að skoðunum andsjáenda. Það mun óhætt að telja Svein heitinn með hinum merkustu og einkenui- legustu mönnum, sem Þingeyjarsýsla hefur alið. (G. F.j. Pétur Pálmason hóndi á Álfgeirsvöllum i Skaga- íirði, er andaðist úr lungnabólgu 16. febr. (sbr. 12. tölubl. Þjóðólfs), var fæddur í Syðra-Vallholti 29. ágúst 1819, kvæntist 1851 Jórunni HanneBdóttur, er lifir hann, og áttu þau saman 11 börn, og dóu 3 þeirra í æsku, en 8 eru á lífi, sem öll eru talin í 12. tölubl. Þjóðólfs. Vorið 1849 reisti Pétur bú á eignarjörð sinni Valadal og bjó þar rausnarbúi í 27 ár, fluttist þaðan vorið 1876 að Álfgeirsvöllum og bjó þar til dauðadags. „Pétur sál var tæplega meðalmaður á hæð, en þrekinn og knálegur á velli, hraustur að afli og frækinn glímumaður á yngri árum, iðjumaður mikill alia æíi og afkastamaður til vinnu. Hann var einkar tápmikill og rikur i lund, en svo stilltur, að aldrei heyrðist hann tala eitt styggðaryrði, fáskiptinn hversdagslega en glað- lyndur, greindur og skemmtinn, þegar hann var tekinn tali. Hann var tryggur og vinfastur, gerði aldrei á hluta nokkurs manns og vildi eigi vamm sitt vita“. (Ó. B.). Nýung þótti það við jarðarför Sveins Víkings á Húsavík 20. febr., að leikmaður talaði yfir gröf- inni blaðalaust í fjórðung stundar hér um bil og þótti rnælast prýðis-vel. Þessi maður var Guð- mundur Friðjónsson, sá hinn sami og séra Jón Bjarnason veltir sér yfir í „Sameiningunni“ út af kristniboðsmálinu og vildi, að rekinn hefði verið af Möðruvallaskólanum „með háðuug“. Aheyrandi. í næstliðnum apríimánuði var í Sveinsstaðahreppi í Húnavatnssýslu seld grá hryssa á 4. vetri með hrossamarki mínu, sem er hangfjöður aptan vinstra, en þessa meri átti eg ekki; óska eg því að eigandi merarinnar gefi sig fram og semji um markið við mig innan loka næstkomandi októbermánaðar, að öðrum kosti fellur andvirði merarinnar í sveitar- sjóð. Auglýsing þessi dregst að sjálfsögðu frá mer- arverðinu. Staddur á Blönduós 2. marz 1894. Þorvaldur Bjarnarson frá Mel i Miðfirði. Eg undirskrifaður fékk í haust tvö lömb úr eptirleit með mínu marki: sýlt hægra, sneitt fram- an vinstra og gat, en á ekki lömbin. Eg bið þann, sem tekið hef'ur upp mark mitt, að gefa sig fram og semja við mig. Galtastöðum í Gaulverjabæjarhr. 29. nóv. 1893. Sveinn Þorláksson. 16 hálminn, féll höfuð þess út á aðra hliðina og slóst ofur- lítið við vagnþiljurnar og þá Iá við sjálft, að Henniug félli í órnegin og honum var mjög þungt um hjartaræt- urnar, meðan verið var að aka líkinu frá Borup til Hagestedgaard. Þá er hann hafði afhent líkið datt honum fyrst. í hug að hlaupast burtu og það var með mestu herkjuin, að hann gat fengið það af sér að vera kyr, þangað til jarðarförin væri um garð gengin. Það var eins konar sóttveikis ókyrð i framgöngu hans um þetta leyti, og hugsanir hans svo undarlega flóttalegar, að hann gat ekki fest hugann á neinu, heldur hvarflaði frá einu til annars. Það iá við sjálft, að þessi óþrotlega þyrlan og hringferð hugsananna, er hann gat ekki ráðið við. mundi gera hann vitstola, og þá er hann var eiusamall, tók hann að þylja upp tölur eða raula eitthvað fyrir munni sér og fylgja hljóðfallinu með fætinum, til þess að halda hugsunum sínum sem bundnum á þann hátt og sporna við því, hann þyrlaðist inn í þetta óttalega, þreyt- andi iðukast þeirra. Loksins fór jarðarförin fram. Daginn eptir var Henniug kominn áleiðis til timb- urkaupmannsins, frænda síns og hafði ásett sér að beið- ast atvinnu við verzlun hans. Hann hitti svo á, að frændi hans var í mjög döpru skapi, því að gamla ráðs- 13 veikur af ástardraumum. Það var svo rólegt, það var næstum sæla að sitja þarna grafkyr og stara út í geim- inn í eir,s konar drungadvala, að hugsa sér veröldina liggja langt í burtu í afarmikilli fjarlægð og sér óvið- komandi og láta stundirnar deyja hverja eptir aðra. Þá ómaði glaðlegur og fjörugur söngur í þokunni: í Hörpu leiði eg heim mína brúði, þá hýrustu blómrós í liljuskrúði. Sönginn glatt lát gjalla! Með laufi skal hattinn sinn skóguriun skreyta og skarta mun túnið með blómagnótt. í gleðidanzi skal sólin sig sveita og svo verður tunglið fullt þá nótt. í loptinu hamingju-gaukur skal gneggja og glatt dýrðast lóan um heill okkar beggja. En sorgin skal hýrast heima. Þetta var sungið með hinni skæru rödd Nielsar Bryde. Henniug spratt á fætur, og hatrinu laust sem elding niður í hjarta lians. Það braun heiptareldur úr augum hans og hann hló kuldahlálur. Svo lagði hann byssuna við kinn sér. „En sorgin skal hýrast heima“ hljómaði aptur fyrir eyrum hans; hann miðaði á hljóðið inn í þokunni og við hvellinn dvínuðu og dóu siðustu orðin. Því næst var allt hljótt sem fyr. Henning varð að styðja sig við rjúkandi byssuna.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.