Þjóðólfur - 13.04.1894, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 13.04.1894, Blaðsíða 2
66 Athf/r. ritstj. Os3 berast með hverri póstferð úr ísafjarðarsýslu og enda víðar að svo langar skýrslur um þá Lárus og „Gretti“, að hinir háttv. höf. verða að af- saka, þótt allt þess háttar birtist ekki í blaðinu, enda lítt frambærilegt á prenti sumt hvað. Tóvinnuvélar. Skagfirðingar hafa orð- ið fyrstir til að nota sér tilboð síðasta al- þingis um lánveitingu til tóvinnuvéla og lýsir það lofsverðri framtakssemi ogfram- farahug. Heyrzt hefur, að Eyfirðingar ætli að vera í félagi með þeim, en ekki vitum vér fullar sönnur á því. Um þetta er skrifað úr Skagafirði 22. f. m. á þessa leið: „Á sýslufundi, sem haldinn var hér í vet- ur mun það hafa gerzt markverðast, að ráðið er, að koma upp tóvinnuvélum hér í firðinum. Ætlar hugvitsmaðurinn Sig- urður Ólafsson á Hellulandi að standa fyr- ir því fyrirtæki; veitti sýslunefndin hon- um 500 kr. styrk, til þess að sigla og sjá tóvinnuvélar erlendis, en sjálfur kvað hann ætla að taka 2000 kr. lánið úr landssjóði, sem síðasta þing ákvað að veita mætti Skagfirðingum í þessu skyni, en auðvitað stendur sýslunefndin í ábyrgð fyrir lán- inu“. M a n n a I á t. Hinn 2. þ. m. andaðist að Velli í Hvol- hrepp Eermanníus Elias Jóhnson fyrrum sýslumaður Rangvellinga. Hann var fædd- ur á ísafirði 17. desember 1825. Faðir hans var Jón verzlunarstjóri á ísafirði Jónsson yngra á Reykhóium Magnússonar í Snóksdal (f 1752) Jónssonar pre3ts í Miðdalaþingum Hannessonar í Snóksdal Eggertssonar sama staðar Hannessonar sama staðar Björnssonar Hannessonar hirð- stjóra Eggertssonar lögmanns í Yíkinni í Noregi Eggertssonar. Móðir Hermanníus- ar sýslumanns var G-uðbjörg dóttir séra Jóns Oddssonar Hjaltalíns á Breiðabóls- stað, alsystir Odds Hjaltalíns Iæknis en hálfsystir Jóns Hjaltalíns landlæknis. Jón maður hennar dó 1827 frá börnum þeirra í æsku, en hún giptist aptur Ámunda Halldórssyni óðalsbónda á Kirkjubóli. — Hermanníus var útskrifaður úr Reykja- víkurskóla 1849, tók próf í lögfræði við háskólann 1856 með 2. einkunn, var sett- ur málaflutniugsmaður við yfirdóminn 1858, þjónaði um tíma laud- og bæjarfógetaem- bættinu sem settur, en fékk Rangárvalla- sýslu 1861, og þjónaði henni, unz hanu fékk lausn frá embætti 1890. Hann var kvænt- ur Ingunni Halldórsdóttir bónda á Álfhól- um í Landeyjum Þorvaldssonar og eru börn þeirra: Jón stúdent við háskólann, Halldór í skóla, Oddur, Q-uðrún kona séra Eggerts Pálssonar á Breiðabólsstað, Guð- björg kona séra Jóns Thorsteinsens á Þing- völlum og Kristín ógipt. Hermanníus sýslumaður var góður mað- ur og gegn, hóglátur og hafði mannhylli. Hann hafði ráðgert að flytja til Reykja- víkur nú í vor. 7. þ. m. andaðist hér í bænum Guðný Gísladóttir Möller ekkja Hans Möllers kaup- manns í Reykjavík 86 ára gömul. Faðir hennar var Gísli bóndi á Óseyri við Hafnar- fjörð Pétursson á Loptsstöðum Þórðarson- ar í Þorlákshöfn Gunnarsonar Jóussonar af Eyrarbakka Eyjólfssonar, en móðir hennar hét Þorbjörg ættuð austan úr Hreppum. Guðný sál. giptist manni sín- um 1832, en missti hann eptir tveggja ára sambúð 1834 og var ekkja uppfrá því alls 60 ár. Hún var mesta sæmdar- kona, og virt og elskuð af öllum, er hana þekktu, staðföst og trygg í lund. 5. þ. m. andaðist Kristín Effgertsdóttir (stúdents Magnússonar Waage’s hér í bæn- um og húsfrúr Krístínar Sigurðardóttur stúdents á Stóra-Hrauni) kona Helga verzl- unarstjóra Jónssonar í Borgarnesi, góð kona og vel látin. 30. f. m. andaðist í Skálholti í Biskups- tungum Páll Eyjólfsson gullsmiður, er lengi átti heima hér í bænum, og var um hríð veitingamaður á Gfeysi, en áður útgefandi „Tímans“ og „íslendings yngra“. Hann var sonur Eyjólfs bónda á Torfastöðum í Grafningi Ásgrímssonar prests í Stóradal Pálssonar klausturhaldara á Elliðavatni Jónssonar. Hann var kvæntur Rósu Jó- hannesdóttur frá Hranastöðum í Eyjafirði og eru dætur þeirra: Pálína kona Eyjólfs kaupmanns Þorkelssonar og Eygerður gipt í Ameríku. — Páll sál. var vel að sér um margt, glaðlyndur og skemmtinn í viðræð- um, dugnaðarmaður á yngri árum og hafði allmikinn áhuga á þjóðmálum. 2. febr. andaðist að Réttarholti í Skaga- firði Helga Þorvaldsdóttir ekkja Ara kan- selliráðs Arasonar á Flugumýri. Eru nú látin öll hin mannvænlegu börn Þorvaldar prófasts Böðvarssonar. Börn Helgu eru: Þorvaldur Ari óðalsbóndi á Flugumýri, Anna Sigríður, Guðlaug kennslukona í Reykjavík og Kristín. Helga sál. var „væn kona og vitur, skörungur mikill og at- gerviskona“. í f. m. andaðist Magnús Sæmundsson óðalsbóndi á Búrfelli í Grímsnesi og litlu fyr kona hans Guðrún Gísladóttir frá Kröggólfsstöðum Eyjólfssonar bæði hnigin á efra aldur. Magnús var bróðir Sæmund- ar, er bjó á Elliðavatni, og vel fjáður mað- ur, átti ekki böru. Látinn er úr heilabólgu Jóhann Sæ- mundsson ungur og efnilegur bóndi í Lækj- arbotnum á Landi, sonur Sæmundar, er þar bjó fyr, Guðbrandssonar samastaðar Sæmundssonar Ólafssonar. Suður-Múlasýslu (Páskröðsíirði) 24. febr.: Þjóðólfur minn! Mikið hefur á gengið hér eystra, síðan eg reit þér síðast. Þorrinn var ekki þýður í viðmóti, því þó hann ekki færði okkur miklar frostgrimmdir, var fannkyngið þess ógurlegra, svo allar skepnur hafa staðið við gjöf, allt að síðasta degi. En 2 siðustu dagana var góð hláka og grynnti mikið, þó lítil kæmi jörð fyrir skepnur. Síðan hefur verið stillt veður og órkomulitið. Ofan á hið mjög stirða tíðarfar bættist anuað verra. Hér hefur influenza geisað sem eldur yfir akur og lagt marga menn í gröfina. Hún var engu betri en sú síðasta. Hún fluttist í land 4 3 stöðum jaínsnemma, Seyðisfirði, Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði, og færði „Yaagen“ okkur þessa óheilla-sendingu. Helzt hafa það verið gamalmenni og miðaldrafólk, sem hún hefur drepið, það sem haft hefur brjóstþyngsli, því sumir hafa fengið með henni þungan og iangvarandi hósta. Nú hefur hún drepið hér 8 menn í hreppnum þegar þetta er skrifað, og margir sagðir dánir í Norðfirði, Sandvík, Vöðlavík og Reyðarfirði og fjöldi á Héraði, en ekki hef eg heyrt neina áreiðanlega tölu þar á. Heyrzt hefur, að dánir séu milli 20 og 30 á Úthéraði, og þar 4 meðal ýmsir merkir menn (í Pljótsdalnum). Sögð er og eymd mikil á sum- um sföðum, vegna manndauðans, þar efra. Engir nafnkenndir menn hafa dáið hér í sveit nema Jón Stefámson, bróðir Björns Stefánssonar bónda í Dölum. Hann var í mörgu merkilegur maður og öðrum fremur að listfengi og gáfum, og er margt til eptir hann, semheitiðgetursnilldarverk, þótt hann væri ekki lærður maður. Erlendis hefði hann efalaust orðið frægur maður, þó lítið yrði úr honum hjá okkur íslendingum. Hann er ekki sá fyrsti, og verður að líkiudum ekki sá siðasti, sem ekki hefur gefizt kostur á að sýna ágæti sitt i neinu. Aðalhandverk hans var söðlasmiði. Nýdáinn er líka Antonius Þorsteimson i Lönd- um við Stöðvarfjörð. Það atvikaðist þannig, að hann keypti hjá Zeuthen lækni á Eskifirði svefn- meðal (opium) til útblöndunar i 2 þriggja-pela flösk- ur. Pyrsta kveldið, sem hann brúkaði meðalið, fylgdi hann „receptinu“ og svaf vel um nóttina. Um morguninn fór hann að tefia í rúmi sínu. Litlu síðar gekk sá frá honum, er við hann tefldi, til útistarfa, en þegar hann kom aptur, var Antonius heitinn sofnaður og hafði hann þá drukkið allt meðalið úr aunari flöskunni. Vaknaði hann ekki framar til þessa lífs, og þykir að honum mikill mannskaði, þvi hann var á bezta aldri og dugnaðar- maður, fjáður vel, og gáfaður. Hann lifði við beztu kringumstæður, og verða því ekki séðar neinar orsakir til hinna sorglegu afdrifa hans. — Hann var

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.