Þjóðólfur - 13.04.1894, Síða 4
68
uðu voru: Oddgeir Vigfússon (sýslumanns
Sigurðssonar Thorarensens) frá Hæli í
Eystrahrepp, Þórarinn sonur Arnbjarnar
bónda á Selfossi og Sigurður Árnason í
Mörk á Eyrarbakka, allir kvæntir.
Strandferðaskipið „Thyra“ kom hing-
að norðan um land og vestan 11. þ. m.,
3 dögum á undan áætluu. Farþegar með
henni voru: sýslumennirnir Páll Einarsson
og Sigurður Briem, séra Ólafur Petersen
á Svalbarði, Sigurður Jóhannesson frá
Winnipeg, er kemur snöggva skemmtiferð
hingað o. íl.
Inflúenza-sðttin er nú komin á Vest-
firði. Til ísafjarðar hafði hún borizt með
sjómönnum frá Breiðafirði, og lá þar fjöldi
fólks, er „Thyra“ fór þaðan.
ísfirzku málaferlin. „Brennivíns11- eða
„bjórmálið" svonefnda, er Björn sýslumað-
ur Bjarnarson höfðaði gegn þeim vottorðs-
mönnunum sex, er nú dæmt af hinum
skipaða dómara, Páli sýslumanni Einars-
syni, og urðu úrslitin þau, að vottorðs-
gefendur voru sektaðir um 40 kr. hver og
brennivínsvottorðið dæmt dautt og mark-
laust. Kærumálunum miðar lítið áfram
og mál Guðmundar Sveinssonar í Hnífsdal
(,,barsmíði8málið“) er enn óútkljáð.
Heysir og Strokkur voru fyrir fullt
og allt seldir 9. þ. m. írskum manni James
Craig (yngra) í Belfast fyrir 3000 kr. í
kaupinu fylgja og hverirnir „Blesi“ og
„Litli Geysir“ eða svonefnd „Óþerrihola“
ásamt dálitlu svæði kringum hverina, alls
um 650 □ faðmar. Ábúandinn á Hauka-
dal hefur áskilið sér rétt til að hafa um-
sjón hveranna, gegn hæfilegri þóknun, þá
er eigandi er ekki viðstaddur, ennfremur
forkaupsrétt að hverunum, ef þeir verði
seldir aptur. Hann á og að annast hesta-
gæzlu fyrir ferðamenn. eins og að undan-
förnu, því að ekkert beitiland fylgir með
i kaupinu.
Seljendur hveranna: Sigurður bóndi Páls-
son á Laug og synir hans Greipur og Jón
bæudur í Haukadal verða alls ekki ásak-
aðir fyrir þessa sölu, því að þeir höfðu
boðið landssjóði hverina til kaups, en þing-
ið vildi ekki, hefur líklega þótt viðkunn-
anlegra að hverirnir lentu í höndum út-
lendinga, enda er það nú orðið og tjáir
ekki um það að fást. Það getur vel ver-
ið, að hinn nýi eigandi sýni hverunum
meiri sóma, en landssjóður hefði gert, reisi
þar gistihús o. 8. frv., en talið er það mjög
óvíst, af þeim er kunnugastir eru.
Verzlun J. P. T. Bryde8
í Reykjavík
hefur nú fengið stórar birgðir af allskonar
vörum, þar á meðal margar tegundir mjög
hentugar í sumargjafir, sem seljast óheyrt
billega eptir gæðum.
Einnig margar tegundir af
tóbaki og vindlum,
allskonar vefnaðarvðrum,
léreptum,
sirzum,
heil- og hálf-klæðum.
Margar tegundir af
smáum og stórum sjölum,
allskonar járnvörum (Isenkram),
masturspírum og legtum.
Normal-Kaffl 0,70.
Allar vörurnar seljast mjög ódýrt gegn
peningaborgun.
Olíu-maskínurnar „Primus“, sem
brenna án kveiks, koma aptur með „Laura“
í júní.
Fundarboð.
Mánudaginn 16. apríl verður haldinn
fundur í hinu „íslenzka kvennfélagi11 í
Goodtemplarhúsinu kl. 5 e. h.
Allt maskínuprjón fæst fljótt og vel
af hendi íeyst í Þingboltsstræti 3.
Vilborg Jónsdóttir.
Normal-Kaffi
frá verksmiðjunni „Nörrejylland“
er, að þeirra áliti er reynt hafa, hið
bezta kafft í sinni röð.
Normal Kaffl er bragðgott, hollt og
nærandi.
Normal-Kaffi er drýgra en vehjulegt
kaffi.
Normal-Kaffi er að öllu leyti eins gott
og hið dýra brennda kaffi.
Eitt pund af Normal-Kafíi endist á
móti 1^2 pd. af óbrenndu kaffi.
Normal-Kaffi fæst í flestum búðum.
Einkaútsölu hefur: Thor. E. Tulinius.
Strandgade Nr. 12
Kjöbenhavn C.
NB. Selur að eins lcaupmönnum
Tvser li^r geta fengizt
keyptar, sem mjólka ágætlega vel að
sumrinu. Ritstj. vísar á.
Terpentínolía, fæst
í verzlun
Sturlu Jónssonar.
Málaflutningsmaður.
Undirritaður tekur að sér að flytja mál
og semja samninga, útvegar lán gegn veð-
rétti og gefur lögfræðislegar leiðbeiningar.
Mig er að hitta kl. 12—3 í húsi Ólafs
gullsmiðs Sveinssonar nr. 5 í Áusturstræti.
Keykjavík 6. apríl 1894.
Halldór Bjarnason
oand. juris.
SaltaSa sild
ágætlega góða selur Jón Laxdal bókhald-
ari í Reykjavík.
Gott íslenzkt smjör fæst til kaups.
Ritstj. vísar á.
Jón Brynjólfsson
(skósmiður)
hefur til sölu talsvert af tilbúnum skó-
fatnaði fyrir karlmenn, kvennmenn og
börn; einnig vatnsstígvél.
Skófatnaðurinn er úr bezta efni og með
nýjasta lagi.
12. Banlcastrœti 12.
Lýsing
á kindum Jieim, sem ekki gengu út af úrgangi
Reykjaréttar og seidar voru í Dælnarétt 2. oktbr.
1893:
1. Mórauður sauður tvævetur: sýlt; biti apt. h.;
blaðstýft fr., biti apt. v.
2. Hvítur sauður tvævetur: tvístýft apt., fjöður
fr. h.; standfjöður fr. v.
3. Hvit ær tvævetur: sýlt, fjöður fr. h.; sýlt, fjöð-
ur fr. v.; brennim.: J. B.
4. Hvit ær: hálftaf apt., sneitt fr., gat h.; sýlt í
hálfan stúf apt., gat v.
5. Hvít ær, kollótt: afeyrt h.; tvístýft apt. v.
6. Hvít ær vgl.: heilrifað, fjöður fr. h.; heilhamr-
að v.
7. Hvít gimbur, lamb: hálfur Btúfur fr., biti apt.
h.; hálfur stúfur apt., biti fr. v.
8. Hvítur geldingur, lamb: sneitt fr. h.; sneitt
apt., gagnbitað v.
9. Svört gimbur, lamb: Btúfrifað, gagnfjaðrað h.;
Btúfrifað, fjöður fr. v.
10. Hvít gimbur, lamb: sneitt apt., gat h.; sýlt,
gat v.
11. Hvít gimbur, lamb: heilrifað h.; 2 stig apt. v.
12. Hvít gimbur, lamb: heilhamrað, gat h.; gagn-
fjaðrað v.
13. Hvít gimbur, lamb: sýlhamrað h.; biti fr. v.
14. Hvítur geldingur, lamb: sýlt í tvístýft apt.,
biti fr. h.
15. Hvít gimbur, lamb: blaðstýft fr. h.; Btýft, fjöð-
ur apt., hangandi fjöður fr. v.
16. Hvítur hrútur, lamb: sneiðrifað apt. h.; tvíatýft,
biti apt, v.
Andvirði ofanritaðra kinda, að koBtnaði frá-
dregnum, fæst hjá undirskrifuðum til næstkomandi
októbermánaðarloka.
Skeiðháholti, í febrúar 1894.
Jón Jónsson.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Hannes Þorsteinsson, cand. theol.
FélagBprentsmiöjan.