Þjóðólfur


Þjóðólfur - 09.11.1894, Qupperneq 2

Þjóðólfur - 09.11.1894, Qupperneq 2
210 stökum mönnum fjárvon með að kæra að að raunalausu. Það er því að vorri hyggju engin hætta á, að þes3um lögum verði beitt, nema þegar menn sjá sér hættu búna af of miklum hvalleifum reknum frá hvalveiðistöð á land þeirra, og þá á lika vel við að beita þeim en endrarnær ekki. Eitað í Álptafirði 10. október 1894. Hundraö ára afmæli (9. nóvember 1794 — 9. nóvember 1894). í dag eru liðin 100 ár síðan Skúli Magnússon landfógeti í Viðey andaðist. í öðrum löndum mundi ómerkari manns en Skúla vera minnst með einhverjum há- tíðabrigðum á 100 ára andláts afmæli hans, en hér er ekki um neitt slíkt að tala. Það gleymist þó ekki að draga fána á hverja stöng hér í bænum á hverju fæð- ingarafmæli landshöfðingja eða Danadrottn- ingar, sem aldrei hefur ísland séð, né unnið neitt í þarfir þess, sem vitanlega þarf heldur ekki að ætlast til, enda mun allur þorri íslendinga ekki vita, hvað hún heitir. Landshöfðingjann munu þó fleiri kannast við að nafni, en hver íslendingur, sem nokkuð er kominn til vits og ára, mun aptur á móti hafa heyrt Skúla „fógeta“ nefndan. Hann ber svo höfuð og herðar yfir samtíðarmenn sína að dugnaði og framkvæmdum í landsins þarfir, að það væri ófyrirgefanleg gleymska, að minnast hans ekki á þessum tímamótum. Auðvitað er hér ekkert rúm og engin tök á að lýsa hinum margbreytilega Iífsferli hans og margháttaða lífsstarfi. Til þess þarf langar og miklar rannsóknir í sögu lands- ins á 18. öld, sem enn má kallast alger- lega óplægður akur. En það er vonandi, að næsta öld líði ekki svo, að það verði gert rækilega. Þá mun það koma greinilega í Ijós, hvílíkur afkasta- og fram- faramaður Skúli fógeti var, og hversu mikinn þátt hann átti í því, að buga hina óþolandi verzlunareinokun hér á landi á þeim tímum. Þar var við ramman reip að draga, en Skúli varð ekki linhlaupa og lagði ekki árar í bát, þótt við mikla erfiðleika og megna mótspyrnu væri að berjast. Kunnugt er einnig, hversu mik- inn þátt hann átti í að koma á fót hin- um svonefndu „innréttingum11, og þótt þeim hnignaði síðar fyrir andróður einok- unarverzlunarinnar, áhugaleysi Iandsmanna, harðæri og ýms óhöpp m. fl., þá verður því ekki neitað, að þær voru mjög þarf- legar stofnanir, og hefðu getað orðið land- inu til mikils hagræðis, ef allt hefði farið með felldu. Skúli var og frumkvöðull að því að útvega hingað þorskanet frá Sunn- mæri í Noregi. Hann kom hingað með rokka og nýja vefstaði í stað kljásteins- vefstaðanna gömlu, er eptir það fóru að hverfa úr sögunui. Miðaði þetta allt til meiri þæginda og hagræðis, en áður hafði verið, og sýndi bezt, hver áhugamaður Skúli var í hvívetna, og er þó hér fæst talið. Má með sanni segja, að í sögu landsins síðari helming 18. aldar berí miklu meira á Skúla en nokkrum öðrum manni og jafnvel að rækileg æfisaga hans um það skeið sé sama sem saga alls lands- ins á því tímabili, og er þá mikið sagt, en þó ekki ofmikið. Að vísu hafa sumir borið honum á brýn ofsa og harðfylgni heldur mikla, en þess ber að gæta, að „góðmennskan gilti ekki“ á þeim tímum, og að ekki var við lömb að leika sér, þar sem einokunarverzlunin var hins vegar og allur sá óvinafagnaður, er Skúli átti við að etja. Hann þjónaði einhverju hinu vandasamasta og erfiðasta embætti á þeim tímum — landfógetaembættinu. — Yar þá harðæri mikið í landi allan síðari helming 18. aldar, svo að ekki hefur í annan tíma meira verið, og má því furðu gegna, hve lengi Skúli stóðst í jafnmiklu stima- braki, sem hann átti við valdamenn og verzlunina. Og þótt honum væri í elli sinni vikið frá embætti um stundarsakir, fyrir ofurlitla sjóðþurð á hinum mestu harðindaárum og fyrir kapp óvildarmanna hans, þá var það ekki neitt undarlegt. Ólafur 8tiptamtmaður var þá nýkominn í æzta embætti landsins og hefur viljað sýna einhverja rögg af sér, enda mun hann hafa langað í Viðey til ábúðar, en ein- hversstaðar hefði sú röggsemi getað komið niður á heppilegri stað en á Skúla, er hafði verið honum vel, en Ólafi sjálfum gekk hrumult að lokum, og var vikið frá embætti, eins og kunnugt er. Ekki fór Skúli gamli úr Yiðey, þótt hann missti ábúðina. Hann andaðist þar á framfærslu Ólafs stiptamtmanns 9. nóvember 1794, 83 ára gamall, vinum horfinn og snauður að fé. Engin andlitsmynd er til af honum, en ísland mun jafnan geyma minningu hans í heiðri, sem hins mesta skörungs, framfaramanns og ættjarðarvinar, er það hefur átt á 18. öld, og þess vegna vildum vér ekki að öllu láta hans ógetið á þessu 100 ára andlátsafmæli hans í dag, þðtt engir fánar séu dregnir á stöng honum til minningar. Drukknun. 5. þ. m. fórst skip í fiski- róðri af Álptanesi. Formaðurinn var Elías bóndi Elíasson í Akrakoti, einhver hinn mesti dugnaðar- og aflamaður þar á nes- inu. Var honum bjargað að eins með lífs- marki, en dó að vörmu spori. Auk hans drukknaði uppeldissonur hans Marjön (?) Jónsson að nafni, en 2 varð bjargað, og þykir von um, að þeir lifni. Yeður var allhvasst og hafði snögg vindhviða hvolft skipiuu, en segl öll rigföst, er aldrei ætti að eiga sér stað í hvassviðri. Hafa sjó- menn optar en einu sinni verið áminntir um að varast það, en þess er því miður sjaldan gætt. Skipið var hlaðið af fiski. Sá sem bjargaði mönnunum var Benedikt sonur Eiíasar. Álptanesið hefur hvaðept- ir annað misst hina duglegustu og efni- legustu menn í sjóinn, og er það ekki lít- ill hnekkir fyrir þá sveit, enda kvað hag- ur hennar vera fremur bágborinn. Norður-Þingeyjarsýslu 10. okt.: Héðan eru fréttir fáar markverðar, allt stðrtíðindalaust. Tíðin afbragðs-góð í allt sumar, nema oflítið um firkomur, svo spretta á harðvelli varð íyrir pað verri, en nýting auðvitað hin bezta. Og enn helzt sama öndvegistíðin, og muna menn varla annað eins. — Fjármarkaðir nýafstaðnir, fóru eldri sauðir á 15 kr. mest, en veturgamalt frá 8—11 kr. eða þar í kringum eptir gæðum. Verð á sláturfé afarlágt, engu reyndar betra en í fyrra, hezta kjöt samt 18 aura, en í það verð ná menn ekki, því allt skárra féð er farið á markaðina, og svo er verðið 16, 14 og 12 aura, mör á 19 og gærur frá 1,25—2.00. Er þó drjfigum látið fé í allar áttir, því skuldir eru nógar, eyðsla marg-aukin, en fram- farir i búskap á hina hlið ekki að því skapi- Og víst er þó um það, að í mörgu er meiri lagnaður brfikaður en áður var, annars gæti ekkert staðizt, svo sem nfi er lifað og látið. Þörfin, bæði sfi sanna og ósanna — sem erfitt er að aðgreina — hvetur æ sporum til fullnægingar. — Lítið þykir kveða að oss Noiður-Þingeyingum i pólitiskum framförum og röggsemi, og mun það satt, að víða er meiri veðra- gangur með það, en að öðru leyti er hér þó nokk- ur áhugi um sumt, er til framfara horfir, einkum hér í Kelduhverfi, jarðabætur nokkrar o. fl. — Heii- brigði er hér að mestu síðan kvefveikin rénaði, og enginn nafngreindur nýlega dáið. — Óliklegt er, að margir fari að fara til Ameríku, ef að ekki batua fréttir þaðan. Nokkrir höfðu komið þaðan nfina með Tbyra“ alfarnir heim, og létu víst hið versta af ástandinu þar. Varð að hjálpa sumum til að komast heim, því peninga vantaði. Og þetta er gull-landið góða fyrir handan hafið, sem mest liefur verið skrumað af. Auðvitað kæmn menn heim þaðan i þúsundatali, ef þeir gætu það. Veit eg um nokkra, sem fegnir vildu heim, ef þeir bara gætu. Ætli annars vesturferðir þessar hafi ekki lifað sitt hið fegursta; engin ósköp standa lengi, sem betur fer. Bciuagrindina af Demostliencs (!) þykist sænskur í'ornfræðingur, Winte að nafni, hafa fundið á eynni Poros (er í

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.