Þjóðólfur - 30.11.1894, Page 3
223
fengið höfuðborg!“ Sem stendur hafa vinstrimenn
jafnmikinn Iiðsstyrk sem í fyrra.
Aðgerðir demókrata vid Mc Kinley lögin í vetur
voru hvorki heilar né hálfar og Cleveland neitaði
að skrifa undir þær. Hann beitti þó ekki neitunar-
rétti sínum af því, að honum þótti þær skárri en
hitt, en kallaði þær kák og ósæmilegar sönnum
demókrötum. Þeir hafa líka hlotið óvinsældir af.
því að hvorugum líkar vel, tollvinum né toll-
féndum.
Póstskipið „Laura“ kom hingað loks
frá Höfn 27. þ. m. Hafði verið viku eða
lengur í Færeyjum að afhenda vörur.
Með því komu hingað: Guðmundur Guð-
mundsson læknir í Laugardælum, Guðmund-
ur bóndi Einarsson í Nesi og kaupmenn-
irnir Björn Kristjánsson, Eyjólfur Jóhanns-
son (frá Flatey) og Þorbjörn Jónasson,
ennfremur Sigurður A. Fjeldsteð frá Hvít-
árvöllum.
Lögiu urn botnvörpuveiðar frá síð-
asta alþingi hafa verið staðfest af kon-
ungi. Fleiri lagafrumvörp alþingis ekki
staðfest enn sem komið er.
Niðurskurður. Stjórnin hefur ekki
verið sein á sér að synja stjóynarskrár-
frumvarpi síðasta alþingis staðfestingar.
Neitun konungs er dagsett 10. þ. ®. Eng-
ar ástæður eru færðar fyrir þessari synj-
un, en að eins skírskotað í auglýsinguna
15. des. f. á. Þar er nefnilega allur víst
dómurinn fólginn, og svo í fyrstu auglýs-
ingunni 2. nóv. 1885, sem stjórnin vitnaði
til í fyrra. Hún getur orðið löng að lok-
um þessi tilvitnanakeðja. Þótt allt annað
breytist, getur danska stjórnin ávallt haft
sömu svörin óbreytt gagnvart liinni íslenzku
þjóð í þessu máli. Þau hafa verið frá-
bærlega vel hugsuð i upphafi.
Nú hefur stjórnin einnig gert duglega
hreint fyrir sínum dyrum með því að synja
fimm stórmálum frá alþingi 1893 staðfest-
ingar í sömu andránni. Þessi mál eru:
háskólamálið, afnám hœstaréttar, lœkkun
eptirlauna, kjörgengi kvenna og hluttaka
safnaða í veitingu brauða (um að söfnuðir
megi velja um alla umsækjendur). Þetta
eru öll langstærstu og merkustu málin, er
þingið 1893 hafði til meðferðar. Svona er
starf þingsins ónýtt ár frá ári. Ástæð-
urnar fyrir þessari lagasynjunarhrúgu birt-
ast auðvitað í Stjórnartíðindunum, og verð-
ur þá tækifæri til að athuga þær nánar.
Það má geta nærri, að þær eru rækilega
hugsaðar og rökstuddar, því að stjórnin
hefur verið að sjóða þær saman nokkuð
á annað ár. Það „þarf vel að vanda, sem
lengi á að standa“, því að auðvitað verð-
ur hér eptir að eins vitnað í þessar fyrstu
ástæður, sem eins konar „evangelium“,
alveg eins og í stjórnarskrárauglýsing-
arnar.
Dr. Ehlers, holdsveikislæknirinn, sem
hér ferðaðist um í sumar, hefur nú haldið
fyrirlestra um ferð sína og látið prenta
skýrslu um rannsóknir sínar í „Spítalatið-
indunura“ dönsku. Fer hann mörgum orð-
um um óþrifnað bér á landi, og virðist
gera heldur mikið úr honum, enda hefur
frásögn hans verið andmælt allrækilega,
bæði af stud. jur. Sigurði Péturssyni (frá
Sjávarborg) í blaðinu „Dannebrog“ og síð-
ar af Schierbeck iandlækni í „Spitalatið-
indunum", en dr. Ehlers hefur reynt að
verja sig og dregið nokkuð svo úr um-
mæium sínum. Komizt hefur til orða í
stjórnarráðinu ytra að stofnsetja holds-
veikraspítala hér í Laugarnesi, en ekki
var það komið verulega í hámæli um það
leyti, sem póstskipið fór frá Höfn. Sam-
kvæmt síðustu skýrslu, er dr. Ehlers hef-
ur sent oss, kveðst hann hafa fengið vitn-
eskju um 144 holdsveika menn hér á landi
(81 karlmann og 63 konur).
Látnir eru í Ameríku tveir íslending-
ar: Hans Christian Róbb, fyrrutn kaup-
maður í Reykjavík, 62 ára gamall (dó
22. sept.) og Sigurður Jónassen cand. phil.
(sonur Þórðar háyfirdómara Jónassonar).
Hann andaðist úr hálsmeini 6. okt., um
fimmtugt. Hann var útskrifaður sem utan-
skólalærisveinn frá Reykjavíkurskóla 1865,
las guðfræði við Kaupmannahafnarháskóla,
en tók ekki embættispróf, dvaldi svo all-
lengi hér i Reykjavík, en fór til Ameríku
1885. Hann var vel að sér i tungumál-
um o. fl., eu brast gæfu til að komast
áfram í liflnu.
Stúdentafélagið. Á aðalfundi þess
24. þ. m. var kosin ný stjórn. Forseti
valinn Guðmundur Björnsson cand. med.,
en í stjórn með honum Bjarni Jónsson
cand. mag., Eggert Briem málaflutningsm.,
Sigurður Thoroddsen cand. polyt. og W. G.
Spence Paterson konsúlí. Félagið ætlar
að halda sjónleiki hér í vetur og mun
sérstaklega leika frumsamin íslenzk leik-
rit. Hefur það leigt leikhús W. Ó. Breið-
fjörðs til þessara skemmtana, er munu
eiga að hefjast um nýársleytið eða fyr, ef
unnt' er.
Ritstjóri „ísafoldar“ sektaður. í gær
var kveðinn upp dómur fyrir bæjarþings-
rétti Reykjavíkur í máli því, er ritstjóri
þessa blaðs höfðaði gegn ritstjóra ísafoidar
út af meiðyrðum i 32. tölubl. ísafoldar þ. á.
og var ritstj. ísafoldar dæmdur í 20 kr. sekt
(6 daga fangelsi til vara) og málskostnað,
en hin átöldu uminæli dauð og marklaus.
Hitt málið, er ritstj. ísafoldar hóf herferð
sína með gegn Þjóðólfi, er nú orðið á
eptir; var lagt i dóm næstl. viku.
Til verzlunarstéttarinnar í Reykja-
vík, er gekkst hér fyrir hátíðahaldi á
silfurbrúðkaupsafmæli danska krónprinsins
í sumar, hefur Þjóðólfi verið sent til birt-
ingar svolátandi þakklætisávarp:
„Deres kongelige Höjheder, Kronprinsen
og Kronprinssessen, sende ved Förstnœvntes
Adjutant i Brev dateret Amalienborg
22. August Handelsstanden i Reykjavík
en hjertelig Tak for det fremsendte Tele-
gram med indeholdte Lykönskning i An-
ledning af Deres kongelige Höjheders Sölv-
bryllupa.
Paa Festkoniiteeua Vegne
ærbödigst
H. J. Bryde.
Lciðrétting. Hisprentazt hefur í sumum
eíntökum síðasta tölubl. „Fjallk.“ bls. 184,
málsgr. (a), lið 3; á að vera þannig:
(a) Metandi verð rafíæra til að lýsa
200 hús Rvíkurbæjar og götur hans, sem
sagt er hér að frarnan, á ein 15,000 kr.,
og með leiðartistólpum, uppsetningu og
vélstöðvum á eitthvað 35,000 kr., þá yrði
árlegur viðhaldskostnaður ekki fjarri þessu:
Fyrir 632 lampagler og breunara 948 kr.
— slit raffæranna .... 750 —
Laun 2 verkmanna.......... 2,000 —
Rentur af fjárstofni...... 1,750 —
Álls 5,448 kr.
Fr. B. Anderson.
Nýprentaö
Búnaðarrit,
áttunda ár,
útgefendur
Hermann Jónasson og Sæm. Eyjólfsson
fæst hjá öllum bóksölum á landiuu.
Kostar kr. 1,50.
Sigurður Kristjánsson.
Nýlega er út komin
Njáls saga................kr. 1,75
Huld IV.....................— 0,50
Elenóra (Saga frá Winnipeg) . . — 0,65
Fást hjá öllnm bóksölum á landinu.
Sigurður Kristjánsson.