Þjóðólfur - 14.12.1894, Page 3

Þjóðólfur - 14.12.1894, Page 3
231 októbermánuði. Agentar hennar hér á landi hafa því snögglega misst atviunu sína, en öðrum mun þykja bættur skaðinn, þótt starfsemi hennar sé á enda. Nýtt flugrit hefur Björn Kristjánsson gefið út um fjársölu sína á Skotlandi í haust til að réttlæta hana fyrir þeim, sem sendu hann með féð. Þetta fylgir „ísafold41 alveg ókeypis. Fundur verður ekki haldinn í stúd- entafélaginu annað kveld. Skófatnaö hef eg af öllum stærðum: karla kvenna og barna. Allt er það, er eg hef af skó- fatnaði, unnið á vinnustofu minni, ekkort útlent, og eins og alþekkt er, mjög vel vandað, bæði að verki og efni. Pantanir mjög fljótt og vel af hendi leystar. liafn Sigurðsson. Hannyrðabókin er til sölu 4 skrifstofu Þjóðólfs. Rauðhetta, ágæt barnabók með fallegum myndum, er til sölu á skrifstofu Þjóðölfs fyrir 7B aura. RafmagnsbeSti dr. A. Owerís hafa á siðustu árum náð mjög mikilli útbreiðslu í Yesturheimi, sem eitthvert hið bezta læknismeðal gegn ýmis- konar veikindum. Þau kosta 6—15 doll. )um 22 kr. 20 a. — 55 kr. 50 a.) hvert eptir gæðum og þaðan af meira. Hin ódýrari eru kraptminni en hin. Rafmagnsbelti þessi hafa opt verið keypt af íslendingum hér vestra og orðið þeim að góðu, þótt önnur meðul hafi ekki getað hjálpað, svo eg get þess vegna mælt með þeim. Þess skal getið, að læknirinn borgar sjálfur undir þau til kaupendanna. Þeir, sem kaupa, verða að senda mál af því, hve gildir þeir eru um mittið. Beltin má panta hjá hr. kaupm. Helga Helgasyni í Reykja- vík eða hjá mér undirskrifuðum. Magnús Bjarnason. Mountain P. 0. Pembina Co. N. Dak. U. S. A. Nýlcga er út komin Njáls saga...............kr. 1,75 Huld IY..................— 0,50 Elenóra (Saga frá Winnipeg) . . — 0,65 Fást hjá öllum bóksölum á landinu. Sigurður Kristjánsson. Dugleg stúlka getur fengið góða vist hér í bænum frá 14. maí næstkomandi; gott peninga- kaup. Ritstj. vísar á. . =^=l=T=l=T=l=T=l=T=l=T=l=T=l=T=l=T=l=T=l=T=l=T=l=T=l=l=i i „Piano“-verzlun „Skandinavien“, verksmiðja og sölubúð Kongens Nytorv 22, Kjöbenhavn. Verksmiðjunnar eigið smíði ásamt verðlaunuðum, útlendum hljóðfærum. Birgðir af Orgel-Harmonium. Er allt selt með 5°/0 afslætti gegn borgun í peningum, eða gegn afborgun. Gömul hljóðfæri tekin í skiptum. Yerðskrá send ókeypis. T=1=T=1=T=1=T=1=T *=T=1=I=1=T=»=T^ J 100 talað, hve margt hefði hún ekki getað sagt þeim, er fram hjá gengu, um hinn þunga harrn og sára söknuð hins göfuga, fræga tónskálds Fr. Chopin’s. Athgr. Saga þessi mun sönn vera í öllum aðalatriðum. Hinn heimsfrægi tónsnillingur Franz Liszt hefur ritað æfisögu Chopins allítarlega og getur þar um kunnleika hans við Ostrowaættina, án þess hann minnist beinlínis á þetta æfintýri, en hann gefur fullkom- lega 1 skyn, að pólsk stúlka af háum stigum, er Chopin hafi elskað, hafi haft mikil áhrif á lundarfar hans, og hið dularfulla viðkvæma þunglyndi, er hvivetna lýsir sér í verkum þessa tónsnillings, muni hafa átt rót sína að rekja til sorglegra endurminninga og vonbrigða frá æskuárum hans. Chopin varð að eins fertugur að aldri og and- aðist í París 1849 úr brjóstveiki. Sögu þessari er snúið úr tíma- ritinu „Dioskuren" („Tvíburarnir“), sem gefið er út i Wien. Þýö. 97 og hafði ekkert hjá sér, er minnti á fornan veg, nema gamla, trygga þjónustustúlku. er stundaði liana, nokkur blóm, ofurlítinn fugl og lítið, óskreytt herbergi, en þar mátti hún ekki haldast við, og átti að byggja henni út þaðan, því að nú gat hún ekki lengur borgað húsleig- una og vissi alls ekki, hvar hún átti að fá sér hæli„ þar sem hún gæti hvílt hið þreytta höfuð sitt. Hún var mjög döpur í bragði og myndir horfins tíma svifu fyrir hugskotssjónum hennar. Hún sá sig fa^urbúna, skreytta rauðum rósum og Wladislaw Au- gustow krjúpandi á knjám frammi fyrir hetini, hinn sama mann, er síðar hafði svo samvizkulaust látið liana eina. Þá er hún minntist þessa brá greinjusvip á andlit henn- ar, en skyndilega lék blíðubros um varir henni. Hún sá í anda ásýnd annars manns, er vissulega hafðihenni tryggur verið, þess manns, er hún hafði haft hlýjan þokka á, þótt hún í fyrstu gerði sér ekki Ijósa grein fýrir því, en honum hafði hún hrundið frá sér svo hugs- uuarlaust og kuldalega af ungæðislegu drambi, og þessar- ar breytni sinnar hafði hún opt iðrazt sáran, þótt eng- inn vissi. í þessum svifum kom hin gamla þjónustustúlka inn til hennar með dálítinn böggul, er þangað hafði verið sendur. Böggullinn var með utanáskript til Valesku Ost-

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.