Þjóðólfur - 25.01.1895, Blaðsíða 4
16
Ágætt sýnishorn af „ekta“ ísafoldar rit-
hætti má sjá í litla greinarstúfnum með yfirskript-
inni „Magnlaus hefnigirni" í siðustu ísafold, og
ættu menn að kynna sér hann í sambandi við grein-
ina í Þjóððlfi BÍðast, um „splunkurnýja embættis-
manninn“, til þess að sem flestir sæju, hversu
lipurlega (!!) ritstj. ísaf. tekst að svara fyrir sig,
og hversu aðdáanlega hann sýnir vanmátt sinn í
ritdeilum með því, að moka saman í einn haug
flestum uppáhaldsorðum sínum og hnýta þeim svo
saman í eina halarðfu t. d. 34 stöfum(!!) i sama
orðinu. Það er einstaklega smekklegur nýgerving-
ur eða hitt þó heldur. Að krækja svona 6—10
fúlyrðum hverju aptan í annað og margbögla svo
öllu saman, unz úr því verður meiningarlaus rembi-
hntitur eða erki-lokleysa, það er satt að segja reglu-
legur aumingja ritháttur. Dæmin eru deginum
ljósari. „Magnlausa greinin11 í síðustu ísafold er
einmitt hin ágætasta sönnun eða staðfesting á um-
mælum Þjððólfs um ísaf. ritstj. og þökkum vér því
karltetrinu mikillega fyrir tilvikið. Einkennilegt
er það, að hann minnist nú ekkert á tignarmerkið
sitt nýja, en talar í þess stað um höfuðþvott (!!)
og er það líklega svo að skilja, að hann hafi nú
sameinað eins konar þvottakonustarf við nýja em-
bættið sitt.
Athugasemd. Með því að eg hef séð, að
Malakoffskvæðið í „Söngbók stúdentafélagsins" hef-
ur sumstaðar verið eignað Hannesi Hafstein, þá
virðist mér rétt að geta þess, að það er elcki ort
af honum, heldur mun dr. Björn M. Ólsen vera
höfundur þess kvæðis, enda hefur hann ort fleiri
kvæði í Söngbókinni, þar sem einskis höfundar er
við getið. x.
Lesiö!
Skemmtifund heldur „hið íslenzka kvenn-
félag“ annað kveld, 26. þ. m., kl. 8, í G-ood-
Templara húsinu, og verður þar söngur,
hljóðfærasláttur, fyrirlestur o. fl. Með því
að félagskonur ekki geta sótt fundi, nema
þær hafi félagsskírteini, eru konur þær,
sem enn ekki hafa fengið skírteini sín,
vinsamlega beðnir ura að sækja þau sem
allra fyrst til einhverra af konunum í
félagsstjórninni.
Félagsstjórnin.
Myndir.
Peir, sem vilja fá velteknar myndir
eptir öðrum rnyndum, geta snúið sér til
undirskrifaðs í því efni, og kosta venju-
legar myndir 4 kr. dús., kabinetsmyndir
12 kr. dús., en séu þær stækkaðar eptir
smærri myndum, þá 13 kr. dús.
Georg Alexandersen Fotograf.
Vesterbrogade Nr. 46, Kaupmannahöfn.
HlÍSSÍÖ nr. 16 í Þingholts-
stræti, fæst til kaups eða leigu frá 14.
maí næstkomandi.
Halldór Þórðarson.
Hýprentaðar
Helgidaga-prédikanir
eptir
Pál Sigurðsson
fást hjá öllum bóksölum á landinu.
Kosta heptar 3 kr. í bandi 4 kr.
Slgurður Kristjánsson.
Ritreglur
eptir
Vald. Ásniundarson
eru nýprentaðar og kosta innbundnar 60
au. Eru til sölu hjá öllum bóksölum Bók-
sölufélagsins í Reykjavík og verða sendar
út um land til útsölumanna, með fyrsta
strandferðaskipi i vor.
Aðalútsala í bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar.
Singers saumavélar, bezta teg-
und, fást í
verzlun Sturlu Jónssonar.
Magnús Jónsson
cand. juris
heima frá kl. 12—2 og 4—6 e. m.
Adr. Bankastræti 7, Reykjavík.
Ekta anilínlitir
fást hvergi eins góðir og ódýrir eins og 6rr 90
W "eH •i—1 í verzlun » e»
s SS Sturlu Jónssonar h—
Aðalstræti Nr. 14.
w
•JUnujiíuu «1113 •
Atvinna. Merkur bóndi í ísafjarðarsýslu
vill fá ársmann til að gæta fjár og heitir góðu
kaupi. Nánari upplýsingar fást j hjá ritstjóra
Þjóðólfs.
Farfi allskonar, fernisolía, terpentína,
Chellakk, hvítt og brúnt, fæst í
verzlun Sturlu Jónssonar.
Svart, sauðsvart eða mórautt ullar-
band, smátt, vel unnið og vel þvegið, óskast til
kaups gegn peningum tit í hönd. Kitstj. visar á.
Harðfiskur, saltskata, upsi, steinbít-
ur m. m. fæst í
verzlun Sturlu Jónssonar.
Smj'ör, tólg, mör, sauðskinn, fæst í
verzlun Sturlu Jónssonar.
„Piano“-verzlun
„Skandinavien“
verksmiðja og sölubúð
Kongens Nytorv 22, Kjöbenliavn.
I
ÍhL=^=JL=T=^==‘
Verksmiðjunnar eigið smíði ásamt
verðlaunuðum, útlendum hljóðfærum.
Birgðir af Orgel-Harmonium.
Er allt selt með 5 n/0 afslætti gegn
borgun í peningum, eða
gegn afborgun.
Gömul hljóðfæri tekin í skiptum.
Yerðskrá send ókeypis.
ÞJÓDÓIFIIR
1895.
lœtur nýja kaupendnr sína
fá ókeypis
5., 6. og 7. bindi af Sögusafni „Þjöðólfsu
(1892, 1893 og 1894) auk 3. heptis Kambs-
ránssögu, er kemur út í sumar, því að
þetta hepti fá allir kaupendur blaðsins,
gamlir og nýír, ókeypis með þessum ár-
gangi.
Nýir kaupendur eru beðnir að
athuga, að þeir geta átt kost á að fá keypt
þau tvö hepti af Kambsránssögu, sem út
eru komin fyrir 1 krónu bæði og geta þeir
látið þá borgun fylgja með andvirði ár-
gangsins að sumri og verða þá heptin
send jafnharðan og kaupendum að kostn-
aðarlausu. Aðrir en þeir, sent gerast kaup-
endur blaðsins fá alls ekki keypta þessa
fróðlegu sögu.
Þeir sem vilja eignast alla sög-
una ættu því að hraða sér, áður en fyrsta
lieptið er þrotið.
Eigandi og áhyrgðarmaður:
Hannes Þorsteinsson, cand. theol.
FélagBprentsmiÖjan.