Þjóðólfur - 01.02.1895, Side 2

Þjóðólfur - 01.02.1895, Side 2
18 Ungverjaland. Konungur þeirra Ung- verjanna, Jósep Austurríkiskeisari hefur vikið ráðaneyti sínu frá völdum að óvilja þingsins vegna kirkjumálanna, sem sagt hefur verið frá í Þjóðólfi áður. Enn þá hefur engum tekizt að setja saman nýtt ráðaneyti. Dr. Wekerle, sem frá fór, hefur getið sér mikinn orðstír. Hann er spekingur að viti og harðsnúinn og málafylgjumað- ur mikill; í öllum frumvörpum hans hefur komið fram frjálslyndi svo mikið, að eng- inn ráðherra í Evrópu þykir jafn frjáls- Iyndur nema Roseberry Bretajarl. Danmörk. Hér er það helzt títt, að miðlunarmenn hafa slegizt í lið með hægri- mönnum, og fylgjast þeir nú að öllum málum að heita má. Hið síðasta afrek þeirra er kosningarlög. Svo stendur á, að nú eru miklu færri menn á þingi en stjórnarskráin mælir fyrir; 1890 lagði stjórnin til, að fjölga þeim á þá leið, er stjórnarskráin segir, en það var fellt. Nú kom annað frumvarp frá henni; eptir því eru þingmenn langtum færri en þeir eiga að vera, og kjördæmum þannig bylt og breytt, að hægri- og miðlunarmenn hljóta að hafa sigur við næstu kosningar. Þetta tiltæki mælist hið versta fyrir og fundir hafa verið haldnir mjög margir, einkum hér í Höfn til að mótmæla þess- um tiltektum. Gamii Högsbro steig af forsetastóli, þegar er frumvarpið var samþykkt, og heitir sá Easmus Claussen, miðlunarmað- ur, er kosningu hlaut. Hann var allra manna rauðastur um 1880, en er nú tek- inn allmjög að hvítna. Enginn skyldi hafa haldið það, sá er var hér um 1885, að tíu árum síðar væru hægrimenn í for- setasæti í fólksþinginu. Prófessor Johnstrup, sá er fór til Dyngju- fjalla, merkastur jarðfræðingur með Dön- um, síðan Forchammer leið, er nýdáinn. Ítalía. Crispi hefur slitið þingi. Svo stóð á því, að Gíolitti, alræmdur af Banca romana-málinu, lagði fram skjöl á þingi, er haldið hafði verið leyndum hingað til. í þeim steDdur, að Crispi og kona hans hafa gengið í bankann eins og bæjarlæk- inn og aldrei goldið aptur einn eyri. Þá varð óp mikið um endilanga Ítaiíu, en Crispi jlét ekkert á sig bíta, rak þing- menn burt og sagðist ekki geta unnið með þeim óróaseggjum. Þá höfðaði hann og mál móti þeim Giolitti, og gengur þar nú ekki á öðru en málsóknum og útlegðar- dómum. Giolitti flýði úr landi. En Crispi situr í trausti konungs, og heldur nú hverja stórhátíðina á fætur annari, því að döttir hans er að gipta sig. önnur lönd. Af stríðinu í Asíu er það að segja, að Japanar hafa unnið virki það, er heitir Port Arthur, allra kastala sterkastan; er sagt, að þeir hafi þá sýnt frábæra grimmd og hreysti, en Kínverjar drápu þá herforingja, er af komust en hýddu liðsmenn. Nú hafa Japanar þegar unnið svo mikið, að ekki varnar þeim annað en vetrarríki að taka Peking, höf- uðborg í Kína. Annars eru allar fregnir af þeim atburðum svo mjög á reiki, að naumast eru eptir hafandi. Frökkum þótti meykóngurinn á Mada- gaskar misbjóða sér, og sendu þangað her manns. En ennþá vita menn ekkert um aðgerðir r,þess liðs, því að fréttaþráður er ekki lagður þangað ennþá. Allir búast við því, að þeir taki eyna. Það er víst, að stjórn Frakka er dugmikil, en illa mæl- ist það fyrir, hversu þeir finna sér allt tll og slást uppá varnarlítil ríki að rauna- lausu. í Noregi hefur staðið hiu harðasta kosningahríð og unnu hvorugir á öðrum. Vinstrimenn hafa jafnmikinu meiri hluta og áður, en eptir er að kjósa í 2 fylkjum, þar sem kosning var rekin aptur fyrir rangindi hægrimanna. Vinstrimenn hafa unnið mikinn sigur í bæjarstjórnarkosningu í Kristjaníu, og hugsa sér nú gott til glóð- arinnar, að hleypa úr stýflunum. í Danmörk er öll pólitik á apturför, og hér situr hvert gamalmennið öðru ofar í völdunum; í Noregi er allt á ferð og flugi, og öllu fleygir fram. — Þeim er ólíkt farið í mörgu, Dönum og Norðmönnum. 15. janúar. í gær féll Ðupuy ráðherra, og ráða- neytij hans við atkvæðagreiðslu í neðri deild. Dagskráin, sem stjórnin hafði sam- þykkt, var felld með 263 atkv. mót 241. í morgunblöðunum segir svo um fricfar- skilmála Japansmanna: 1. Kórea skal vera óháð, undir vernd Japana. 2. Kína leggur niður margar flotahafnir, þar á meðal Port Arthur og Wei- Hai-Wei. 3. Japan ræður, hve mörg herskip Kín- verjar mega hafa, og hvernig byggð. 4. Stórfé í herkostnað. 5. Kína lætur nokkrar eyjar af hendi og 6. Skulu Japanar og Kínverjar vera vin- ir og gera samband milli síu til sókn- ar og varnar. Nýtt ungverskt ráðaneyti er sezt á laggirnar, stýrimaður heitir Banffy. Fjársölumálíö. Út af grein þeirri, sem stóð 25. þ. m. í „Þjóð- ólfi“ frá herra Baldvin Gunnarssyni í Höfða, sem tjáir sig hafa verið við böIu á tveim fyrstu fjár- förmunum, sem seldir voru á Englandi næstliðið haust, bið eg yður, herra ritstjóri, að ljá eptir- fylgjandi rúm í blaði yðar. Höf. greinarinnar lýsir það ástæðulausa tilgátu, „að þeir, sem áttu hið selda fé, hafi fengið hærra verð fyrir það frá þeim Zöllner og Yídalín en það seldist fyrir á markaðinum að frádregnum kostn- aði“. — „Eg var heyrnarvottur að hverju boði, sem gert var i féð“, segir höf. greinarinnar, og „skrif- aði hjá mér um leíð boð þau, er gerð voru, og nöfn kaupenda“. Úr því höf. skrifaði boð þau, er gerð voru í féð, — hvers vegna skýrir hann þá ekki frá því, hvað féð seldist fyrir á markaðinum? Höf. hefur einmitt sömu aðferðina og hinir, sem ritað hafa um fjársölu Zöllners-Vidalíns, að segja frá því, hvað bændurnir fá fyrir féð, að frádregn- um kostnaði, en leyna sjálfu markaðsverðinu. Og ástæðan var nóg fyrir greinarhöf. að skýra frá markaðsverðinu, þar sem grein mín setur mest út á, að hinir greinahöfundarnir gerðu pað ekki. Það hlýtur að vera mesta launungarmál þetta markaðsverð á islenzku fé á Englandi. Neweastle- blöðin t. d. forðast að nefna markaðsverðið á ís- lenzku fé, sem þau annars eru vön að skýra frá, en lýsa því, að fé Zöllners hafi selzt vel, um leið og bent er á ófarir Eranz til samanburðar. Það er rétt eins og Zöllner sjálfur gefi slíkar skýrslur, sem er all-sennilegt, því blöð erlendis fá vanalega slíkar skýrslur frá viðkomendunum sjálfum. Hvernig getur höf. greinarinnar borið um, að bændur hafi ekki fengið hærra verð fyrír féð að frádregnum kostnaði, en bændum bar? Gerði höf upp sölureikningana með Zöllner? Og voru allir kostnaðarreikningarnír lagðir fyrir höfundinn? Það er harla ólíklegt, en hitt er líklegra, að höf. hafi getað vitað um, hvað féð seldist fyrir á mark- aðinum, og frá því verði hefði hann átt að skýra. Það getur vel verið, að merkin á norðlenzka fénu séu svo glögg, áð hægt sé að lesa úr þeim, þegar til Englands kemur, en það vill ekki reynast svo á Suðurlandi, enda tók eg dæmi af fjármerk- ingu þar eptir eigin reynslu. í hverju er þá hin norðlenzka fjármerking frá- brugðin merkingu hér? Og hversu lljótt mundi gauga að losa skip í NowcaBtle, sem hefði 9000 fjár innanborðs, þar sem merkingin væri jmist,brenni- mörk á hornum eða spjöldum og ýms dauf eða af- máð merki i ullinni, og greina ætti féð sundur um leið og það færi í land, eins og höf. segir að gert sé. Það mundi taka svo langan tíma, að helming- ur fjárins mundi komast í mestu hættu eða drep- ast. Nú var einmitt fjárfarmur sendur af Suður- landi í haust, sem var 9000, og var féð með sunn- lenzkri merkingu, þar á meðal brennimörkum og Bpjaldmerkingu. Höf. segir, að rýrustu kindurnar hafi verið seld-

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.