Þjóðólfur - 01.03.1895, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 01.03.1895, Blaðsíða 3
39 Það er okki vel hægt í fáum orðum að breyta mikið til með framsetninguna á þessu, að konur eru fleiri en karlar og geta því ekki allar gipzt. En hitt, að ekki sé gott, að allar, sem ekki eru húsmæður, eigi húsmæður, getur maður náttúrlega horið saman við býflugnaástand og margt annað, ef maður ekki vill segja það blátt áfram, eins og „Framsókn11 gerir. Þetta er nú það, sem líkast er í samanburði „Fjallk.“ á því, sem stendur í „Framsókn" og fyrir- lestri liúsfrú Bríetar. Að taka fram, hve miklu meir menntandi sé að lesa menningarsögu þjóðar sinnar en lesa rómanarusl, getur ekki átt við menntunarástandið hér á landi, því islenzk menningarsaga er ekki til. En saman- burður á því, að lesa Passíusálmana, fornsögur vorar og kvæði Jónasar Hallgrímssonar og svo lélega rómana er vel til fundinn. Eg hef minnzt á þetta, af því að grein „Fjall- konunnar11 gæti orðið til að rýra „Framsókn“ í augum þeirra, sem ekki hafa séð hana, en þeir, sem næstir standa að taka svari hennar, eru langt burtu. Hafi það yfir höfuð að tala verið „orð í tíma talað“ að koma hér á fót kvennablaði, þá er „Fram- sókn“ líka orð í tíma talað. Það getur verið ágætt að uppfræða kvennþjóð- ina um allt, er lýtur að því, að prýða heimilin og ala börnin vel upp, og væri æskilegt, að „Kvenna- blaðið“ ynni sem mest i þá átt. En alit, sem lyptir huga konunnar til að sjá sína köllun, að vinna að frelsi og framför þjóðar sinnar í smáu og stóru, í hvaða stöðu sem hún er, það gerir hana hæfari til að prýða heimilin í orðs- ins fyllsta og bezta skilningi. Kærleiksríkt hjarta °g frjáls andi gerir hendina haga og sístarfandi, og setur merki hreinleika og fegurðar á allt í kríngum sig. Þessu finnst mér „Framsókn“ vilja vinna að, og mér finnst hún hafa yfir góðum kröptum að ráða, þesB vegna árna eg henni af hjarta alls góðs. Ólafía Jóhaiuisdóttir. XJf Eyjafirði er ritað 2. febr.: „Þrem stórmálum hefur verið hreyft hér í vetur, fyrst því, að koma á gufubátsferðum hér á firðinum, og vona menn, að það takist, ef landssjóður vill styðja að því með fjár- framlögum. Þá hefur verið hreyft að Jlytja hvennaskólann frá Laugalandi að Akureyri og reisa þar nýtt skólahús. En hér mun fjárskortur hamla. Þykir mörg- um vitrum mönnum illa farið, að vestur- sýslurnar skyldu ekki vilja sameina sig við oss um einn kvennaskóla, sem auðvit- að hefði getað orðið margfalt fullkomnari fyrir miuna fé en eytt er nú til þessara fve8gja skóla; hefðu Eyfirðingar ekkert haft á móti því, þótt skólinn hefði staðið vestra, t. d. á Sauðárkrók, en auðvitað var amtskvennaskóli bezt settur á Akur- eyri- Enn er hið þriðja: flutningur Möðruvallaskólans til Akureyrar en holds- veikisspitalastofnun á Möðruvöllum. Hef- ur talsvert verið rætt um þetta og alþm. okkar hefur nú nýlega hreyft þessu í „Stefni“; er hann því mjög meðmæltur. Að likindum kemur tillaga um þetta tii þingsins". Hið íslenzka garðyrkjufélag hefur gefið út ritling nokkurn um ræktun ýmissa frætegunda, er bezt geta þrifizt hér á landi með ýmsum leiðbeiningum í garðyrkju, að mestu leyti eptir Schierbeck landlækni. Þar er og skýrt frá frækaupum félagsins næstl. ár m. fl. Ritlingurinn er hinn þarf- asti og ættu sem flestir að kynna sér haan. Garðyrkja hér á íandi gæti tekið miklum framförum og menn ættu að leggja enn meiri stund á hana, en gert hefur verið, því að þótt garðyrkjufélagið hafi gert mik- ið gagn, síðan það var stofnað, þá vantar mikið á, að almenningur hafi enu sannfærzt um þá þýðingu, er skynsamlega og ræki- lega stunduð garðyrkja getur haft sem notadrjúgur bjargræðisvegur landsbúa. — Ritlingnum er útbýtt ókeypis tii hvers fé- lagsmanns (er tekur fræ fyrir 1 kr. minnst) en í lausasölu kostar hann 20 aura. Bún- aðar- og sveitafélög fá 8 eintök send fyrir 1 krónu, svo að gera má ráð fyrir, að hann nái allmikilli útbreiðslu. Ætlar fé- lagið að gefa út ársrit í sömu stefnu fram- vegis. Mannslát. í fyrradag (27. febr.) varð bráðkvaddur hér í bænum Halldór Melsteð amtsskrifari, albróðir þeirra Páls Melsteðs sagnfræðings ogSigurðarMelsteðs f. iektors, á 63. aldursári. Hann var fæddur á Ket- iisstöðum á Völlum 9. okt. 1832 og bjnggu þar þá foreldrar hans: Páll Þórðarson Melsteð sýslumaður, (síðar amtmaður í Vesturamtinu) og fyrri kona hans Anna Sigríður Stefánsdóttir amtmauns Þórarins- sonar. Fluttist hann með foreldrum sín- um að Hjálmholti í Flóa 1835, og ólst þar upp, kom í Reykjavíkurskóla haustið 1846, sama árið og skólinu var fluttur frá Bessastöðum, útskrifaðist þaðan 1854 með 2. einkunn, sigldi samsumars til háskólans og tók þar heimspekispróf árið eptir, tók þar að lesa lögfræði, en lauk ekki prófi, kom inn aptur og dvaldi lengi vestra, við skriptir 0. fl. Síðari árin var hann hér í Reykjavík á skrifstofu amtmanna. Síðasta daginn sem haun lifði, gekk hann af skrif- stofunni að vanda kl. 2, heilbrigður að því er sjá mætti, borðaði miðdegisverð, en kvartaði þá um takverk, gekk þá heim- leiðis og hitti á götunni Þorstein öunnars- son lögregluþjón, er hann hafði húsnæði hjá og bað hann að styðja sig heim ör- stutta leið, dró þá svo brátt af honum, að hann hné niður örendur, er Þorsteinn var kominn með hann iiin í húsið. Halldór Melsteð var mesti fjörmaður og gleðimað- ur, sí-kátur og skemmtinn í viðræðum, og fylgdi vel með tímanum, skyldurækiun og samvizkusaœur við störf þau, er hann átti að inna af hendi, og kom sér hvívetna veí, enda var hann drengur hiim bezti og góð- viljaður. Drukknun. Maður drukknaði fyrir skömmu í Leirá i Borgartírði, Stefán Lyðs- son að nafni, af Akranesi. Óveitt prestakall: Staður á Reylíja- nesi, metinn 1415 kr. 16. au. Matið er miðað við 400 kr. afgjald af brauðinu, en nú er það 200 kr. Til uppgjafaprestsins séra Jóns Jónssonar, er fengið hefur lausn írá prestsskap frá næstkomandi fardögum, greiðast af brauðinu 215 kr. 16. au. Aug- lýst 23. febrúar. Póstafgreiðslumaðurinn í Höfða, hr. Benedikt Kafnsson telur það mishermt, að pðstþjófn- aður hafi nérstaklega átt sér stað á leiðmni millum Djúpavogs og Höfða, eius og minnzt var á í 46. tbl. „Þjóðólfs11 f. á.; og óskar leiðréttingar á því, með því að ekki verði sanuað, að þjófnaðurinn hafi verið framinn Bérstaklega á þvi svæði, fremur en annurs- staðar, enda hafi engu verið stolið, sem sent hafi verið frá Höfða suður til Beykjavikur nema 130 kr. (af 500 kr.), en af þvi að peningapokinn var ekki athugaður alla leið suður, verði ekki sagt, hvar þjófnaðurinn hafi verið framinn. Prestaskólakennari Jón Helgason prédikar í dómkirkjunni á sunnudaginn kemur kl. 5 e. h. _____________________________ Gjafir til liáskólasjóðsins. Þ. Guðjohnsen verzlunarstjóri, Húsavík kr. 50,00 Grímur Laxdal verzlunarmaður,--------— 5,00 Jakob Hálfdanarson borgari,----------— 10,00 Bjarni Bjarnarson verzlunarstjóri,---— 5,00 Þorb. Þórarinsson hreppstj., Sandhólum — 5,00 Jón Arason prestur, Húsavik .... — 5,00 Benedikt BenediktBson bóndi, Breiðuvik — 1,00 Jón Pjetursson skósmiður, Árnesi... — 1,00 Ari Jochumsson, Húsavík....................— 2,00 Jóhannes Jóhaunesson bóndi, Ytri-Tungu — 2,00 Jón Jónsson bóndi, Hringveri .... — 3,00 Sigurjóu Halldórsson bóndi.Hallbjarnarst. — 1,00 Pjetur Jónsson bóndi, Árnesi .... — 1,00 Jónas Sigurðsson útvegsbóndi, Húsavik — 2,00 Guðm. Gíslason bóndi, Tungugerði . . — 1,00 Benedikt Sveinsson, Húsavík .... — 2,00 Stefán Egilsson, ísólfsstöðum .... — 0,50 Björn Bjarnarson snikkari, Húsavik . . — 1,00 Eiríkur Þorbergsson snikkari, Húsavík — 1,00 Jón Jónsson, Beinabakka . , . . . —• 0,60 Árni Jónsson bóndi, Þverá..................— 2,00 Gunnar Benedíktsson bóndi, Ketilstöðum — 0,50 Sigurjón Jóhannesson dbrm., Laxamyri — 20,00 Valdimar Davíðsson, Kaupmannahöfn . — 10,00 Álls kr. 131,50

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.