Þjóðólfur


Þjóðólfur - 29.03.1895, Qupperneq 2

Þjóðólfur - 29.03.1895, Qupperneq 2
58 á landsfé, en sparnaðurinn verður að koma niður á réttum stað, annars nær haun ekki sínum sanna tilgangi. Það er nauð- synlegt og sjálfsagt að vera spar á lands- fé, þegar um óþörf fyrirtæki er að ræða, óhyggilegar styrkbeiðslur, launahækkun, eptirlaun og annað þess háttar. En hvað kosta svo aukaþingin? Aukaþingið 1886 kostaði um 18 þús. krónur, en það er háð var síðastliðið sumar 23 þús. kr., eða til jafnaðar þessi tvö aukaþing rúmar 20 þús. krónur. Þetta þykir nú há upphæð, og of mikið að gert að fleygja því út fyrir eitt mál, nfl. stjórnarskrármálið, eins og sumir komast að orði. Eu aukaþingin kosta þó til jafnaðar lítið meir, en nemur launum beggja amtmannanna og biskups ■yfir árið, þessara embætta, er allur þorri manna álítur að vel mættu missa sig, og fáir mundu sakna. Þeir, sem eru að gylla sig með sparnaðarræðum, eins og sumir þingmenn og þingmannaefni gera, er þeir viija koma sér vel við kjósendurna, ættu að beina geiri sínum í aðra átt, en til aukaþinganna, þangað, sem þörfin er meiri á sparnaði. Væri ekki eins ráðlegt, að beita kröptum sínum til þesss, að fá af- numin óþörf embætti, takmarka meir en gert er miður hyggilegar styrkveitingar, færa niður ofhá embættismannalauu og afnema eða mjög að minnka eptirlaunin, sem veitt eru, eius og að berja það blá- kalt fram, að aukaþingin séu óþörf o. s. frv., og draga með því dug, kjark og sjálfstæði úr þjóðinni. Að spara fé landsins á þennan hátt, sem hér er getið, finnst mér varða mestu, og að því ættu þingmenn að starfa, sem og öll þjóðin í heild sinni. Það er einhver meining í því. Útlendar fróttir. Kaupmannahöfn 9. marz. Andóf. Eg hef sagt frá því fyr, hversu Frakkar og ítalir færðu sér víg Carnots í nyt, til þess að færa inn frelsi, binda og takmarka málfrelsi og vistfrelsi. Það hefur orðið lítið úr þessum ráðstöfunum á Frakklandi, en á Ítalíu má segja, að Crispi ráði einn öllu; enginn er óhultur; hann getur rekið hvern mann úr landi án dóms og laga; hann hefur fullkomið alræðis- vald. Og Þýzkaland og Austurríki — hin fornu höfuðból apturhaldsins í Evrópu — koma á eptir. Það heitir svo, sem allt sé gert til þess að vernda trú og góða siðu, hjónabandið o. s. frv., en í rauninni vilja þessir apturhaldsseggir kyrkja frjálsa hugsun og rannsókn. Jafnframt lagaboðum til verndar kirkju og kristindómi, er hert á tolium og kvöð- um. Það er hreppapólitík í stórum stíl, sem fylgt er um endilanga Norðurálfuna sem stendur. Aurakarlar og iðnaðarmenn, stóreignamenn og verzlunarmenn o. s. frv., allir heimta þeir, að ríkið styrki sína at- vinnugrein með tollum og álögum á út- lendum varning, eða leggi beinlínis fé til sín. Ilússland. Mátulega var því spáð, að keisarinn ungi mundi kalla menn á ráð- gjafarþing. Nokkrum dögum eptir, að eg skrifaði seinast komu kvartanir frá hér- aðanefndum yfir sýslumönnum keisara, og stóð í þeim meðal annars, að það mundi heppilegt að kalla menn á þing í Pétursborg; við það mundi loku skotið fyrir yfirgang og rangindi embættislýðsins. Hinar gömlu aptursókuarhetjur Alexand ers 3. urðu bæði hryggar og reiðar yfir slíkum kröfum, og með tilstyrk ekkju- drottningarinnar fengu þeir Nikulás H. til að lýsa því í heyranda hljóði, að hann ætlaði sér að halda uppi einvaldsstjórn þeirri, sem faðir sinn hásæll og elskuleg- ur hefði fengið honum í hendur. Bað hann engan vænta þess, að almenningur fengi nokkurn þátt í stjórn innlendra mála. Aðallinn gekk í kirkju og keypti af klerkum að halda veglega þakkarhátíð í minningu þessara keisaralegu orða. Frakkland. Casimir Perier sagði af | sér forsetatign 15. janúar. Menn hafa get- ið sér margra hluta til um ástæðurnar til þess. Frakkar sögðu, eins og þeir segja alltaf, þegar eitthvað kemur fyrir: Ou est la femme? Hvar er konan? Og þeir fundu eða þóttust finna hana strax. Það var fögur ekkja, sem honum átti að hafa litizt, vel á; en konunni hans fannst ekki urn það og hótaði skilnaði. Þetta sagði hin létt úðuga Parísarborg. Hin sanna orsök mun hafa verið sú, að Casimir Perier hefur ekki þótzt hafa nógu mikil völd; honum þótti ráðherrarnir gariga fram hjá sér, og blöðin vera sér of nærgöngul, og þóttist ekki hafa nein ráð til að breyta því. Frakkar urðu æfir við afsögnina, og hafi nokkur maður verið skaminaður þá dagana, þá var það Casimir Perier. „C-P. er hraualegur sjálfbyrgingur“. „C-P. hef- ur farið að eins og götustrákur eða flón“. Slikum dómum rigndi yfir hann í blöðun- um og þaðan af verri. Einn mjög merkur maður, franskur, skrifaði þetta um hann: „Það er verið að verja C.-P., en ástæð- urnar, sem hann færir fyrir afsögn sinni, eru lítils virði. Orsakanna er að leita i lunderni hans. Hann hefur allajafna verið vanstilltur og hrokafullur þrákálfur; haim hefur aldrei gert mun á vargaskap og og kjarki, tilfinningum og andans þreki, hann er einn af þeim mönnum, sem dylja konugeð með digrum kömpum — tilfinn- ingarnar sveifla þeim eius og stormur vindhana. Þeir kunna að vinna hreysti- verk á vígveliinum, en skortir stöðuglyndi og sanna karlmeunsku“. Sá heitir Felix Faure, sem kosinn var forseti í stað Periers. Hann er fæddur í París af fátæku fóiki, gerðist sútari suður í landi langa liríð, komst síðan til Havre og setti á stofn skinnaverzlun. Hún blómg- aðist í mörg ár svo vel, að eigur hans skiptu mörguru miljónum. Hann var kos- inn fyrst í hreppsnefnd, þá í sýslunefnd og síðan á alþing. Hann talaði þar ekki sérlega opt, en þegar hann gerði það, var mál hans stutt og kjarnyrt, og þótti öll- um, sem maðurinn lcynni skil áþeim mál- um, sem hann gaf sig fram í, enda var hann þegar kosinn í ákaflega roargar nefnd- ir; hann þótti einkum vera beinrr í öllu því, sem snerti nýlendur og sjófarir Frakka, og innan skamms, varð hann líka nýlendu- ráðgjafi. — Hann þykir ekki ýkja frjáls- lyndur, en samvizkusamur og dugandi stjórnari. Hann lýsti því þegar, er hann hafði hlotið kosningu, að hann heyrði ekki neinum flokki til lengur, en bað alla menn fylgja sér að því, að halda uppi lýðveld- inu og sóma Frakklands, hverjum flokki sem þeir annars væru í. Hinir fyrrj forsetar Frakklauds hafa allir verið göfugir inenn af stórum ættum eða í háum völdum. Nú í fyrsta sinn hafa þeir gert þann mann að æztum borgara með sér, sem hefnr uunið sig upp frá fjósarekunni, ef svo má segja. Hann sagði líka sjálfur, að Frakkar hefðu heiðrað vinn- una og starfsemina, með því að kjósa sig. Sá heitir Ribot, sem stýrir stjórninni nú sem stendur. Hann er ötull framsóknar- maður og gamalreyndur ráðherra. Þýzkaland. Þar berjast flokkarnir ákaflega á þingi; stjórnin vill fá meira fé til hervarna, og stingur upp á tolium á ýrasri nauðsynjavöru; stórir jarðeignamenn og akrakarlar vilja fá allt tollað og for- boðið, sem getur fellt kornið í verði og aðrar jarðarafurðir. í einu að segja, hver

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.