Þjóðólfur - 17.05.1895, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 17.05.1895, Blaðsíða 3
95 Ofan á allan þann kostnað, er lands- sjóði hefur verið bakaður með þessari málssókn þóknast nú stjórninni að bæta við háum eptirlaunum árlega handa manui, sem að eins er 36 ára gamail, og vitanlega við beztu heilsu og með óveikl- aða likams- og sálarkrapta (!), eða ekki hefur annað heyrzt. Þetta gjörræði kórónar allt saman. Þessi yfirstjórn lætur sér annt um hag landsins og vill hlífa landssjóði við óþörfum útgjöldum, — eða hitt þó heldur, að vér ekki tölum um, hversu sómasamleg og sanngjörn þessi aðferð er gagnvart manni þeim, sem í hlut á, eptir allan eltingaleikinn. Ætla má að þetta stryk stjórnarinnar mælist miðlungi vel fyrir hjá almenningi hér á landi, enda er þess öll vou. Það hefur þurft minna til að vekja almennan kurr og óánægju gegn stjórninni en þetta. Að minnsta kosti verður það trauðla til að auka vinsældir hennar eða efla traust það, sem menn kunna að hafa haft á æzta stjórnanda innanlands. Og sé nokkur dáð eða kjarkur í fulltrúum þjóðarinnar, þá verður landshöfðingi naumast öfunds- verður á þingi í sumar, þá er rætt verð- ur um þetta mál, og hann á að fara að verja aðgerðir sínar og stjórnarinnar í þessu öliu saman. Það er þá eina bótin, að ekki þarf að óttast ábyrgðina gagnvart þínginu, þyí að hún er alls engin annars vegar, að því er landshöfðingja snertir, en þýðingarlaus bókstafur hins vegar ráð- gjafamegin. Það er allt á eina bókina lært hérna hjá oss. Bitstj. „Ekki er ráð nema í tíma sé tekið“. Jafnskjótt sem Einar Hjörleifsson fyrv. ritstjóri Lögbergs og núverandi samritstj. ísafoldar er stiginn hér á land, og hnig- inn í hinn móðurlega verndarfaðm þess málgagns, lætur hann ekki segja sér tvis- var, hvað hann eigi fýrst að rita um, og rýk- ur í Þjóðólf með ónotaskæting út af stefnu hans í útflutningamálinu(!) í sambandi við nokkur algerlega meinlaus ummæli blaðs- ins um hann sjálfan og Lögberg. Hann sleppir auðvitað því, sem var aðalatriðið í Þjóðólfsgreininni, að óska honum góðrar heimkomu, með von um, að hann gerði hér eitthvert gagn o. s. frv. En úr því honum hefur fuudizt, að hann gæti ekki byrjað á öðru þarfara en að bregða upp ófriðarfánanum gagnvart Þjóðólfi, þá má varla minna vera, en að hann fái að sjá, hvernig einn Vestur-íslendingur að minnsta kosti hefur litið á heimferð hans. Það getur vel verið, að sá maður sé lítill vin- ur Lögberginga, eða að minnsta kosti er svo að sjá, sem hr. E. H. og núverandi ritstj. Lögbergs sé meinilla við, að þessi maður hefur sent Þjóðólfi fréttagreinar um lífið þar vestra, af því að hann Iýsir því eins og það er, og öðruvísi en þeir vilja vera láta. Þessi maður er hr. J. E. Eldon, ein- arður maður og greindur vei. Afkurteisi og sjálfsagðri mannúð gegn hr. E. H., þá er hann var að leita hér hafnar i nauð, birtum vér ekki í 21. tölublaði Þjóðólfs þann kafla úr grein Eldons, er snerti E. H., og ætluðum ekki að birta hann, ef E. H. hefði látið Þjóðóif hiutlausan, en þá er tilbekkninnar var svona skammt að bíða frá hans hendi, þá birtist hér þessi kafli. Þar segir svo í sambandi við heimferð Ólafs ísleifssonar læknis, er muni segja satt um ástand landa þar vestra (sbr. 21. tölubi. Þjóðólfs). „Ennfremur er á orði, að landar séu að taka sig saman um að koma Einari Hjörleifssyni af höndum sér. Hann þekk- ist bezt af því, að hann hefur verið rið- inn við útgáfu „Lögbergs“ síðan það blað myndaðist. Nú er Einar þessi að beiðast beininga suður í Bandaríkjum, og viil fá 25 cents af hverjum manni, sem hann nær til. Álitið er að lúterska liðið hérna, Lög- bergsráðið og fylkisstjórnin þurfi þó drjúg- um að punga út fé til farareyris Einari. Hann er iíkur sumum öðrum, á ekki mik- ið í afgangi, og hefur þó, að sögn, haft 60 doll. um mán. um mörg ár, jafnvel 70 doll. á síðustu tímum. Eptirmaður hans við „Lögb.“ heitir Sigtr. Jónasson . . . . Ekki spá menn því, að hann verði „föður- betrungur“ í blaðamennskunni. En svo gengur iíka flest hér niður á við. Fylgifiskar Einars vilja nú auðvitað iáta f’ara sem allra bezt á heimsendingu hans, og segja fólki allrahanda undur, sem hann ætli að hafast að heima, því að þetta sé ósköp mikili andans-maður! Eitt er það, að hann eigi að verða gerður að presti, og fari svo norður að Undornfelli, til föður síns, að hjálpa honum til að préd- ika guðsorð og koma á kristniboði frá íslandi, á öllum útskæklum heimsins . ... Nokkrir hafa fleygt því, að Einar ætli að gerast pólitiskur prestur áskrif'stofu „ísa- foldaru, og muni taka að sér aðgefaBirni synda-kvittanir, ef honum verði það á, að snúast frá landstjórninni. Aðrir fullyrða, að Björn hafi „pantað“ hann heim til að etja honum gegn Þjóðólfi í sinn stað, með því að hann sjálfur sé mjög tekinn að lýj- ast og gugna. Enn ætla sumir, að hann eigi að verða ritstjóri Kirkjublaðsins, og prédika fyrir lýðnum hina sönnu, sáluhjálp- legu trú, í anda fyrirrennara síns. Hvað af spám þessum rætist, fáið þér heima víst bráðum að sjá“. Það er þegar farið að rætast sumt af þessu. Dálítið undarleg er spurning hr. E. H. um, hvort ekki muni ráð(!) fyrir Þjóðólf að fara að hægja á sér með ruglið [það er hægt að segja, en erfiðara að sanna] um ástand íslendinga vestra [þ. e. að segja, þá er ég sjálfur, E. H. er komiun. Varið ykk- ur piltar(!)]. Þessu er fljótt svarað þannig, að Þjóðólfur mun halda alveg sömu stefnu sem fyr í vesturflutningamátinu, þráttfyr- ir það, þótt hann sjálfur (E. H.) sé hing- að kominn, og hversu vel sem hann stend- ur á verði til að gylla Ameríku. Það vill svo vel til, að frásögn hans um það efni verður ekki talin neitt „evangelium“. Og að siðustu viljum vjer hugga hann með því, að hvað sem hann segir, eru engar líkur til, að hann'fái einn einasta mann til að flytja vestur. Vesturfarasóttin er sem betur fer, alveg um garð gengin hér á landi. Póstskipið „Laura“ kom hingað af Vestfjörðum í fyrra dag, og hélt samdæg- urs áleiðis til Hafnar. Með því sigldu: ekkjufrú C. Jónassen, dr. Björn M. Ólsen, Sigurður Hjörleifsson Iæknir o. fl. Mannalát. 26. f. m. andaðist húsfrú Margrét Jónsdóttir, kona Ásgeirs firepp- stjóra Guðrnundssonar á Arngerðareyri á Langadalsströnd, „velmetin sæmdarkona“. Skömmu áður lézt húsfrú Kristín Krist- jánsdóttir, kona Jóns Arnórssonar á Höfða- strönd í Grunnavik. Tvö bjarndýr, er komu á land með hafíshroða á Ströndum á útmánuðunum, voru unnin, annað í Barðsvík, liitt í Tré- kyllisvík. Prestaskólakennari, séra Jón Helga- son prédikar ekki í dómkirkjunni á sunnudag- inn kemur, heldur á uppstigningardag (23. þ. m.), kl. 5 e. h. Sparisjóður irnessýslu á Eyrarbakka gefur 3 kr. 60 a. í vöxtu af 100 kr. um árið, eða hærra en flestir sparisjóðir; hefur góða tryggingu. Er opinn daglega fyrir langferðamenn. Eyrarbakka, 10. maí 1895. Guðjón Ólafsson. Jón Pálsson. Kr. Jóliannesson.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.