Þjóðólfur - 07.06.1895, Síða 1

Þjóðólfur - 07.06.1895, Síða 1
Árg. (CO arkir) kostar 4 kr Krler.i'.ia 5 kr.— Borgist fyrir 15. Jtkll. Dppsögn, bandin við kramöt, ögild nema komi tilútgefanda fyrir 1. oktöber. ÞJÓÐÓLFUE. XLYII. árg. Reykjayík, föstudaginn 7. jání 1895. Nr. 27. Nýir kaupendur að síðara helmingi þessa yfirstandandi ár- gangsÞjóðólfs (frá júlíbyrjuntilársloka)geta fengið auk blaðsins (30 tölublaða) sex bækur nfl. Sögusafn Þjóðólfs V. VI. og Vll. (1892, 1893 og 1894) og Sðguna af JÞuríði formanni og Kambsránsmönnum 1.2.og3. heptieöa alls með blaðinu um 70 arkir fyrir aðeins 4 krónur alltsaman, er greiðist um leið og pantað er. Þeir sem vilja geta og fengið blaðið frá júlíbyrjun til ársloka fyrir 2 Jcrónur, og fylgja þá með í kaupbæti 6. og 7. bindi Sögusafnsins. Áskript að þessum hálfa árgangi er að minnsta kosti einnig bind- andi fyrir næsta árgang allan. Með því að burðargjald undir þetta allt saman er mjög mikið verður blaðið með fylgiritunum ekkisent út í óvissu til neinna nýrra kaupenda. Þessi óvenjulegukostaboð standa ekki óbreytt lengur en til septembermánaðar- loika næstkomandi. Eptir þann tíma verð- ur t. d. fyrsta hepti Kambsránssögu ekki til boða með þessu verði handa nýjum kaupendum, með því að upplag þess er nú hér um bil þrotið. Menn ættu því að sæta þessum boðum meðan þau standa. WÆT Þriðja hepti Kambsránssögu, er allir skilvísir kaupendur Þjóðólfs þetta ár fá ókeypis, er nú nýprentað og verður sent út um land í júlí og ágúst, til allra þeirra, er ekki skulda fyrir blaðið frá fyrra ári eða lengur. Sannleikurinn um Kaupmanna- hafnarháskóla. Eptir Jöhannes L. L. Jóhannsson. í grein minni í aprílnúmeri Kirkju- blaðsins hef eg haldið því fram, að Hafn- arháskóli sé einn af hinum lakari háskól- um í Norðurálfunni, og færði eg dr. Þor- vald Thoroddsen sem heimildarmann fyrir þessum dómi. Út af þessu hefur ritstjór- anum, herra Þórhaili Bjarnarsyni, þóknazt að setja þá neðanmáls „athugasemd“ að Þorvaldur kannist eigi við þessi ummæli sín, enda sé þessi dómur um Hafnarhá- skólann ósannur. Það er nú ofur-skiljan- legt, að Þorvaldur, sem nýlega er orðinn doktor frá Hafnarháskóla vilji halda uppi heiðri hans, en þarflaust virðist mér samt að ganga á bak orða sinna fyrir slíkan hégóma. Það vill svo vel til, að eg get tilgreint orð hans sjálfs, sem skrifuð eru í Leipzig 26. febr. 1885, en prentuð í XII. árgangi ísafoldar 14. tbl.; þar segir svo: „Þrír háskólar eru haldnir mestir á Þýzkalandi; háskólarnir í Berlín, Leipzig og Miinchen. Yið háskólann í Leipzig eru um 3500 stúdentar. Flestir eru sem eðli- legt er þýzkir, en þar eru og fjölda margir útlendir nemendur; frá Englandi og Ame- ríku kvað vera 4—500 stúdentar og auk þess margir úr öðrum löndum: Rússar, Pólverjar, Svíar, Serbar, örikkir, Italir og af mörgum öðrum 'þjóðum. Þótt bærinn sé eigi ýkjastór (150,000 íbúar, þegar sam- vaxnar smáborgir eru ekki taldar raeð), þá verður maður þó fljótt þess var, að maður (hann væri hér á síðara staðnum án efa íslenzkulegra) hér er í miðjum straumi heimsmenntanna og finnst lífið allt bærast örara og í stærri öldum, en vandi er til í smálöndum. Hér er það fjör og líf í framförum og vísindum, sem skapast í stórum löndum, þar sem samaneru kom- in margvísleg öfl úr mörgum áttum, og er menntalífið hér mun fjörugra en í Kaup- mannahöfn t. a. m. enda er það eðlilegt. Höfn er dálítið afskekkt, þjóðin lítil, fáir tala málið, þangað sækja engir útlend- ingar. Háskólanum (háskólinn væri betra mál) þar hefur farið hnignandi á seinni tímum hvað vísindalíf snertir. Svíar eru Dönum miklu fremri í þeim greinum, og, ef til vill, Norðmenn líka. Þessu verður eigi á móti borið, ef óvilhallt er dæmt, þótt Danir vilji eigi við það kannast, sem við er að búast. Þeir ímynda sér margir, að heimurinn snúist allur í kringum Kóngsins Nýjatorg". Þannig eru þessi Þorvaldar orð og geta allir af þeim séð, að hann telurj Hafnarháskóla með hin- um lakari háskólum, þar sem hann álítur eigi að eins stórþjóðirnar, heldur aðrar eins smáþjóðir sem Svía vera Dönum miklu fremri í þessu efni. Doktor Þorvaldur og eg erum hér því ágætlega samdóma, hann hefur einungis gleymt ummælum sínum frá fyrri tíð, og getur slíkt alla menn hent. Lektor Þórhallur hefur okkur báða og víst marga fleiri á móti sér í þessu máli, enda hefur hann engin rök fært fyrir orðum sínum, er hann segir, að þessi dóm- ur minn um Hafnarháskólann sé ósannur. Eg ímynda mér líka, að það verði torvelt að verja málstað Daua í þessu máli. Það má taka einstakar vísindagreinir hverja fyrir sig til skoðunar og mun þá brátt koma í ljós, að Hafnarskóli er einn af hin- um ómerkilegri. í guðfræði er t. d. Nor- egsháskóli miklu betri, í læknfræði Vínar- háskóli og háskólar á Frakklandi, í nátt- úruvísindum, enskir, frakkneskir og þýzk- ir háskólar, í tungnafræði fornri og nýrri standa rússneskir, þýzkir og enda hol- lenzkir háskólar langt um framar. í lög- fræði er háskólinn í Miinchen víst merkari, og í sagnafræðum eru háskólarnir á Ítalíu og í Belgíu fullt svo góðir. í heimspek- inni hafa Danir heldur aldrei rist djúpt, þótt Þorsteinn Gislason (sem ritstj. Kirkju- blaðsins virðist halda svo mikið upp á), sé hrifinn af spekinni við danska háskól- ann, einkum herra Höífdings, en raunar mun hún mest lapin úr þýzkum og ensk- um lindum. Svona má telja upp allar vís- indagreinir; í engri þeirra skarar Hafnar- háskóli fram úr; í einstaka atriði kann hann að vera öðrum jafn, en í flestum síðri. í norrænni málvísi mætti ætla að hann væri öðrum háskólum betri, þar sem svo margir íslendingar hafa verið þar kennarar í þeirri grein, og svo var líka áður, en nú eru jafnvel háskólar Svía og háskólinn í Kristjaníu komnir fram fyrir Dani í þeim fræðum. Vottur þekkingar- leysisins í þessu eina, er nýlega orðinn svo áþreifanlegur, þar sem íslendingnum Þorsteini Gíslasyni (er eflaust veit marg- falt meira í íslenzku en allir vísindamenn Dana til samans), hefur verið meinað af háskólastjórninni að taka próf í íslenzkum miðaldabókmenntum, af því að þær væru svo ómerkar, sem þó eru þúsund sinnum merkari en öll ritverk Dana fram á síð- ustu aldamót. Það dugir eigi að vitna í það t. d. að um miðja öldina hafi Danir átt ágæta menn við háskóla sinn, sú tið er nú úti, enda voru þá ágætir vísinda- menn við aðra háskóla líka. Sá er að eins munurinn, að Kaupmannahafnarhá-

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.