Þjóðólfur - 16.07.1895, Blaðsíða 3
139
borð á þiljum uppi og hripuðu niður frétt-
ir sínar á 15 tungumálum. Á hverri hálfri
stundu skauzt dálítill gufubátur milli skips
og lands með hraðskeyti og fréttapinkla.
Allt í einu kveða við þúsundföld fall-
byssuskot, svo allt leikur á reiðiskjálfi.
En þegar mökkinn dregur frá, hyllir und-
ir „Hohenzollernu, keisaraskipið, er það
kemur brunandi gegnum skurðinn. Sjálfur
stendur keisarinn í lyptingu í logagyltum
skrúða og kveða við þúsundföld faguaðar-
óp, er hann siglir framhjá. Nú var skurð-
inum upplokið og komu öll hin skipin í
halarófu á eptir. Þegar þessu var lokið
stóðu veizluhöldin í 2 daga samfleytt á
eptir, og átu menn þar og drukku og voru
glaðir.
Ýmsir eru dómar manna um, hverja
þýðingu skurður þessi muni fá. Þegar
sem hæst stóðu hátiðahöldin, vildi það ó-
happ tii, að 2 stórskip hlupu á grunn, en
þó varð þeim með miklum viðbúnaði ýtt á
flot aptur. Er þess til getið af sumum, að
hér muni vera svik í tafli og sé skurður-
inn eigi svo djúpur, sem til var ætlazt.
Hanmörk. Hór í Danmörku er tvennt,
er mestum tíðindum þykir sæta. Er það
eitt, að Gladstone gamli kom hér við á ferð
sinni til Kílarhátíðarinnar, en hitt annað,
að hiugað kom fjöldi blaðamauna frá Kíl-
arborg. GKadstone gamli dvaldi hér að
eins skamma hríð, eu ekki gekk þó lítið
á. Múgur og marginenni flykktist niður
að skipi hans og stóð þar lengi dags, ef
vera mætti, að eitthvað sæist af honum.
Hélt hann sér mest innanborðs, því hann
er orðinn maður háaldraður og vill sem
mest leiða hjá sér stjak og óró. Konungs-
ættiu heimsótti hann á skipinu og dvaldi
Þar nokkra stund.
Blaðamennirnir dvöldu hér í 3 daga í
mesta yflrlæti. Var þeim fagnað dásam-
lega vel, og veittur hinn bezti beini. Öll
voru stræti borgarinnar prýdd með fánum
og blómsveigum og fagnaðarópin kváðu
við úr hverju horni. Þótti þeim flestum
mikið til koma og luku hinu mesta lofs-
orði á Dani og gestrisni þeirra, sem vel
má gera. Hafa allmörg hinna merkustu
stórþjóðabiaða flutt langar og hlýjar roliur
um Dani og framkomu þeirra við þetta
tækifæri.
Nýlega er strokinu héðinn frá Kaup-
mannahöfn gimsteinafágari nokkur, Rappo-
port að nafni. Haun var pólskur gyðing-
ur að ætt og uppruna, hafði komið til
Danmerkur fyrir nokkrum árum síðau og
tekizt með hræsni og undirferli að koma
sér i mjúkinn hjá ýmsum málsmetandi
mönnum. Nú er það komið upp úr kafinu,
að hann á Englandi og víðar hefur snuð-
að gimsteina svo hundruðum þúsunda króna
skiptir út í reikning ríkra gimsteinasala í
Kaupmannahöfn. Enginn veit með vissu,
hvar hann er niður kominn, en lögreglu-
þjónar eru sendir í leit í ýmsar áttir.
Hinn 1. júlí héldu íslenzkir stúdentar
í Kaupmannahöfn samsæti í minningu 50
ára afmælis alþingis. Tóku alls 26 manns
þátt í því og fór vel og skipulega fram.
Ræður héldu þeir kand. Bogi Th. Melsteð,
Dr. Jón Þorkelsson og stud. theol. Har-
aldur Níelsson.
Nýdáinn er Peter Schram, söngvari við
konunglega leikhúsið. Stóð hann meðal
hinna fremstu listamanna Dana í þeirri
grein, og var optsinnis unan að sjá hann
og heyra.
Noregur og Svíþjóð. Að því er snert-
ir viðureign þessara tveggja sambandsríkja,
þá gerir þar hvorki að reka né ganga.
Ráðaneyti Stangs beiddist lausnar eigi alls
fyrir löngu, og varð konungur því að svip-
ast um eptir nýju ráðaneyti. En það gekk
ekki greiðara en svo, að konungur eptir
ýmsar árangurslausar tilraunir í þá átt
varð að biðja ráðaneytið að sitja kyrrt, og
skipar það því enn sæti sitt.
England. Ráðaneyti Eosebery’s lávarð-
ar hefur nýlega beðið ósigur við atkvæða-
greiðslu á þingi og þessvegna sagt af sér
störfum. Salisbury lávarður hefur tekizt
á hendur að mynda nýtt ráðaneyti. Standa
nú bráðlega kosningar fyrir dyrum, og er
flestum forvitni á að vita, hvort Gladstone
gamli muni taka nokkuru þátt í kosninga-
þrefinu, með því að slíkt þykir eigi all-
sendis óhugsandi.
Tyrkland, Fyrir uokkru síðan hefur
verið ráðizt á enska, frakkneska og rúss-
neska konsúla í Jeddah og misþyrmt illa.
Nú hafa Englendingar sent þaugað 3 járn-
varða dreka, og er eigi ólíklegt, að nokk-
uð kunni að sljákka í Tyrkjum við þá sjón.
Austurþjóðir. Ennþá er kurr mikill
með Japönum og Kínverjum. Japanar hafa
áskilið sér eyjuna Formosa, og veitthenni
móttöku samkvæmt friðarskilmálunum. Eu
Formósabúar hófu uppreist með tilstyrk
Kínverja, og hafa Japauar orðið að bæla
allan mótþróa niður með hervaldi. Sam-
þykkt er meðal Rússa og Frakka að lána
Kínverjum 400 miljónir franka til viðrétt-
ingar landi og lýð eptir ófriðinn. Er svo
sagt, að þessar tvær þjóðir í öllu séu Kín-
verjum hlynutar, en hitt og, að Englend-
ingar og Þjóðverjar styðji Japan og hygg-
ist með því munu ráða jafnvæginu.
Alþingi.
IV.
Holdsveikraspítali. Nefndin í því
máli í neðri deild hefur lagt til, að láta
fella stjórnarfrumvarpið um þá stofnun,
sakir þess að málið sé ekki nægilega und-
irbúið, en vill láta gera ráðstafanir til
betri undirbúnings undir þing 1897. Enn-
fremur vill nefndin láta fella stjórnarfrum-
varpið um aðgreining holdsveikra frá öðr-
um mönnum, en að nýtt frumvarp í líka
átt sé samþykkt.
Prestskosningariög. Nefndin í því
máli vill láta samþykkja frumv. frá síð-
ustu þingum um aukinn kosningarrétt safn-
aða, þannig, að söfnuðirnir fái að velja um
alla umsækendur, en biskup geti bægt frá,
þeim er hann telur óhæfa til prestslegrar
þjónustu. Til löglegrar kosningar þarf
helmingur kjósenda að sækja fund, og um-
sækjandi fá miuust x/8 atkvæða, er greidd
eru.
Prestakallaskipun. Nefnd í efri deild
hefur lagt það til, að Kálfafelissókn á Síðu
skuli vera sérstakt prestakall með 300 kr.
uppbót úr landsjóði; ennfremur að jörðin
Hrafnagil leggist til Grundarþinga presta-
kalls, en Akureyrarprestakall fái 150 kr.
úr landsjóði til endurgjalds. Einnig hefur
nefndin lagt það til, að Eyvindarhólapresta-
kall fái 200 kr. uppbót úr landsjóði, eins
og stjórnarfrumv. fór fram á.
Eptirlaunamálið er nú samþykkt í
neðri deild. Samkvæmt því séu eptirlaun
launanna og 20 kr. að auki fyrir hvert
þjónustuár. Efri deild hefur samþ. 600
kr eptirlaun handa séra Pétri Guðmunds-
syni, fyrv. presti í Grímsey, en í neðri
deild er komin fram tillaga um, að eptir-
laun hans séu 500 kr., eins og stungið
var upp á í stjórnarfrumvarpiuu.
Lækkun á árgjaldi. Hallgr. Sveins-
son og Gutt. Vigfússon hafa borið fram
frumv. um, að 600 kr. árgjald frá Hólma-
prestakalli i Reyðarfirði færist niður í 200
kr. frá fardögum 1895, og að skuld sú,
að upphæð 600 kr., er núverandi prestur
í brauðinu sé kominn í við landsjóð, falli
niður.
Fjárráð giptra kvenna. Nefnd í því