Þjóðólfur - 02.08.1895, Qupperneq 4
152
rektor Þorkelssyni til að gefa út orðasafn
sitt. Ennfremur vill nefndin veita 600 kr.
styrk á ári til að gefa út kennslubækur
á íslenzkri tungu við lærða skólann, en
vill ekki veita fimleikakennaranum utan-
fararstyrk, eins og stungið var upp á í
stjórnarfrumv., og ekki heldur kaupa hús
það, sem stýrimannaskólinn er haldinn í,
en vill hækka laun forstöðumannsins upp í
2000 kr. og húsaleiguna um 100 kr. Nefnd-
in vill veita hinum fyrirhugaða kvenna-
skóla fyrir Austurland á Eiðum 1200 kr.
styrk síðara árið, færa npp styrkinn til
alþýðumenntunar, veita bókmenntafélags-
deiidinni í Reykjavík 1500 kr. styrk sakir
liins afarþrönga fjárhags íélagsins, en þyk-
ist ekki geta lagt með því, að keypt sé hand-
ritasafn þess handa landsbókasafninu, enda
muni það ofdýrt sett (20,000 kr.); einnig
vill nefudin hækka styrkinn til Þjóðvina-
félagsins upp í 750 kr. á ári og styrkinn
til náttúrugripasafnsins um 100 kr., enn-
fremur styrkinn til stórstúku Goodtempl-
ara upp í 800 kr. á ári, en er móthverf
styrknura til útgáfu alþingisbókanna. Yill
veita frú Elínu Eggertsdóttur 1200 kr.
styrk til að koma á stofn hússtjórnar- og
raatreiðsluskóla í Reykjavík, og 500 kr.
árl. styrk til kennslu og viðhalds á skól-
anum; vill veita cand. mag. Bjarna Sæ-
raundssyní 800 kr. hvort árið til að kynna
sér ástand fiskveiðanna hér við land, og
Eiuari Jónssyni frá Galtafelli 500 kr. á
ári til að halda áfram myndasmíði í Kaup-
raannahöfn. Einnig vill nefndin veita
Magnúsi Þórarinssyni á Halldórsstöðum
25,000 kr. lán vaxtalaust í 5 ár til að
flytja tóvinnuvélar sínar á Húsavík; enn-
fremur vill nefndin veita 600 kr. fyrra
árið handa verkfræðingi til að rannsaka
hafna- og þrautalendingar meðfram suður-
strönd landsins. Að lokum vill nefndin
veita amtsráði Vesturamtsins allt að 60,000
kr. láu til gufubátskaupa fyrir Vestfirð-
ingafjórðung, og allt að 30,000 kr. lán til
að styrkja ísgeymslu og útflutning á ís-
vörðum fiski. — Framsögumaður nefndar-
innar er séra Þórhallur Bjarnarson.
(xufuskipsmálið. Við 2. umr. þess
raáls í neðri deild 30. f. m. var samþykkt
eptir allharðar umræður og með örlitlum
atkvæðamun að kaupa skip, en fellt með
13 gegn 10 atkv. að leigja skip, og önn-
ur varatillaga um að kaupa eða leigja
felld með 12 atkv. gegn 11. Virðist það
mál sótt meir af kappi en forsjá nú á
þessu þingi. — Betur að vel rætist úr.
Birting opinberra auglýsinga. Frv.
frá Sigurði Stefánssyni og Jóni Jakobssyni
um að opinberar auglýsingar skuli birta í
Stjórnartíðindunum var samþ. við 2. umr.
í efri deild í fyrra dag með 6 atkv. (Jón
Hjaltalín og 5 þjóðkjörnir) gegn 5 (Sig-
urður Jensson og 4 hinir konungkjörnu).
Þorkell Bjarnason talaði einkum mikillega
fyrir því, að ísafold væri ekki svipt þess-
um auglýsingum, og sömuleiðis Hallgr.
Sveinsson og Sigurður Jensson. Lands-
höfðingi tók einnig til máls gegn frum-
varpinu, eins og lög gera ráð fyrir, vildi
ekki láta ákveða, hvar auglýsingar þessar
ætti að birta, heldur væri stjórnin látin
sjálfráð um það. Það væri líklega ekki
mikið vafamál, hvert hún sneri sér þá!!
Stjórnarskrármálið. Meirihluti nefnd-
arinnar í því máli vill láta samþ. þingsá-
lyktunartillöguna, en minni hlutinn (Pét-
ur Jónsson) hefur komið fram með frum-
varpið og var það samþykkt í Nd. í fyrra
dag við framhald 1. umr. með 13 atkv.
gegn 10. Allir tillögumennirnir greiddu
atkv. gegn því nema Halldór Daníelsson
þingm. Mýramanna. Má ganga að því vísu,
að frumvarpið verði samþ. i neðri deild,
hvað sem um þingsályktunartill. verður.
Kennaraskólinn í Flensborg (uppá-
stunga menntamálanefndarinnar) var felld-
ur í Nd. í fyrra dag.
Ný Iög. Þessi 14 lög eru nú afgreidd
frá þinginu: 1. Um stækkun lögsagnar-
umdæmis Akureyrarkaupstaðar. 2. Um
prentsmiðjur (hlunnindi fyrir amtsbóka-
safnið á Seyðisfirði). 3. Um bæjarstjórn í
Reykjavík (rífkun kosningarréttar). 4.
Eptirlaun handa séra Pétri Guðmundssyni
í Grímsey (500 kr. árlega). 5. Um hvalleif-
ar. 6. Um brúargerð á Blöndu. 7. Um sam-
þykktir til hindrunar skemmdum af vatnaá-
gangi. 8. Um eptirlaun embættismanna. 9.
Um stefnur til æðri dóms í skiptamálum. 10.
Um skipting ísafjarðarsýslu í 2 sýslufé-
lög. 11. Um hluttöku safnaða í veitingu
brauða. 12. Um breyting á gjöldum þeim,
er hvíla á jafnaðarsjóðunum. 13.—14.
Löggilding 2 nýrra verzlunarstaða: á Nesi
í Norðfirði og Hvammstanga við Miðfjörð.
Jón Jónsson í Múla, 2. þingm. Eyfirð-
inga, kom til þings 27. f. m. Hafði legið
veikur i taugaveiki, en er nú albata.
Yerðlaun. Þeir dr. phil. Björn M. Ólsen
og Jón prófastur Jónsson á Stafafelli hafa
fengið verðlaun af „gjöf Jóns Sigurðs-
sonar“, hinn fyrnefndi 500 kr. fyrir rit-
gerð „um Sturlungu", en hinn síðarnefndi
200 kr. fyrir ritgerð „um íslenzk manna-
nöfn“.
Ennfremur má geta þess, að Sigurður
bóndi Guðmundsson í Vetleifsholtshelli i
Holtum hefur fengið 100 kr. verðlaun af
búnaðarfélagi Suðuramtsins fyrir ritgerð
um húsabyggingar.
Hval fimmtugan rak á Strandhöfn i
Vopnafirði fyrir skömmu.
Uppganga á Eiríksjókul. Það hefur
jafnan verið álitið, að ekki væri hægt að
komast upp á Eiríksjökul, en nú hefur
Dr. Heusler frá Þýzkalandi ásamt Þorgr.
Guðmundsen komizt alla leið upp á há-
jöku! og fundu engan sérlegan erfiðleika
á því. Þeim virtist, að hægt væri að
komast víða annarstaðar upp en þeir fóru;
brattinn á sjálfum jöklinum er minni en á
Heklu; neðst er hamrabeltið að vísu bratt
nokkuð, en hættulaust uppgöngu.
Jörðin Stóra-Ármót
í Árnessýslu fæst til ábúðar í næstkom-
andi fardögum. Jörðinni fylgja rojög stór
tún, slétt og grasgefin. Útheyskapur mik-
ill og hægur. Laxveiði talsverð. — Menn
semji við undirritaðan eiganda og ábúanda
jarðarinnar.
Stóra-Ármóti 20. júlí 1895.
Jón Eiríksson.
Undirskrifaður heldur kveid-guðs-
þjónustu í Bessastaðakirkju næstkom-
andi sunnudag, 4. þ. m., kl. 5 e. h.
Evík ‘-/s. ’95.
Geir Sæmundsson.
Bindindisféiag islenzkra kvenna held-
ur aðalfnnd á miðvikudaginn 7. ágúst, kl.
S1/^ e. h., í Goodtemplarahúsinu. Ungfrú
Jessie Ackermann heldur íýrirlestur. Allir
meðlimir eru beðuir að mæta.
Félagsstjórnin.
á allskonar vörum, sem sendar eru tii
eða frá útlöndum með póstgufuskipunum
eða öðrum gufuskipum, get eg útvegað,
hvenær sem óskað er, gegn lágu ábyrgðar-
gjaldi á öllum tímum árs.
Tr. Gunnarsson.
Kristján Þorgrímsson
selur til 10. ágúst steinolíu, beztu tegund,
fyrir 23 kr. tunnuna.
WEf" Seltirningar eru beönir að vitja
Þjóðólfs í Vesturgötu 38 hjá Páli kaupm.
Jóhannessyni, eða hjá hr. Guðm. Einars-
syni í Nesi.
Kigandi og ábyrgðafmaðnr:
Hannes Þorstelnsson, cand. thtol.
Félagsprentsmlðjan,