Þjóðólfur - 09.08.1895, Blaðsíða 4
166
4. Aðalatriðið í því frumvarpi var, að
þurrabúðarmenn þyrftu ekki leyfi hlutað-
eigandi sveitarstjórnar til að setjast að í
hreppnum.
Lagaskólinn er samþykkur í efri deild
(laun kennara ákveðin 4000 kr. og 2800
krónur.
Lög samþykkt af þinginu auk þeirra,
er áður er getið: 15. Um kjörgengi kvenna.
16. Um breytingu á 2. gr. laga nr. 13 frá
3. okt. 1884 (að prestsekkjur fái öll ept-
irlaun sín greidd úr landsjóði, ef tekjur
prestakallsins eru 1200 kr. eða minni, og
að tekjur prestsins megi aldrei skerðast
svo við prestsekknaeptirlaun, að þær verði
minrii en 1200 kr.). 17.—19. Löggilding 3
nýrra verziunarstaðar: við Bakkagerði i
Borgarfirði (eystra), við Salthólmavík í
Daiasýslu og við Skálavík við Berufjörð.
Útlendar fréttir tii 26. f. m., bár-
ust hingað með skipinu Stamford. — Þyk-
ir það mestum tíðindum sæta, að Stefán
Stambulow fyrv. ráðaneytisforseti í Búlgar-
íu var myrtnr á strætum úti í höfuðborg-
inni Sofia 15. júlí. Réðust fjórir menn á
hann með pístóluskotum og hnífstungum.
Voru skotnir af honum báðir handleggirn-
ir, en þó lifði hann 3 daga við mikil harm-
kvæli. Stambulow var mikill óvinur Rússa
og beitti miklu harðræði og pyndingum við
menn, er hann var ráðaneytisforseti hjá
Ferdinand forseta. Hafði áður (1891) ver-
ið gerð tilraun tii að myrða hann, og sjálf-
ur hafði hann sagt það fyrir, að hann
mundi myrtur verða, og sakaði Ferdínand
fursta um það á dánardegi, að hann væri
valdur að iilvirkinu, og hvílir nokkur grun-
ur á, að svo muni vera. Ekkja Stam-
buiows gerði apturreka blómsveiga þá, er
furstinn sendi á kistu hans og vildi
hvorki sjá né heyra sendimennina. Nokkr-
ar óspektir urðu við jarðarförina og æpti
skríllinn formælingarorð yfir hinum myrta.
Búið var að handsama 3, er grunaðir voru
um morðið, en engin vissa fengin fyrir
sekt þeirra.
Kosningar til þings á Englandi voru
hér um bil um garð gengnar og höfðu
apturhaldsmenn unnið allmikinn sigur, svo
að búizt er við, að Salisbury ráðaneytis-
forseti muni hafa um 130 atkvæða meiri
hluta á þinginu. Tveir hinna helztu for-
vígismanna frjálslynda flokksins John Mor-
ley og William Harcourt komust ekki að
í kjördæmum sínum, þó komst Harcourt
síðar að í öðru kjördæmi. Mælt er, að
það hafi einna mest spillt fyrir þessum
flokki við kosningarnar, að þeir settu einna
efst á „program“ sitt eins konar héraðs-
samþykktalög um lokun veitingahúsa og
vínsölnstaða, án endurgjalds fyrir eigend-
urna.
Uppreisn geisaði á eyjunni Kúba í Vest-
indíum og fara Spánverjar halloka, svo
að tvísýnt þykir, að þeim takist að vinna
bug á eyjarskeggjum.
Látinn er Rudolf v. Oneist háskóla-
kennari í Berlín nál. áttræður, einhver
hinn langfrægasti þýzkra lögspekinga.
Rektorsemhættlð við lærða skóiann
er veitt 24. f. m. dr. phil. B. M. Ólsen frá
1. okt. þ. á.
Lansn frá embættl hefur Halldór Kr.
Friðriksson yfirkennari fengið s. d. frá 1.
okt. og um leið gerður að dannebrogs-
manni.
Sehierbeek landlæknir hefur nú feng-
ið stiptslæknisembætti á Sjálandi (Frið-
riksbergi).
Prestkosnlng til Uarðaprestakalls á
Álptanesi fór f'ram í Hafnarfirði 5. þ. m.
132 kjósendur (af 286 á kjörskrá) greiddu
atkvæði og fékk séra Jens Pálsson 79,
cand. theol. Geir Sæmundsson 52, og Sig-
urður prófastur Jensson 1. Er kosningin
ólögmæt, með því að helmingur atkvæðis-
bærra manna var ekki á fundi og hefur
þá veiting&rvaldið alveg óbundnar hendur
við veitinguna. Brauðið er veitt af kon-
ungi.
Jökulganga. Dr. Heusler frá Berlín,
er gekk upp á Eiríksjökul ásamt hr. Þorgr.
öudmundsen, eins og getið var um í síð-
asta blaði, hefur nú ásamt honum gengið
upp á jökulhúfuna á Snæfellsjökli. Lögðu
þeir félagar upp úr Bervík að austanverðu
við jökulinn og komu að sólarhring liðn-
um vestur í Ólafsvík, þvert yfir jökulinn.
Miklir öþurkar ganga hér syðra um
þessar mundir. Einkum er mjög illt útlit
með nýtingu í austursveitum (Árnes-
Rangárvalla- og Skaptafellssýslu), því að
óþurkar hafa þar verið langvinnari, og
liggja töður þar óhirtar á túnum enn að
miklu leyti og mjög teknar að skemmast.
Heimskringla (ritstjóri Eggert Jó-
hannsson), 4 síður, 6 dálkar (lú1/^ XÍS1/^
þumlungur) ásamt mánaðarritinu Öldin,
16 síður þuml.), send kaupend-
um á íslandi fyrir 6 krónur. Öldin sér-
stök 3 krónur. Eugin blöð send nema
borgað sé fyrirfram.
Borganir má senda i póstávísunum, eða
bankaávísunum frá Landsbanka íslands á
Bank of Scotland, London, England, borg-
anlegum á Canadion Bank of Commerce,
Winnipeg, Man., Canada.
Ávísanir verða að stýlast til
The Manager of the Heimskringla
Prtg. & Publ. Co.
P. 0. Box 305. Winnipeg, Man. Canada.
E. Olafsson.
Kennsla
í yfirsetukvennafræði byrjar fyrstu dagana
af októbermánuði næstkomandi.
J. Jónassen.
Ársfundur verður haldinn í hinu ís-
lenzka kvennfélagi föstudaginn 16. þ. m.
kl. 81/,, e. m. í Good-templarahúsinu. Allar
félagskonur eru beðnar að koma.
Félagsstjórnin.
Frídagur verzlunarmanna.
Miðvikudag 14. þ. m., eða fimmtudag
15. þ. m., verður ef veður leyfir almennur
frídagur fyrir verzlunarmenn Reykjavíkur,
og verður dagurinn notaður á þann hátt,
að skemmtisamkoma verður haldin í Ár-
túnum. — Verzlunarmenn utan Reykjavík-
ur geta einnig tekið þátt í skemmtaninni. —
Til bæjarmanna verður sendur listi, sem
menn skrifi sig á og hvað mörgum þeir
bjóða.
Program fyrir daginn verður prentað
og útbýtt seinna.
í umboði forstöðunefndarinnar.
Jón Laxdal.
Lambsfóöur til sölu.
Hér með auglýsist, að eg hefi í hyggju,
að selja 60 lambsfóður í haust, ef einn
kaupandi býðst; þeir sem vilja sinna þessu
semji við mig fyrir 10. sept. næstkomandi.
Gaulverjabæ 30. júlí 1895.
Ingvar Nilculásson.
Að öllu forfallalausu
kemur hvalsrengi það, sem fólk hefur pant-
að hjá mér, með „Thyra“ 19. þ. m. og
vildi eg helzt geta afhent það kaupendum
um leið og það verður flutt á land, svo
ekki falli á aukakostnaður fyrir heimflutn-
ing eða húsaleigu.
Rafn Sigurðsson.
Eigandi og ábyrgðarmaðnr:
Hannes Þorsteinsson, cand. theol.
Félagsprentsmiöjaii.