Þjóðólfur


Þjóðólfur - 11.02.1896, Qupperneq 1

Þjóðólfur - 11.02.1896, Qupperneq 1
irg. (60 arkir) kostar 4 kr. Erlendis 5 krBorgiit ftrrir 15. J4H. ÞJÖÐÓLFUR Uppsðgn, bnndin við iramét. ðgild nema komi tilfltgefanda fprir 1. oktflber. KLYIII. árg. ReybjaTÍk, Þriðjudaginn 11. febrúar 1896. Nr. 7. Pistlar úr AustQöröum. Eptir Héraðsbúa.] I. í 30. nr. „Austra“ 1895 er grein eptir „Fjarðarbúa“, um framfarir á Austurlandi; með því framsókninni er markaður bás hér eins og annarsstaðar, þá virðist eiga vel við, að drepið sé á, að til sé, fyrir austan, fleira, en framfarir og hyggindi. í ritgerðinni eru taldar framfarir í flestum greinum, og þær stórkostlegar í sumu. Um þetta má segja: „Vandratað er meðalhófið“. Þó dettur mér, sem þess- ar línur rita, eigi í hug, að neita því, að nokkrar framfarir séu á Austurlandi, enda þótt eg sjái hvorki hagnaðar eða hagræðis- von, enn sem komið er, af sumu, er „Fjarð- arbúinn" telur upp, t. d. ferðunum í Lag- arfljótsósinn. Þó að í fyrra tækist einu sinni að fara í Ósinn, svo að gagni yrði, þá sannar það eigi mikið, annað en að mögulegt sé, þegar gott er í sjó og hag- stætt veður, að ná Ósnum. Héraðsbúar þurfa meira, þeir þurfa mikla flutninga nm Ósinn á vorum, þegar vöxtur er í Fljótinu. Þá hefur herra 0. Wathne eigi tekizt að sanna, að auðvelt sé að veita; sízt í sumar, þegar „Austri" var að lofa hann fyrir að demba vörunum, sem áttu að fara í Ósinn, upp á Borgarfjörð, mörg- um hlutaðeigendum til mikils óhagræðis, þar sem þær urðu að þorna og blotna, undir ber- uai himni á klöppuuum við sjóinn, fram um mitt sumar. Nokkrir kusu þá ferð betur ófarna ýmsra orsaka vegna. Slíkar ferð- ir Þyhja dýrar fyrir 6—7 þúsundir króna siyrk af opinberu fé. — Hvernig efndi herra 0. Wathne framboð eða samning sinn um flutninga og ferðir í Lagarfljótsós ? Vonandi er, að málsaðilar skýri almenn- ingi nákvæmlega frá því. Með þessari síðustu Flóa-ferð munu kveðnar niður ferð- ir um Ósinn fyrst um sinn. Hin dýrmæta akbraut „Fjarðarbúans“ notast ekki, því, auk framkvæmda 0. W., er fossaudi ljón á honni, sem verið hefur ódýr brautar- vörður frá ómunatíð, og máske stöðvar framkvæmdir austfirzku kappanna í svip, utan í orðum og loptbyggingum, sem reyn- ast magrar framfarir. II. Búnaðarskóli vor er auðvitað talinn með framfarafyrirtækjum Austflrðinga, enda er eigi annar vegur beinni til menningar og ávinnings, en að auka þekkingu bænda á helztu greinnm landbúnaðarins; það er aðaltilgangur skólans. ^ Eg efast heldur eigi um það, að skól- anum yrði mikið ágengt í því, að kenna umbætur í gras- og garðrækt, koma á lipurri heimilisstjórn og hentugum vinnu- aðferðum, ef hann væri rétt notaður, en það er ekki. Vér þurfum meira til að nota skólann að fullu, en að nurla saman fé handa hon- um, svo að hann geti hangið í samahorf- inu eða sömu vesöldinni, sem búnaðarskól- ar vorir hafa orðið að stríða við, allt til þessa. Hún er svo þjóðkunn, að óþarft er, að fara nákvæmlega út í þá sálma. Skólinn þarf að vera þannig úr garði gerður, að hann geti varið sem mestum tima til að kenna jarðræktarstörf; hann þarf að láta pilta stunda jarðabætur meiri part sumarsins, en hafa vinnumenn til venjulegra bústarfa; þá fengju piltar við- unandi verklega æfingu, og yrðu færir um að leiðbeina bændum við jarðyrkju. Til þessara framkvæmda þarf skólinn meira fé; það verðum vér að útvega, eða leggja fram, ella hætta hokrinu og sam- eina búnaðarskólana. Þá yxi þeim ás- megin og mundu þeir þá þeyta menntun- inni með meiri krapti um þjóðlíkamavorn, og þjóðin hafa farsælli not af þeim. Það er auðsætt, að skólarnir þurfa að hafa á- lit bænda, til þess að þeir sendi sonu sína á þá, og það er lífsskilyrði fyrir búnaðar- skóla, að þeir, sem frá þeim fara með sæmilegum vitnisburði, geti sléttað tún, hlaðið garða, rist fram mýrar, sagthvern- ig áburð skuli nota m. m., því annars vill enginn jarðabótavinnu þeirra til lengd- ar. Menn hætta að nota þá, og fara má- sko eins og búnaðarfélagið, sem tók fyrir verkstjóra dreng, er ekkert hafði lært að jarðabótum, og sem nokkur jarðabótastörf gat alls eigi gert, en þá tilsögn af verk- mönnum við sum þau störf, er hanu réðst í að framkvæma. Er slíkt alleinræn stjórn, og eykur lítt álit forstöðumanna. Eg kalla óhagsýni, að hafa búnaðar- skóla, en nota lítið við jarðabætur þá, er af honum koma, og láta fyrirkomulag hans vera í nokkurri óreiðu. III. Pöntunarfélag Fljótsdæla er nytsemd- arfélag, og hefur eflaust bætt mikið verzl- un á Austurlandi, en mest er það ein- stakra manna verk, er eigi hefur náð sannri viðurkenningu í brjósti alþýðu. — Margir tortryggja það og gera lítið úr því, segja að það bæti lítið verzlun manna, þeir sem stjórni því sjái um, að fara sem næst kaupmönnum með verð á vörum, svo að það sé enginn hagur að skipta við fé- lagið o. s. frv. En í haust ættu þessir menn að sjá, að þeir hafa farið með lok- leysu og sleggjudóma, því að þetta ár hef- ur verið mikill ábati að verzla við félagið. Útlendar vörur í lágu verði, og ull og sauði hefur félagið selt mun betur en kaup- menn. Ættu menn nú að láta sannfærast, og taka höndum saman, til að efla félagið og sitt eigið gagn. Innan að, þ. e. úr landinu, er von á hagkvæmum og nota- sælum verzlunarsamtökum, en eigi frá út- löndum eða útlendingum. Stórverzlun 0. Wathnes virðist nokk- urskonar stundar-ofraun fyrir manninn, enda . undarlegum skilyrðum bundin að sumu leyti, sem eigi mun verða arðmeira að skipta við en pöntunina, þegar borið er saman verð, bæði á útlendri og inn- lendri vöru. Maðurinn sýnist ei þola munu slíka viðskiptaraun til lengdar, því heyrzt hefur, að hann sé að hrökklast úr landi með allar sínar ómetanlegu framfarir. IV. Enga hyggni tel eg það, hve Austfirð- ingar eru sparir á að bæta jarðir sínar. Þeir eru eflaust langt á eptir Norðlingum og Yestflrðingum í því; það er órækur vottur um deyfð og áhugaleysi á helzta atvinnuvegi vorum. Séu jarðir eigi bætt- ar, þá er hætt við, að framfarir landbænda verði meiri á orði en á borði. Alþingi veitir í fjárlögunum árlega talsvert fé til eflingar búnaði; af því fé gengur mikið til búnaðarfélaga. Vér Austfirðingar erum mjög gætnir í því, að stofnabúnaðarfélög;

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.