Þjóðólfur - 21.02.1896, Side 2
34
því ekki tel eg ugpdrátt íslauds þann
minni, enda er hann og ekki til í nærri
öllum skólunum.
Lestrarkennslubók er engin til, í lík*
ingu við það, ssm tíðkast í öðrum lönd-
um. Náttúrusaga er og engin til við hæfi
barna, þótt lögin heimti að hún sé kennd.
Margur mundi ætla, að sögu ættjarðar-
innar skyldi kenna í skólunum, á sjálfu
sögulandinu, en það má telja frágangs-
sök, því að engin bók er til handa börnum í
þeirri grein.
Þessi skortur á kennslubókum er öll-
um barnaskólunum jafn tilfinnanlegur og
hindrar mjög starfsemi þeirra allra, svo
það þarf enginn annan að öfunda hvað
það snertir. En aptur er sjálfsagt, að
kannast við það, sem er, að einstakir skól-
ar eru allvel búnir að flestum áhöldum.
Þannig er skólinn í Reykjavík, á Út-
skálum — hann er sá eini, sem hefur borð
og sæti, eins og vera á — og líklega skól-
inn í Hafnarfirði. Flesta aðra, sem eg
hef komið í, vantar meira og minna til
þess, að geta talizt í þolanlegu ástandi.
Þessar misfellur þarf að lagfæra sem
allra fyrst; umbætur í þessa átt þurfa að
ganga fyrir öllum nýjungum.
Að endingu vil eg ekki láta þess ógetið,
að eg hef alls ekki ritað þessa grein til
þess, að spilla fyrir handvinnukennslunni,
heldur einungis til þess, að benda mönn-
um á agnúa þá, sem eg ætla séu á skóia-
ástandinu yfir höfuð. Enginn getur árnað
skólunum betra gengis en eg; og víst
vildi eg óska þess, að hagur þeirra stæði
með þeim blóma, að með sönnu mætti um
þá segja, að þá vantaði ekkert annað en
handvinnukennsluna, en á meðan okkur
vantar svo margt annað, sem mér sýnist
meira á ríða, get eg ekki æskt eptir, að
hún verði innleidd sem skyldunámsgrein,
hve feginn, sem eg vildi.
Vöruverö í Stokkseyrarfólaginu.
Aðalfundur þess var haldinn í Hala 19. og
20. desbr. Formaður kosinn alþingismaður
Þórður Guðmundsson, í stað séra Skúla í
Odda, sem sagði af sér formennskunni.
Félagið skipti við þá Zöllner og Vídalín,
sem að undanförnu. Verzlunarmagn þess
var næstl. ár á milli 80 og 90 þÚB. kr.
Inneign þess, þá reikningar voru gefnir,
nokkur þúsund krónur. Verðlag á inn-
lendum vörum félagsins hefur Þjóðólfur
auglýst áður, en verð á útlendum vörum
er sem hér segir með öllum kostnaði á-
lögðum, að undanskildum deildarstjóra-
launum:
Rúgur 100 pd. kr. 6,07
Rúgmjöl .... — — 6,19
Bankabygg nr. 1 . — — 8,43
nr. 2 . — — 7,80
Grjón — 8,97
Hveiti nr. 2 . . . — — 6,52
Klofnar baunir . . — — 9,08
Mais — — 7,35
Haframjöl .... — — 12,47
Kaffi pundið — 0,89
Export — — 0,39
Kandís - — — 0,23 V
Melis — - 0,198/
Rulla — — 1,36
Rjól — — 1,06
Spritt pott. - 1,11
Rommspritt . . . — — 1,03
Hellulitur .... pundið — 0,47
Blásteinn .... — — 0,30
Hvitt garn . . . — — 0,66
Brúnt garn . . . — 1,00
Stangajárn . . — — 0,11
Hóffjaðrir .... 1000 — 3,01
Girði ‘galvaniserað’ pundið — 0,17
Þakplötur, 3 álnir . . . . — 1,29
4 álnir . . — 1,76
Naglar, 4 þuml. . . 1000 - L71
3 — . . — — 0,92
2 — . . — — 0,50
1 — — — 0,18
Færi, 4 punda . . — 2,75
— 3 — ... — 2,03
— 2 — (línur) — 1,36
— 1 — — — 0,96
Steinolia, fatið . . — 23,45
potturinn . — 0,15
Salt, 1 tunna (250 pd.) . . — 3,50
Strákaðall, pundið . — 0,30
Tjörukaðall — . . — 0,28
Skóleður, pundið . . — 0,65
Af framanritaðri verðskrá má sjá, hvern-
ig viðskiptin hafa orðið, og telja allir við-
skiptamenn verzlunina mjög góða. Félagið
mun eiga skuldlausar eignir um 4000 kr.
Þ. G.
Strandasýslu. (Bjarnarfirði) 18. jan-:
„Þetta nýbyrjaða ár heilsaði mönnum með
hinni mestu blíðu, heiðbirtu og logni, einn-
ig mjög frosthægri tíð, og var bezta hláka
4. 9. og 10. janúar, svo jörð mátti heita
orðin alauð upp á háfjöll. 12. janúar skipti
um til lakara með norðankafalds harð-
neskju og 8 gr. frost á R. og hefur síð-
an mátt heita stórhret, þó hefur optast
verið ratljóst með byggð; mest frost f
þessu hreti 16. þ. m. 14 gr. á R.
Póstur kom loks að Skarði 16 þ. m. og
höfðu tafið hann slæmar ár og slæmt veður;
þó munu meira hafa tafið ferð hans slæmar
ár, því þær voru víðast óíærar nokkra
daga í byrjun hretsins, enda mun engum
detta í hug, að álíta það slóðaskap af póst-
um, þó ferð þeirra seinki að einhverju
leyti, þegar slæm veður eða ófærar ár
hamla ferð þeirra; og hvað þessum pósti
viðvíkur, þá væri miklu fremur ástæða til
að ávíta hann fyrir ofmikið kapp á ferð-
um sínum og jafnvel ofdirfsku, t. d. með
því að leggja á fjallið milli Goðdals og
Kúvíkur í tvísýnu og næstum óíæru veðri“.
Yesturskaptafellssýslu (Mýrdal) 6.
febr.: „Veturinn hetur verið mjög gjaf-
felldur sem af er, og kom það sér því vel,
að almenuingur var vel heyjaður. Rétt
eptir miðjan f. m. gerði hér slæmt bylja-
kast, og kyngdi niður miklum snjó, en nú
er hann að mestu þiðnaður. Tiðin yfir
höfuð mjög óstöðug og sífelt úfinn sjór,
svo aldrei verður borið við að róa. — Heilsu-
far fremur gott, en þó ber hér sorglega
mikið á einum sjúkdóm, sem sé sullaveik-
inni. Er það mikið mein, ef það væri að
miklu leyti skeytingarleysi manna að kenna.
Eg er að visu ekki svo nákunnugur, að eg
þori að fullyrða, að svo sé, en hræddur
er eg um, eptir því sem eg hef litið til,
að menn séu ekki nærri því svo varkárir,
sem vera ætti, hvorki við slátrun fjár, né
heldur með ílát, því það mun víst nokk-
uð víða, að hundar hafi nær því óhindrað-
an aðgang að ýmsum ílátum, en slíkt mun,
því miður, ekki eins dæmi um þessa sveit.
Hefur aukalæknirinn hér (Stefán Gíslason)
stungið á mörgum, og á sumum hvað ept-
ir annað. Hefur hann mikið álit á sér
fyrir að takast það mjög heppilega, og
mun það maklegt. Heyrzt hefur, að hann
muni innan skamms fá héraðslæknisem-
bætti1, og munu flestir telja það maklegt,
þar sem hann hefur um mörg ár verið
aukalæknir í erfiðu héraði. En margir
munu sakna hans hér, því auk þess að
vera ötull og samvizkusamur læknir er
hann hið mesta lipurmenni í allri fram-
komu og hvers manns hugljúfi.
Lítill hygg eg, að sé pólitiskur áhugi
hér meðal almennings, en menntunarfýsn
eykst hér, sem annarstaðar; þó er fremur
’) Hann hefur nú fengið 14. lseknishérað (Norð-
urmúlasýslu). Hafa Norðmýlingar verið mjög 6á-
nægðir yfir því, hversu lengi veitingu embættiaiua
hefur verið frestað, og bversu hinn setti læknir
þeirra (Jón Jónsson) er óhaganlega settur í hérað-
inu (á Skriðuklaustri) m. fl., er þeir hafa kvartað
um. Það er enginn efi á, að þeir fá nú mjög sam-
vizkusamau og góðan lækni, þar sem hr. Stefán
Gíslason er. Bitstj.