Þjóðólfur - 21.02.1896, Side 3

Þjóðólfur - 21.02.1896, Side 3
35 lítið líf í lestrarfélagi því, sem stofnað var hér fyrir ári síðan, fyrir forgöngu hinna helztu og beztu manna. Mun það einkum staía af áhuga- og skeytingarleysi, og að nokkru leyti af mismunandi skoðunum á því, hvaða bækur skuli kaupa. Vilja flest- ir nær því eingöngu sögubækur — eink- um er eptirsókn eptir þjóðsögunum — en hirða minna um tímarit eða aðrar mennt- andi bækur, sem einstöku menn vilja reyna að innleiða. Tillagið til félagsins er þó svo afarlágt (1 kr.) að engan getur munað um það. — Dáiítill vísir til pöntunarfélags komst hér og á fót í fyrra, nndir forstöðu Halldórs Jónssonar og Þor- steins Jónssonar, bænda í Vík, og Jónat- ans Jónssonar á Dyrhólum. Allir þessir menn hafa borgarabréf, og má það nærri merkilegt heita, að menn, sem hafa þó Dokkra verzlun, hver út af fyrir sig, skuli vera kjörnir til að veita almennu pöntun- arfélagi forstöðu, en orsökin mun að miklu leyti sú, að þeir Víkurbændur bera nokk- urskonar ægishjálm yfir sveitinni, bæði að efnum, dugnaði og ráðdeild, og hafa því að maklegleikum almennings traust. Ekki mun félagsmönnum hafa líkað allskostar vel við hina útlendu viðskiptamenn, og er því í ráði að hætta við þá, en snúa sér til annara“. Mannalát. Á nýársdagsmorgun næstl. andaðist á Eskifirði, Sigurclur Pétursson settur sýslumaður í Suðurmúlasýslu, úr lungnatæringu á 29. aldursári. Hann var fæddur á Sjávarborg í Skagafirði 25. nóv. 1867, og bjó þar þá faðir hans Pétur Sig- orðsson, son Sigurðar prests Arnþórsson- ar á Mælifelli og Elinborgar Pétursdóttur systur þeirra bræðra Péturs biskups og Jóns háyfirdómara. Sigurður heit. varút- skrifaður ór sk6ia 1889 með 1. einkunn, tók embættispróf í lögum við háskólann I fyrravetur (1895) einnig með 1. einkunn, °g var settur sýslumaður í Suðurmúlasýslu næstl. vor. Hann var gáfumaður, stilltur og siðprúður og drengur hinn bezti. Hinn 7. f. m. andaðist Jón bóndi Hannes- son á Brún í Svartárdal, bróðir öuðmund- ar læknis Hannessonar. Hann hafði lært búfræði í Hólaskóla, og var hinn efnileg- asti bóndi, duglegur, greindur og gsetinn. Hinn 25. f. m. andaðist Steinunn Ouð- mundsdóttir, kona Brynjólfs bónda í Þver- árdal í Húnavatnssýslu, Bjarnasonar (sýslu- manns Magnússonar) 43 ára gömul. Hún Var dóttir merkishjónanna Quðmundar Jónssonar og Steinunnar Erlendsdóttur á Mörk í Laxárdal. Hinn 3. þ. m. andaðist lngunn Eyjblfs- dóttir kona séra Brynjólfs Jónssonar á Ól- afsvöllum, rúml. fertug að aldri, fædd í sept. 1855, en giptist í júní 1880. Eru 6 börn þeirra hjóna á Iífi. Hún var guð- hrædd kona, hjálpsöm, dugleg og myndar- leg í mörgu. Slysfarir. Síðastl. gamlársdag týndist kvennmaður frá Ingunnarstöðum í Geira- dal, Bagnheiður að nafni, og ætla menn að hún hafi farizt í öeiradalsá. Hinn 4. jan. drukknuðu í örímsá, 2 vinnukonur frá prestsetrinu Vallanesi. Höfðu farið út að Egilsstöðum til kaup- skapar og ætluðu heim sama kveldið. Embætti. Eggert Briem málsfærslu- maður er settur sýslumaður í Nordurmúla- sýslu frá 1. apríl þ. á., og ætlar austur þangað með pósti í marzmánuði. Um landritaraembættið sækja: Jón Magnússon sýslumaður í Vestmannaeyjum, Eggert Briem málaflutníngsm. og kand. jur. Gísli ísleifsson. Um aðra málfœrslumannssýslanina við landsyfirréttinn, er kand. jur. Hannes Thor- steinsson hefur verið settur til að gegna um hríð, sækja nú auk hans lögfræðis- kandídatarnir Einar Benedíktsson, Gisli ísleifsson, Halldór Bjarnason og Magnús Jónsson. Um kennaraembœttið við latínuskólann (2000 kr. árslaun) sækja kandídatarnir Bjarni Jónsson og Þorleifur Bjarnason, og ef til vill Bogi Melsteð í Kaupmannahöfn. Tveir héraðslæknar (Þorgrímur John- sen á Akureyri og Ólafur Sigvaldason í Bæ) eru um það leyti að segja af sér embætt- um sínum. Prófasturinn í Borgarfjarðarsýslu, séra Guðmundur Helgason í Reykholti, kvað hafa sagt af sér því embætti, og er nú verið að kjósa prófast þar í sýslu. Eptirmæli. Hinn 3. júlí f. 6. andaðist & Ballará merkis- bóndinn Steinþór Þórðarson. Hann var fæddur á Ytra-Hólmi árið 1840. Voru foreldrar hans Þórður bóndi Steinþórsson og Halldóra Böðvars- dóttir; þau hjón áttu 12 börn og komust 9 þeirra á fullorðins aldur, meðal þeirra Steinþór sál., Bjarni bóndi á Reykhólum, Gísli, er lengi bjó á Hrafna- björgum í Dölum og Einar á Tyrfingsstöðum á Akranesi o. fl. Steinþór sál. kvæntist árið 1870 Jóhönnu Krist- ínu Petrónellu Torfadóttur prosts i Kirkjubólsþing- um Magnússonar; varð þeim hjónum 5 barna auðið og lifa af þeim 4. Steinþór sál. var af öllum, sem konum kynnt- ust, viðurkennt valmonni, stakur dugnaðar- og starfsmaður og mjög fjölhæfur, manna fljótastur til hjálpar, ef hann vissi, að einhver þurfti með, hjálpaði hann mjög opt áður en sá bað, er hjálpar þurfti. Hann var gæddur góðri greind af náttúr- unni, en í æsku hafði hann öðruvísi ástæður en svo, að þær leyfðu honum að gefa sig við bókum, og barmaði hann sér opt um það, er hann talaði um uppfræðingu þá, sem börn eiga nú kost á að fá. Hann var gestrisinn og glaðlegur keim að sækja, fáskiptinn um daglegt sveitahjal, trúr í lund og tryggur vinur, og er hans því almennt saknað í þessu félagi, sem hann dvaldi í um 18 ár, sem einhver af duglegustu bændum. Hann var jarðaður á Skarði 11. júli siðastl. Við gröf hans var eptirfarandi kvæði sungið: Hart er að líta þig, hugkæri vinur, hörðum spenntan heljararm, skilinn frá börnum og bölþrungnu vífi, sem þér lengi bjó við barm. Hart væri að líta þig helblæju vafinn svelgja þesBa svölu gröf, svifi’ ekki vonin á svauvængjum engla frá lífsins kong með ljúfa gjöf. Handskript hún hefur af hönd drottins gjörva og þitt leggur leiði á. Hún segir þig lifa lífi fullsælu guðs þíns börnum góðu hjá. Far nú í friði ffá oss til hvílu eptir dagsins unnið stríð. Þökk fyrir samveru, þökk fyrir verkin þörf er vannstu þína tíð. Vorsólin væra vekur af dauða, dáið einatt aptur lif af frækorni fölvu svo frelsarinn lífgar eilíft blóm nær endar kif. Með hlýra tárvætta hér vér þig kveðjum, leiðir skildu furðu fljótt, en gnð markar brautir guma lífs-sólum. Góði vinur, góða nótt! Guðl. Guðm. Leiðrétting við ísafold. Mikili snill- ingur er ritstjóri ísafoldar(U) Hann nær sér niðri á sannleikanum, þar sem hann i 96. tölubl. 1896 bls. 382 skýrir frá sjálfsmorði Natans Rósantssonar. 1 þessari stuttu grein kennir ekki margra grasa, en þó er þar brúgað saman eintómum vitleysum; bvo sem því: „Að maður hafi hengt sig i Miðfirði, á Þóreyjarnúpi". Þetta er ósatt, hann fyrirfórsér ekki á Þóreyjarnúpi, og Þóreyjarnúpur er heldur ekki i Miðfirði og hefur þar aldrei verið. Hefði ritstjóranum þó ekki verið vorkun að vita það. Þar stendur og, að Rósant faðir Natans heitins, sé son- ur Natans þess, er myrtur var og inni brenndur (Ketilssonar); en skyldi ísafold eða ritstjóra hennar ekki ganga illa að sanna það! Sannleikurinn um fráfall Natans er sá, að hann

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.