Þjóðólfur - 17.03.1896, Side 1
Arg. (GO arkir) kostar 4 kr.
Krlendis 5 kr.-Borgist
fyrir 15. Júll.
ÞJÖÐÓLFUE.
Uppsögn, bnndin viA kramót,
Agild nema komitildtgefanda
fyrir 1. oktöber.
XLYIII. árg. Roykjarík, þriðjudaglun 17. marz 1896. Nr. 13.
Nýir kaupendur
að þessum 48. árg. Þjöðólfs (1896) fá í
kaupbæti ókeypis og kostnaðarlaust sent:
Fjögur bindi af Sögusafni Þjóðólfs
1892, 1893, 1894 Og 1895.
Alls um 500 bls.,
auk 4. heptis sögunnar af Þuríði formanni
og Kambsránsmönnum, er kemur út í vor.
Til 1. maí þ. á. geta og nýir kaupendur
átt kost á að fá keypt 1., 2. og 3. hepti
þessarar sögu fyrir 1 kr. 75 a. öll, og send-
ist sú borgun jafnframt pöntuninni, ef hún
kemur ekki frá útsölumönnum blaðsins,
eða öðrum reyndum skiptavinum þess, því
að þá verður þessa ekki krafizt fyr en
um leið og andvirði árgangsins er greitt.
Útlendar fróttir.
Kaupmannahöfn 29. febr.
Friðþjófur Nansen. Um miðjan þenn-
an mánuð kom sú hraðfrétt frá Irkutsk,
höfuðborginni í Austur-Síberíu, að Frið-
þjófur Nansen liefði komizt að norðurheim-
skautinu, og væri þegar á heimleið aptur.
Eins og vænta mátti, vakti frétt þessi
afarmikla eptirtekt, og síðan hefur verið
stælt um það í blöðunum fram og aptur,
kvort fregn þessi mundi sönn eða ekki.
Menn hafa áður rekið sig á, að ýmsum
'ygafregnum hefur verið hleypt af stokk-
unum Um þessa heimskautaför Nansens.
Oí? þessi síðasta frétt er einnig dálítið
vafasöm, þVj ]ian 8tafar ekki frá Nan-
sen sjálfum, heldur að því er menn frek-
ast vita frá einhverjum manni nyrzt í
Síberíu austanverðri, er kvað hafa léð
Nansen hunda o. fl. 4 norðurför hans. Enn
hefur engin áreiðanlegri frétt komið, en
sent hefur verið austur í Síberíu, til þess
að vita með vissu, hvernig á fregninni
stendur. Ef til vill fréttist hið sanna svo
fljétt, að það geti borizt heim með „Vesta".
Norðmaðurinn Eyvindur Astrup, sem er
kunnur af Grænlandsför Peary’s, er dauð-
ur, 24 ára gamall, nýkominn til Noregs
frá Ameríku. Hafði hann farið að heim-
an einn dag milli jóla og nýárs, og ætlað
að taka þátt í skiðför með kunningjum
sínum, en yfir fjallveg var að fara. Þá
er ekkert spurðist til hans í 3 vikur, var
loks tekið að leita hans með mannsöfnuði,
og fannst hann þá dauður í dalverpi nokkru.
Féllst Norðmönnum allmikið um fráfall
hans á svo ungum aldri, því að hann var
talinn líklegur til mikils frama og jafnoki
Nansens að óbilandi kjark og þreki.
Kosningin í Yalbæ. Hér er ekki um
annað talað, og glaðir eru frjálslyndir menn.
Dr. Oscar Eansen hlaut kosningu með á-
Iitlegum meiri hluta. Hægri menn naga
neglurnar og rífast sem mest þeir geta.
„Ungir hægri menn“ með Scavenius í
broddi fylkingar ryðjast um fast, og er
ekki annað sýnna, en að þeir nái yfirráð-
um í hægra flokknum. Þessir ungu hægri
menn eru engan veginn miklir fyrir sér,
og hafa því síður nokkur veruleg mál að
berjast fyrir. Flokkurinn virðist vera
kominn upp við miðlunina, mest fyrir for-
göngu Scaveniusar. Þeir þykjast vilja
„reformera“ hægra liðið, og blása lífi í hina
trénuðu apturhaldsmenn. Það væri auð-
vitað engÍD vanþörf á því, en það er lítil
von, að þessir menn fái nokkru veru-
legu áorkað, þótt þeir séu háværir og Iáti
mikið yfir sér.
Á þinginu er tíðindalítið. Yinstri menn
samþykkja fjárveitingar til víggirðinganna,
og dró það til sundurþykkju með þeim og
sósíali8tum. En vinstri menn segja sem
svo, að annaðhvort sé, að hefja deiluna á
ný, eða láta undan síga, og þeir taka hið
síðara. Enda er það víst, að ef fólksþingið
veitti ekki féð, þá mundi stjórnin taka það
samt móti öllum lögum, og þá væri hríðin
skollin á. Svo óeðlilegt og auðvirðilegt
er stjórnarfarið í Danmörku um þessar
mundir.
Um ráðaneytið er ekkert að segja öðru
nýrra;. engin veit með vissu, hvenær það
fer, allir óska, að það verði sem fyrst, því
að það er nógsamlega búið að sýna og
sánna vanmátt sinn.
Innflutningsbaimið. Dr. Schierbeck
hefur verið sendnr af ráðaneytinu fyrir
ísland, til þess að sannfæra ensku stjórn-
ina um, að kláði og klaufasýki sé ekki
til á íslandi. Eða, ef kláði sé til, þá svo
meinlaus, að það standi engin hætta af
honum. Það fé, sem flutzt hefur til Eng-
lands, hefur verið tekið holt og bolt, og
aldrei skoðað af dýralækni áður eu það
er flutt út, og þó hefur það aldrei Jcomið
fyrir, að kind frá Islandi hafi „smittaðu.
Það ‘ virðist benda á, að þó að kláði só
til á íslandi, þá sé hann mjög meinlaus
og fátíður. — Vér getum ekki annað, en
lokið lofsoiði á stjórnina fyrir þessar til-
tekjur; þó að þetta ráð komijekki að haldi,
sem óvíst er; þá gat hún ekki betur gert.
Eptir því sem vér höfum heyrt, þá á hr. Jón
Vídalín uppástunguna, og bauðst til að
ábyrgjast hr. landlækninum kaup, ef al-
þingi vildi ekki borga það úr landssjóði.
Yfirlit. í hinum enska heimi hefur ver-
ið órói og miklar uinræður um þau mál, sem
sagt var frá í Þjóðólfl síðast: Transwaátr
og Venezuélamálin. Og það líturút fyrir,
að af þeim muni spinnast merkilegir at-
burðir og þýðingarmiklir fyrir framfarir
mannkynsins og framrás viðburðanna á
seinni tímum. Vér eigum við, að England
og Ameríka gangist fyrir stofnun gerða,
þannig, að í stað þess, að vopnin ykeri
úr: deilum, eíns og hingað til hefur átt
sér stað, komi nefndir manna, sem dæmi
um þær og skeri úr þeim. Venezuelaþræt-
an virtist ætla að vekja stríð milli Ame-
ríkumanna og Euglands, en þá reis upp
fjöldi manna í báðum löndum, sem hét á
alla góða menn, að koma í veg fyrir það.
Sögðu, að það væri svo mikil ógæfa, að
hún mundi aldrei bætt verða, ef fræna-
þjóðirnar bærust á banaspjótum. Ogjafn-
framt lýstu þeir framtíðarleiðum beggja
þjóðanna svo glæsilega, að öllum gekkst
hugur við. Þeir sögðu, að nú ætti Eng-
land og Ameríka að gera samband sín í
milli, að allar þjóðir sem ensku töluðu ættu
að ganga í bræðralag, þar ætti að vera
ein hjörð og cin höfuðborg; London. Þá
yrðu enskir menn voldugastir allra þjóða
og gætu boðið byrgin hverjum sem vera
skyldi. Þá væri ekki nema um tvö stór-
veldi að gera: Rússland og hina ensku
þjóð. Þýzkaland, Frakkland, Austurríki,
Ítalía yrðu þá smáveldi í samanburði við
þessi tvö heimsveldi. Þau tvö mundu
skipta heiminum á milli sín. Eins og
nærri má geta er þetta styrkt með tölum
og útreikningum. En hvað um það, þó &ð