Þjóðólfur - 27.03.1896, Page 2

Þjóðólfur - 27.03.1896, Page 2
58 Þá er að minnast á athugasemdir hr. Pr. við Jiað eem virkilega stendur í „ Verði ljós". Maður fær hjartBÍátt, er maður les aðra eins klausu og þessa í grein hr. Pr.: „Pyrir þá, sem verið hafa í ka- þðlskum löndum og séð kirkjur þær, sem prðte- stantar hafa byggt svo sem fyrir fordildar sakir1, standa þar sem syrgjandi öbyrjur1, eða séð þær undir uppboðshamrinum eða þá niðurrifnar-------, og fyrir þá sem muna meira en það, sem skeði í gær og minnast þess, hvernig hín ensku trúboðs- félög aftóku eða minnkuðu1 fjárstyrkinn til trú- boðsins á Ítalíu, sökum þess að rannsókn sú, sem hafin var þar syðra, hafði slegið ðfrægilegu ljðsi yf- ir sigurfregnir kristniboðanna — fyrir alla þessa menn verða hinar háu tölur, er „ Verði ljós!“ flytur1, hrein og bein opinberun" (í þessu sambandi nefndi blaðið reyndar engar tölur, en það gerir auðvitað ekkert til!). Með þessum röksemdum vill hr. Pr. sanna, að hin evangeliska kirkja hafi enga útbreiðslu hlotið á Suðurlöndum! Kirkjan er eptir skoðun hr. Fr. sama sein kirkjubyggingarnar; ekki er að furða þótt hr. Pr. þyki lítið koma til hinnar evan- gelisku kirkju i Suðurlöndum, því þar fer hann víst ekki með öfgar, er hann telur hinar evang. kirkju- byggingar litilsvirði i samanburði við kirkjubygg- ingarnar kaþóisku. En eptir Bkoðun okkar próteBt- anta er kirlcjan (og „Yerði ljós“ talaði um hina evangelisku kirkju, ekki kirkjur í Suðurlöndum) ekki uppbyggð af marmara eða höggnu grjðti, held- ur af lifandi steinum (sbr. 1. Pét. 2, 5), þ. e. mönn- um, sem — þðtt það ef til viil sé í miklum veik- leika — elska hjálpræði Jesú Krists og vilja ekkert sér til sáluhjálpar vita nema Jesúm Krist og hann krossfestan. Hin evang. kirkja getur verið í mesta blðma á Ítalíu, enda þðtt þar sæist engin kirkju- bygging, því að eins og hr. Fr. veit „hann sem er herra himins og jarðar býr ekki í musterum, sem með höndum eru gerð“, heldur er hann alstaðar þar nálægur, „sem tveir eðaþríreru samankomnir í hans nafni", án tillits til þess hvort á húsinu, þar sem þeir koma saman, eru 20 turnar eða eng- inn og enda þðtt þeir komi saman úti á víðavángi. Hr. Fr. telur auðsjáanlega hinn ytri ljðma páfa- kirkjunnat beztan vottinn um dýrð hennar og full- komleika — en hér mun fuil þörf að minnastorða Krists í Matt. 23, 27.! Því neitar engin, að dýrð páfakirkjunnar er mikil hið ytra, en þá sést bezt hve mikið slíkt stoðar, þegar litið er til menning- arástandsins í löndum páfakirkjunnar, t. a. m. Ítalíu og Spáni, þar sem meir en annarhvor maður er hvorki læs né skrifandi! og hjátrúin svo mikil, að ferða- mönnum, sem þangað koma, finnst þeir vera komn- ir aptur á miðaldatímana, þegar myrkur hjátrúar og hindurvitna grúfði hvað svartastyfir löndunum; já, ekki að eins hjátrú, heldur einnig voðalegasta vantrú. Það virðist enn þá geta til sanns vegar færzt, sem Macchiavelli sagði forðum: „Vér ítalir getum þakkað hinum heilaga (páfa)stðli þann vel- gerning, að hann hefur í trúarefnum gert oss að kæruleysingjum eða guðleysingjum“,—því að sömu raddirnar heyrast enn á vorum dögum. Þannig segir Rafaelo Marianó hiklaust: „Það getur ekki öðruvísi verið, en að Ítalía gefi osb að líta hiðvið- bjððslegasta sambland hjátrúar og vantrúar. Ka- þólskan getur að eins orðið gröf okkar, eins og hún hefur verið böðull okkar. Og verði hún ekkigjör- eydd mun hún vissulega gjöreyða oss“, eða þegar heimspekingurinn Augusto Vero (f 1885) segir: „Hin ítalska kaþðlska stendur heiðindðminum næst, ‘) Leturbreytingarnar gerðar af oss, og má i því tilliti segja, að hún sé trúarleysið í hinni kristnu trú“. — Með þessu vildi eg sýnt hafa, að kirkjubyggingarnar sanna ekkert viðvikj- andi blóma kirkjunnar, hvorki hinnar evangelisku né hinnar kaþólsku, og þá sannar heldur ekki það, að kirkjur prðtestanta í Suðurl. standa eins og „syrgjandi óbyrjur", eins og hr. Fr. að orði kemst, neitt í þá átt, að prðtestantatrúin hafi ekki út- breiðzt á Ítalíu í seinni tíð. En bezta sönnun fyr- ir vexti og þróun hinnar evang. kirkju á Ítalíu, tel eg hinar sáru kvartanir hins „heilaga föður“ Leo 13. sjálfs í hirðisbréfum hans á seinni árum, er hann t. a. m. í einu þeirra segir „að það kremji hjarta sitt að sjá musteri annarlegrar trúarmanna aukast i Róm, undir vernd hinna borgaralegu laga“, og með tilliti til hinna evangelisku skóla, telur það óviðjafnanlega svivirðingu, að jafnvel i Róm, fyrir augum páfans sjálfs skuli vera byggðir slíkirskól- ar, þar sem börnin séu fyllt með viðbjóðslegustu villulærdómum“. Slíkt talaði Leo 13. ekki, efhann þættist ekki sjá kirkju sinni hættu búna af út- breiðslu hinnar evangelisku kirkju, þessi sami „hei- lagi faðir“, sem í umburðarbréfi sínu frá 3. des. 1880 kallar hina evangelisku trúboða „sendiboða djöfulsins", er ekki æski neins annars en útbreiða vald myrkrahöfðingjans! Að hr. Frederiksen langi til að koma Filippo de Lorenzi inn á vitlausraspítala, furðar mig ekki. Eg hef séð það, sem verra var í málgögnum páfa- kirkjunnar á Norðurlöndum, „St. 01af“ í Kristjaníu og „Söndagsblad for kath. Kristne“ i Khöfn, þeg- ar um einhvorn þann mann var að ræða, sem sneri bakinu við páfakirkjunni; það er vanalegasta að- ferðin að draga þá á einhvern hátt niður í sorpið. Hr. Fr. man líklega, hvernig farið var með mann- orð pater Chiniquy’s, eptir að hann hafði snarað af sér okinu. Við þekkjum allt of vel aðferðina, sem erindrekar páfans brúka við slík tækifæri, til þess, að vér þiggjum hið velmeinta tilboð hr. Fr.’s um að útvega oss upplýsingar um þennan de Lorenzi. „Verði ljós!“ tók greinina um hann eptir „Allge- meine evang.luth.Kirchenzeitung“(1895, nr. 46). En síðan hef eg séð þessa hins sama getið i tveimur blöðum dönskum og einu norsku, en þar á móti hvergi dregið í efa, að bréfið væri ekki rétt herm- andi. Það er náttúrlega ekki óhugsanlegt, að áðurnefnd kaþólsk málgögn séu búin að pota hon- um inn i einhverja dárakistuna, þótt eg hafi ekki séð það. Loks er að minnast lítilsháttar á sparkið til Lúthers frá páfatrúarmönnum. Hr. Frederiksen ber ekki á móti því, að „Verði ljós!“ hermi þar rétt frá, en hann kallar slíkt „að rannsaka sagn- irnar um Lúther (Lúthersmýþuna)". Hvað „rann- sóknir" þessar snertir, þá hefur lítilsháttar verið brugðið Ijósi yfir þær af fróðum mönnum, og með sögulegum rökum sýnt, að þær séu ekkert annað en rógburður og heilaspuni, tilbúinn af páfans trúu þjónum,1 líklega til þess, að fá meðal prótestanta eitthvað, sem hægt væri að jafna við hina helgu menn: Sixtus 4., Innocens 8. og Alexander 6. — Hr. Fr. hefur heldur ekki getað stillt sig um að sparka til Lúthers í grein sinni. Það eru einkum fjögur atriði, sem hann tilfærir. Sem nr. 1 kemur auðvitað gamla sagan um tvíkvæni hertogans af Hessen. Hr. Fr. ætlar þó ekki, að það sé nokkuð, sem hinir rannsakandi páfatrúarmenn hafi fyrstir komizt á snoðir um? Við prótestantar þekkjum *) Próf. Dr. Frederik Nielsen: Romersk-katolske Angreb paa Luthers Person. Kh. 1893. (Schönberg). söguna ofur vel, og því hefur aldrei verið neitað meðal prótestanta, að þar hafi Lúther og Melank- ton skjátlazt mikillega, en hins vegar kastar það ekki ófrægð á minningu þeirra hjá oss, fyrst og fremst af því, að vér vitum það, að þeir voru synd- ugir menn eins og vér (ekki gæddir neinum páfa- legum óskjátlanleika) og gat því yfirsézt í þessu, og þar næst af því, að vér vitum, að enginn hefur tekið sér þessa yfirsjón nær og dæmt hana harðar en þeir sjálfir. — Viðvíkjandi „hjúskaparráðlegg- ingum" Lúthers, sem hr. Fr. minnist á, skal eg aðeins geta þess, að það er rétt einkennileg skoð- un hjá hr. Fr., ef hann vill mæla beryrði manna í tali á 14. og 15. öld með mælikvarða binnar 19. aldar! En skyldi hr. Fr. ekki þekkja það, sem ljótara er en hjúskaparráðleggingar Lúthers ? Hvað segir hr. Fr. um spurningarnar, sem páfakirkjan leggur í munn þjóna sinna, til brúkunar í skripta- stólnum kaþólska?1 Annars hefur rækilega verið brugðið ljósi yfir þessar „hjúskaparráðleggingar" í bók, sem flestir þeir, er óska, geta auðveldlega eignast.2 Hin „paradoxu" orð Lúthers: „Syndgaðu drjúgum og trúðu drjúglega11, skilur hr. Fr. bók- stafiega, enda kemur það sér bezt fyrir hann. Vér prótestantar játum vitanlega, að orðin séu djörf, en vér hneykslumst þó ekki á þeim, af því að vér vitum vel, hvað Lúther meinti með þessum orðum, að þau fela í sér hvatningu til alvarlegrar synda- viðurkonningar, sem aptur á að hvetja manninn til þess af alvöru að varpa sér líknarbeiðandi í skaut náðarinnar. Hvað lokB „nauðungarvilja raannsins“ snertir, sem hr. Fr. auðsjáanlega telur eitt af því, sem Lúther hafi kennt, þá hefur hr. Fr. líklega ekki munað það, að Lúther og Melanchton höfðu tekið þennan lærdóm upp eptir einum af höfuð- kennifeðrum hinnar kaþólsku kirkju, sjálfum Ágúst- ínusi kirkjuföður (vill hr. Fr. kannske setja Ágúst- ínus á villumannaskrána fyrir það?), en hinu hefur hr. Fr. líklega gleymt, að þeir báðir hurfu frá þessum lærdómi síðar. Eg hef svo ekki neinu hér við að bæta að sinni, öðru en því, að þakka hr. Frederiksen í Landakoti fyrir það, að hann hefur gefið mér tilefni til að skrifa þessar línur og ritstjóra „Þjóðólfs" fyrir það, að hann hefur léð þeim rúm í blaði sínu. Jón Helgason. Laglcg &jöf. Orgelverksmiðjueigendur Isachsen & Renbjör í Levanger í Þránd- heimsstipti hafa með bréfi 19. jan. þ. á. heitið að gefa íslenzka háskólasjóðnum vandað „harmonium“, sem er 350 kr. virði, og er auðvitað, að sjóðurinn tekur þeirri sæmdargjöf feginshendi, og mun reyna að fá hljóðfærið selt fullu verði. Mynd af því fylgdi bréfinu, og er hún til sýnis á skrifstofu Þjóðólfs. Göfendurnir skýra frá, að þeir hafi vakizt til urahugsunar um háskólamálið við fyrirlestra, er landi vor Ólafnr Felixson hefur haldið i Þrándheimi og þar í grenndinni, svo að í raun réttri i) gbr_ eharles Ohiniquy: Den romersks Præst, Kvinden ogPrivatsKriftemaalet. Oversat af Peter Helgvold. Krist- janía. 1892, e»a: Elisa Eichardson: Katolicisme ogKloster- liv. Personlige Oplevelser. 5) J)r. H. Scharling: Luther om Ooelibat og Ægteskab. Khavn 1883.

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.