Þjóðólfur - 27.03.1896, Page 3

Þjóðólfur - 27.03.1896, Page 3
59 er gjölin honum að þakka. Maður þessi er ættaður frá Ægissíðu í Holtum, og er nú rúmlega þrítugur að aldri. Mun hann hafa dvalið 8—10 ár í Noregi og á nú heima í Þrándheimi. Er framkoma þessa almúgamanns harla ólík atferli sumra hinna svokölluðu „Iærðu“ landa hans, er erlend- is búa, og þykjast mestir mennirnir, er þeir í ræðu og riti læða út úr sér ein- hverjum órökstuddum óþverraskæting og óhróðurs lokleysum um þýðingarmikil lands- mál og menn þá, er þau vilja styðja, eins og t. d. hefur sést fyrir skömmu um há- skólamálið í íslenzku tímariti frá Kaup- mannahöfn. En eins og vænta mátti hef- ur eitt hérlent óþokkablað lapið upp þessi snyrtiyrði og sleikt út um báðum megin yfir slíku sælgæti. Það er iítið, sem hunds- tungan finnur ekki! Aflabrögð. Mjög daufiegar horfur eru enn með afla hér við flóaun, eigi orðið fiskvart á opnum bátum hér á Innnesjum. En flskiskúturnar, er komu inn fyrir skömmu, höfðu aflað dável á jafnstuttum tíma, og það iunan Garðskaga. í Her- dísarvík, Grindavík og Höfnum kvað hafa orðið vel flskvart, og eins á Miðnesi. Um 70 fiska hiutur kominn í Mýrdal um næstl. heigi, en á Stokkseyri og Eyrarbakka aflalaust enn, enda gæftaleysi hamlað. “Prestaskólakennari, séra Jón Helga- son prédikar í dómkirkjunni á sunnudaginn kem- ur kl. 5 e. h. Fyrirlestur. Eptir beiðni ætlar séra Jóh. L. Frederik- sen að halda fyrirlestur í Goodtemplara- húsinu sunnudaginn 29. þ. m„ ki. 8 um hinar andlegu hreyfingar á síðastliðn- um 25 árum. Ágóðinn á að ganga til ekkju með munaðarlausum börnum. Aðgöngumiðar fást allan laugardaginn í húsi Kr. 0. Þorgrímssonar, og kosta: Beztu sæti 75 a., almenn sæti 60 a. Stúdentafélagsfundur í kveld. Lektor Þorhailur Bjarnarson hefur umræður um það: Hvers vegna er móðurmálið útilokað við opinberar söng- skemmtanir hér í bce? Emil V. Abrahamson Kaupmannahöfn K. Þær vörur, sem firmaið sérstaklega flytur: Campechetré, kvistalaust, blátrjárextrakt, indigó- og aniiínlitir, pakkalitir og önnur litarefni. Katechu til veiðineta. Til vesturfara. Þeir, sem ætia að flytja til Ameríku í ár, af Vestur- og Suðurlandi, verða teknir með „Laura“, sem á að fara frá ísafirði 18. júní, frá Dýra- og Arnarfirði 20., frá Patreksfirði og Stykkishólmi 21. og frá Reykjavík 25. sama mánaðar. En þeir, sem ætla að flytja frá Norður- eða Austur- landi, verða að fara með „Thyra“, sem á að fara frá Sauðárkrók 8. júní; kemur við á flestum höfnum milli Sauðárkróks og Seyðisfjarðar (sjá farplanið), og fer þaðan 14. júní. — Allir verða að vera tilbúnir á hverjum stað, daginn áður en skipin eiga að leggja á stað eptir farplaninu. Farbréf fá vesturfarar þeir, er fara með „Laura", í Reykjavík hjá undirskrifuðum og um borð í „Laura“, en þeir, sem fara með „Thyra“, fá farbréf hjá þeim herrum: Friðbirni Steinssyni á Akureyri, Vigfúsi Sigfússyni á Vopnafirði og L. J. Imsland á Seyðisfirði. Einnig geta vesturfarar far- ið með „Vesta“ í maí, og geta þeir þá fengið farbréf sín hjá einhverjum af áður nefndum agentum mínum, eða hjá sýslu- skrifara Jóni Runólfssyni á Eskifirði. Fargjald verður í ár, eins og eg hef áður auglýst, nfl. alla leið frá íslandi til Winnipeg: fyrir hvern, sem er yfir 12 ára kr. 160,00 — börn frá 5 til 12 ára . — 80,00 — — — 1 til 5 ára . . — 57,50 — — á 1. ári . . . . — 10,00 Frá íslandi til lendingarstaða í Ameríku: fyrir hvern, sem er yfir 12 ára kr. 115,00 — börn frá 1 til 12 ára . — 57,50 — — á 1. ári . . . . — 10,00 Ameríku-dollarar verða teknir einungis kr. 3,60 hver. Reykjavík, 18. marz 1896. Sigfus Eymundsson, ASalumhoðsmaðnr Allan-línunnar á íslandi. Gufubáturinn „Oddur“ fer frá Hafnarfirði og Reykjavík kringum 8. apríl og tekur með til flutnings góss til Þorlákshafnar og Eyrarbakka. P. Nielsen. Nýbrennt og malað kaffi, bezta tegund, fæst á hverjum degi í verzlun Th. Thorsteinsson’s (Liverpool). Atyinna oskast. Maður, sem er alvanur verzlunarstörf- um, óskar atvinnu. Ritstj. vísar á. Núna fyrir páskana mun eg selja útlendan skófatnað af öll- um stærðum, og einnig hef eg afarmiklar birgðir af skófatnaði unnum á vinnustofu minni. Allt verður selt afar-ódyrt. Reykjavík 26. marz 1896. Rafn Sigurðsson. Prjdnayélar. Undirskrifaður hefur, eins og hingað til, aðal-umboðssölu fyrir ísland á hinum vel þekktu prjónavélum frá Simon Olsen, og eru vélar þessar að líkindum þær beztu, sem fást. Af vélum þessum eru nú hér um bil 40 í gangi hér á landi, og hef eg ekki heyrt annað, en að öllum hafi reynzt þær mjög vel. Vélarnar eru brúkaðar hjá mér, og fæst ókeypis tilsögn til að læra á þær. Þeir, sem ekki nota tilsögnina, fá eptir- leiðis vélarnar 10 krónum ódýrari. Vélarnar sendast kostnaðarlaust á all- ar þær hafnir, sem póstskipið kemur við á. Nálar, fjaðrir og önnur áhöld fást alltaf hjá mér, og verðlistar seudast, ef þess er óskað. Áreiðanlegir kaupendur geta fengið borgunarfrest eptir samkomulagi. Pantanir óskast sendar hið fyrsta til í*. IVielsen, Eyrarbakka. Eg undirskrifaður hef þjáðzt af óhægð fyrir brjósti og taki undir síðunni; fór eg því að reyna Kína-Lífs-Elixírinn frá hr. Waldemar Petersen í Frederikshavn. Þeg- ar eg hafði neytt úr einni flösku, fann eg til bata, og vona, að eg geti orðið heill heilsu, ef eg brúka bitterinn stöðugt. Skarði 23. des. 1895. Matth. Jónsson. Kína-lífs-elixírinn fæst hjá flestum kaupmönnum á íslandi. Til þess að vera viss um, að fá hinn ekta Kína-lífs-elixír, eru kaupendur beðnir að líta vel eptir því, að VFP' standi á flöskun- um í grænu lakki, og eins eptir hinu skrá- setta vörumerki á flöskumiðanum: Kínverji með glas í hendi, og firmanafnið Valdemar Petersen, Frederikshavn, Danmark. IPQT í húsinu nr. 4 í Lækjargötu eru 2 lierbergi, sem hr. verzlunarstj. Jón Laxdal bjó í, til leigu írá 14. maí. Húsgögn fylgja. llitstj. gefur leiðbein- ingar. „Þjóðólíur“ lcemur út tvisvar í uæstu viku, þriðjudag- og laugardag.

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.