Þjóðólfur - 31.07.1896, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 31.07.1896, Blaðsíða 2
146 ætla að segja af sér, þegar konungur kem- ur heim frá Wiesbaden. Botnvörpumálið á Englandi. Ein8 og skýrt er frá í fréttunum hér á undan, er allmikill kurr í Englendingum út af botnvörpumálinu, og sést það enn greinilegar af fyrstu fyrirspurnunura, er alþm. frá örimsby, G. Dought gerði til stjórnarinnar á fundi í parlamentinu 22. f. m. Fyrirspurnir þessar eru svolátandi: 1. Hvort stjórnin viti, hvílíkum yfirgangi brezk fiskiskip sæti af danska herskipinu við ísland. 2. Hvort hún viti, að hinir ensku fiski- menn eru svo æfir yfir þessum rangindum, sem þeir eiga undir að búa, að það er á- stæða til að óttast mannvíg og eignatjón, ef þeim (fiskimönnunum ensku!) er ekki veitt nægileg og hæfileg vernd. 3. Hvort stjórnin, vegna þeirra atburða sem orðið hafa nýlega, ekki viiji senda her- skip til íslands á sumrin, til þess að fiski- menn geti skotið máli sínu til brezkra manna, ef þeim verða enn á ný sýnd rang- indi. Þá koma tvær spurningar um himinhróp- andi rangindi, sem enskir fiskim. hafi orðið fyrir við Jótlandssíðu; þá víkur hann apt- ur að íslandi, og spyr 6. Hvort stjórnin viti, að þegar botn- vörpuskipið „TJndine11 var á heirnleið, 5 enskar mílur uudan Vestm.eyjum, þá hafi vopnaðir herforingjar ráðizt til uppgöngu á hana, heimtað að sjá aflann og gert hann upptækan, unz herskipið hafði náð eyjunum og spurt eyjarskeggja, hvortþeir hafi séð skipið fiska (í landhelgi), gefið síð- an skipstjóranum, Hillyer, aðvörun og sleppt honum eptir langa töf, og 7. Hvort stjórnin ætli að skipa riefnd til þess að rannsaka þessar yfirtroðslur, og til þess að líta á framkvæmd hinna nýju íslenzku botnvörpuveiðilaga. Þessu svaraði utanríkisráðgjafi Curzon, þannig, að hann hafi fengið skýrslu um, að mörg fiskiskip hafi verið tekin og sektuð á ísl. og í Danmörk, þar á meðal þau, sem spyrjandi nefndi. „Stjórnin sér að þetta er merkilegt mál og álítur æskilegt, að koma skipun á þessi efni, því að af þeim stafi deilur og jafnvel hætta. Full- trúi vor í Kauprnh. hefur fengið skipun um að biðja dönsku stjórniua að líta á mál- ið, og að heimta nákvæma rannsókn. Þó finnst stjórninni ekki nauðsyn til bera, að skipa rannsóknamefnd í Englandi. Fjögra skipa floti muu innan fárra duga fara „heimsóknarferð til æfinga“ til stranda ísl. og Danmerkur11. Þessi fyrirspurn þótti tíðindum sæta í Danmörk, og sérstaklega þetta með her- skipin. Stjórniu lagði út á djúpið, og lét „Berl. Tid.“ flytja svolátandi boðskap: „Vegna þess að það hefur þótt tíðindum sæta, að parlam. hefur spurt ensku stjórn- ina o. s. frv. skal þess getið, að enska stjórnin hefur að eins beðið dönsku stjórn- ina um nákvæmar uppplýsingar um þá at- burði, sem um er að ræða. — Að því leyti sem sagt hefur verið, að enska Btjórnin ætli að senda nokkur herskip „í heimsókn“ til fiskimiða við fsl. og Danmörk, þá er það ekki annað en það, sem danska stjórnin lengi hefur óskað eptir. Það er ekki langt síðan að vor stjórn hefur gefið þeirri brezku í skyn, að sú ráðstöfun einmitt væri heppi- leg“. Strandferðaskipið „Tliyra“ kom hiag- að 24. þ. m. norðan og vestan um land og með henni nokkrir farþegar, útlendir og innlendir, þar á meðal Sigurður Magnússon aukalæknir frá Dýrafirði og Sigmundur Guðmundsson prentari. Pðstskipið „Laura“ kom hingað að kveldi s. d., og með því nokkrir farþegar, þar á rneðal læknaskólakand. Wilhelm Bern- höft, sem lagt hetur stund á tanúlækn- ingar ytra, tveir danskir mannvirkjafræð- ingar, annar (Paulli að nafni) til að skoða hafnarkvíarstæði hér í Rvík, hinn til að segja álit sitt um og undirbúa vitagerð á öarðsskaga. Ennfremur kom kaþólskur prestur (danskur) Osterhammel að nafni, og í fylgd með honum 4 nunnur eða hjúkr- unarkonur (1 dönek, 1 þýzk og 2 frakk- neskar) er munu sérstaklega eiga að ann- ast hjúkrun og vitjun sjúkra í sambandi við kaþólska trúboðið hér á landi. Enska skáldkonan frú Disney Leith, kom nú með „Laura“ ásamt dóttur sinni og frænku, og ferðuðust þær allar til öeysis, eu fara héðan aptur nú með „Laura“. Þetta er þriðja skiptið, sem frú Leith heim- sækir land vort, og kvað henni lítast hér einkarvel á sig og hefur miklar mætur á tungu vorri og bókuienntum. Húu gaí út í fyrra ljóðmælasaín ailstórt. Eru þar ýms frumort kvæði, út aí ýmsum viðburðum í fornsögum vorum (Svanasöngur Skarphéð- ins, Hef'ud Kára, Síðasta sigliug Flosa, Víg Illhuga bróður örettis o. fl.), einnig nokkur tækifæriskvæði frá ferðura hennar hér á landi í fyrra og hitt eð fyrra, og þýðiugar á íslenzkum kvæðum. Eru laug- flest þeirra eptir Steingrím Tnorsteinsson, alls 15, 3 eptir Hallgrím Pétursson, l eptir Bjarna Thorarensen („Eldgamla ísafold41), örím Thomsen, Hannes Hafstein og Þor- stein öíslason, og brot úr öunnarshólma eptir Jónas Hallgrírusson. Eru þýðingar þessar vel af hendi leystar og víðasthvar smelluar. Bera þær vott um, að skáldkona þessi hefur mjög góða þekkingu á tungu vorri og hefur skilið mætavel kvæði þau, er hún hefur snúið. Sumar þýðingarnar eru jafuvel afbragðsgóðar. Frú Leith á miklar þakkir skilið af oss íslendingum fyrir þessa tilraun sína til að gera nýís- lenzkan skáldskap kuunan í hinum ensku- talandi heimi, því fremur sem það eru svo sárfáir Englendingar, sem gera sér far ura að kynnast bókmenntum vorum að neinu ráði, eða leggja nokkura rækt við þær. Það eru Þjóðverjar, sem íramar öll- um öðrum hafa reynzt oss beztir drengir í þeim efnum, en Danir allra manna verst. Þeir hafa sýiit, að þeir virða hinar nýju bókmenntir vorar að vettugi, og vildu víst helzt telja öðrum þjóðum trú um, eí þeir gætu, að hér byggju skrælingjar einir, eins- konar hugsjónasnauðar hræður og andlega volaðir apturkreystingar. Embættispróf í læknisfræði við há- skólann hafa tekið Þórður Gudjolmsen og Magnús Ásgeirsson hvortveggja með 2. einkunn. Ileimspekisprófi hafa lokið við há- skólann: Páll Sæmundsson og Sigurður Eggerz hvortveggja með 1. eink. Nellemann fyrv. íslandsráðgjafi er orð- inn konuugkjörinn þjóðbankastjóri með 15,000 kr. Iaunum. Auk þess hefur hann 6000 kr. eptirlaun sem uppgjafaráðgjafl, eða alls 21,000 kr. um árið, svo að stjórn- in launar honum dável, Ianga og dyggva þjónustu, enda mun hún eiga honum að þakka mest allra manua, að apturhulds- og kúgunarstefnan hefur gersamlega orðið ofan í Danmörku, á síðari árum. Oóður alli er nú hér á Innnesjum mestallt ýsa, en mjög fáir, sem róðra stunda, því að fólkið flykktist svo mjög til Auat- fjarða í vor héðan úr sjávarsveituuum. Jaröskjálftinn á Java 1883. (Niðurl.). Hver bresturinn kom nú á fæt- ur öðrum, eptir því sem sjórinn braut meir og meir af landinu og sökkti því niður í djúpið. Eg hræddist liversu sjórinn varð voðalegur, er hinar æðandi reginbylgjur

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.