Þjóðólfur - 28.08.1896, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 28.08.1896, Blaðsíða 1
Árg. (60 arkir) kost»r 4 kr Erlendii 5 krBorgUt (yrir 15. Uppiögn, bnndin vií iramftt, Agild nem> komi tilðtgefftnda iyrir 1. oktöber. ÞJÖÐÓLFUB. XLVIU. árg. Gr8f Rousseau’s. (Eptir Schiller). Minningartákn um minnkun tíðarinnar, margfalda níðstöng fósturjarðar þinnar, þú Rousseau’s gröf, jeg heilsa, heilsa þér! Friðsæld og ró þjer foldin megi veita, friðsæld og ró, þess varst þú æ að leita, friðsæld og ró, það fannstu loksins hér! Hvenær mun undin forna saman síga: Svartdimmt var fyr, þeir spöku máttu hníga, Ijósara’ er nú, þó leið hinn spaki enn. Sókrates féll mót hópum hártogara, hniginn er Rousseau fyrir kristnum skara, Rousseau, sem kristnum reyndi að breyta í menn. H. H. Nýmæli. Eptir Béra Guðm. Guðmundsson í Gufndal. (Niúnrl). Það kann nú margt að mæla á móti því, að selja sveitarsjóðunum kirkju- jarðir, landssjóðsjarðir og aðrar opinberar eignir. Látum svo vera. Hið mesta væri fengið, ef allar jarðeignir einstakra manna gætu orðið eign sveitarsjóðanna. Hart kann að þykja, að hamla öllum einstökum mönnum frá að vera jarðeig- endur. Hér er samt ein bót í máli, að með þessu móti yrðu allir jarðeigendur, en umráð jarðanna yrðu, innan lögbund- inna takmarka, í höndum sveitarstjórnar- innar. Það mætti færa mörg og sterk rök fyrir því, ef rúm leyfði, að það er optast gagnslaust, stundum einnig skað- legt, að menn eigi fleiri jarðir en ábýli sitt. En eins og nú hagar til, festast jarðir lítt í ættum, heldur safnast til eiu- stakra efnamanna, eða skiptast í smá- parta, og er hvorttveggja miður heppilegt. Það má óhætt fuliyrða, að aldrei verði það algengt til lengdar, að hver bóndi eigi ábýli sitt. Hér er ekki miklu að tapa. En geta sveitarsjóðirnir keypt jarðirn- ar ? Vafalaust. Um það þarf að eins skyn- samleg lög og haganlegar framkvæmdir. Benda mætti á þetta: Sveitarsjóðirnir ættu að hafa forkaupsrétt ti! jarðanna, upp á Reykjavík, föstudaginn 28. ágúst 1896. 25—28 ára afborgun, í hvert sinn sem jarðeigandi deyr eða bú hans kemur til skipta, og jafnvel vera skyldir til að kaupa. Andvirðið greiðist erfingjum jafnótt og það tellur til útborgunar. Hvíli skuld á jörð- unni, fullnægir sveitarsjóður þinglýstum skuldbindingum. Skylt sé að seíja jarð- irnar eigi dýrri, en sem svarar eptir 6 °/0 miðað við eptirgjaldið. — Þegar jörð er seld við nauðungaruppboð, skal sveitar- sjóður og hafa forkaupsrétt að jöfnu verði við hæstbjóðanda. Eptir þessu kæmust jarðirnar smátt og smátt í eign sveitar- sjóðanna. Vitanlega kemur hér allmargt til íhugunar, sem ekki er unnt að rekja í einni blaðagrein. Eg hef að eins stutt- lega drepið á það helzta, og meir hugleitt það, sem með þessu mælir, því optast verða nógir til að sjá missmíði á nýungum. Eptir að jörð er komin í eign sveitar- sjóðs, yrði að varna því með lögum, að hún gæti tapast honum að fullu eða geng- ið úr eign hans. Hins vegar má eigi eyða veðgildi jarðann8. Nú kann svo fara, að sveitarsjóður selji jörð sína að veði og standi síðan eigi í skilum með lúkn- ingu skuldarinnar. Samt er mikið síður hætt við sliku, heldur en þegar einstakir menn veðsetja jarðir sínar. En ef slíkt kæmi fyrir, mætti ákveða, að Jánardrott- inn skyldi fá jörðina í hendur og hafa sem sína eign ákveðið tímabil, ef skuld er eigi áður lokið. Ætti þessi timi að vera nógu langur til þess, að lánardrottinn yrði búinn að fá ríflega borgaða skuld sína með vöxtum og vaxtavöxtum, með því að njóta eptirgjalds- ins af jörðunni. Færi það því eptir upp- hæð skuldarinnar, hve langur þessi tími þyrfti að vera. Að honum liðnum skyldi svo jörðin falla aptur í eign sveitarsjóðs án frekara endurgjalds til lánardrottins. Það er ekki nauðsynlegt, að þessi breyt- ing komíst skyndilega á. Hitt varðar mestu, að hún ekki raski snögglega eða tilfinnanlega viðskiptalifi manna, eða lendi í bága við hag þeirra, sem nú eru eig- endur jaiðanna. Engin hætta sýnist vera á því, að þetta mundi draga úr áhuga manna að græða fé. Menn mundu eptirleiðis leggja sama kapp á að safna lausafé, og það því frem- Nr. 41. ur, sem sú aðferð er fullt eins greið og enginr fyrirstaða á að geta komið fé sínu á sjóði, sem veita jafnvel enn betri trygg- ingu en fasteign felur i sér fyrir einstaka menn. Sumum erfingjum væri óhagur að því, að fá ekki andvirði jarðanna nema smátt og smátt, aptur væri það betra fyrir suma. Þegar á allt væri litið, mundi þetta lík- lega jafna sig. En kæmist þetta á, mundi þar með lagður sá grundvöllur undir félagshagsæld þjóðar vorrar, að ekkert land á nú slík- an; en hver einstakur hefði eptir sem áður frjálsar hendur og fullan hug til að stunda sinn eigin hag og lifa sínu eigin lífi. Háskólamál Norðmanna fyrrum. (Kafli úr ritgerðinni „Nationale Symboler“ í fijt lidskrift). Það sem vakti fyrir forvígismönnum háskólamálsins var víst ekki í fyrstu röð hin verklega hliðsjón af þeim fjárhagslegu og vísindalegu gagnsmunum, sem stofnun háskóla í landinu sjálfu mundi hafa í för með sér. Og víst var það ekki af nein- um kærleiksblöndnum kvíða fyrir því, að Noregur gæti ekki staðið straum af eigin háskóla, að danska stjórnin setti sig svo harðvítuglega móti þessari kröfu. Nei, hluturinn var sá, að háskólamálið var orðið þjóðarmálefni, háskólinn þjóðlegt tákn (symbol). Yöntun síns eigin háskóla var eigi að eins velmegunar spillir fyrir Norð- menn, heldur var hún einnig stórt skarð í þeirra þjóðlegu sæmd. Menn hugsuðu almennt á þá leið, að hvert sjálfstætt ríki yrði að hafa sinn háskóla, eins og sína eigin stjórn og sitt eigið flagg. Það var undirlægjuskapar merki fyrir þjóðina, að synir hennar urðu að sækja til háskóla annars lands. En einmitt þess vegna vildi danska stjórnin ekki verða við kröfunni. Hún óskaði einmitt, að þjóðlund hinna ungu Norðmanna veiklaðist og sjjófgaðist niðri í Kaupmannahöfn. Hún vildi að Noregur væri Danmörku háður einnig i andlegu tilliti. Hún var hrædd um, að eiginn há- skóli mundi ala og efla vaknandi þjóð- ernistilfinningu Norðmanna, og gæti það

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.