Þjóðólfur - 25.09.1896, Side 4
180
og merkasta safn í heimi, og mætti eyða
þar mörgum dögum og vikum til að skoða
það nákvæmlega. Eiunig skoðuðum við
þjóðsafnið (National-Gallery) og eru þar
geysimörg og fögur málverk eptir ýmsa
hina frægustu málara. — í gærkveldi vor-
um við á skemmtistað hér í Lundúnum,
er Alhambra nefnist. Voru þar sýndir
ýmsir trúðleikir o. fl. Þar á meðal voru
sýndar ljósmyndir með algeriega nýrri að-
ferð, þannig, að allar hreyfingar sáust
greinilega. Mátti þar sjá vagna renna
eptir götunum, og fólkið ganga eptir þcim
svo náttúrlega, eins og það væri lifandi.
Þar voru og sýnd veðhlaup, og þutu hest-
arnir áfram með fljúgandi ferð, en mann-
fjöldinn þyrptist saman á götunum, og var
það allt mjög eðlilegt, enda klöppuðu áhorf-
endurnir ákaflega við þessa sýningu. Yar
okkur sagt, að þetta væri alveg ný upp-
fundning. og dáðust, Englendingar mjög að
henni. Áður hafa menn ekki getað sýnt
éðlilegar hreyfingar, heldur að eins óhreyf-
anlegar myndir. — í kveld leggjum við af
stað frá Lundúnum til Newhaven og það-
an til Dieppe á Frakklandi. Borðum við
kveldverð hér, en morgunverð i París, því
járnbrautarlestin á að koma þangað mill-
um kl. 7 og 8 í fyrra málið.
Eg ætlaði að heimsækja Mr. Stead, út-
gefanda hins nafnkunna tímarits Rewiew
of Rewiews, en hann var ekki í borginni
um það skeið, svo að eg gat ekki fengið
að sjá karlinn.
Eg sé nú, að eg er orðinn allt of lang-
orður um Lundúnir, og er þó drepið að
eins á fátt eitt, er fyrir augun bar. Verð
eg að láta við þetta sitja að sinni og fara
hér eptir fljótar yfir sögu, enda er eg nú
að segja skilið við stærstu borg heimsins,
og mun þá síðar verða færra til frásagna,
auk þess sem „Þjóðólfur“ minn hefur ekki
rúm fyrir langa ferðasögu frá mér.
Eldur uppi. Menn, sem nýlega komu
úr Landeyjum, fullyrða, að eldur hafl sézt
úti í hafi fyrir vestan Vestmannaeyjar vik-
una sem leið.
Icelandic Shipping and Trading C=
Hafnarstræti 6.
Með „Quiraing“, 3. ferð, eru nýkomnar birgðir af alls konar vefnaðarvörum, svo sem: alls konar lérept, bleikjuð og
óbleikjuð, vetrar-gardínutau, kjólatau, hálstau, handklæði, vasaklútar, axlabönd, tvinni, tölur. Enn fremur ágætar millumskyrtur
fyrir erfiðismenn, flonnolett af öllum tegundum, ítal. klæði, fínir, svartir sokkar, ullarbolir handa kvennfólki og margt fleira.
* Bnn fremur kartöflur og aðrir ávextir.
Með næsta skipi koma birgðir af kaffi og sykri og alls konar matvöru.
Öllum þeim, er heiðruðu útför foreldra
olchar sálugu, Arnbjarnar Þórarinssonar
og honu hans Guðrunar Magnúsdóttur
á Selfossi, hinn 16. þ. m., með návist sinni,
og öllum þeim, er á annan hátt hafa synt
ohkur hluttehningu í sorg óhhar, vottum
við hér með okhar innilegasta þahhlæti.
Selfossi 19. sept. 1896.
Sigurgeir Arnbjarnarson.
(xiiðrún Arnbjarnardóttir.
Uppboðsauglýsing.
Mánudaginn 28. þ. m. kl. 11 f. hád.
verður opinbert uppboð hsldið í leikfimis-
húsi barnaskólans á ýmsum merkilegum
bókum, þar á meðai kirkjusögu Finns
biskups, tilheyrandi dánarbúum Jóns Pét-
urssonar háyfirdómara, séra Fr. Eggerz o. fl.
Söluskilmálar verða birtir á undan upp-
boðinu.
Bæjarfógetinn í Reykjavík 18. septbr. 1896.
Halldór Daníeisson.
Harðflskur og saltfiskur
fæst í
verzlun Sturlu Jónssonar.
WT íslenzka skáldskaparins
á þessari öld eptir mag. Karl Kúchler í
Leipzig, 1. hepti, fæst til kaups á skrif-
stofu Þjóðólfs og kostar 2 hrónur. Ætl-
azt er til, að bókin komi út i 3 heptum.
Enskukennsla.
Undirskrifaður veitir tilsögn í að Iesa,
tala og rita ensku einum eða fleirum í senn.
Reykjavík, Vallarstræti 4.
Guðm. Duðmundsson
læknir.
Brúkuð íslenzk frímerki
borgar undirskrifaður hœrra verði en nohh-
ur annar á Islandi.
Stokkseyri við Eyrarbakka 12. júní 1896.
Jón Jónasson
verzlunarstjóri.
Kennsla lianda börnum
fæst hjá liprum og góðum kennara fyrir
mjög væga borgun. Menn gefi sig sem
fyrst fram á afgreiðslustofu „Þjððólfs", er
vísar á kennarann.
„Yggdrasill— Óðins hestr“.
Ný skýring hinnar fornu hugmyndar
eptir Eirík Magnússon bókavörð í Cam-
bridge. Verð: 1 kr. Fæst hjá kaupm*
Ben. S. Þórarinssyni, Reykjavík.
Brúkuð íslenzk frímerki
kanpir undirskrifaður afar-háu verði.
Finnbogi G. Lárusson
utanböSarmaSur við verzl. „Edinborg“ I Rvik.
Ágætar byssur
apturhlaðar, ein- og tvihleyptar, útvegar
undirskrifaður fyrir kr. 15,00 til 72,00.
Samkvæmt eigin reynslu get, eg ábyrgzt,
að byssurnar eru góðar.
Reykjavík 23. sept. 1896.
Árni Jóhannesson
bókbindari.
Góð jörð til sölu.
Snæringsstaðir í Svínavatnshreppi í
Húnavatnssýslu, metin 24,4 hndr., sem sér-
staklega hæg og notagóð jörð hefur þótt
eptir stærð, og jafnan verið vel á henni
búið fyrir íengri tíma, hún hefur gott tún,
hægar engjar og beitiland. Jörðin getur
verið laus til ábúðar í næstkomandi far-
dögum 1897, ef svo um semst. Frekari
upplýsingar gefur undirritaður ábúandi
jarðarinnar. Lysthafendur snúi sér til á-
búandans fyrir 30. desemberh. á.
SnæringBBtöðum, 8. ágúst Ts96.
Hallgr. Hallgrímsson.
Singers saumavólar nýkomnar í
verzlun Sturlu Jónssonar.
ódýrari en nohhru sinni áður.
Eigandi og ábyrgðarmaðnr:
IlanneK PorstelnBSon, cand. theol.
FólagBprentsmiðjau