Þjóðólfur - 12.10.1896, Side 1
irg. (eo »rklr) ko»t»r 4 kr.
Erlendlt 5 krBorglit
fyrlr 15. Júll.
Uppiögn, bnndin viö ár»m6t,
ógild nem» komltildtgafand*
fyrir 1. október.
ÞJOÐÓLFUR
XXVIII. árg. Reykjavífe, mánudaglnn 13. október 1896.
ÞJÓÐÓLFUR
' 1897.
Hlunnindi fyrir nýjaf kanpendur að
næsta (49.) árgangi:
Sögusafn Pjóöólfs
þrjú bindi (7., 8. og 9.), 1894, 1895 og
1896.. Alls um 800 bls. Mjög skemmti-
legt safn, og þar á meðal nokkrar íslenzk-
ar sögur. Nýir kanpendur geta einnig
átt kost á að kaupa 1.—4. hepti af hinni
fróðlegu s'ógu af Þuríði formanni og
Kambsránsmönnum fyrir 2 Itr. 50 aura
öll (1. h. 1 kr., 2. h. 50 a., 3. h. 50 a. og
4. h. 50 a.). Af 1. heptinu eru að eins
eptir nokkur eintök. Þessi hepti verða
ekki send neinum fyr en þeir borga þau.
Engir aðrir en nýir Jcaupendur Þjöðólfs
geta átt kost á að eignast söguna.
Fimmta (og síðasta) hepti sögunnar
kemur út næsta vor, og fá það allir
kaupendur blaðsins, gamlir og nýir.
Ferðapistlar
frá ritstjóra „Þjóöólfs“.
VI.
Stnttgart, 5. sept.
Nú erum við þá komnir í höfuðborg
Wurtemberg-rikis, í hinum fagra Nekkar-
óal. Hlýt eg að vera fáorður um förina
hingað frá Bonn, því að fyrst og fremst
er eg hræddur um, að eg hafi þegar of-
boðið^ Þjóðólfi með pistlum mínum, og svo
er hitt, að ef eg ætti að lýsa nokkurn-
veginn greinilega siglingunni upp eptir
Rín, frá Bonn til Mainz> 0g þvi, sem þar
var að sjá til beggja handa, mundi það
fylla mörg númer af blaðinu. Eg vil því
að eins geta þess, að við lögðum af stað
frá Bonn upp eptir fljótinu í fyrra dag
snemma (kl. 8V2) á gufuskipi er „Friður“
(»Friede“) heitir. Er það hjólskip, eins
og flest skip, er ganga á Rín. Við kom-
um við á ýmsum stöðum á leiðinni, sem
óþarft þykir að nefna, því að það eru flest
smáþorp ein, nema Koblenz, sem er all-
snotur bær með 42,000 íbúum, og liggur
hann á vesturbakka Rínar, ofan við ármót-
in, þar sem Mosel rennur í hana sunnan
af Frakklandi. Við Koblenz er brú mikil,
yfir Rín, er járnbraut fer eptir, og litlu
neðar önnur, er Þjóðverjar nefna „fliegende
Biucke“, þaðer lausabrú, sem byggð erá
bátum, og sáum við, hvernig farið var að
loka henni og opna hana. Þá er skip
ganga um, er einn hluti brúarinnar dreg-
inn til hliðar með gufuskipi og fer skipið
um op það, er þá myndast, en síðan er
brúnni hleypt saman aptur, og sjást þá
engin vegsummerki. Andspænis Kobienz,
á eystri bakka Rínar, er kastalinn Ehren-
breitstein og þorp samnefnt með 5,300 í-
búum. Er mjög fagurt um að litast á
báðar hendur beggja vegna með ánni frá
Bonn til Mainz. Er þar víða undirlendi
lítið meðfram ánni, en allt skógi vafið;
sumstaðar að eins ofurlítið þrep með ánni,
er hlaðið hefur verið upp fyrir járnbraut-
ina, er brunar þar á bökkunum og smýg-
ur gegnum múlana eptir jarðgöngum (tun-
nels), er boraðir hafa verið gegnum fjöll-
in, og hefur það víða verið mikið og erfitt
verk. Er einkennilegt, að sjá af skipum
þessa öskrandi gufufáka bruna með feikna-
hraða rétt hjá manni á bökkunum, opt
með 30—40 og stundum 50 vagna og þar
yfir aptan í sér. Þeir eru ekki lengi að
að fara fram úr skipum, sem síga hægt
og hægt upp á móti straumnum, en all-
mikill hraði er á skipum, er þau fara nið-
ur eptir og hafa strauminn með sér. Er
jafnan krökt af skipum á ánni upp og
niður, og afarstórir timburflotar fóru opt
fram hjá okkur niður ána. — Frá þorp-
inu St. Goar, alllangt fyrir ofan Koblonz
og upp að smábænum Biogen, er talinn
einhver hinn fegursti knflinn á Rínarför-
inni upp eptir til Maiuz. Rennur áin þar
víðast í nokkrum þrengslum og allmiklum
bugðum, og eykur það fegurðina, en marg-
ar einkennilegar rústir að sjá á landi uppi,
og svo er mjög víða á Rínarbökkum. En
einhver þjóðsaga er tengd nálega við hvert
tóptarbrot, og væri langt að rekja þá rollu,
en slíkar sagnir hafa þó einkennileg áhrif
á mann, þá er maður sér staðina sjálfa.
Verður það allt til að gera náttúrufegurð-
ina á slíkum stöðum áhrifameiri, og vekja
dularfullar endurminningar um löngu horf-
inn tíma. — Rétt fyrir ofan St. Goar
skagar klettasnös allmikil fram í ána, og
er stöng reist efst uppi. Þessi klettur er
Lorelei, sem Heinrich Heine hefur gert
víðfrægan með hinn ágæta kvæði sínu:
„Eg veit ei af hvers konar völdum“, en
þ að kvæði byggist að nokkrn leyti á þjóð-
sögu um Lorelei. Þá er við fórum þar
hjá, stóðu 4 stúlkur efst uppi á klettin-
um við stöngina og veifuðu hvítnm klút-
um að oss skipverjum, og sjálfsagt hafa
þær sungið líka, til að leika Lorelei, þótt
við heyrðum það ekki fyrir niðnum í ánni,
sem er allstraumhörð á því svæði. Erþar
einna hættulegust siglingaleiðin á fljótinu,
enda voru þá 3 við stýrið. Gegnum
Lorelei eru grafin járnbrautargöng; sáum
við einmitt, er við fórum þar hjá, að ein
lestin smaug inn í hana með marga vagna.
— Við Bingen standa rústir af turni út
á og í ánni. Er hann kallaður Músaturn-
inn, og á að draga nafn sitt af því, að
biskup nokkur (Hatto) í Mainz hafi átt
að láta brenna inni fátæklinga, er báðu
hann um korn, og sagt, að þessar korn-
mýs ættu ekki betra skilið. En eptir það
varð hann fyrir svo mikilli ásókn músa,
að honum varð hvergi vært, og lét hann
þá byggja turn þennan úti í ánni, en
mýsnar syntu þangað, og átu hann loks
upp til agna. • Er þetta stutt sýnishorn
af einni þjóðsögunni um Rínarrústirnar.—
Fyrir ofan Bingen allt til Mainz verður
Rín breiðari með mörgum hólmum, en
landið flatara, og eru þar hinar ágætustu
vínekrur (Riidesheim, Johannisberg o. s. frv.)
Við komum til Mainz kl. 8 um kveld-
ið, eptir 12 kl.st. ferð frá Bonn. Bærinn
stendur á vesturbakka Rínar, skammtfyr-
ir neðan þar sem fljótið Main rennur í
hana að austan. í Mainz eru 77,000 í-
búar. Þar er dómkirkja merk og forn,
er við skoðuðum, og þar stendur líkneskja
Gutenbergs þess, er fann prentlistina. Er
hún gerð af Thorvaldsen 1837. Þar er
og líkneskja Schillers.
Frá Mainz fórum við í gær kl. 1, í
steikjandi hita (22° C. í skugganum) til
Heidelberg, yfir mikla járnbrautarbrú, er
liggur yfir Rín skammt fyrir ofan Mainz.
Er landslag á þessari leið mjög slétt, en
fjöll í fjarska. Voru menn við heyvinnu
þar á völiunum, alveg eins og á íslandi.
Skáraði þar hver á eptir öðrum, en kvenn-