Þjóðólfur - 11.12.1896, Blaðsíða 3
231
því leyti lengra en Baldvin, er aldrei fékk
að segja meira «n „Herrar mínir og frúr!“
Pá er agentinn sá, að hann gat ekki flutt
tölu sína, þá kvaðst hann hætta og sté
niður af ræðupallinum. En fólkið beið ei
að síður, unz hann var farinn burtu (um
bakdyr hússins). Gengu þá nokkrir skóla-
piltar o. fl. á eptir honum til að fá vissu
fyrir, að hann væri alfarinn, og varð af
því hark nokkurt, en engin spell eða
ryskingar.
EIMSKIPAÚT GERÐ
hinnar íslenzku landsstjórnar.
Fyrsta ferð eimskipsins „Yesta“ á ár-
inu 1897 verður þannig: Frá Kaupmanna-
höfn 1. marz, frá Leith 5. marz, frá Fá-
skrúðsfirði 8. marz, frá Eskifirði 8. marz,
frá Norðfirði 9. marz, frá Seyðisfirði 11.
marz, frá Vopnafirði 12. marz, frá Húsa-
vik 13. marz, frá Akureyri og Oddeyri 16.
marz, frá Siglufirði 16. marz, frá Sauðár-
krók 17. marz, frá Skagaströnd 18. marz,
frá Blönduós 19. marz, frá ísafirði 22. marz,
frá Dýrafirði 23. marz, frá Bíldudal 23.
marz, frá Stykkishólmi 24. marz, í Beykja-
vík 28. marz. — Frá Reykjavík 31. marz,
frá Vestmannaeyjnm 31. marz, frá Leith
4. apríl, í Kaupmannahöfn 8. apríl.
Við ferð þessa gilda hinar sómu at-
hugasemdir og eru á ferðaáætlun þessa árs.
Ferðaáætlun fyrir allar ferðirnar verð-
ur gefin út síðar.
D. Thomsen,
i'arstjöri.
í YEFNAÐARVÖRUBÚÐ
H. TH. A. THOMSENS
— fæst: —
Enskt vaðmál, brúnel.
Klæði svart, ísaumsklæði af mörgum litum,
karlm.fataefni, yfirtrakkaefni, tilbúnir yfir-
frakkar, drengjaföt, regnkápur (waterproof
og guttaperka), prjónuð karlmannsvesti,
prjónpeysur, ullarnærfatnaður, barnakjólar,
Jerseylíf, BAB.NAHÚFUR, karlm.-, kvenn-
m.- og barnasokkar, BRÚSSELTEPPATAU
og Briisselteppi. Sjöl af mörgum tegund-
um, ÞRÍHYRNUR. Skinn-, silki- og ullar-
hanzkar, barnahanzkar. KVENNST.TPS,
hentug í jólagjafir handa konum og yngis-
meyjum. Pliisch af öllum litum. Skinn-
kragar, skinnhúfur, skinnhandskjól. LÍF-
STYKKI, mjög vönduð, hentug í jólagjaf-
ir. Kragar, flibbar, manchettur og húm-
búg, og m. m. fl.
Hannyrðiibókm
fœst á afgreiðslustofu Þjóðólfs.
Skemmtifundur
verður haldinn i „hinu íslenzka kvennfé-
lagi“ laugardaginn 19. þ. m. í Goodtempl-
arahúsinu kl. 8 e. h.
Prjónavélar.
Hinar alkunnu prjónavólar Simon
Olsens má panta hjá undirskrifuðum, sem
hefur aðal-umboðssölu þeirra á íslandi.
Vélar þessar reynast mjög vel og eru
efalaust hinar beztu, sem flytjast til ís-
lands, og jafnframt hinar ódýrustu, þar
sem þær seljast með 10 °/0 afslætti gegn
borgun i peningum við móttökuna.
Vélarnar eru sendar kostuaðarlaust á
allar þær hafnir, sem póstskipið kemur
við á.
Vélarnar eru brúkaðar hjá mér og
fæst ókeypis tilsögn að læra á þær. Þeir,
sem ekki nota tilsögnina, fá vélarnar 10
krónum ódýrari.
Nálar, fjaðrir, og önnur áhöld fást
alltaf hjá mér og verðlistar sendast, sé
þess óskað.
Vélarnar má líka panta hjá herra
Th. Thorsteinsson (Liverpool) Reykjavík,
er gefur allar nauðsynlegar upplýsingar
og veitir mönnum kost á að sjá þær
brúkaðar.
Eyrarbakka 30. júní 1896.
P. Nielsen.
hefur með ferð gufubátsins „Oddur“ frá
Reykjavík til Eyrarbakka 14. júlí næstl.
1 pakki með færum, noftóbaki og munn-
tóbaki, merktur „H. J. Hafnaleir“. Ná-
kvæmar upplýsingar nm, hvar pakki þessi
sé niðurkominn, verða vel borgaðar og ósk-
ast gefnar verzlunarstjóra P. Niolsen á
Eyrarbakka eða Jóni Norðmann í Reykja-
vík.
Nú með „Yestau
fékk eg úrval af útlendum SlTLÓ-
fdtnaöl, sem hvergi fæst ódýr-
arl í bænum.
Bankastræti 12.
Jón Brynjólfsson.
• Ekta anilínlitir bí
w
•f-H fást hvergi eins góðir og ódýrir einB og 8B
NH í verzlun »
Ö C8 Sturlu Jónssonar K
cð Aðalstræti Nr. 14. Ö
w í—•
•JIUI«JIIU« •
Timbur og þakjárn
verður selt mjög ódýrt við Lefoliis verzl-
un á Eyrarbakka að vori komanda, sér-
staklega fyrir peuinga. Á fyrsta timbur-
farmi er vou kringum lok, eða ekki seinna
en 20. maí. Þakjárn kemur hér um bil á
sama tíma á kolaskipi frá Englandi, og
ábyrgist eg, að járnicí verður ekki sált-
brunnið.
Viðskiptamenn verzlunarinnar, er hugsa
um stærri timburkaup hjá mér, og sem
ennþá ekki hafa sent mér pantanir sínar,
eru vinsamlega beðnir að koma þeim til
mín fyrir 20. janúar 1897.
Eyrarbakka, 28. növember 1896.
P. Nielsen.
Brúkuð íslenzk frímerki
borgar undirskrifaður hœrra verði en nokk-
ur annar á Islandi.
Stokkseyri við Eyrarbakka 12. júní 1896.
Jón Jónasson
verzlunarstjöri.
„Yggdrasill—Óðins hestr“.
Ný skýring hinnar fornu hugmyndar
eptir Eirík Magnússon bókavörð í Cam-
bridge. Verð: 1 kr. Fæst hjá kaupm.
Ben. S. Þórarinssyni, Reykjavík.
Eg undirskrifuð, sem um mörg ár hef
verið meira og minna þjáð af lifrarveiki
og ýmsum öðrum sjúkdómum, sem hafa
stafað af henni, gef hér með það vottorð,
byggt á 2 ára reynslu, að síðan eg fékk
frá herra kaupm. Halldóri Jónssyni í Vík
Kína-Lífs-Elixír frá hr. Valdemar Peter-
sen í Friðrikshöfn, hefur heilsa mín farið
dagbatnandi, og hef eg hinar beztu vonir
um, að með áframhaldandi brúkun þessa
lyfs, fái eg algerða lækningu meina
minua.
Keldunúpi & Síðu 20. ágúst 1895.
Ragnhildur Gísladóttir.
Vottar:
Bjarni Þórarinsson.
Oísli Arnbjarnarson.
Kína-lífs-elixírinn fæst hjá flestum
kaupmönnum á íslandi.
Til þess að vera viss um, að fá hinn ekta
Kína-lífs-elixír, eru kaupendur beðnir að
líta vel eptir því, að Tj,P- standi á flöskun-
um í grænu lakki, og eins eptir hinu skrá-
setta vörumerki á flöskumiðanum: Kínverji
með glas í hendi, og firmanafnið Valdemar
Petersen, Frederikshavn, Danmark.
Mórautt vaðmál, vel vandað, er til sölu.
Ritstj. vísar á.