Þjóðólfur - 12.03.1897, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 12.03.1897, Blaðsíða 2
46 þing tafið fyrir nauðsynlegum umbótum á fátækralögunum. Þegar þessu er nú þannig háttað, að þetta gerir hvorki að reka né ganga ár eptir ár, þrátt fyrir það, þótt menn játi nauðsynina á fyrirtekt málsins, þá er sann- arlega mál til komið, að þingið fari nú að snúa sér að því, að lagfæra þau ákvæði í fátækralöggjöfinni, sem reynslan er fyrir löngu búin að sýna og sanna, að eru óhag- felld. Hvað fátækrareglugerðina frá 8. jan. 1834 snertir, þá mun óhætt að fullyrða, að það sé ekki allra meðfæri að segja um það, að hverju leyti hún sé enn í gildi eða ekki í gildi, þar sem hún er á ýms- an hátt úrelt og að mörgu leyti breytt og úr gildi felld með yngri lögum, t. d. með sveitarstjórnarlögunum frá 4. maí 1872 o. fl. o. fl., svo og með ýmsum stjórnar- valdaúrskurðum o. s. frv. En þó er það svo, að hún er í ýmsum atriðum enn gildandi. Á síðasta þingi var, með frumvarpi i neðri deildinni, gerð tilraun til að tæma 8. gr. reglugerðarinnar og opna bréfið frá 17. apríl 1868, sem hljóða um flutning og og fiutningskostnað þurfamanna. Eg fylgd- ist með þessu frumvarpi meira tii þess að það yrði rætt í deildinni, en af því að mér þætti svo brýn nauðsyn á að breyta þessum lagastöðum, eða að mér þætti breytingin í alla staði hagfelld eptir á- kvæðum frumvarpsins, með því líka að það lá opið fyrir, að málið mundi daga uppi, eins og varð, og að þetta atriði lög- gjafarinnar gæti þá, fyrir þessa hreyfingu, legið opið fyrir landsmönnum til yfir- vegunar, því alllíklegt er, að málið verði tekið upp aptur á næsta þingi. (Meira). Verzlunarfólag Dalamanna. Hinn 8. og 9. febr. var aðalfundur verzl- unarfélags Dalasýslu haldinn að Hjarðar- holti í Dölum. Þótt fjárverðið væri ekki hátt næstl. ár, voru samt allir sæmiiega ánægðir með viðskiptin við félagið, enda reyndust þau betri en við var búizt, eink- um þegar fréttin um fjárflutningsbannið kom hingað í fýrra vetur. Eáðgert er, að halda áfram félaginu næsta ár og láta vænt fé til slátruuar á uppskipunarstaðn- um erlendis, ef ekki fæst markaður á lif- andi fé annarsstaðar. Næstl. ár fékk félagið útlendar vörur, sem námu með félagsverði 89,900 kr., og peninga frá Zöllner 43,132 kr. Félagið lét 6776 kiudur og fékk fyrir þær að frá- dregnum kostnaði 87,349 kr.; 25,255 pd. af ull á 15,950 kr., 316 pd. af dún á 3006 kr.; 201 hross á 9,863 kr. og 179 selskinn á 376 kr., og ennfremur ávísanir frá Kaupfélagi ísfirðinga upp á 1,584 kr. Stofnsjóður eða hinn svonefndi kaup- félagssjóður félagsmanna er nú orðinn c. 13,500 kr. og er það lagleg upphæð, sem félagsmenn hafa þannig safnað á ör- uggan og arðberandi stað, að eins á 4 ár- um, og alveg á ótilfinnanlegan hátt. Eptir árið 1892 var þessi aurasamdráttur félags- manna c. 1,100 kr., 1893 2,897 kr., 1894 c. 5,600 kr., 1895 c. 10,000 kr. og 1896 c. 13,500 kr., og þetta hefur komið með því að leggja 4% ú vöruna, auk annars kostnaðar, en varan þó ekki hækkað svo í verði við þetta, að neinn hafi getað séð þess merki, sem ekki hefur vitað það. Á þessu getur sést, hve feikilega miklu fé væri hægt að safna hverjum einstök- um, alveg ótilfinnanlega, ef öll verzlun á landinu væri rekin af verzlunarfélög- um, sem þanuig söfnuðu fyrir meðlimi sína. Og hve óútreiknanlega hlyti ekki þjóðin að verða sælli fyrir þannig lagað auðsafn, sem með tímanum kæmi næstum á hvert mannsbarn, heldur en þó að ein- stakir — að tiltölu mjög fáir — kaupmenn söfnuðu sömu upphæð, sem aldrei yrði þó jafnmikil, og þó hún yrði það, þá yrði þjóðin engu sælli fyrir það, heldur miklu ófarsælli, því þess meira fé, sem safnast í einstaka auðkongalófa, þess meiri líkam- legur og andlegur vesaldómur og ósjálf- stæði safnast í kringum þessa auðkýfinga, sem draga til sín mestan arðinn af því, sem almenningur með súrum sveita vinn- ur fyrir og á því með réttu. Og þegar féð er þannig komið úr höndum almenn- ings, þá sleppir hann sjálfstraustinu á eptir, sem eðlilegt er, og fer að dýrka og tilbiðja á mjög svo viðbjóðslegan hátt, þá sem þeir ættu að hata út af lífinu eða skoða sem skæðustu óvini. Á engan hátt getur alþýða safnað sér vissum höfuðstól, sem nokkru nemur, eða á auðveldari hátt, en á verzluninni, en til þess, að það geti orðið, verður verzlunin að vera í höndum hennar og verzlunar- arðurinn að renna til þeirra, sem fram- leiða vöruna. Menn ættu því að hafa hugfast, að efla og útbreiða félagsverzlunina, og að láta félögin safna fé fyrir almenning. Um það, hvernig félögin ættu að ávaxta fé þetta, og gera það sem arðmest bæði fyrir félögin sjálf og hvern einstakan, og eins nær og undir hvaða kringumstæðum féð væri látið koma til útborgunar til ein- stakra eigenda þess, er ekki hægt að segja með fám orðum. Þar er efni í all-langa ritgerð, er birt. ast ætti í Tímariti kaupfélaganna, sem vonandi er að haldi áfram. O. O. Landskjálftamálefni. Greíndur mað- ur og gegn í Árnessýslu ofanverðri ritar Þjóðólfi á þessa ieið seint í f. m.: Það er orðið almennt umtal um út- býtingu samskotapeninganna handa land- skjálftasveitunum, enda sýnist ekki mikið á móti því, þótt skoðanir hlutað-eigenda séu kunnar. Það mun álítast fullmikið vandaverk að útbýta samskotafénu, og þurfa síður að vera illa þeguar tillögur, þær, sem koma fyrirfram, heldur en að- finningar eptir á. Að byggja timburhús í stað torfbæja, þykir sumum aðalatriðið, og ber ekki að lasta það, að svo miklu leyti, sem því verður við komið. En að skylda menn til að nota þannig gjafirnar, og fá ekki annars skaðabætur, nema að nokkru leyti, eins og hugmyndin mun vera í bréfkafl- anum i 3. bl. ísafoldar þ. á., virðist fjarri öllum sanni. Fátæklingar, sem hafa orðið fyrir miklum skaða, eptir efnahaguum, þótt ef til vill sé ekki hár að krónutali, geta alls ekki byggt timburhús, hvað fegnir sem þeir vildu, og í hvað smáum stýl sem væri, enda ekki allt af sjálfsagt, að þeir þurfi minni húsakynni, sem íátækir eru. Að öðru leyti sýnist ekki nauðsynlegt, að skylda menn til að hleypa sér í stór- skuldir. Eeynslan hefur sýnt, að menn eru nógu ódeigir að taka til iáns, þegar mögulegt hefur verið, og geta þeir hrósað því sem vilja. Eptir þessari kenningu ættu þeir, sem nú þegar eru búnir að byggja með gamla laginu, ekki að fá tiltölulega skaðabætur, sem þeim getur þó verið allt eins nauð- synlegt, til að borga skuldir, sem þeir hafa komizt í við bygginguna. Það voru margir bændnr nauðbeygðir til aö byggja baðstofur handa sér í haust undir vetur- inn, og gátu ekki annað en byggt þær með gamla laginu. Að því studdi margt, timburleysi,flutninga-erfiðleikar og peuinga- leysi. Menn eru nú almennt farnir að sjá, að híbýlabætur eru mjög þægilegar, og mætti því ætla, að þeir bændur, sem sæju sór það fært að byggja timburhús, notuðu tækifær- ið, ef þeir fengju nú peninga, sem nokkru munaði, en að það yrði almennt á land- skjálftasvæðinu, það nær ekki nokkurri

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.