Þjóðólfur - 12.03.1897, Síða 3
47
átt, hvað mikill áhugi sem væri, og þó
skaðinn fengist að öliu leyti endurbættur,
eptir sanngjörnu mati. Hagur almennings
á þessu svæði stendur ekki í svo miklum
blóma, að hver sem viil geti lagt til frá
sjálfum sér, það sem timburhús kosta
fram yfir hinn metna skaða.j
Það getur vel hugsazt, að ef menn
ættu að missa helming skaðabótanna eða
eitthvað af þeim, nema þeir byggðu timbur-
hús, að einhverjir mundu reisatsér hurðarás
um öxl, og hleypa sér út í þá ófæru,
sem þeir kæmust aldrei úr aptur, og
þá kæmu gjafapeningarnir að minni not-
um en til er ætlazt og við mætti búast.
Hefði landskjálftinn' ekki gert neinn
óbeinan skaða, heldur að eins fellt húsin,
og gjafapeningar og ástæður hefðu þá ver-
ið þegar við hendiua, að byggja upp apt-
ur, þá var ekki mikið á móti því að byggja
timburhús. En nú er ekki því að heilsa.
Bændur urðu að fækka fénaði vegna rýrn-
unar, sem kom í heyskapinn, og skulda
fyrir byggingar í haust, en fénaðurinn er
það fyrsta og nauðsynlegasta, sem bænd-
urj þurfa að bæta sér aptur, því það
verður þó líklega ekki sagt, að timburhúsa-
byggingin sé hin glæsilegasta framfara-við-
leitni til að hleypa sér í skuldir fyrir, þótt
þau séu óneitanlega þægileg.
Það mun vera óhætt að segja, að menn
verða yfirleitt ekki áuægðir með útbýting
samskotapeninganna, nema hver fái að ráða
yfir því, sem honum ber, og ekkert að-
hald komi til sögunnar. Peningarnir eru
gefnir af frjálsum vilja handa þeim, sem
hafa orðið fyrir skaða af landskjálftanum,
og virðist nokkuð gífurlegt að gera hlut-
aðeigendur ómynduga að því, sem þeim
ber með réttu.
Það er lika þýðingarlaust fyrir efna-
mennina að prédika þá kenningu fyrir
fátæklingunum, að timburhús séu ekki
dýrari, nema í bili. Fátæklingar geta
ekki fengið stórlán til bygginga.
Maður varð bráðkvaddur hér í bæn-
um 9. þ. m. af heilablóðfalli Kristján Guð-
mundsson verzlunarmaður, (ættaður frá
Bíldhóli á Skógarströnd) um þrítugt, stillt-
ur rnaður og vandaður.
Ný fiskiskúta, er hr. ö. Zoega kaup-
maður hefur keypt í Hull, kom hingað í
fyrra dag. Skipstjóri á henni Krístján
Bjarnason. Hún heitir „Edinborg“, og
er 83 smálestir. Aðra skútu hefur G. Z.
keypt og heitir „Liverpool“, og hina 3.
hauda Th. Thorsteinsson. Ennfremur hef-
ur Sturla Jónsson kaupmaður keypt eina
skútu og Jón skipstjóri Jónsson í Mels-
húsum aðra, svo að þær eru þá alls 5,
er bætast nú við þilskipastólinn hér, auk
hinnar 6., er Helgi kaupm. Helgason hef-
ur látið smíða hér í vetur, og „Elín“ nefn-
ist. Er það góð viðbót á jafnstuttum
tíma.
Slysför. Úr Höfðahverfi er ritað 19.
f. m.: „Aukapósturinn frá Akureyri hing-
að út eptir hrapaði fram af klettum hér
inn með miðjum firði, á svonefndu „Faxa-
falli" á Svalbarðsströnd 15. þ. m. Fannst
hann örendur daginn eptir ásamt hesti
sínum. Var taskan send til Akureyrar
aptur, skoðuð þar og svo nýr maður send-
ur með hana í gær. Póstsendingar almennt
meira og minna skemmdar. Maðurinn hét
ólafur Þorsteinsson, duglegur ferðamaður
og röskur. Hafði stöðugt verið aukapóst-
ur hér út eptir austan með firðinum síð-
an vorið 1888, að það starf hófst. Hann
dó frá konu og 4 börnum á ómagaaldri".
Mannalát. Hinn 14. nóvbr. f. á. and-
aðist á Enni i Húnavatnssýslu stúlkan
Ealldóra Sigurðardóttir, fædd 27. ágúst
1863. Hún var ættuð úr Húnavatns-
sýslu. Hafði dvalið 4 ár í Kaupmanna-
höfn og var nýkomin þaðan, er hún lézt.
Hinn 23. des. f. á. andaðist úr tauga-
veiki Margrét Arnljótsdóttir (prests á Sauða-
nesi Ólafssonar) á 23. aldursári (f. 17. maí
1874), gáfuð og efnileg stúlka.
Hinn 27. s. m. lézt Alexander Bjarna-
son i Villingadal í Dalasýslu, fróður mað-
ur og vel að sér um margt.
Hinn 7. janúar síðastl. andaðist að
Árnanesi í Homafirði Guðrún Einarsdóttir
ekkja Stefáns Eiríkssonar alþingismanns,
systir séra Þorsteins heit. á Kálfafellsstað
og þeirra systkina, 76 ára gömul. Hún
var fædd í Ytri-Skógum undir Eyjafjöll-
um á gamlársdag 1820. Voru foreldrar
heunar Einar stúdent Högnason (f 1843)
og Ragnhildur Sigurðardóttir prests á Heiði
í Mýrdal, fóðurbróður Steingríms biskups.
Guðrún giptist um 1840 Stefáni Eiriks-
syni frá Árnanesi, bróður séra Benedikts
í Guttormshaga og Guðmundar á Hoffelli,
sem báðir eru á lífi háaldraðir. Hún missti
mann sinn 1884. Börn þeirra voru: séra
Björn á Sandfelíi (f 1877), Einar bóndi í
Árnanesi, Eiríkur sama staðar og Halldóra
kona Eymundar Jónssonar smiðs í Dilks-
nesi. Guðrún heit. „var atgerviskona til
sálar og líkama, guðhrædd og góðgerða-
söm, og ól upp munaðarlaus börn. Var
heimili hennar nafnfrægt sem frábært gest-
risnisheimili“.
Grufuskipið „Egill4
kemur að öllu forfallalausu til Reykjavík-
ur í byrjun júnímánaðar, eins og að und-
anförnu, til þess að sækja þaugað sunn-
lenzka sjómenn og vinnufólk og flytja það
til Austfjarða. Skipið kemur til Reykja-
víkur beint frá Austfjörðum og flytur því
greinilegar fréttir um ís, fiskafla og fleira.
í skipið verða settar þilrekkjur til
bráðabirgða og sömuleiðis eldavél á þil-
fari til þess að hita í vatn og fleira.
— Viðkomustaðir verða hinir sömu og að
undanförnu á Suðurlandi, og ennfremur
kemur það við í Vestmannaeyjum. — Loks
kemur það við á alla firði austanlands.
Skipið fer eina, tvær eða þrjár ferðir, ept-
ir því hve margir óska flutnings. í miðj-
um september hefur skipið aptur ferðir
sínar til þess að flytja menn heim og kom*
ur þá á allar hinar sömu hafnir og fyr,
bæði austanlands og sunnan, ef veður leyf-
ir. Þá fer skipið tvær eða fleiri ferðir og
verður það nánara auglýst síðar. Tilgang-
urinn með því að byrja heimflntningana
svona snemma er sá að umflýja illviðri þau,
sem vanalega eiga sér stað fyrri hluta
októbermánaðar.
Skipið fer aliar ferðirnar sunnan um
land. Fargjald verður 10 kr. hvora leið.
p. t. Kaupmannahöfn, 15. janúar 1897.
0. Wathne.
UtanáBkript: Seyði&fjörð.
Vlll<3.1a.P, mjög góðir, frá
4.50—7.25, fást í
Aðalstrœti 10.
J. Jónsson.
Til heimalitunar
viljum vér sérstaklega ráða mönnnm til
að nota vora pakkaliti, er hlotið hafa
verðlaun, enda taka þeir öllum öðrum lit-
um fram bæði að gæðum og litarfegurð.
Sérhver, sem notar vora liti, má örugg-
ur treysta því, að vel muni gefast.
í stað hellulits viljum vér ráða mönn- •
um til að nota heldur vort svo nefnda
„Castorsvart", því sá litur er miklu feg-
urri og haldbetri en nokknr annar svart-
ur litur.
Leiðarvísir á íslenzku fylgir hverjum
pakka.
Litirnir fást hjá kaupmönnum alstað-
ar á íslandi.
Buchs Farvefabrik,
Studiestræde 32, Kjöbenhavn K.
„Þjóðólfur“ keniur út tvisvar í
uæstu viku.