Þjóðólfur - 23.04.1897, Page 1

Þjóðólfur - 23.04.1897, Page 1
Árg. (60 arktr) kostar 4 kr. Erlendis 5 kr. — Borgist fyrir 15. júli. Uppsögn, bnndin við áramót, ógild nema komi til útgefanda fyrir 1. október. ÞJÓÐÖLEUR XLIX. árg. Reykjayík, föstudaginn 23. apríl 1897. Xr. 20. Athugasemdir um sjálfstjórnarmálið heitir ritlingur, er Benedikt Sveinsson hef- ur nýlega látið prenta á eigin kostnað og sent ýmsum helztu mönnum víðsvegar um land, þar á meðal þingmönnum. Ritling- ur þessi er röggsamleg hugvekja um stjórn- arskrármálið í heild sinni, og yfirlit yfir sögu þess á síðustu árum, einkum á síðasta þingi. Eru þar teknar upp orðréttar á- lyktanir um þetta mál, er samþykktar voru á þingmálafundum í landinu vorið 1895 og á Þingvallafundinum, til að sýna, að fuiltrúar þeir, er skárust úr leik í mál- inu á síðasta þingi, hafi eigi með réttu getað borið fyrir sig almenningsvilja þjóð- arinnar eða meiri hluta hennar til að fóðra fráhvarfið. Höf. lýsir og allrækilega efni þingsályktunartillögunnar og sýnir fram á, á hve skökkum grundvelli hún hafi ver- ið byggð frá stjórnskipulegu sjónarmiði, og hve varhugaverð og óheillavænieg í eðli sínu. Ættu menn að Iesa með athygli þessa skarplegu skýringu höf. á sjálfstjórnarmáli voru, því að hún er hverjum manni ljós og skiljanleg, og með því geta menn feng- ið á einum stað glöggt og skýrt yfirlit yfir gang málsins, aðalkjarna þess og stefnu ásamt ástæðum mótstöðumannanna, sem jafnframt eru teknar til greina og brotn- ar til mergjar eða hraktar, þótt þeir vilji sjálfsagt ekki kannast við það sumir hverj- ir. Ritlingur þessi er ágætur leiðarvísir við umræður og atkvæðagreiðslu á þing- málafundunum í vor, þá er rætt verður um stjómarskrármálið, og hverja stefnu þiugið eigi að taka í því nú í sumar, og á höf. því þakkir skilið fyrir þessar leið- beiningar sínar, og vekjandi ávarp til þjóð- arinnar, einmitt á þessum tíma, því að ekki mun af veita, þótt eitthvað sé ýtt við mönnum nú fyrir þingið. Af því að sumir hafa borið höf., — sem vitanlega er forvígismaður stjómarskrárbar- áttu vorrar—á brýn, að hann vilji láta haida sjálfstjórnarmálinu áfram óbreyttu ár ept- ir ár, þangað til það vinnst, og gert mik- ið úr þeirri fjarstæðu, þá þykir rétt að láta þess getið enn einu sinni, að það hef- ur aidrei verið ætlun hans, og er því þýð- ingarlaust fyrir andstæðinga hans, að beita Því vopni gegn honum og málinu til að vekja mótspyrnu. Til frekari sönnunar leyfum vér oss að taka hér orðréttan kafla úr áðurgreindum ritling höf. (bls. 15—16). Þar segir svo: „Hvað þá spurningu á- hrærir, sem að vísu heyrir framtíðinni til, hvað lengi vér eigum að halda endurskoð- unarmálinu fram í sama formi og á þing- unum 1885—86 og 1893—1894, þá viljum vér svara henni stutt á þá leið, að vér álítum það sjálfsagða skyldu vora við föð- urland vort og sjálfa oss, að halda áfram hiklaust óbreyttri endurskoðaðri stjórnar- skrá, þangað til útséð er um, að sá vegur leiði til árangurs. En kæmi sá dagur, að vér gætum sagt, að vér hefðum haldið sjálfstjórnarkröfum vorum fram í þessari mynd svo lengi án alls hringlanda eða apturkipps, að vér hefðum gert skyldu vora í augum sjálfra vor og annara þjóða, og færi svo ólíklega, að þetta ekki leiddi oss til sigurs á gerræði og mótþróa Danastjórn- ar væri auðvitað ekkert annað fyrir oss að gera en annaðhvort að beygja oss und- ir okið og leggja árar í bát með allar frelsiskröfur gegn Dönum — sem vér hyggj- um þó, að engan íslending mundi fýsa, þegar til alvörunnar kæmi — ellegar þá fleygja íyrir borð viðurkenningum Dana sjálfra og byrja nýja atefnu, byggða á grundvelli sögulegra, óskertra landsréttinda íslands til aðskilnaðar frá Danmörku, jafnt í hinnm almennu, sem í hinum sérstöku málefnum landsins. — En þessi síðast- nefndi vegur liggur að voru áliti harla langt í burtu, því það er ofurlangt frá því, að vér höfum gert skyldu vora i þeirri framsókn til sjálfsforræðis, sem háð hefur verið á grundvelli stöðulaganna og þeirr- ar stjórnarskrár, er vér nú höfum". Að svo mæltu lýsir höf. ítarlega, hvers vegna stjórnarskrárbaráttu vora hafi „vant- að stórmikið til að geta verið virðingarverð í augum hinnar útlendu stjórnarH o. s. trv. Mun engum geta dulizt, að höf. hefur þar rétt að mæla. Það er hringlandinn og óstaðfestan í þessu máli, sem komið hefur því til leiðar, að stjórnin getur með sönnu sagt, að vér íslendingar vitum ekki, hvað vér viljum. Það er þessi hringlandaskapur af löggjafarþingi íslendinga. sem orðið hef- ur beittasta vopnið á sjálfa oss i höndum stjórnariimar, og af því munum vér Iengi seyðið súpa. Um horfur málsins á næsta þingi, verður siðar farið nokkrum orðum. Ágrip af sögu Borðeyrar m. fl. Úr Bæjarhreppi í Strandasýslu er Þjóð- ólfi ritað 20. f. m.: Það sýnist eiga vel við að minnast þess með nokkrum línum, að nú eru bráð- um liðin 50 ár, síðan farið var að verzla á Borðeyri. Það var sumarið 1848. Árið áður fóru þeir Jón sýslumaður Jónsson á Melum og Þórarinn prestur Kristjánsson á Stað í Hrútafirði vestur í Stykkishólm og sömdu við kaupmann Hans A. Clausen, sem þá hafði verzlun í Stykkishólmi, Ólafs- vík og við Búðir, um að hann sendi næsta ár vöruskip til Borðeyrar, en Jón sýslu- maður veðsetti Clausen kaupm. Hofstaði í Miklaholtshreppi til tryggingar fyrir þvi, ef skipinu kynni að hlekkjast á á Ieiðinni. Sumarið eptir (1848) sigldi „Svanurinn ungi“ hér inn í ofsanorðangarði alveg slysalaust, án hafnsögumanns. Var hann að nokkru leyti fermdur við Búðir. Hafði glysvarningur og ýmisskonar rusl, sem Jöklarar vildu ekki þiggja, verið rifið nið- ur úr hyllunum í Búðakaupstað og rutt út í „Svaninn", en allur sá varningur rann hér stanzlaust út, og má óhætt segja, að löngum síðan hafi ýmisleg vara gengið all- vel út á Borðeyri, þó að hún hafi ekki öll verið valin af betri endanum. Ekki hef eg heyrt þess getið, að optar hafi verið sendar hingað leifarnar frá Búð- um, og nokkuð er það, að næsta ár mun vöruskip til Borðeyrar hafa verið fermt i útlöndum. Eptir 1850 fóru fleiri að verzla hér en Clausen, og þannig óx verzlunin smátt og smátt. Árið 1861 voru fyrst reist verzl- unarhús á Borðeyri. Það gerði PéturEggerz og byrjaði hann um það leyti að verzla með vörur frá Clausen. Um 1871 var sett á stofn hið svonefnda „Húnafióafélag", sem hafði mikla verzlun á Borðeyri, og yrði oflangt mál hér að lýsa því ýtarlega, eu geta má þess, að aldrei hefur jafnmikið fjör eða keppni verið í Borðeyrarverzlun- inni, sem á þeim árum, milli félagsins á aðra hönd en kaupmanna (‘spekúlanta’) á hina; þá komst ullarpundið á 1 kr. 33 a., og þannig hafði félagið áhrif á verðlagið

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.