Þjóðólfur - 07.05.1897, Side 2

Þjóðólfur - 07.05.1897, Side 2
90 jafnlengi í öðrum hreppi eða bæjarfélagi eða fleirum, þá hafi hann þar jafnan rétt í þeim báðum eða öllum til framfæris. Sú framfærsla, í hreppi eða bæjarfélagi til hverrar einn eða annar er nú kominn eptir hingað til gildandi reglum, skal standa eptir sem áður óhögguð. 2. gr. Gipt kona heyri til framfærsluátt- högum manns hennar og eins þá hún er ekkja orðin, þar tii hún á sama hátt öðlast aðra nýja. Skilgetin börn, yngri en 16 ára, fylgi átthögum föðursins, en óskilgetin átthög- um móðurinnar. Með þessu er þó engin breyting gerð á lögum 24. janúar 1890 um meðgjöf með óskilgetnum börnum. 3. gr. Hér með er úr lögum numin 6. gr. reglugerðar um fátækramálefnalögun og stjórn frá 8. jan. 1834 (sem lög þessi eru sett í staðinn fyrir) og opið bréf frá 6. júlí 1848. 4. gr. Lög þessi öðlast gildi 14. maí 1898. vn. Dauðu málin. Svo má nefna mál þau, sem ráðgjafa- stjórnin hefur enn á ný slegið í valinn, enda eru þessi mál vor æði berskjalda, þegar á hólminn kemur. Þessi mál eru sem kunnugt er: 1. Lagaskólamálið. 2. Um afnám dómsvalds hæstaréttar í íslenzkum málum. 3. Eptirlaunamálið. 4. Um kosning presta. 5. Kvennréttindamálið. 6. Borgaralegt hjónaband. 7. Frímerkjamálið o. fl. Stjórnarskrármálið telur maður ekki að svo stöddu i þessum flokki, á meðan ekki er útséð um, hvernig þingsályktunartil- lögunni reiðir af, eða á meðan eitthvert lífsmark kann að vera með henni. En hvað hin fyrtöldu mál snertir, þá eru þau svo alþekkt, að lítið er um þau að segja annað en það, hvort menn vilja enn á ný höggva í sama farið með þau eða ekki. Það er síður en ekki árennilegt, eða févænlegt fyrir þjóð og þing, að taka þessi mál upp aptur og aptur þing eptir þing árangurslaust, eyða svo og svo miklum tíma til þeirra af þingtimanum frá öðrum málum, sem fyrir það sama er stundum flaustrað af, láta þeirra vegna ýms önnur þarfleg málefni alveg sitja á hakanum o. s. frv.1 Yerði nú svona blátt áfram, eins og verið hefur, enn á ný höggvið í sama far- ið með þessi mál vor, þá er það auðvitað, undir núverandi kringumstæðum, alveg til einkis, nema því að eins, að menn finni það ráð til, sem máske er ekki óhugsandi að sé mögulegt, er gæti gefið manni von um einhvern árangur. Þetta er eitt af því, sem verður að koma til athugunar og um- ræðu, þegar á þingmálafundinn kemur. Gullbrúðkaup. Frá dr. jur. Krticzka v. Jaden dómara í Vínarborg hefur Þjóðólfi verið send til birtingar svolátandi skýrsla ds. 11. f. m.: „Hinn nafnkunni þýzki skáldsagnahöf- undur dr. med. Ernst Philipp Karl Lange konunglegur yfirherlæknir, kunnur með dularnafninu Philipp Galen, heldur gull- brúðkaup sitt (50 ára hjúskaparafmæli) 27. þ. m. í Potsdam hjá Berlin ásamt konu sinni Maríu (f. Körner). Galen var í mikl- um metum við hirð hins ógæfusama, sjúka krónprins, síðar keisara Friðriks 3. Gal- en, sem einnig er kallaður „hinn þýzki Walter Scott“, er á 84. aldursári og við beztu heilsu“. Úr Mosfellssveit s0j4. ’97: „ .. .. Hey- skortur er hér almennari nú en venjulega, því varla er meira en 10. hver húandi vel birgur. Orsakir til þess munu vera: rýr grasvöxtur síðastliðið sum- ar og vætutíð; utantúns slegið mest á gamalli sinu; hey hirt inn illa þur, reyndust kraptlaus og ðholl til gjafar; varð að gefa miklu meira en venjulega og fénaður þð ver haldinn. Það er líka ðvanalegt hér, að gefa þurfl sauðfé missirislangt, en nú tðku margir lömb og sumir allt fé á gjöf i síðustu viku sumars, þegar haustgarðinn gerði, og þð veturinn hafi verið frostalítill, hafa úrkomurnar og hrakviðr. in verið svo ákafleg, að minni not hafa orðið að högunum, og þurfti að gefa fé fram á sumarmál. Af því verðið var lágt í haust, hefur líklega marg. ur fargað færra en annars. Svo gerði bráðapestin viða snemma vart við sig, en varð þð óviða mjög skæð, og kann vera, að sumir hafi ætlað henni förg- un meiri en á varð raun. Lungnabólgn hefur sum. >) Vér erum hiuum háttv. höf. Öldungis ðsamdóma í þessu. Þingið þarf hvorki að flaustra neinu af eða láta neitt sitja á hakanum, þðtt það samþykki þessi mál, er höf. telur „dauð". Þingið þarf ekki og á ekki að verja neinum tíma til að ræða þau. Það hefur þegar verið gert allrækilega, og það þarf ekki alltaf að vera að tyggja upp aptur sömu um- ræðutugguna um sama efnið, ef eigi eru breytingar gerðar á frumvörpunum, sem eigi virðist nein á- stæða til, með því að stjðrnin tekur ekkert tiilit til þeirra. En að halda málum vorum til streitu gagnvart mðtþrða stjðrnarinnar, venur oss á pðli- tiska festu, og sýnir, að stjðrnin getur ekki haml- að upprisu þeirra eða kæft þau til fulls, með þvi að jarðsyngja þau nokkrum sinnum. Iiitstj. staðar komið í fé, og dregið úr því, að beitin yrði notuð. Einn af heybirgu bæudanum hefur misst um 30 úr henni, og margir færra. Flestir bændur munu hafa gefið fónaði mikið af kornmat i votur og hefur það hjálpað, þar sem byrjað var á því nógu snemma. Sumir hafa gefið kúm mjöl með fullri töðugjöf til að fá þær til að mjðlka líkt og venju- lega.....“_____________________ Faxaflóagufubáturinn „Reykjavík" frá Mandal (skipstj. Vaardahl) kom hingað 4. þ. m* og hafði komið við á Færeyjum og Fáskrúðsfirði eystra. Vonandi er, að bátur þeBSÍ reynist betur og verði happasælli en „Elín“ heitin. -s fjSkipströnd. Frakkneska Bpítalaskipið „St. Paul“, er slitnaði upp hér á höfninni 2. þ. m., er nú orðið að strandi, og sömuleiðís frakknesk fiski- skúta, er s. d. rak hér upp. Settur héraðslæknir í Vopnafjarðar- læknÍBhéraði frá 1. þ. m. kand. med. Jón Jónsson (frá Hjarðarholti). Helgi Jónsson cand. mag. hefur fengið 2700 kr. Btyrk af Karlsbergssjðði til grasfræði- rannsókna her á landi og í Færeyjum. Heyskortur er nú sagður almennur í ýms- um sveitum hér suunanlands, og einnig á Austur- landi, samkvæmt síðustu fréttum þaðan. Hér nær- lendisj mun ástandið vera einna lakast i Mosfells- sveit, svo að farið er að brydda þar á skepnufelli. Er því miður hætt við, að norðan-íhlaupið fyrri hluta þessarar viku verði auk gróðrarhnekkis skað- vænlegt fyrir fénað manna, þar sem hey voru þrot- in áður. Mannalát. Hinn 2. f. m. andaðist húsfrú Asa Egilsdóttir, kona hreppstjðra og sýslunefndar- manns Kristjáns Tómassonar á Þorbergsstöðum í Laxárdal vestur, 67 ára að aldri. Hann var þriðji maður hennar. Þau hjðn höfðu búið saman á Þor- bergsstöðum næBtum 28 ár rausnarbúi, eins og mörgum er kunnugt. — Ása sál. var merkiskona fyrir dugnað og ráðdeild, trygg og vinföst og stðð vel í stöðu sinni, sem eiginkona, móðir og hús- móðir. Af börnum hennar lifa 5. (J. O.). Hinn 18. marz andaöist húsfrú Þorbjörg Sig- fúsdóttir, kona Brynjólfs bónda Bergssonar að Ási í Follum, gðð kona og merk. sem sækir kaupmenn heim, getur fengið umboð fyrir elztu verksmiðju Danmerkur í bleki og litunarefnum til heimalitunar á ull og vaðmáli. Viðkomandi verður að útvega sér góð meðmæli. P. Itönning & Gjerlöff. Kjöbenhavu K. Með „Vestu“ hef eg fengið úrval af vönduðum ÚRUM, 8em seljast mjög ó- dýrt. Allar aðgerðir á úrum og klukkum afgreiddar fljótt og vel. Eyrarbakka 30. apríl 1897. Johannes Sveinsson _________________úrsmiður.________ Á leiðinni frá Elliðaánum til Hafnarfjarðar hef- ur 29. f. m. týnzt nýr hnakkpoki. í honum var sjóhattur og tðm flaska. Finnandi er beðinn að skila mðt borgun annaðhvort til Gunnl. Briem í Hafnaríirði eða til Guðjðns Finnssonar á Eeykjanesi.

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.