Þjóðólfur - 21.05.1897, Page 1

Þjóðólfur - 21.05.1897, Page 1
Árg. (60 arkir) kostar 4 kr. Erlendis 5 kr. — Borgiit fyrir 15. Júli. Uppaögn, bnndin yiB úramót, ógild nema komi til útgefanda tyrir 1. október. þjOðOleue. XLIX. árg. Reybjarík, föstudaginn 21. maí 1897. Nr. 25. Stækkun Þjóðólfs. Hinn 5. d. nóvembermán. næstkomandi ár (1898) verður liðin hálf öld frá því að Pjóðólfar hóf fyrst göngu sína. Hefur hann lengi ætlað sér að minnast þessa árs á einhvern hátt, og þykir vel við eiga, að láta það meðal annars vera fólgið í ríf- legri stækkun án verðhækkunar. Pað er dálítil viðurkenning frá hans hálfu fyrir þá hylli, er hann hefur ávallt notið hjá þjóðinni um svo langt tímabil. Við næstu áramót eða um leið og 50. árgangur bladsins hefst verður því sú breyt- ing gerð, að þaðan í frá kemur ÞJÓÐÓLFUR ( siærra broti en Isafold. En þrátt fyrir þessa stækkun helzt verð blaðsins óbreytt. Hinn mikli kostnaðarauki, er af þessu hlýtur að stafa fyrir útgefanda, getur eigi unnizt upp nema með allmikilli kaupenda- fjölgun og skilvísri borgun, og Pjóðólfur vantreystir engu i því efni, þótt hann fyrst um sinn heimti eigi borgun fyrirfram. Síðasta (5.) hepti Kambsránssög- unnar, er fylgir ókeypis þessum yfirstand- andi árgang Þjóðólfs, verður eigi fullprent- að fyr en síðar í sumar, með því að enn er von á nokkrnm viðaukum og athuga- semdum við söguna, er komast þurfa að í þessu síðasta hepti, er verður sent út um land í septemlermánuði til skilvísra kaupenda. Til að hnekkja Þjóðólfi þarf veglegri og veigameiri vopn en aulalegt úlfúðar- nart og smásálarlegan atvinnuróg, því að það eru „forlegin meðul“ og öldungj8 áhrifalaus. Sá spjátrungur, sem ímyndar sér, að hann geti smíðað líkkistuna að Þjóðólfi verður að hafa eitthvað annað og meira sér til ágætis, en að hafa varið Garðstyrk sínum til að vera „í læri“ hjá „Líkkistu-Rantzau11, sem nýlega kvað hafa hengt sig í Kaupmannahöfn. Kýmdu sum- ir, þá er „Viðrinið unga“ vatnaði músum við þá harmafregn. Búnaðarskólamálið. Bptir Runólf Bjarnason frá Hafrafelli. n. Á búnaðarskólunum er kennslutíminn einungis 2 ár. Á veturna njóta nemend- urnir bóklegrar tilsagnar og munu auk þess vinna ýms nauðsynleg heimilisstörf, sem jafnvel hefja litið hinn óþroskaða anda nemendanna. Á sumrin verða þeir að vinna öll störf, sem framkvæma þarf á búunum. Þetta er nú blessað og gott, munu máské einhverjir segja, en þar sem þetta eru stofnanir, sem njóta mikils fjár- styrks, bæði af almanna fé og einstakra sýslufélaga, þá er það sanngjörn krafa, að skólarnir veiti nemendunum verulega þekkingu, í þeim greinum, sem þeir þarfn- ast frekast, sem formælendur skólanna hafa þrá-faldlega tekið fram, að ætti að leggja sérstaka áherzlu á, nefnilega verJclega kunn- áttu að öllum jarðarbótastörfum. En með þeirri tilhögun, sem nú er á skólunum, veitist nemendum meiri tilsögn í bóklegu, en verklegu (theoretisku en praktisku), einmitt öfugt við það, sem vera ætti. Þar sem hlutverk skólanna er, að vekja hjá nemendunum, lifandi trú á jarðabót- unum, liggur í augum uppi, að til þess útheimtist meira en að þeim sé sagt á skólabekkjunum, að þessi og þessi jarðabót gefi svona og svona mikinn arð og að hana beri að vinna á þennan og þennan hátt, því það má ganga að því vísu, að allur fjöldi nemenda, er gjarn á að gleyma því sem á skólabekkjunum er kennt, þótt vel sé, en dæmi, sem hönd og skynjun vinnur í einu, máist trauðlega. Hér á við málshátturinn, „sjón er sögu ríkari“. Eins og hagar til hér á landi, þarf að leggja aðaláherzluna á verklegu kennsluna á búnaðarskólunura, eigi þeir að svara tilganginum. Búnaðarskólarnir eiga að ganga berserksgang að jarðabótunum, þeim *tti að vera það Ijóst, að því fyr, sem jarðabótin er gerð, þess fyr gefur hún arð. Það er löngum viðkvæðið, að til þess að bæta fyrirkomulagið á skólunum, þurfi aukið fé, en eg efast mjög um það. Á skól- unum á hagsyni og framkvœmdarsemi að blasa við sérhverjum, sem kost á að kynn- ast skólunum, því það eru kraptar sem skólarnir mega sízt án vera, og einmitt þeir kraptar, sem þjóðinni er mest þörf, að henni séu veittir. Það getur vel ver- ið, að ýmsum sýnist miklir erviðleikar á því, sakir hins langa vetrarveðurfars, að haga kennslunni á búnaðarskólunum svo, að verklega kennslan verði meiri en sú bók- lega. Við slíku er mjög auðvelt að sjá. Hefðu búnaðarskólarnir til þessa dags lagt áherzluna á verklega kunnáttu og fyrirhyggju í búskap, er eg sannfærður um, að nú gæfu ekki búfræðingarnir fyr- ir austan, sunnan og vestan, það hneyksl- anlega eptirdæmi að verða fyrstir manna heylausir. En að slíkt ráðlag hneyksli al- menning, er jafn eðlilegt og það, að óreglu- prestur hneyksli viðkomandi söfnuð. Þá er vér virðum fyrir oss háttu þjóðar- innar, eins og þeir koma fram í breytni manna, dylst víst engum heilskygnum manni, að mjög mikill hluti hennar virð- ist ssékja8t mjög eptir að lifa af verzlun, kennslustörfum og handiðnum (þótt ónyt- samar séu), af því það þykir „fínna“. En að leggja stund á framleiðsluna hrífur færra hugi. Það virðist ekki ofætlun búnaðar- skólanna, að hafa þau áhrif á hugi nem- endanna, að meiri hluti þeirra geri bún- aðinn að aðalstarfi sínu. III. Með þessu, sem að framan er sagt, eru leidd rök til þess, að því fer fjarri, að búnaðarkennslan hafi stefnt beint að því takmarki, er henni var í fyrstu ætlað, og er nú sannarlega tími kominn að hrinda henni í lag. Eg geng að því gefnu, að þrátt fyrir óhugi manna til búnaðarskól- anna yfir höfuð, hittist þó ýmsir, er halda vilja dauðahaldi í það fyrirkomulag þeirra sem nú er, sem telja það landráðum næst, að bera fram beinar uppástungur til breyt- ingar á þeim. Slika mótmælendur bið eg að gæta þess, að búnaðarskólarnir hafa verið reistir í samráði við hið umboðs- i lega vald, en ekki hið löggefanda, og standa I að því leyti völtum fótum, því, „með lög-

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.