Þjóðólfur - 21.05.1897, Side 4
100
Hvaöa baðmeðul skal brúka?
Án efa Jeyes.
Þegar eg var í Skotlandi seinast grennslaðist eg eptir hjá ýmsum bændum, hvaða baðmeðul þeir helzt brúkuðu, og komst eg
eptir, að þau meðul, sem flestir notuðu og almennt eru áiitin reynast bezt, eru
JEYES
og þar næst munu vera mest brúkuð baðmeðul verksmiðjunnar Swans. Þau hef eg áður flutt og flyt enn, og segja þeir, sem þau
hafa reynt hér á Iandj, að þau séu ágæt. Skozkir bændur virðast samt brúka meira af þeim fyrnefndu, og segja þau vera hin
ódyrustu, sem fáist.
Úr 1 gallon (47/i0 potti) má baða 80 til 100 kindur, og þar eð 1 gallon kostar að eins 4 kr., kostar að eins 4—5 aura á
kindina.
JEYES
baðmeðal er alveg óeitrað, svo engin hætta fylgir að fara með það, eins og t. d. getur átt sér stað með karbólsýru.
Reyniö þaö!
Einka-umboð fyrir ísland hefur
r
Asgeir Sigurösson,
Reykjavík.
Leirvara. Glasvara.
Með skipinu „Vaagen“ fékk eg miklar birgðir af allskonar leir- og glasvöru, svo sem:
LEIRVARA.
Skálar hvítar, margar stærðir.
Do. mislitar, — —
Mjólkurskálar með vör.
Þvottaskálar hvítar.
Do. mislitar.
Könnur, hvítar og mislitar.
Krúsir, — — —
Kaffikönnur.
Diskar grunnir, hvítir og mislitir.
Tepottar, ýmsar stærðir.
Hrákadallar.
Þvottastell, falleg og ódýr.
Tesett inndæl, 40 stykki.
Borðsett — 78 —
Sósuskálar, hvítar og mislitar.
Smjörkrukkur.
Ostakrukkur.
Smjörílát, smá og stór.
Blómsturpottar, ýmsar stærðir.
Kertastjakar.
Bollapörin fallegu og ódýru.
Eggjabikarar.
Hænur (til að geyma í egg).
Sykurkör og rjómakönnur.
og margt; margt fleira.
GLASVARA.
Kökudiskar — do. með fæti. Vatnsglös. Vínglös. Vatnsflöskur.
Sultutauskálar. Smjörílát. Krystallauf. Sykurkör og rjómakönnur.
og margt, margt fleira.
^llt mjög cfxaLSrrt.
Ásgeir Sigurðsson.
Eigandi og ábyrgðarmaður: Hanaes Þorsteinsson, cand. theol. — Félagsprentsmiðjan.