Þjóðólfur - 09.07.1897, Page 1
Árg (60 arklr) kostar 4 kr.
Erlendis 5 kr. — Borgist
fyrir 15. J41i.
Dppsögo, bnndin vlð áramót,
ógild nema komj til útgeiandi
iyrir 1. október.
Þ J 0 Ð Ó L F U E.
XLIX. árg. Reykjarík, róstndasinn 9. júlí 1897. Jír. 38 B.
Þetta aukanúmer reiknast ekki
kaupendum blaðsins.
Næsta ár verður „Þjúðúlfur“ í
miklu stærra broti. Verð óbreytt.
Þingmálafundirnir.
Pingmálafundur ísflrðinga var hald-
inn ft ísafirði 29. maí. Fundarstjöri var séra Sig-
urður Stefánsson alþm. og skrifari Skúli Thorodd-
sen. E>ar voru þessi mál rædd.
1. Stjórnarskrármálið. Eptir nokkrar umræður
samþykkt svolátandi ályktun:
„Fundurinn skorar á alþingi að halda fram
sjálfstjðrnarkröfum íslendinga í frumvarpsformi á
sem kröptugastan og hagkvæmastan hátt og láta
stjórninni það jafnframt ótvíræðlega í ljósi, að
telji stjórnin samband íslands við danska ríkið
vera því til fyrirstöðu, að íslendingar fái sjálfstjórn
í sérstaklegum málefnum sínum, þá séu íslending-
ar því samþykkir og óski, að stjórnin geri til þess
ráðstafanir, að slitið verði að öllu sambandi ís-
lands og Danmerkur á löglegan hátt.
2. Eptirlaunamálið. Um það samþykkt svoiát-
andi ályktun:
„Fundurinn skorar á alþingi að halda fram
frumvarpi undanfarinna þinga um lækkun eptir-
launa“.
3. Lœknaskipunarmálið. Eptir nokkrar um-
ræður samþykkt að:
a. „Fundurinn telur æskilegt, að læknaskipunar-
málið verði tekið til meðferðar á alþingi þannig,
að komið verði jafnari skipun á læknahéruðin en
nú er“.
b. Fundurinn skorar á alþingi að stofna engin
ný læknaembætti, er eptirlaunarétt veiti.
4. Presthoiiningarmálið. í því máli sainþ. svo-
látandi ályktun:
„Fundurinn skorar á alþingi að halda fram
frumvarpi undanfarinna þinga um koBningu
presta“.
6. Fríkirkjumalið. Eptir nokkrar umræður sam-
þykktar svohljóðandi ályktanir:
a. „Fundurinn skorar á alþingj ag j08a utan.
þjóðkirkjumenn við öll gjöld til þjóðkirkju og þjóð-
kirkjupresta.
b. Fundurínn skorar á alþingi að skipa nefnd
til að koma fram með ákveðnar tillögur un, akila-
að ríkis og kirkju“.
6. Verkmannamálið. Um það samþ.:
„Fundurinn skorar á alþingi að samþykkja
frumvarp nm greiðslu verkalauna í peningum, í
sömu áttj^eins og frumv. það, er borið var fram
á alþingi 1891“.
Þlngmálafundup Snaefellinga var hald-
inn í Stykkishólmi 21. júní. Fundarstjóri séra
Eiríkur Gíslason alþm. Fundurinn vildi láta halda
áfram stjórnarskrármálinu í frumvarpsformi, ef
j stjórnin legði ekki fyrir alþingi frumvarp, er veitti
verulegar umbætur á stjðrnarskrinni. í sam-
göngumálinu vildi fnndurinn taka þá stefnu, að
sæta tilboði danska gufnskipafélagsins með nokkr-
um skilyrðum, en fáist þau ekki, þá að halda eim-
skipaútgerð landssjóðs áfram, með haganlegra fyr-
irkomulagi en nú á sér stað, vildi einnig láta bæta
samgöngur á landi, einkum að þvi er þjóðvegi
snerti og gera aukapóstleiðina frá Arnarholti til
Stykkishólms að þjóðvegi. Þá vildi fundurinn láta
veita fé til lagningar fréttaþráðar, eins og þingið
sæi sér frekast fært, veita lán til þilskipakaupa
með 3% vöxtum gegn veði í skipunum, en eigi
heimtuð borgun fyrstu 2 árin, en lánin svo end-
urgreidd á næstu 5 árum. Toll á smjörlíki vildi
fundurinn hafa, styrkja og hlynna að landbúnað-
inum, banna með samþykktum sölu og tilbúning á-
fengra drykkja, sinna alþýðufrœðslumálinu, stofna
lagaskóla, styrkja húss- og matreiðsluskóla, lækka
eptirlaun embættismanna, halda áfram prestkosn-
ingalögum þannig, að allir umsækjendur séu í kjöri,
og aðhyllast frv. stjórnarinnar um lœknaskipunina,
þó þannig, að meðaltal launaupphæðanna verði að-
ains 1600 kr.
Seyðisfirði 22. júni: „Þegar áfellið mikla,
sem gerði hér i byrjun f. m., var um garð
gengið, varð tíðarfar hið bezta fram undir hvíta-
sunnu, sólskiu og sumarblíða nálega á hverjum degi,
en þá gekk aptur í norðankuldahret, og hefur síðan
verið mesta ótíð, sífelldir norðanstormar, dimmviðri
og úrkoma mikil, ýmist regn eða snjór, stundum
snjóað niður undir byggð, og hlaðið niður fönn á
fjöllum og færð þvi hin versta á fjallvegum. Von-
andi, að tíðarfar breytist til batnaðar núna upp
úr sólstöðunum.
Fiskafli hefur verið sáralítill allan þennan illviðra
tíma, enda mjög sjaldan gefið að róa, en fyrir
hretið var hér mæta góður afli um tímann, sem
góðviðrið hélzt.
Skepnuhöld sögð mjög slæm víða á Héraði.
„ Vesta" kom hingað að kvöldi 13. þ. m. og „Eg-
ill“ morguninn eptir, sunnan um land. Hafði
„Vesta“ farið djúpleið og hreppt ofviðri mikið og
stórsjó, sem um haust væri, en „Egill“ skreið rocð
laadi fram, alveg upp í landssteinum, og sóttist
þar ferðin vel í smásæfinu. — Um 300 Sunnlend-
ingar komu nú hingað austur með „Agli“, og mun
þá alls komið um 800 hingað austur í sumar.
„Egill“ og „Brimnæs“ komu hingað í gærkvöldi
að norðan aftur; hafði eigi, sem betur fer, orðið
vart við neinn ís á þeirri leið.
Hval, fertugan, tundu Færeyingar, sem voru i
fiskiróðri, nýlega á Vopnafirði; reru þeir hvalinn
inn á höfn og seldu hann að sögn fyrir 500 kr.
Part af stórum hval rak og nýlega á land á
Bakka í Norðttrði.
Maður drukknaði 15. þ. m., Guðjón að nafni
Jónsson, nýkominn að sunnan. Var við annan
mann að flytja salt í land úr skipi, er lá við Þór-
arinsstaðaeyrar; höfðu þeir of hlaðið bátinn, svo hann
sökk, örskammt frá landi. Hinum manninum varð
bjargað; hafði hann, að sögn, flotið eða getað hald-
ið sér uppi á austurtroginu.
Biskupinn hefur beðið oss að prenta það,
sem hér fer á eptir:
Herra ritstjóri „Þjóðólfs".
í ítarlegri grein yðar um synodus í síðasta blaði
„Þjóðólfs“ eru 2 atriði, sem eg vil mælast til leið-
réttingar á.
í stað orðanna : „tók biskup að sér að flytja
mál þetta inn á þing“ (málið um innheimtu á
tekjum presta), hefði verið réttara að rita: „fól
fundurinn biskupi að flytja mál þetta inn á þing“;
þvi það er i umboði synodusar, að eg flyt málið,
en ekki af eigin hvöt.
í annan stað stendur i greininni: „Bæði biskup
og sumir prestarnir höfðu öðrum hnöppum að hneppa
daginn eptir, en að sitja á synodus og ræða kirkju-
mál o. sv. frv.“. Þessi ummæli kynnu margir að
skilja svo, að eg hafi verið ófáanlegur eða að
minnsta ófús á að halda fundinum áfram næsta dag,
og skotið kirkjumálum frá mér, vegna annarlogra
starfa. En þetta er eigi svo; eg bauð fundarhald
daginn eptir bæði kl. 2 og kl. 6, ef menn óskuðu
þess, og eins fyrri hluta dags, og að eg skyldi mæta
á fundinum kl. 2 og kl. 6, en ef menn óskuðu
fundarhalds fyr á degi, skyldi eg fela öðrum manni
að mæta mín vegna, því að þá væri eg bundinn
öðru starfi, sem þó væri andlegs eðlis. Eg hafði
nefnilega lofað, að halda húskveðju við jarðarför,
sem ákveðin var daginn fyrir synodus, en sem
vegna óvæntra atvika varð að fresta um 2 daga.
Eg hafði einmitt sett fundinn 29. júní, til þess
að geta haldið honum átram næsta dag, ef á þyrfti
að halda, án þess að ríða i bága við alþingissetn-
ingu. Það var því ekki nein tálmun frá minni
hálfu fyrir áframhaldi tundarins, heldur hitt, að
ýmsir prestar höfðu tæpan tíma og engin fleiri
mál lágu fyrir til umræðu, sem nauðsyn þótti að
ræða á þessum fundi.
Yirðingarfyllst
Rallgr. Sveinsson.
* * *
Víð þetta er ekkert að athuga. Það er að eins
nánari skýring á ummælum vorum, en engin leið-
rétting, eins og allir sjá. Ritstj.
Arfur. Vér viijum vekja eptirtekt
lesenda vorra á auglýsingunni hér aptar
í blaðinu um innköllun skiptaráðandans í
Varðey í Noregi til erfingja tveggja ís-
lenzkra fiskimanna, Jóns Ólafssonar og
Felix Felixsonar. Erfingjar þessara manna
verða að vinda sem bráðastan bug að því
að senda kröfur sínar til þessa skipta-
ráðanda.