Þjóðólfur - 30.11.1897, Page 3

Þjóðólfur - 30.11.1897, Page 3
225 Fjársalan til Frakklands og Belgíu, er þeir ZöIIner & Vídalín kafa stað- ið iyrir, hefur að aögn gengið afarilla, og verða víst sauðaeigendur fyrir stórtjóni af þeirri sölu. Mun því eigi tiltök, að hugsa um markað á ísleiizku fé í þeim löndam eptirleiðis. Eiaum sauðfjárfarm eða ineiru, var slátrað í höfn á Englandi (Liverpool), og hafði sala kjötsins þar gengið allvel að sagt cr. Um þingrof heyrist hvorkí stun né hósti frá stjórninni, og er því áreiðanlegt, að eigi varðar þing að sumri. En þingið getur orðið leyst upp og boðað til nýrra kosidnga, t. d. að vori komandi, og þá kcmur hið nýkosna alþing saman 1899, því að þá er konungur leysir upp alþingi samkv. 8. gr. stjómarskrárinnar, á að stefaa því sarnan næsta ár eptir að það er ieyst upp. Ef konungur leysir upp þingið að Vori, fara nýjar kosningar fram áður en 2 mánuðir oru liðnir trá þingrofinu, en aukaþing verður þá ekkert það ár, heldur reglulegt alþingi 1899, skipað nýjum mönnum. Eu hvort nýjar kosningar fara fraín næsta ár, er harla óvíst. Dr. Val- týr rær auðvitað að því öllum árum, og hann hefði helzt viljað láta rjúfa þingið nú þegar, og kosningar fara fram um há- vetur, til þess að íá þing að sumri, en það heíur eigi tekizt, og er það leitt í sjálfu sér, því að það væri nógu fróðlegt að víta sem fyrst, hversu mörg kjördæmi landsius láta leiða sig á bekk með dokt- ornum, og rétta honum hjálparhönd til þess að kippa valdinu úr landinu út yfir pollinn. Embættaveitingar. Húnavatnssýsla er veitt settum sýslumanni þar Oísla Isleifssyni frá 1. þ. m. og Skagafjarðar- sýsla einnig frá s. d. settum sýslumanni þar Eggert Briem. Gfufnskipaferðir 1898 verða alls 18 á árinu raillum Kaupm.hafnar og íslands, samkvæmt ferðaáætlun, er nú kom með póstskipinu frá hinu sameinaða gufuskipa- félagi... Skipiu verða 3 í förum, „Laura“, „Thyra“ og „Vesta“, og ennfremur eitt- hvert aukaskip eina ferð. Að eins í 2 bein- nm ferðum milli Kaupm.hafnar 0g Reykja- vikur koma' skipin eigi við á Færeyjum, og eigi heldur í 2 strandferðum frá Kaup- manuahöfn til Austurlandsins. Það eru því 14 ferðir, sem Færeyingarnir fá, svo að þeir eru ekki afskiptir. Komudagar skipanna í Reykjavík eru 28. janúar, 17. marz, 28. marz (strandferð), 26. apríl, 5. maí, 1. júní (strandferð), 6. júni, 29. júní (strandferð, 3. júlí, 20. júlí, 25. júlí (strandferð, 6. ágúat, 28. ágúst, 20. sept., 8. okt. (strandferð), 9. okt., 31. okt. (strand- ferð), 26. nóv. Strandferðir verða því 6 frá Kanpm.höfn til Austurlandsina og norð- ur um land til Reykjavíkur, en 7 frá Reykjavík vestur og norður um iand (burtfarardagar frá Rvik 4. apríi, 5. júní, 2. júlí, 30. júlí, 13. ágúst, 31. ágúst og 15. okt.). Auk þess eru 5 ferðir frá Reykjavík til ísafjarðar og hafua á Vest- uriandi, hin fyrsta 2. febr. (í miðsvetrar- ferðinni) og hin siðasta 12. okt Gufuskipið „Merkur“ kom hingað af Vestfjörðam í fyrra dag. Fjárlögin 1898 og 1899 eru nú sam- þykkt af konungi. Ádrepa til biaðamanna og þingmanna. (Bréfhafli úr Dalasýslu 3. nóv.). Eg hlakka æfinlega til að fá blöðin, en þó eink- um um þingtímann, því að eg hngsa dálítið nm stjðrnarskrármálið o. fl. landsmál, og það gera iíka fjölda margir aðrir alþýðumenn, sem ég þekki, þótt þið blaðstjórarnir haldið og Begið í blöðunutn, að alþýðan sé hugsunarlaus og viljalaus bæði í stjðrn- arskrármólinu og öðrum velferðarmálum landsins. Detta segið þið undantekningarlaust. Og fyrir þenuan dðm ykkar, þennan lygaþvætting, viijið þið svo hafa peninga hjá alþýðn, og fáið þá — því miður. Það er ekki spánnýtt, þótt tilfinningar al- þýðu séu særðar; það er farið með alþýðu rnanna, eins og væri hún tilfinningarlaus hlutur. Það sanna er, að alþýðan verður að hafa allt, sem á hanaerlagt; það er sú mara, sem á henni liggur að eilífu. Hvaðgeturalþýðangertílandsmálum annaðen trúað fnlltrúum sínum—þingmönnunum — til þess að flytja þau mál, sem þeir á þingmálafundum og kjörfundum lofa hátíðlega að flytja og mæla með? Það vantar ekki, að þessir fulltrúar tali fagurt á nefndum fundum og lofi öllu fögru, en efna það sem þeir lofa opt miður, sumir hverjir, þegar á al- þing er komið. Þá fara þeir með málin alveg eptir eigin vild, og segja svo, að það sé vilji og ósk alþýðunnar — kjðsenda sinna —, þð það sé þvert á móti hennar vilja. Þetta er hægt að sanna. Alþýðumenn vita ofurvel, að þessu er þannig var- ið, en þegja af þvi, að allur fjöldinn er ekki nógu ritfær til þess að andæfa þessum ðsóma. Það voru einhverjir á þingi í sumar, er sögðn, að það væri vilji alþýðunnar, að Valtýs-frumvarpið væri sam- þykkt. Þð hafði enginn lifandi maður heyrt þessa frumvarps getið fyrir þing. — Að því er stjórnar- skrárharáttuna snertir, er þetta siðasta alþingi eitt- hvert hið versta, er haldið hetur verið. Menn eru hér almennt ákaflega óánægðir með gerðir þings- ins, einkum i stjórnarskrármálinu. Blöðin hér á landi eru orðin alit of mörg, svo að það nær engri átt, að þau geti þrifizt öll hjá oss, fátækri og fámennri þjóð. Þessi nýjustu blöð ætti helzt enginn maður at kaupa, þvi að þau taka ekki hinum eldri fram. * * * Ádrepa þessi, sem rituð er af greindum aiþýðu- manni, er svo harðvítuglega skrifuð og hispurslaus, að vér hikum oss ekki við að birta hana, enda j þótt hún sé dálítið ósanngjörn í garð blaðanna. Satt er það að visu, að hlöðin neyðast opt til að víkja harðari orðum að alþýðu manaa yfirloitt, | heldur en hún ef til vill á skilið. Þá er talað er um doyfð og áhugaleysi alþýðunnar, t. d. í almenn- nm málum, þá er það meðíram gert til að knýja hana til frekari umhugsunar, fá haaa til að hrista af sér mékið og drungann, svo að hún láti eitt- hvað á sér bera, verði skarpari á skeiðinu en hún er, því að ekki tjáir að neita því, að betur mætti ef vel væri. „Hvern drottinn elskar, þann agar hann“, og þótt oss komi ekki til hugar, að bera blaðamennina saman við guð almáttugan, þá mun það vera aðaltilgangur allra samvizkummra biaða- manna með ádeilugreinum sínum, að iaga þær misfellur, er hvarvetna eiga sér stað meðal allra stétta, eigi síður á Islandi en annarsstaðar. En því verður ekki neitað, að það má skrifa svo kulda- lega og hrottalega, að særðar séu tilfinningar manna ófyrirsynju með öfgum og rangsleitni eða lognum dæinum, en slíkan rithátt er greindum al- þýðumönnum ætlandi að skilja rétt, og geta gert | greinarmun á því, hvort ritað or af ilivilja að eins til að smána, eða af vandlætingasemi og góðum hvötum, að eins til að brýna fólkið til meiri áhuga, dugnaðar og drengskapar. En höf. sker ailt niður við sama trogið, og kaUar það blátt áfrarn „lyga- þvætting“, er biöðin segja um áhugaleysi alþýð- unnar i stjérnarskrármálinu o. fl. Hann er ekk- ert að klipa utan aí því, kari sá. Betur, að satt væri það, sem hann segir, þvi að vér vildum gjarnan ðska, að áhugi mauna í stjórnarskrár- rnálinu og öðrum málum væri jafn brennandi al- mennt, eins og hann gefur í skyn. En þvi er nú ver og miður, að svo muu eigi. En það er auð- heyrt, að höfundurinn er áhugamaður raikiU í landsmálum, því að annars muudi hann eigi skrifa svona djarft. Hins vegar hefnr hann alveg rétt að mæla í því, að þingmenn gátu ekki vitnað til viija alþýðunnar, að því er snerti Yaitýs- frumvarpið í sumar, og trúað getum vér því, að Valtýskan hafi ekki fylgi manna, hvorki í Dölum vestra né annarsstaðar. Ritfærir alþýðumenn hér á landi ættn að birta skoðanir sinar í blöðunum optar en þeir gera. Það er engin ástæða fyrir þá til að satja ljós sitt undir mælikor, ef þeir hafa eitthvað að segja, sem getur orðið öðrum til upphvatniugai og eptir- hreytni. Þjóðólfnr er að minnsta kosti ekki svo ö- frjáislyndur, að hann visi öllu á bug, sem hefur eitthvert „alþýðlegt snið“ á sér, þvi að hann ann hverri djarfmannlegri hugsun, hvaðan sem hún er sprottin, og virðir góðan vilja og einiægan áhuga, þótt haun sjái, að kraptarnir samsvari eigi fullkomlega viljanum. Ritstj. Harðfiskur, saltfiskur og allskonar tros fæst í yerzlun Sturlu Jónssonar. D'aríl allskonar nýkominn í vcrzlun Sturlu Jónssonar.

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.