Þjóðólfur - 04.02.1898, Page 4

Þjóðólfur - 04.02.1898, Page 4
28 Nýjar vörur með ,Laura‘ til Jurtapottar af ýmsum stærðum komu nú með „Laura" til verzlunar Sturlu Jónssonar. verzlunarinnar ,EDINBORG‘. Fataefni og tilbúinn fatnaður fæst bezt- ur og ódýrastur í verzlun Sturlu Jónssonar. V efnaðarvörudeild: Silfursilkið' orðlagða Hvít léreft margskonar Hv. og misl. vasaklútar Gólfvaxdúkur Tvististauin breiðu Fataefni handa körluro Höfuðsjöl — Vetrarsjöl Moleskinn (buxnaefni handa þeim, sem eru við grjótvinnu). Kvennregnhlifar. Regnkápurnar þekktu handa konum og körlum. Flókahúfur. Myndarammar og margt fleira. N ýlendu vörudei I d Chocolade: Blok- Husholdnings- ísafold — Járnstipti — Rörsöm Kapskór Eldspítur Eldspíturnar þægilegu Sardínur Skósverta Stangasápa Fry’s Cocoa. Appelsínur og Epli Fiskhnífar Teið ágæta á 1.50. Pakkhúsdeild: Prjónavélar Eiskilínur 4 'B? Segldúkur Nr. 1, 2, 3, 4, 5 Baunir klofnar —3 ® Manilla 1—4 Bankabygg —21(2 ® — „— tjargaður 1 '/2—4 Maismjöl —2 ® Netagrarn ágætt Knúsað bygg. —„— U/2 ÍB Kaffi, Kandís, Melis, Púðursykur, Export, Jarðepli, Blý. og margt, margt fleira. Ásgeir Sigurðsson. Farfi allskonar, kítti, rúðugler gott og í stórum skífum, Fernis- og Terpentínolía ný- komið með „Laura" í verzlun Sturlu Jónssonar. Kartöflur, Laukur, Syltetau, Sardínur, Kjöt, Ananas, nýkomið í verzlun. Sturlu Jónssonar. Hattar, Húfur, Waterproof-Kápur, Regn- hlífar og m. fl. nýkomið í verzlun Sturlu Jónssonar. Fyrirlestur um adventista fstutt yfiriit yfir trúaratriði þeirra) verður haldinn í Iðnaðarmannahúsinu á sunnu- dag kl. 2 síðdegis. Inngangur ókeypis. D. Ostlund. Hús til sölu við Vesturgötu í Rvík., vel byggt, og vandað. Því fylgir kálgarður og pakk- hús. Húsið er innréttað fyrir tvær fa'milíur. Tvö eldhús útaf fyrir sig, 2 herbergi niðri og 2 her- bergi á lopti fyrir hvora familíu. Góðir borg- unarskilmálar. Semja skal sem fyrst við Helga Teitsson, (hafnsögumann). Kol Og^steinolía fást bezt og ódýr- ust hjá Ásgeir Sigurðssyni. Eigandi og ábyrgðarmaður: Hannes Þorsteinsson, cand. theol. Prentsmiðja Dagskrár. 2Ó ekki einungis taka peningana með valdi, heldur einnig líf yðar þar á ofan. Er það ekki satt, Dick?« Dick tautaði nokkur óskiljanleg orð og settist ofan á hlaða af járnbrautarteinum, sem var þar rétt hjá. Meg hafði aldrei dottið í hug, að nokkrum mundi þykja það svara kostnaði að brjótast inn í brautarstöðvarhúsið, en á meðan Kulp var að tala, minntist hún þess, að í húsinu voru miklu mciri peningar en nokkru sinni áður og hún efaðist ekki um, að Dick vissi af hinum tíðu komum sínum, að faöir hennar væri vanur að geyma peningakassann í svefnherbergi sínu. Þegar- Kulp var búinn að tala, andvarpaði hún þunglega yfir svikum elskhuga síns og hún varð nærri agndofa af hryggð, en nú var ekki tími til að hugsa um það; það varð þegar í stað að taka til einhverra ráða — hversvegna hafði faðir hennar ekki komið heim, ef hann væri ekki sjúkur, eins og menn þessir höfðu látið í veðri vaka — svona seint hafði hann aldrei verið úti áður — ætli þeir hafi myrt hann — — — — Er hún var í þessum hugleiðingum kallaði Kulp upp til hennar með óþýðri röddu: »Jæja, stúlka, hvað/ertu að gera, heldnr þú, að við getum staðið hcr og beðið í alla nótt?" „Ó, Dick“, kallaði hún út um gluggann, án þess að skipta sér af Kulp, »vertu miskunsamur og segðu mér, hvað er orðið um hann föður minn«. Dick stóð upp, eins og hann ætlaði að svara, en Kulp hindraði hann og sagði: „Honum föður þínum hefur verið komið svo fyrir, að hann ekki ónáði neinn, eins og eg hefi áður sagt þér, en svaraðu okkur nú þegar, viltu láta okkur fá peningana með góðu eða ekki?" »Nei, og þúsund sinnum nei«, kallaði Meg með ákafa: — 27 »Bleyðurnar ykkar, komið og takið þá, ef þið þorið!« Um leið og hún sagði þetta lokaði hún glugganum snögglega til þess að gefa til kynna, að hún ætti ekki við neina frekari samninga. Hugsunin um, að faðir hennar væri særður og ef til vill myrtur á einhverjum'afskekktum stað, gerði hana næstumkæru- lausa um hættu þá, sem hún sjálf var í. Sú spurning, sem hún lagði fyrst fyrir sjálfa sig var, hverjar vamir hún hefði, en hún hafði naumast nokkrar. Hurðum og gluggum niðri var að vísu lokað, en hún vissi, að það mundi ekki lengi standast gegn kröptum þessara tveggja manna, ef þeir ætluðu að brjótast inn. Henni datt þó í hug, að hún gæti ef til vill reynt að hlaða fyrir dyrnar neðan undir stiganum, sem lá inn .í eldhúsið. Ljósið var enn í herbergi föður hennar og þegar hún kom þang- að inn til þess að sækja það, kom hún auga á peningakassann, sem var orsök alls þessa. Lykill föður hennar lá þar hjá og poki, sem í voru silfur- og koparpeningar, sem hann hafði tek- ið á móti um daginn. Þegar hún leit þetta, datt henni skyndi- lega ráð í hug; hún opnaði kassann, tók út úr honum poka, sem í var öll sú upphæð, sem faðir hennar hafði tekið við í seðlum og gulli og lét hann inn á brjóst sér. Síðan tók liún hinn pokann með silfur- og koparpeningunum, lét hann í kass- ann og lét lykilinn undir sængina. Það sem hún því næst gerði var að bera stóla og önnur húsgögn fyrir hurðina neðan undir stiganum, eins' vel og hún gat og eptir því sem hún hafði krapta til; hún sá, að á fáum mínútum mætti ónýta þetta allt saman, en eins og á stóð fyrir henni var hvert augnablik dýrmætt, af því að hin eina von um frelsun var sú, að teygja tímann, þangað til hjálp kæmi á einhvern hátt. Uti fyrir var allt kyrrt. Skyldi það vera mögulegt, að þeir mundu fara í burtu án þess að reyna að brjótast inn? Af

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.