Þjóðólfur - 13.05.1898, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 13.05.1898, Blaðsíða 1
ÞJOÐOLFUR. 50. árg. Reykjavík, föstudaginn 13. maí 1898. Nr. 23. ÞINGVALLAFUNDARBOÐ. Með því að svo má gera ráð fyrir, að á næstkomandi sumri, eigi síðar en 20. dag ágústmánaðar, verði búið að byggja hús það á Þingvelli, er styrkur er veittur til í núgild- andi fjárlögum, fyrir þjóðlegar samkomur og erlenda ferðamenn, þá viljum vér undirritað- ir leyfa oss að skora á hin einstöku kjör- dæmi landsins að kjósa og senda þangað fulltrúa, einn eður tvo, eins og ákveðið er um þjóðkjörna alþingismenn. Tilgang fundarins höfum vér hugsað oss þann að ræða mest um-varðandi almenn þjóðmálefni, sér í lagi stjórnarskipunarmál- ið, en tengja þar við jafnframt þjóðminn- ingarsamkomu fyrir land allt með svipuðu fyrirkomulagi og gert var í Reykjavík síð- astliðið sumar. Vér fulltreystum því, íslendingar, að þér munuð gefa þessari áskorun því ræki- legri gaum, sem þér munuð finna til þess, eins og vér, að aldrei hefur verið brýnni ástæða til þess, en nú, að sameina beztu krapta fósturjarðarinnar henni sjálfri til vegs og frama. Fundurinn verður settur fyrnefndan dag, 20. ágústm. á hádegi. Ritað í aprílmánuði i8g8. B. Sveinsson. Sigurður Gunnarsson Kl. Jónsson. Jón Jónsson. þm. Eyfirðinga. Pétur Jónsson. * * * Til skýringar þessu fundarboði skal það tekið fram, að það er tilætlun vor fxndarboð- enda, að allir kjósendur í hverjum hreppi hinna ýmsu kjördæma landsins, eða því sem næst, eigi fund með sér fyrir torgöngu beztu manna, að þeir á þeim fundi kjósi kjörmenn, I fyrir hverja io kjósendur eptir hinum gildandi kjörskrám, að þeir kjósendur, sem mæta, verði nafngreindir í fundargerðunum a sama hátt sem í kjörskránum, og að allir kjörmenn hreppanna, að því búnu, komi sam- an á einn fund, og kjósi þar fulltrúa til Þing- vallafundarins i eða 2, eptir því sem alþing- ismennirnir eru. Það segir sig sjálft, að al- þingismennirnir éru ekki kjörgengir, hvorki sem kjörmenn, né Þingvallafundarfulltrúar. Pundarboðendurnir. * * * * * * * * * Það dylst víst engum, að aldrei hefur verið brýnni þörf á öflugum Þingvallafundi, en einmitt nú, enda má ganga að því vísu, að fundarboðinu verði í þetta skipti rækilega sinnt, svo að dálítill veigur geti orðið í alls- herjarsamkomu þessari. Hin frámunalega sundrung, er einstakir menn hafa vakið í sjálfstjórnarmáli voru er svo hraparleg, að þjóðinni verður að gefast kostur á að lýsa yfir vilja sínum í þessu máli, og það verður bezt gert á þann hátt, er fundarboðendur hafa tekið fram, að hver hreppur velji fyrst kjörmenn, I af hverjum io kjósendum á kjörskrá og þeir kjörmenn velji svo aptur á almennum fundi í kjördæminu I eða 2 fulltrúa á Þingvallafund eptir tölu alþingis- manna í hverju einstöku kjördæmi. Þettaer hin vissasta og haganlegasta aðferð, sem verið getur, til þess að glöggur og áreiðanlegur þjóðarvilji geti komiðí ljós á Þingvallafundi, því að sjálfsögðu verða hrepparnir að gefa kjörmönnutn sínum greinilegar vísbendingar eða umboð til að fara eptir við valið á fulltrúunum síðar. Nú skiptir það miklu, að engir hreppar eða engin sýsla landsins að minnsta kosti skerist úr leik í þessuefni. Öllum flokkum, sem nú eru uppi í stjórnarskrármálinu ætti að vera það áhugamál að komast eptir því hjá þjóðinni, hvernig hún lítur á þessar deil- ur. Allir flokkarnir standa jafnt að vígi á þessum allsherjarfundi, svo að ósennilegt er, að nokkur verði til þess að reyna að sporna gegn þessu fundarhaldi, enda mundi það verða tilgangslaust, því að þjóðinni hlýtur að vera það ljóst, að eina ráðið til að brjóta á bak aptur hinn ógeðslega og háskalega hringlanda í sjálfstjórnarmáli voru er það, að taka fyrir kverkat honum með ótvíræðum á- lyktunum á Þingvallafundi, er hefur allan þorra þjóðarinnar að bakhjalli, svo áþreifan- lega sem unnt er, þá er allir fulltrúarnir verða kosnir með tvöföldum kosningum. Að svo mæltu óskum vér og vonum, að allir hinir beztu menn í hverju sveitarfélagi á landinu sýni nú rögg af sér og styðji drengilega að því, að þessi fyrirhugaði Þing- vallafundur verði landinu til sæmdar og þjóð- inni til vegs, að hann verði ceglulegur þjóð- fundur í orðsins sönnu og beztu merkingu, því að nú eru alvarlegir og þýðingarmiklir tímar. Nú má ekkert kjördæmi draga sig í hlé. Þau verða öll að hafa atkvæði á þessum fundi, svo að hann geti orðið veglegri og tilkomumeiri, en Þingvallafundir þeir, er hing- að til hafa verið haldnir. Það er helg skylda vor að gæta þess, að hinn síðasti almenni þjóðfundur, er líklega verður haldinn á þess- ari öld hér á landi, verði eigi þjóð vorri til vansa og minnkunar, heldur sýni það áþreif- anlega, að það sé almennur vilji þjóðarinnar að fagna nýju öldinni með nýju fjöri og nýjum áhuga, með sameiningu og samvinnu allra hinna beztu krapta, sem ein er heillvæn- lqgust til sigurs, fyr eða síðar. Styðjið því allir að því, landar góðir, að gera Þingvallafund þennan sem allra veglegastan ogtilkomumestan. Ogmunið eptir því að kjósa þá menn sem kjörmenn eða fulltrúa, er þér getið fyllilega treyst, og yður er sómi að. Ritstj. Frjálsa kirkjan o. fl. Eptir séra Jóhannes L. L. Jóhannsson. III. Mörgum andstæðingum fríkirkjunnar geðj- ast eigi að því, að hinu núverandi fyrirkomu- lagi er kennt um ýmsa af göllum á kirkju- lífi voru, en eg fæ þó eigi betur séð, en kenna megi fyrirkomulaginu um margt. Það er auðséð, að hinum heita áhugamanni krist- indómsmálsins, séra Jóni Helgasyni, líkar eigi skoðun þeirra manna, sem kenna vilja útbún- aðinum um gangleysi hins íslenzka kirkju- ríkis, heldur vill hann (í grein sinni á móti séra Þorkeli), kenna ræðumönnum (o: prest- unum) um gangleysið, og hann heldur að allt gangi vel vilji þeir að eins gera skyldu sína; hér mun nú nokkur ókunnugleiki á málinu eiga sér stað. En allir menn vita þó, að þeim skipsútgerðarmanni, sem hefur ónýtar árar, rifin segl og önnur áhöld í ó- standi á skipi sínu, muni ganga illa að fá góða háseta og þótt hann, sem eigi er trú- legt, kunni að fá gagnsmenn, sem gera skyldu sína, þá njóta þeir sín ekki vegna útbúnaðarins. Eg held einmitt, að útbúnaðurinn á íslenzka ríkiskirkjuskipinu sé svo bágur, að eigi sé hægt að fá góða ræðara á það og því eigi heldurhægt um vik að beita því vel upp í vindinn, þótt ræðararnir væru góðir menn, er gegna skyldu sinni. Með þeim launakjörum, sem ríkið býð- ur prestunum á þessu landi, er eigi von að margir sem eiga kost á öðru skárra sækist eptir prestsstöðunni, heldur taki annað líf- vænlegra fyrir. Menn geta verið kristnir fyrir því, þótt þeir eigi að þarflausu gerist píslarvottar. Auðvitað hafa eigi hæstlaunuðu' prestarnir ávallt verið nýtastir starfsmenn kirkjunnar, en þeir sem lökustu kjörin höfðu hafa líka sjaldnast verið hennar gagnlegustu starfsmenn. Væri þeir nýtastir, sem verst hafa kjörin, þá ættu menn að halda því fram, að réttast væri að fara sem verst með prestana, en slíka fjarstæðu kemur liklega enginn með í alvöru, því tímanlegur hagur og kjör hafa óneitanlega mikið að segja, meðan lifað er í þessum heimi. Væri frí- kirkjan innleidd býst eg við, að kjör presta skánuðu eða svo hefur það gengið f fríkirkjunum erlendis og þótt launin hækk- uðu ekkert, væri mikið unnið við að fá þau í peningum á vissum tímum; við það yrði niðurstaðan álitlegri og miklu meira aðlað- andi en nú fyrir hæfileikamenn. Eg vona, að enginn haldi að eg með þessu álíti það höfuðerindi manna inn í prestsskapinn, eða nokkra stöðu, að hirða tekjurnar, því það er fjarri mér, heldur er með þessu haldið fram þeim sannleik, að prestarnir, eins og annað fólk hafa mannlegar þarfir og þurfa sem aðr-. ir menn að geta lifað af vinnu sinni. Að látast eigi vilja heyra þetta getur eigi ann- að, en verið öllum skaðlegt, því sannleikur- inn knýr á með valdi að lokum. —

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.